Tíminn - 05.09.1965, Síða 2

Tíminn - 05.09.1965, Síða 2
2 SUNNUDAGUR 5. september 196i Málverkasýning Freymóðs „Það er svo margt sem okkur íslendinga vantar til að geta kall- azt menningarþjóð. Aillar menn- ingarþjóðir vita hve stórar þær eru, en það vita íslendingar ekki.“ Þetta var eitt af mörgu sam Guðm. prófessor Hannesson sagði, með- an hann var að mæla mig. En hvað ætli íslenzka þjóðin viti um andlega stærð, eða smæð sína? Það er vafalaust ekki mikið. Nú er Freymóður Jóhannesson að sýna málverkin sín. Það gerist ekki oft. Ætli ísienzka þjóðin hafi hugmynd um hve ágætan mann hún á þar sem Freymóður er? Bókmennta afrek raunsæismann- anna þekkir hún, þeirra Hann- esar, Þorsteins, Gesite og Einars Kvaran. En hvað veit hún um Þór B. Þorláksson og Freymóð Jó- hannesson og eru þeir sannarleg engir eftirbátar á sinni vík. „Kan er was?“ er haft eftir Schubert. Það skiptir nefnilega mestiu máli að kunna sitt starf, hvert sem það er. En labbakút- arnir sem ekkert kunna og ekkert geta, þar af leiðandi, muldra með ólund: „bara teknik bara kunn- átta.“• TÍMINN Það sem einkennir sýningu Freymóðs er nú einmitt hans góða kunnátta samfara alvöru og ein- lægni, en slífct eru hér fágætir kostir nú til dags. Sumar myndim ar bera vott um afburða kunnáttu og leifcni, svo sem myndin af manninum við skrifborðið. Ef ein hver úr liði Þeirra Gylfa og Ragn- ars kynni, þó ekkí væri nema tí- undi hiluti af því sem Freymóður kann, þá held ég, að væri óhætt að berja bumbur og blása í lúðra. Freymóður hefur sannarlega fært óbornum kynslóðum góða fullitrúa raunsæisstefnunnar með verfcum sínum, geri aðrir „istar“ slílkt hið sama. Ásgeir Bjamþórsson. SETBERG Framhald af bls. 1 búnað á staðinn strax. Þetta ea ekki 1 fyrst sinn, sem hátta- í fyrsta sinn, sem þetta hátta- lag Slökkviliðsins veldur miklu umtali, og er stórfurðulegt, að ekki skyldi farið með allan útbúnað þess að Setbergi í • morgun. Einar bóndi keypti í gær fimm kýr í viðbót við þær 24, sem hann átti áður, vegna þess, að hann átti óvenju mifeil og góð hey. Einn gripur var í fjópinu, er eldur inn kom upp, og kafnaði hann þar. Slökkvistarfið mun áreiðan- lega standa eitthvað fram eft ir degi og jafnvel fram á nótt því giæðumar leynast. lengi í heyi. SCHWEITZER Framhald af bls. 1 notaði hann frístundir sínqr til skrifta. Árið 1912 kvæntist hann Helene Bresslau, dóttur þekkts sagnfræðings í Strass- bourg, og hún hóf nám í hjúkrun til þess að geta ver ið við hlið manns síns. Ári síðar, 1913, fór hann til Gab on í Mið-Afríku og hóf að hyggja sjúkrahús í Lambaréné á bökfcum Ogowe-fljótsins. Brátt myndaðist stórt þorp um hverfis sjúkrahúsið, þar sem Sehweitzer barðist gegn holds veiki, svefnsýki og fleiri hita beltissjúkdómum. Þegar fyrri heimsstyrjöld- in brauzt út 1914 varð Schweitz er að hætta störfum við sjúkra hús sitt, og sat hann um stund í fangelsi, þar sem hann var þýzkur. Vann hann þessi ár við ritstörf, og gaf árið 1923 út tvær bækur, The Decay of and the Restoration of Civilization og Civilization and Ethics. Hann snéri aftur til Lambaréné árð 1925. Síðan hefur hann að mestu dvalið í Lambaréné, nema hvað hann hefur farið í fyrirlestrarferð ir um Evrópu. Síðustu áratug ina hefur hann gefið út marg ar bæbur, m. a. menningarsögu í þrem bindum. Vélritunar- og hraðritunarskóli