Morgunblaðið - 25.04.1984, Blaðsíða 48
Opid alla daga frá
kl. 11.45-23.30.
J^xlkonmn
AUSTURSTR/ETI22,
INNSTR/ETI,
SÍMI 11633.
Opið öll Hmmtudags-. löstu-
dags-, laugardags- og sunnu-
dagskvötd.
AUSTURSTRÆTI 22,
(INNSTRÆTI)
SÍMI 11340.
MIÐVIKUDAGUR 25. APRÍL 1984
VERÐ I LAUSASOLU 20 KR.
Ríkisstjórnin um kakómjólk, Mangó og Jóga:
Fjórir ráðherr-
ar í sáttanefnd
FJÖGURRA ráðherra nefnd var í gær
skipuð af ríkisstjórninni til aö reyna
til fullnustu aö ná samkomulagi í
deilu stjórnarliða vegna ákvöröunar
fjármálaráöherra þess efnis að inn-
heimta vörugjald og söluskatt á
Kærir lög-
reglustjóra
og forstjóra
Fríhafnar
KRISTJÁN Pétursson, deildar-
stjóri í tollgæslunni á Keflavíkur-
flugvelli, hefur lagt fram formlega
kæru á hendur Guðmundi Karli
Jónssyni, forstjóra Frfhafnarinn-
ar, og Þorgeiri l»orsteinssyni, lög-
regiustjóra á Keflavíkurflugvelli,
vegna sölu áfengs öls til feröa-
manna í Fríhöfninni á Keflavíkur-
flugvelli. Kærir Kristján Guö-
mund fyrir sölu ölsins, en Þorgeir
fyrir aö láta sölu þess viðgangast
án þess að aöhafast nokkuö.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins grundvallar Kristján
kæru sína á því, að heimild til
sölu sterks öls í Fríhöfninni eigi
sér enga stoð í lögum. Vitnar
hann í kæru sinni m.a. til grein-
ar sem Sigurður Líndal, laga-
prófessor, skrifaði um sölu
sterks öls til ferðamanna. Sala
þess hófst árið 1980. Kemst Sig-
urður m.a. að þeirri niðurstöðu í
grein sinni, að sala áfengs öls til
ferðamanna sé óheimil skv. lög-
um.
Embætti forstjóra Fríhafnar-
innar og lögreglustjórans á
Keflavíkurflugvelli heyra undir
varnarmáladeild utanríkisráðu-
neytisins. Sverrir Haukur
Gunnlaugssonar, sendifulltrúi í
varnarmáladeildinni, sagðist í
samtali við blm. Mbl. í gær-
kvöldi ekkert geta sagt um kæru
þessa, hún bærist sér líkast til
ekki fyrr en í dag.
drykkjunum kókómjólk, Jóga og
Mangó-Sopa. Á dagskrá neðri deildar
Alþingis í dag eru tvö frumvörp fram-
sóknarmanna þess efnis að Alþingi
hnekki ákvörðun fjármálaráðherra
hér að lútandi.
t nefndinni eiga sæti forsætis-
ráðherra, fjármálaráðherra, land-
búnaðarráðherra og viðskiptaráð-
herra. Ráðherrar þurftu að fara
snemma af þingflokksfundum í
gær, þar sem fundur í áðurgreindri
fjögurramannanefnd var boðaður
kl. 18, en í þingflokkunum voru
ráðstafanir í rikisfjármálum til
umfjöllunar. Forsætisráðherra
sagði eftir nefndarfundinn í gær-
kvöldi, að það væri von sín að unnt
yrði að leysa þetta mál í ráðherra-
nefndinni, þannig að ekki þyrfti að
koma til kasta Aiþingis. Hann sagði
ennfremur, að í gær hefðu borist
nýjar upplýsingar frá framleiðenda
drykkjarvaranna um verðmyndun
þeirra og yrði það væntanlega til
hjálpar. Að öðru leyti vildi hann
ekki tjá sig um málið.
Peningaskápurinn — fyrst var skápurinn logskorinn og síðan spcnntur upp
með stórvirkum áhöldum.
