Alþýðublaðið - 26.11.1931, Qupperneq 2
2
A'. PÍÐUBLAÐ'Ð
Óstjoii íhaldsins
á fjármálDmReykjavíkurbœjar.
Á síðasta bæjarstjórnarfundi
sýndu fulltrúar Alpýðuflokksins
fram á,‘í hvert öngþveiii íhalds-
stjórnendur bæjarins hafia komið
fjárhag hans: sjóðir [turrausnir,
ián ófáanlegt, og framkvæmdir,
sem bæjarstjómin hefir samþykt
að gerðar væru á þessu ári, ó-
framikvæmdar, svo sem aukning
vatnsveitunnar og bygging vöru-
skýlis við höfnina.
Héðinn Valdimarsson spurði
Knút, hvort hinn aukni vatns-
skattur yrði að einhverju leyti
til atvinnubóta, mieð því að fram-
kvæmdum á aukningi vatnsveit-
unnar verði þá hraðað svo, að
unnið verði að henni í vetur.
Knútur svaraði því neitandi.
Kvaðst hann gera ráð fyrir, að
verkið verði unnið á 3—4 ámm,
nema bráðabirgðalán fáist til 4
—5 ára til þess að framikvæma
það að fullu á einu ári; en hvað
sem því líði, þá taki undirbún-
ingur verksins minst 5—6 rnánuði.
Héðinn benti á, að ógreidd út-
svör frá fijrri árum nerna um
600 þúsunid kr., sýndi fram á,
hve slæleg innheimta bæjargjald-
anna er, og að margsinnis hafa
hátekjumannaútsvör verið gefin
eftir að lokum, af því að þau
hafa ekki verið innheimt í tæka
tíð. Sannaði hann það líka af
gefnu tilefni, að þeir, sem bær-
inn á hjá hæstar útsvarsskuldir
ógreiddar, eru langflestir „mátt-
arstólpar“ í íhaldsflokknum.
Sagði hann að lokurn, að ef Knút-
ur og flokkur hans sjá engin ráð
til þess að koma bænurn aftur úr
því fjárhagsöngþveiti, siem stjóm
þeirra hefir komið honum í, þá
sé þeim nær að segja af sér og
Knúti að leggja niður embættið,
heldur en að halda áfram að
sökkva bænum dýpria og dýpra
í óstjórnarfenið. —
Ein af tillögum Magga Magn-
úss var sú, að bæjarstjórnin skipi
þriggja mannia nefnd til þess að
athuga fátækriamál bæjarins og
gera tillögur urn, „hversu þeim
megi skipa á hentugri og ódýr-
ari hátt fyrir bæjiarfélagið“. ÖI-
afur Friðriksson flutti þá viðbót-
artillögu, að þá yrði einnig ra;nn-
sakað, „hvort ekki myndi heppi-
legra, að bærinn tæki að sér
rekstur elliheimilisins og barna-
heimilisins, er bærinn nú hvort
eð er stendur aðalstraum af“.
Héðinn flutti þá breytingartil-
lö'gu við tillögu Magnúss, að
nefndin skuli „athuga stjórn, fá-
tækramál og fjárreiður bæjarins
og gera tillögur um, hversu þeim
megi skipa á heppilegri og ódýr-
ari hátt fyrir bæjarfélagið".
Var þessum tillögum öillium vís-
að til fjárhagsnefndar.
(T
Togaraslysið.
Jóss Grimsson látinn.
Jón Grímsson, sem slasaðist á
togaranum „Andra“, andaðist í
gærkveldi í sjúkrahúsiriu á fsia-
firði. Jón heitinn var rnjög á-
hugasamur sjómannafélagi.
Bæjarbruni.
Á sunnudagskvöld brann bær-
inn Skjögrastaðir í VaMahreppi í
Suður-Múlasýslu. Er þetta af-
skektur fjallabær og var Vieður
vont. Heima var að eins kona
með tvö börn. Tókst .henni að
bjarga nokkru af innanstokks-
munurn úr baðstofu, en sumir
brunnu. Er hjálp barst tóikst að
verja önnur hús, en baðistofan
brann. (Siarnkv. viðtali FB. við
Akureyri.)
KosDingar i Sviss.
Fyrir nokkru fóru fram kosn-
ingar til þjóðar-ráðsins í Sviss.
Jafnaðarmenn bættu atkvæðum
við sig svo skifti tugum þús-
unda. Unnu þeir tvö ný sæti og
urðu þar með stærsti flokkur
þingsins.
AukabosningariRanðaríbjDnnm
Washington, 25. nóv. U. P. FB.
Sérveldismienn (Demiokratar)
haia unnið sigur í aukakosning-
fum í tveimur kjördæmum í Tex*
as. Þingmenn sérveldismanna í
fulltrúadeild þjóðþingsins eru nú
218 talsins, samveldismanna (re-
publikana) 216. Landbúnaðar-
verkamenn eiga einn fulltrúa á
þinginu.
Frá sjómönnanum,
FB. 26. nóv.
Liggjum á Önundarfirði. Vel-
líðan allra. Kærar kveðjur til
vina og vandamanna.
Skipshöfnin á
„Káro Sölmundarsijni“.
Komnir frá Englandi. Verðum á
ísafirði í kvöld. Vellíðan allra.
Kærar kveðjur til vina og vanda-
manna.
Skipverjar á „Dmupni“.
Komnir til landsins. Vellíðan
allra. Kærar kveðjur.
Skipverjar á „Gulltappi“.
MansjúríDdeilan.
París, 25. nóv. U. P. FB. Fram-
kvæmdaráð Þjóðabandalagsins
héit fund um Mansjúríiuófriðinn
og stóð hann fram eftir kveldi.