Notið frístundirnar: Pitman-hraSritun á ensku og íslenzku. Vélritun — blindskrift, uppsetning og frágangur verzlunarbréfa, samninga o.fl. Enska — einkatímar Dag og kvöldtímar. Upplýsingar og innritun í síma 19383. HILDIGUNNUR EGGERTSDÓTTIR - Stórholti 27 ■ Sími 19383 BÆNDUR OG HÚSEIGENDUR Við tökum að okkur alls konar viðgerðir og stand- setningar utan húss og innan, á gömlum og nýjum húsum. Vanti ykkur menn í eitthvert verk, þá hringið í okkur. Förum hvert á land sem er, ef næg verkefni eru fyrir hendi. Þaulvanir menn. Vinnum í akkorði eða eftir samkomulagi. ALLI OG ELLI, SÍMI 3‘56-05. (Geymið auglýsinguna.) Nauðungaruppboð Nauðungaruppboð það á Nýbýlavegi 53 í Kópavogi sem auglýst var í 38., 39. og 40. tölublaði Lögbirtingablaðsins 1965 fer fram á eigninni sjálfri eftir kröfu Veðdeildar fram á eigninni sjálfri eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands miðvikudaginn 8. sept. 1965 kl. 14. Bæjarfógetinn í Kópavogi. BIKARKEPPNIN ) MELAVÖUUR í dag, sunnudaginn 5- sept. kl. 4 leika KRb — ÞRÓTTUR a MELAVÖLLUR: Á morgun, mánudaginn 6. sept. kl. 6.30 leika FRAMb — FH Mótanefnd. ÞÁTTUR KIRKJUNNAR Einlægni, falsleysi Einfaldleiki og mikilleiki — einfeldni og snilld fylgjast að, geta ekki án hvors annars ver ið. LaBrðum og miklum mönnum skýst oft skýrleikur með því, að nota fjarlægt og skrúfað orðalag í tjáningu og fram- sögn. Og þannig getur speki þeirra og hugsun misst marks. En sönn speki, sannarleg snilld, er ávailt einföld og einlæg í sjálfu sér. Þannig eru t. d. ljóð Jónasar Hallgrímssonar og Da- viðs Stefánssonar. Þannig er sönn snilld og mikil list alltaf, sé rótt á litið: „Veifct og sterfct í streng er undið stórt og smátt er saman bundið." Þesis kenning er eitt af sérkennum sannrar kristni, allt frá því að Kristur hóf Fjall- ræðu sína með orðunum: „Sæl- ir eru fátækir í anda.“ En þau orð munu einhverntíma hafa verið þýdd: „Sælir eru einfald- ir.“ Og merkir þá einfaldur: Barnslegur, ferskur, einlægur hrékklaus eitthvað af þessu eða allt þetta eftir aðstæðum eða eins og Kristur sagði á öðr- um stað: ,Verið einfaldir sem dúfur.“ „Verið eins og börnin.“ Eitt bezta dæmi um einfalda frásögn á listrænan hátt eru Guðspjöllin sjálf, sögurnar um Krist, sem hafa orðið svo áhrifa miklar í veröldinni einmitt af því að þær eru svo auðskildar, auðlærðar og einfaldar að allri gerð. Heill hverri þjóð, sem hefur tekizt að ná þessari einfeldni guðspjallafrásagnanna í þýð- ingum á sitt tungumál. Bezta byggingalistin er sýni- legust með einföldum línum, litum og formum, sem forðast allt skraut og yfirlæti. Þannig er og málfar snilldar, mál og tungutak hins einlæga og sanna alþýðumanns. Öll sönn list ein- kennist af einfeldni, látleysi. Hið sama gildir um mann- lega skapgerð. Allar góðar manneskjur einkennast af hjartanlegri einlægni — bams- legri einfeldni, sem raunar er einnig oft misnotuð og mis- skilin. Það var nú einmitt þess vegna, sem sjálfur Krist- ur bætti við áminningu sína um einfeldni líkt og dúfur, orðunum: „En verið einnig slægir sem höggormar." Skynsemin verður líka að vera með í leiknum. Þótt barnslegur ferskleiki, bjartsýni og traust tilfinninga- lífs megi aldrei hverfa né týn- ast, þá verður að gæta sín við umihverfinu. Það getur verið hættulegt. Kristur hafði ekki sömu svör við „refinn Herodes" og Fariseana eins og lærisveina sína eða fylgjendur hina fátæku í anda. En samt stendur hann sem „hreystinnar heilaga mynd og hreinskilnin klöppuð úr bergi," fer ekki í manngreinarálit, skríður ekki fyrir neinum, hirð- ir ekki um neitt hefðarstand, þegar segja þarf sannleikann. Hann gengur um meðal fólks ins, alþýðunnar, tekur þátt í lífi þess, gleði og hörmum. Hann fyrirfinnst jafnt í veizlu- salnum og sorgarhúsinu. Hann talar það mál og notar þær sög- ur og líkingar í orðum, sem hvert barn skilur. Hann sam- einar barnslega blíðu með guð- dómlegum myndugleika litillát ur og höfðinglegur í senn og þannig verka persónutöfrar hans ógleymanlega á alla. Orð hans munu aldrei und- ir lok líða eins og hann sagði. En það er vegna þess að fcenn- ing hans, sögur og svör, Ijöð hans og hugmyndir voru gædd þeirri einfeldni sem aðeins snillingur getur framleitt og urðu því andleg eign og auð- æfi lærð og auðskilin hverju bami, ef svo mætti segja. Hversu auðskilin er guðs- mynd háns, föðurhugsjónin fagra og tigna. Hve einföld er trú hans, bjargfast guðstraust hans, hve auðskilið er allt hans trúarþel og hans trúar- brögð barnsleg, unz fylgjend- um hans verður á sú kórvilla að grafa hans einföidu hugs- anir og þyrla upp alls konar moldviðri kreddna og trúfræði og búa til alls konar flækjur, sem nefndar eru guðfræði og trúarbragðakerfi. Hann sagði, að við værum næst himnariki, þegar við yrð- um eins og lítil börn í anda hjartahrein og sönn. „Sælir eru hjartahreinir, því að þeir munu Guð sjá.“ Og þetta er augljós sannleikur, þeim, sem stendur við íslenzkan fjörð eða fagurt fj allavatn á sumarmorgni, því sléttara og lygnara sem yfir- borðið er þeim mun betur end- urspeglar það dýrð himins og tign fjallanna. Því einlægara, sem mannshjarta og hugur er, þeim mun betur skynjum við nálægð Guðs, náð hans og speki og finnum í því hamingju og frið. Og er þetta ekki eitt hið þýð- ingarmesta sem nútknamann- eskja getur lært. Við þurfum að læra að v-jra ánægð með lítið, hugsa ekki hærra en hugsa ber á sviði daglegrar kröfu og nauðsynja Á dögum 20. aldar hefur í'jö'. fólks lokað þessum uppsprctt um einfalds lífs í sínum eis> barmi, en leitar lengra c lengra, meira og meira artn legrar gleði, gervigleði sem að vera búin til af öðrum «■- nefndum skemmtiktöftum Þannig getur hinn sacm fögnuður einfalds lífs alveg da ið burt úr vitund og samféiagt manna. Starfsgieði, fögnuður góðrar samvizku, maður hins fagra getur þannig þokað fyr ir áhyggjum og öfund. gagn rýni og frekju. Heill þeim, sem fínna ánægju við einfeldni hins daglega lífs, í vel gjörðu verki, í stofunni sinni, í garðinum í bókum og músik, við útvarp eða sjónvarp, vináttu þjónustusemi og smá- fórnum og gjöfum hversdags- leikans. Sæll hver, sem getur fagnað bamslegum huga hverj- um nýjum morgni og varðveitt hæfileikann til að hlakka til og fagna því fagra, þakklátur Guði lífsins fyrir allar hans gjafir og öfundar engan. Sæll, hvers sem ekki lætur blekkjast af fagurgala auðs og ytri gæða, heldur verst boða- föllum freistinga og þrauta sak laus, einlægur og hjartahreinn og veit ekkert um slægð og brögð heimsins barna, en veit þá gleði æðsta að varðveita góða samvizku^ og frið við Guð og menn. Árelíus Níelsson.

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.