MorRunblaÓið/Kjartan Aðalsteinsson
Skrifstofa KHB á Seyðisfirði:
Brotist inn í þriðja
sinn á fímm árum
Þjófurinn greip í tómt, því allt fé hafði verið fjarlægt í Ijósi fenginnar reynslu
Bflnúmeralaust
í Reykjavík
ENGIN R-númer var að fá hjá Bif-
reiðaeftirliti Ríkisins í Reykjavík í gær
og heldur ekki á miðvikudag fyrir
páska. Varð fjöldi manna, sem ætlaði
aö umskrá bíla sína, frá að hverfa af
þessum sökum.
Vonir stóðu til fyrir páska, að úr
vandanum rættist í gærmorgun en
engin númer var þá heldur að hafa.
BROTIST var inn í skrifstofu Kaup-
félags Héraðsbúa á Seyðisfirði um
páskana. Þjófurinn — eða þjófarnir
— notuðu logsuðutæki til þess að
logskera peningaskáp á skrifstofunni
og þegar þau ekki dugðu beittu þeir
stórvirkum áhöldum og náðu þannig
að spenna peningaskápinn upp. Vafa-
lítið hafa þeir orðið fyrir miklum
vonbrigðum þegar þeir opnuðu skáp-
inn því hann var tómur — galtómur.
Vilhjálmur Jónsson, kaupfélags-
stjóri, hafði sýnt þá fyrirhyggju að
hafa allt fémætt á brott með sér í
ljósi fenginnar reynslu. Haustið
1979 var einmitt brotist inn í
skrifstofu Kaupfélagsins og pen-
ingaskápur fyrirtækisins brotinn
upp. Um 800 þúsund gkrónum var
stolið og öðru eins í ávísunum. Um
páskana 1982 var aftur farið inn í
skrifstofu kaupfélagsins og enn var
peningaskápur brotinn upp og 45
þúsund krónum stolið. Vilhjálmur
taldi því ráðlegast að hafa allt á
hreinu og hafði á orði við lögregl-
una að fylgjast nú vel með kaupfé-
laginu um páskana.
Það var á mánudagsmorguninn
að menn urðu þess áskynja að brot-
ist hafði verið inn. Þá þegar var
hafist handa um rannsókn málsins
og Sigurður Helgason, sýslumaður,
bað um aðstoð Rannsóknarlögreglu
ríksins. Tveir rannsóknarlögreglu-
menn voru sendir austur og eru þar
enn. Enginn hefur verið handtek-
inn enn sem komið er.
Austurland:
Ný hörpu-
skelfisk-
mið fundin
Mestar veidivonir
á Vopnafirði
NÝ hörpuskelfiskmið eru nú
fundin austan lands og reyndist
afii beztur á Vopnafirði. Mikill
áhugi á hörpuskelfiskvinnslu er á
Vopnafirði en ákvörðun þar að
lútandi hefur enn ekki verið tek-
in.
Sólmundur Einarsson, fiski-
fræðingur og leiðangursstjóri á
hafrannsóknaskipinu Dröfn,
sagði í samtali við blm.
Morgunblaðsins, að hörpuskel
hefði meðal annars fundizt á
Vopnafirði, Gunnólfsvík og á
takmörkuðum blettum á Reyð-
arfirði, Fáskrúðsfirði og Stöðv-
arfirði, en vitað væri um skel á
fleiri stöðum, sem ekki hefði
tekizt að kanna. Sagði hann að
mest hefði veiðin verið á
Vopnafirði eða um 500 kíló eftir
10 mínútna tog, sem væri tals-
vert gott. Hins vegar væri hlut-
fa.ll kjöts af skelinni lágt nú eða
aðeins um 9,5% og hagkvæmn-
isútreikningar á veiðunum
lægju enn ekki fyrir.
Sigurjón Þorbergsson, fram-
kvæmdastjóri Tanga hf. á
Vopnafirði, sagði í samtali við
blm. Morgunblaðsins, að hjá
fyrirtækinu væri mikill áhugi á
skelvinnslunni en lítill á veið-
unum sjálfum enda ætti félagið
ekki bát til veiðanna og litlar
líkur væru á kaupum. Óska-
draumurinn væri að hefja
vinnslu í haust, en skelin væri
aðallega veidd á haustin og
fram eftir vetri. Vinnslan gæti
þá bætt aflaskerðinguna, sem
fyrirsjáanleg væri. Sigurjón
sagði ennfremur, að mikil og
stöðug vinna hefði að undan-
förnu verið í frystihúsinu enda
væru nú tvö skip gerð út af
fyrirtækinu. Því hefði meira
verið unnið í frystihúsinu nú en
nokkurn tíma áður.