Ákveðið var að senda þegar
stjórnunum í Japan og Kína for-
rit (uppkast) að samþykt, er fer
fram á, að Japan og Kína hverfi
á brott með heri sína, en nefnd
skipuð af bandalaginu taki deiliu-
málin til rannsóknar.
Karl Marx.
Faðir hinnar vísindalegu jafn-
aðarstefnu, Heínrich Karl Marx
fæddist 5. mai 1818 í borginnj
Tríer í Rínarhéruðunum, Hann va
Gyðingur að ætterni, var fljött
settur til menta og stundaði réttar-
fræði-nám við háskólann í Bonn
og heimspeki og sagnfræði nam
hann við háskóla í Berlín. Sagt
er, að kenningar heimspekinganna
Hegels og Feueibachs hafi haft
mjög mikil áhrif á hann, er hann
var ungur, en árið 1841 vann hann
doktors-titil fyrir ritgerð um spek-
ingana Epikúr og Demokrít.
Um þetta leyti var mikil ófrelsis-
og kúgunar-öld á Þýzkalandi, og
af því að hugur hans stóð til
þeirra, sem minni máttar voru,
gerðist hann félagi þeirra, er börð-
ust gegn ófrelsinu, og sökum frá-
bærra hæfileika sínum náðí hann
fljótt áhrifum í þeim hóp og varð
ritstjóri að mjög róttæku blaði, sem
hét „Reinische Zeitung" En árið
1843 var það bannað og fór Marx
þá til Parísar. Þar staifaði hann
að ýmsum ritverkum, fékst við
blaðamensku o. fl. í París kyntist
hann kenningum Saint Simons
um jafnaðar þjóðskipulag — og
þar hófst hin ævaiandi vinátta
milli hans og Engels. Um þetta
leyti varð Marx jafnaðarmaður.
Honum var nú vísað burt úr París
og höfðu þýzkir afturhaldsmenn
fengið því til vegar komið. Fóru
þeir vinirnir, hann og Engels til
Briissel í Belgíu og þar samdi
Marx rit sitt „Eymd heimsspekinn-
ar“, sem» var svar til stjórn-
leysingjans Proudons. En árið 1848
kom út hið fræga Kommúnista-
ávarp, og höfðu þeir vinirnir,
Marx og Engels, báðir samið það.
Hefir þetta rit verið þýtt á öll
menningarmál, m. a. á íslenzku.
Þetta sama ár fór Marx aftur til
Þýzkalands og byrjaði að gefa út
nýtt blað, en innan skamms tíma
varð hann að flýja land undan
ofsöknum íhaldsins og fór þá til
Lúndúvia, Þar vann hann aðal-
æfistarf sitt. Þar skrifaði hann hina
stórfrægu bók sina „Das kapítal",
en það er grundvallarrit jatnaðar-
stefnunnar. í því sýnir hann fram
á, að sagan er stéttabaráttusaga,
þótt hún sé eingöngu rituð sem
saga einstaklinga. Marx var i 25
ár að semja þetta mikla rit og er
það í fjórum binduin. Komu tvö
þeirra út eftir dauða hans. Fjórða
og siðasta bindið var ekki fullgert
þegar Marx lést árið 1883.
Marx var fátækur alla æfi, enda
ofsóttur af andstæðingum sínum
sem voru margir og öflugir, og
landflótta var hann mikinn hluta
æfinnar. En vinur hans, Friedrich
li.
Engels, sem var vei efnaður.studd
hann með fé sínu, eins vel og
honum var unt.
Það voru ekki margir menn,
sem fylktu sér um skoðanir Karls
Marx, er þær komu fyrst fram, en
smátt og smátt sannaði þróun
auðvaldsþjóðfélagsins sannindi
þeirra og nú fylkja sér íug-millj-
ónir manna í næstum öllum
löndum heims um jafnaðarstefnuna
Fiokksbróðir f mtugur
Snenuna í þie.ssum mánuði var&.
einn af þektustu jafnaðarmönn-
um Svíþjóðar fimmtugur að aldri.
Það var Ivar Vennerström, rit-
stjóri og ríkisþingmaður.
Ivar Vennerström er einin úr
hinum fjölmenna hópi mikilhæfra
og atoi'kusainria sænskra jafnað-
Ivar Vennerström.
armiannia. Hann hefir í hart nær
þrjá tugi ára unnið ósleitilega að
vexti og viðgangi sænskrar al-
þýðuhreyfingar. Hann er einn af
áhrifaríkustu útbreiðslaimönnum
jafnaðiarstefnunnar í Svíþjóð og
hefir margoft farið um land sitt
þvert og endilangt til fundar-
halda og fyrirlestra.
Og Ivar Vjennierströ'm er einnig
mikið þektur og vel hér á 'landi.
Hann er kvæntur íslienzkri konu,
Lóu Gudmundsdóttur frá Nesi.
Hanrf he.ir þrisvar komið hingað
til lands og nú síðast á alþingis-
hátíðina sem einn af fulltrúum
sænskra þingmianna. Hann þekkir
fjölda af Islendingum, fes' ís-
lenzka tungu og er vel kunnugur
íslenzkum stjórnmálum og at-
vinnuháttum. Og tnargir eru þeir
landar, er síðustu árin hafa kom-
ið til Stokkhólms, er skroppið
hafa út í Álsten og notið gest-
risni og góðrar að.stoðar á heim-
ili Ivars Vennerström og koniu
hans. Og Ivar og Lóa eru alt af
reiðubúin að veita allar leiðbein-
ingar, hjálp og aðstoð öllum þeim
mörgu Islendingum, er sækja þau
heimi.
Ivar Vennerström er ágætur rit-
höfúndur. Hann hefir ritað nokkr-