Morgunblaðið - 09.12.1984, Qupperneq 6
6 C
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 9. DESEMBER 1984
Dálítið
um
þýðingar
á skilið, hefur fundið sinn sér-
staka tón, og fáein skáld, hefur
stundum verið sagt, finna alveg
nýjan tón. Ég veit þó í rauninni
ekki hvort þetta er rétt orðað, því
að ég held að sá persónulegi tónn
sem skáld „finna" sé alltaf nýr.
Hinsvegar er tónninn misjafnlega
sterkur, misjafnlega „nýr“ og
óvæntur. En þó að hann sé veikur
getur hann ekki að síður verið
persónulegur.
Ég hef aldrei algjörlega treyst
mér til að mótmæla þeim mönnum
sem segja að ekki sé hægt að þýða
skáldskap. Það er hægt að komast
töluvert áleiðis, en varla alla leið.
Mismunur málanna er mikill, og
munur tímanna, en varla svo að
ekki megi finna samgönguleið.
Snjall þýðandi kemst yfir ótrúleg-
ar torfærur. Sé aftur vikið að Jóni
Helgasyni má segja að hann kom-
ist oft mjög langt í að ná flestu því
sem í frumtexta stendur. Og samt
er oft eins og Jón Helgason sé
fyrst og fremst að yrkja sitt eigið
kvæði. Getum vér ef til vill sagt að
lokum að þýðandi skáldskapar
geti komið næstum öllu áleiðis
nema hinum „skáldlega tóni“, því
að í honum er fólginn sjálfur
leyndardómur persónuleikans.
Eða eru hér einhverjar undan-
tekningar, ef til vill hinir hógváeru
og lítillátu eihs og Sveinbjörn Eg-
ilsson, sem eru allir vegir færir?
Glæsilegur
trompetleikur
í fremstu röð
„Hvað sem um verkið má að öðru leyti
segja gerir það óvægnar kröfur til ein-
leikarans, en hér var Ásgeir Stein-
grímsson aftur mættur á konsertpallinn.
Til að gera langa sögu stutta skal það
strax tekið fram, að Ásgeir lék þennan
konsert á glæsilegan hátt og skilaði
hlutverki sínu með hinum mesta sóma,
enda ákaft fagnað af hrifnum áheyrend-
um. Ásgeir hefur þegar skipað sér í
fremstu röð blásara á íslandi."
spennandi efnisskrá, hress stjórn-
andi, snjall einleikari og hljóm-
sveitin í góðu formi.
Tónleikarnir hófust á verki Jón-
asar Tómassonar „Orgiu". Þó tit-
illinn sé glannalegur er músíkin
yfirlætislaus, enda segir höfundur
sjálfur: „Sú orgia sem hér er flutt
er ekki brjálæðisleg svallveisla.
Gríska orðið orgia var upphafl-
ega notað um athöfn, leynilega
helgiathöfn, blót eða fórn.“ Verkið
hefst á hógværu hjali fiðlanna,
sem síðan halda sínu striki í að-
gerðarlítilli kyrrstöðu allt til enda
og mynda þann orgiustall, sem hin
hljóðfærin blóta tónum sínum á,
eða í kringum. Jónas smyr sjaldn-
ast þykkt, línur og fleti’r eru skírt
mótaðir. Mér virðist þetta verk
sverja sig mjög í ætt við ýmis önn-
ur verk höfundar, en Jónas hefur
samið fjölda verka hin síðustu ár,
einkum kammermúsík.
Næst heyrðum við sónötur fyrir
trompet og strengi eftir Henry
Purcell, snoturt lítið verk og ljúft.
Einleikari var Ásgeir Stein-
grímsson, sem reyndar blés í pic-
colotrompet í þessu verki. Ásgeir
er mjög góður hljóðfæraleikari.
Hann hefur fallegan tón, góða
tækni og spilar músíkalskt. Hvað
viljið þið hafa það betra? Hann
blés þessa sónötu á fágaðan,
stílhreinan hátt í góðri samvinnu
við strengina, sem lutu stjórn Páls
P. Pálssonar þetta kvöld.
Við heyrðum einnig fyrir hlé
sinfóníu nr. 85 eftir Joseph
Haydn. Það býr mikill þokki og
fegurð í þessu tæra glaðlega verki.
Páll P. Pálsson er ekki í vandræð-
um þegar Vínarklassíkin er ann-
ars'vegar og stjórnaði hljómsveit-
in sannfærandi og markvisst.
Það var svo konsertinn fyrir
trompet og hljómsveit eftir sov-
éska tónskáldið Alexander Grig-
orievitsj Arutjunan sem hljómaði
fyrst eftir pásuna. Þó verkið sé
samið 1950, er yfir því síðrómant-
ískur, dálítið yfirborðskenndur
glansblær. Stundum minnir tón-
amál Arutjunjan nokkuð á frægan
landa hans — A. Khatjaturjan —,
bæði hvað varðar framsetningu
efnis og notkun hljómasambanda.
Hvað sem um verkið má að öðru
leyti segja, gerir það óvægnar
kröfur til einleikarans, en hér var
Ásgeir Steingrímsson aftur mætt-
ur á konsertpallinn. Til að gera
langa sögu stutta skal það strax
tekið fram, að Ásgeir lék þennan
konsert á glæsilegan hátt og skil-
aði hlutverki sínu með hinum
mesta sóma, enda ákaft fagnað af
hrifnum áheyrendum. Ásgeir hef-
ur þegar skipað sér í fremstu röð
blásara á íslandi.
Tónleikunum lauk svo með tón-
aljóði R. Strauss „Til Eulen-
spiegel". Þetta er magnað verk og
spennandi, vel skrifað, myndríkt
og hlaðið óvæntum atvikum, erfitt
í flutningi bæði fyrir stjórnanda
og hljómsveit, en Páli tókst að
mana menn til verulegra átaka.
Það var reisn og snerpa yfir flutn-
ingnum' á „Til Eulenspiegel".
Þetta var góður konsert.
Jónas
Tómasson
Ásgeir
Steingrímsson
MorKunblaðið/Bjarni.
Egill Friðleifsson
Háskólabíó 6. desember.
Flytjendur: Sinfóníuhljómsveit fs-
lands.
Einleikari: Ásgeir Steingrímsson.
Stjórnandi: Páll P. Pálsson.
Efnisskrá: Jónas Tómasson,
„Orgia“. H. Purcell, Sónata fyrir
trompet og strengi, J. Haydn, Sin-
fónía nr. 85 í B-dúr, A. Arutjunjan,
Konsert fyrir trompet og hljómsveit,
R. Strauss, „Til Eulenspiegel, sin-
fónískt Ijóó.
Það var ánægjulegt að vera
gestur á tónleikum Sinfóníu-
hljómsveitar íslands í Háskólabíói
sl. fimmtudagskvöld. Þetta var
einn af þeim konsertum, þar sem
flest gekk upp. Fór þar saman
Ný plata með hinni stórskemmtilegu þjóðlaga-
hljómsveit HRÍM. Möndlur, fyrsta plata HRÍM,
inniheldur tónlist frá ýmsum löndum auk nokk-
urra frumsamdra laga. Á plötunni er að finna
m.a. írska ræla, ungversk sígaunalög, sænska
polska, drykkjuvísur og hin frumsömdu lög við
eigin texta og ljóð Jóhannesar úr Kötlum,
Rauðsendingadans, fær hér einkar skemmtilega
meðferð. Troðfull plata af nýjum og ferskum
möndlum.
gramm
.. . Laugavequr 17
FALKINN
Tónlist