Þingflokkar stjórnarliða um tillögur ríkisstjórnar:
Sjálfstæðismenn vilja
ekki benzínlítragjald
Framsóknarþingmenn vilja kflógjald á bifreiðir
ÞINGMENN Sjálfstæðisfiokksins
tóku mjög illa í þá hugmynd á þing-
flokksfundi í gær um ráðstafanir í
ríkisfjármálum, að afla 150 millj. kr.
til vegamála með álagningu sérstaks 2
Forsætisráðherra um áskorun friðarvikunnar:
„Breytir ekki yitanríkis-
stefnu okkar íslendingau
„ÞAÐ SEM kom fram í þessari
áskorun, breytir auðvitað ekki
utanríkisstefnu íslendinga," sagði
Steingrímur Hermannsson, forsæt-
isráðherra, er blm. Mbl. spurði
hann hvort ályktun friðarvikunnar,
sem hann undirritaði um afvopnun
og frystingu kjarnorkuvopna boð-
aði einhveriar breytingar á
ríkisstefnu Islendinga.
utan-
Forsætisráðherra sagði jafn-
framt: „Hins vegar held ég að sú
áskorun, sem ég meðal annarra
skrifaði undir, sé mjög í sam-
ræmi við þá stefnu okkar íslend-
inga að beita okkur fyrir því að
úr vígbúnaðarkapphlaupi dragi,
og að afvopnun geti hafist undir
öruggu eftirliti."
Sjá á bls. 27 „Hátt á þriðja
þúsund undirrituðu yfirlýs-
ingu Friðarpáska".
kr. gjalds á hvern benzinlítra. Vildu
sjálfstæðismenn fremur að farið yrði í
auknar erlendar lántökur til öflunar
þessa fjár. Tillögur rfkisstjórnarinnar
voru einnig til umfjöllunar í þing-
fiokki Framsóknar, en þar kröfðust
menn útfærslu á hvernig þessara 150
millj. kr. skuli aflað. Að sögn forsæt-
isráðherra hafa framsóknarmenn
aldrei verið hlynntir benzíngjaldi, þeir
halda enn við tillögur sínar um álagn-
ingu veggjalds í formi kílógjalds á bif-
reiðir, sem sjálfstæðismenn hafa al-
farið hafnað. Tillögur ríkisstjórnar-
innar voru ekki afgreiddar í þing-
flokkunum og verður umfjöllun hald-
ið áfram á fundum þeirra í dag.
Tillögurnar eins og þær voru
kynntar í þingflokkunum hljóða
upp á um 1,7 milljarð kr. af þeim 2
milljörðum sem fjárlagagatið nem-
ur. Full samstaða virðist þó ekki
vera innan ríkisstjórnar eins og að
framan getur, því auk fjáröflunar
til vegamála kröfðust framsóknar-
þingmenn einnig útfærslu á því
hvernig afla skuli 200 millj. kr. með
nýjum liðum í söluskattsálagningu.
Sjálfstæðisþingmönnum var kynnt
sú leið, að auk hertrar innheimtu
verði lagður söluskattur á þrjár
nýjar atvinnugreinar, þ.e. þjónustu
endurskoðenda, verkfræðinga og
lögmanna.
Samstaða virðist hafa náðst inn-
an ríkisstjórnar um niðurskurðar-
liðir, sem nema munu 975 millj. kr.
Er þar um almennan niðurskurð á
öll ráðuneyti að ræða, en að auki
eftirtaldir stórir liðir: 300 millj. kr.
í heilbrigðis- og tryggingamálum;
þar má nefna aukna kostnaðar-
hlutdeild almennings í tannlækna-
og lyfjakostnaði, og kostnaði við
heimsóknir til sérfræðinga; 185
millj. kr. sem teknar verða af fjár-
veitingum til niðurgreiðsina land-
búnaðarvara; 100 millj. kr. vegna
Lánasjóðs ísl. námsmanna, en lán-
um verður þar haldið í 95% í stað
100%. Þar að auki á menntamála-
ráðuneytið að spara 70 millj. kr. á
ýmsum liðum.