Morgunblaðið - 11.12.1984, Síða 2
2 B
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 1984
GR 50 ára
Þ. 14. desember nk. veröur
Golfklúbbur Reykjavíkur 50 ára. í
tilefni þessara tímamóta veröur
haldin vegleg afmælishátíö í Átt-
hagasal Hótel Sögu og hefst hún
meö boröhaldi kl. 19.00. Aö-
göngumiöar og boröapantanir
eru hjá formanni og fram-
kvæmdastjóra, og er mönnum
bent á aö tryggja sér miða í tíma,
þar sem húsrými er takmarkað.
Þ. 30 nóvember sl. var aöal-
fundur Golfklúbbs Reykjavíkur
haldinn. Stjórn klúbbsins er nú
þannig skipuö:
Karl Jóhannsson, formaöur,
Gunnar Torfason, varaformaöur,
Þorsteinn Sv. Stefánsson, ritari,
Rósmundur Jónsson, gjaldkeri,
Ragnar Ólafsson, meöstjórnandi,
Geir Svansson, rneöstjórnandi,
Hannes Guömundsson, meö-
Happdrætti FSÍ
DREGIÐ hefur verið í happdrætti
FSÍ og hlutu eftirtalin númer
vinning: 2512, 3424, 2787.
stjórnandi. Framkvæmdastjóri
klúbbsins er Björgúlfur Lúövíks-
son.
HM kvenna í
knattspyrnu
FYRSTA heimsmeistarakeppni
kvenna í knattspyrnu verður
haldin áriö 1987 og fer fram ein-
hvers staöar í Asíu. Joao Have-
lange, forseti FIFA, alþjóöa
knattspyrnusambandsins, til-
kynnti þetta í gær, en hann er nú
staddur í Singapore, og hólt þar
blaðamannafund.
Havelange greindi ekki frá fyrir-
komulaginu í smáatriöum en sagöi
aö stjórn FIFA væri búinn aö gera
upp hug sinn í þessu máli.
Hann sagöi einnig í gær, aö ald-
ur knattspyrnumanna á Ólympíu-
leikunum í Seoul 1988 yröi tak-
markaöur viö 23 ár, eins og Morg-
unblaöiö hefur áöur greint frá.
• Björn Gíslason formaður UMF Selfoss afhendir Magnúsi Ólafssyni
fyrirliða blómvönd.
Morgunblaötö/Bjarni
• Handknattleiksmenn úr Víkingi í hinum nýju búningum er samningurinn viö Almennar Tryggingar
og Adidas var undirritaöur. Lengst til vinstri er Ólafur B. Schram framkvæmdastjóri Adidas-umboö-
sins á íslandi en lengst til hægri formaöur handknattleiksdeildar Víkings, Helgi Guömundsson.
Víkingar semja vió
Almennar Tryggingar
og Adidas-umboðið
Handknattleiksdeild Víkings
hefur gert auglýsingasamning
viö Almennar Tryggingar og
mun meistaraflokkur Víkings
auglýsa nafn fyrirtækisins á
búningum. Þá hefur Víkingur
samiö við heildverzlun Björg-
vins Schram um aö leika í
Adidasbúningum. Lauslega
áætlaö má meta stuöning þess-
ara tveggja fyrirtækja liölega
700 þúsund krónur. Þetta er
Víkingi mikill stuöningur, en
þess má geta aö f járhagsáætlun
handknattleiksdeildar er hátt í 2
milljónir króna í vetur.
