Tíminn - 05.09.1965, Page 3

Tíminn - 05.09.1965, Page 3
STJNNUDAGUB 5. septemhor i°c5 3 í >SS í-í Ik. ':"'v ’ ■ L ■: .■' R&:i::Sá; Hann er hamingjusamur þessi ameríski söngvari, sem hér sést á myndinni og það eru tvær vaskar sænskar stúlk- ur frá Uppsö-lum, ákaf- ir aðdáendur hans sem eru með honum á myndinni. Myndin er tekin í Monaco, en þar skemmt ir hann með söng sínum. Fallegasti þingmaður brezka þingsins, Ann Kerr, hefur sent mótmæli till BBC út af sjón- varpsþáttum sem hún hafði ver ið ráðgefandi fyrir. Þátturinn heitir „199 Park Lane“ og er tilraun til þess að lýsa líf há- stéttarfólks. Þar kemur fram stjómmálakona og þess vegna sneru starfsmenn BBC sér til Ann Kerr, sem áður hafði komið fram í sjónvarp- inu. Hún lofaði að hjálpa til, en strax þegar hún hafði séð fyrstu sendingu, sendi hún með aðstoð lögfræðings síns, bréf til forráðamanna sjón- varpsins. Það kom nefnilega í ljós, að aðalpersónan heitir Anne, eins og hún sjáif og að auki hafði verið valin í hlut- verkið leilckona, sem líktist Anne mjög í útliti. En þetta átti eftir að versna, eftir því sem leið á þættina, og þar kom að stjómimálakonan varð ást- fangin í milljónamæring. Og þá lét BBC staðar numið og til- kynnti að þættimir hættu sök- um takmarkaðs áhuga áhorf- enda. Það er þó talið líklegra að þar um ráði að einhverju leyti ef ekki öllu, mótmæli þingmansins. Napoleon var spurður að því, þegar hann dvaldist á St. Hel- enu, hve mikinn svefn mann- eskjan þyrfti, og hann svaraði þvi til að miðaldra maður þyrfti að sofa fimm tíma, ung- ur maður sex tíma, kona sjö og heimskingi átta. Hún heitir Mary Elaine Den ison en hann heitir Harvey St. Jean, og þau sitja nú bæði í fangelsi á Miami á Flór- ída fyrir að hafa stolið 155. 000 dollara virði af skartgrip um. Mary Elaine sem er 22 ára vann til skamms tíma sem veit ingastúlka í éinum af hinum frægu Playboy-klúbbum frúin, sem heitir Iselle Worth bíður eflaust eftir því að hann haldi á brott. Nýlega bauð franska flugfé- lagið, Air Franee, furstadæm- inu Monaco að skíra eina Cara velle þotu flugfélagsins Fursta- dæmið Monaco, Monacobúar óttuðust það, að Air France vildi nú gefa í skyn að fursta- dæmið væri lítið franskt hérað, en flugfélagið hefur nefnt marg ar flugvélar sínar eftir hinum ýmsu héruðum Frakklands. En þar kom. að úr þessu rættist, * cg var það Grace furstafrú, sem tók af skarið. — Ég skal sjálf skíra- vélina, — sagði hún — og þá munu allir vita það, að De Gaulle mundi aldrei sætta sig við það, ef um væri að ræða hluta af hinu stóra landi hans — og nú flýgur flugvélin Furstadæmið Monaco um sem stórkostleg auglýsing fyrir Monaco og spilavítið í Monte Carlo. * ástæðan til þess á að vera sú, að foreldrar Tatjönu, Eug- enia prinsessa af Grikklandi og Dominic prins af Póllandi eru skilin, en þau skildu á stríðs- árunum og eru fyrir lön.gu síð- an bæði gift aftur. Blöð i Skandinavíu velta því nú fyr- ir sér, hvað krónprinsinn ætl- ist fyrir og fullyrða, að hann hafi látið einkaritara sinn rita Tatjönu bréf, þar sem henni er gefið til kynna, að þau geti ekki hitzt framar og eru Norð- menn nú famir að hafa mikl- ar áhyggjur af ástamálum Har- alds og óska einskis fremur en Haraldur fái raunverulega prinsessu sér við hlið. ¥ Þegar bítlamir frægu fóru sigurför sína til xBandarfkj- anna, rann sú stund upp, sem margir hafa beðið eftir, að þeir hittust, bdtlamir og kóngur- inn“ sjálfur Elvis Presley. Hitt ust þeir allir á hinu glæsilega heimili Elvis í Beverley Hill og Elvis spilaði á gítarinn sinn og lánaði bítlunum annan. Er ekki að efa það að allir plötufram- leiðendur hefðu viljað gefa mikið fyrir það að vera við- staddir, en þeir höfðu ekki hug mynd um þennan merkilega tónlistarviðburð og það sem meira var, að engum ljósmynd- ara var hleypt í námunda við fimm risa dægurlagatónlistar- innar. Hunt hjónin í Aylestone eru afskaplega praktísk: Þau hafa safnað saman fjölskylduskím og í eitt skipti fyrir öll hafa þau pantað skím fyrir börnin sín 11 hjá sóknarprestinum. Og þetta er ágætt svo langt sem það nær, en faðirinn, sem er vörubílstjóri, hefur fundið það út, að ekki var allt búið enn og nú er hann í leit að 33 manneskjum sem geta verið skímarvottar. Hún var heldur óheppin þessi þýzka blómarós, hún fór nefnilega'úr þesum litlu baðföt um sínum til að geta notið þess betur að synda í Miðjarð arhafinu, og í millitíðinni kom ljósmyndari á staðinn. Ung- fyrrverandi einræðisherra Arg- entínu, ásamt eiginkonu sinni Nú hefur Oharlie Ohaplin undirritað samning við Marion Brando og Sophiu Loren þess efnis, að þau leiki í næstu kvik- mynd hans. í tilefni þess sagði Marion Brando: — Þetta verð- ur gamanleikur og ChapÆin sér um allt saman: framleiðslu, sviðsetningu og tónlistina. Ég hef meira að segja grun um, að hann hafi Mandað naglalafek Sophiu. Ég æffla nú að setjast að í útjarðri Lundúna og fela mig þar næstu mánuðina. Það er um að gera að safna kröft- um. sumar og sólar í núverandi heimalandi sínu, Spáni. Fréttir frá Paris herma, að hin unga prinsessa Tatjana Radziwill hyggist nú hefja mál á hendur Haraidi krónprinsi Noregs og sækja hann fyrir heitrof. Tatjana Radziwill er ein af hinum ógiftu prinsess- um Evrópu, sem hefur verið orðuð sem væntanleg eigin- eiginkona Haralds. Sagt er að Haraldur krónprins hafi beðið Tatjönu og fengið jáyrði henn- ar, en síðan rofið sambandið sökum þess, að norska ríkis- kirkjan er á móti ráðahagnum,

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.