Víkingar bera merki Almennra
Trygginga á búningum meistara-
flokks í vetur. Samningurinn viö
Almennar Tryggingar er Víkingi
mikils viröi og getur gefiö deild-
inni allt aö 400 þúsund krónur,
en endanleg upphæö fer eftir
árangri meistaraflokks í vetur —
bæöi í mótum hér á landi og Evr-
ópukeppni. Svo sem kunnugt er
er Víkingur í 8-liöa úrslitum Evr-
ópukeppni bikarhafa. Félagiö sló
út bikarmeistara Noregs í 1. um-
ferö, Fjellhammer. í 2. umferð sló
Víkingur út spánska liöiö Coron-
as Tres de Mayo. f 8-liöa úrslitum
mætir félagiö júgóslavneska liö-
inu Crevenka og fer fyrri leikur-
inn fram í Júgóslavíu, en hinn
síöari í Reykjavík upp úr miöjum
janúar.
Víkingar klæöast búningum
Adidas næstu tvö keppnistíma-
bilin. Heildverzlun Björgvins
Schram lætur af hendi vörur til
Víkings aö verömæti um 350
þúsund krónur. Þá hefur Víkingur
gert samning viö Þýzk-íslenzka
verzlunarfélagiö um aö leikmenn
2. flokks Víkings auglýsi vörur
fyrirtækisins og meistaraflokkur
kvenna auglýsir vörur frá fþrótta-
búöinni í Borgartúni. Víkingar
kunna þessum fyrirtækjum beztu
þakkir fyrir veittan stuöning.
Nú eru liöin 30 ár síöan heild-
verslun Björgvins Schram tók viö
Adidas-umboöinu og á undan-
förnum árum hafa fjölmörg félög
í hinum ýmsu íþróttagreinum gert
samning viö Adidas og leikiö i
búningum og skóm frá Adidas.
Bikarmeisturum HSK fagnað:
Blómvendir og bikarar undir baráttusöng
EINS og kunnugt er stóö sund-
fólk Héraössambandsins Skarp-
héöins sig vel í Bikarkeppni
Sundsambands íslands á dögun-
um og fór meö sigur af hólmi,
meö nokkrum yfirburöum.
Hér á Selfossi er fylgst grannt
meö gengi íþróttafólks okkar
hvort sem þaö keppir í nafni Sel-
foss eöa héraösins alls. Uppi-
staöa þessa knáa sundliös er
héöan frá Selfossi og úr Þor-
lákshöfn. Fólk þetta stundar æf-
ingar af miklu kappi og leggur
mikið á sig til að ná árangri sem
reyndar lætur ekki á sér sitja.
Þegar sundfólkið kom heim, eft-
ir aö hafa unniö Bikarkeppnina
þriöja áriö t röö, var tekiö á móti
þeim af stjórn HSK og íþróttaráöi
Selfossbæjar. Báöir þessir aöilar
afhentu liðinu blómvendi og færöu
þeim árnaöaróskir.
Tekiö var a móti sundfólkinu í
nýrri og glæsilegri heilsuræktar-
stöö, Heilsusporti hf. í gamla
Kaupfélagshúsinu viö Tryggvatorg.
Hafsteinn Þorvaldsson formaöur
stjórnar Heilsusports afhenti sund-
nefnd HSk bikar til frjálsrar ráö-
stöfunar til eflingar unglingastarfi.
Benedikt Jóhannsson afhenti
viö þetta tækifæri forráöamönnum
sundhallar Seifoss fána jþrótta-
sambands fatlaöra fyrir hönd
stíórnar þeirra, sem þakklætisvott
fyrir góöar viötökur á liönu sumri,
þegar Ólympíufarar sambandsins
dvöldu hér viö æfingar. I lokin var
svo öllum boöiö upp á kökur sem
Guöni bakari í Guönabakaríi kom
meö til aö seöja mannskapinn og
jþróttaráö Selfoss veitti kók og
appelsín.
í lokin leyfði sundfólkiö viö-
stöddum aö heyra þrumandi bar-
áttusöng liösins, en baráttuandi og
samheldni er ríkjandi þáttur þar
sem fólk þetta er í keppni.
Sig. Jóns.
• Svanur Ingvarsson formaöur sundnofndar H8K tekur viö bikar til unglingastarfs úr handi Hafsteins
Þorvaldssonar.