Morgunblaðið - 27.01.1985, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 27.01.1985, Blaðsíða 1
fN*tyiuiM*2kto MENNING LISTIR N Ö B E L S V E R E> L A U N I N I BÖKMENNTUM Annarleg sjónarmið allsráðandi eftir George Steiner Jafnvel Paris konungssyni skjátlað- ist. Veiting verðlaunagulleplisins af hans hálfu leiddi til hans eigin dauða og eyðileggingar Trójuborg- ar. Það getur alltaf hent við hvers konar verðlaunaveitingar, að mönnum hafi orðið á mistök í vali verðlaunahafa. Oftar en ekki hefur ódauðleiki fallið þeim í skaut, sem ekki þóttu verðir verðlauna — þeirra er fylla le salon des refusés, þar sem meist- arar impressionismans sýndu þau verk sín, sem opinberlega hafði verið hafnað og höfð voru um hin hræðilegustu orð. Á há- punkti listræns sköpunarferils síns var Arnold Schönberg hafnað við verðlauna- veitingu en einhver Guggenheim látinn sitja í fyrirrúmi. Sú fróma sál, sem á sín- um tíma neitaði Albert Einstein um há- skólastöðu í Svisslandi, andaðist í kyrrþey fyrir skemmstu. í náttúruvísindum og raunvísindum eru mistök og yfirsjónir við val verðugra verð- launahafa hins vegar ekki talin koma eins oft fyrir. Þó hafa einnig á þessu sviði verið veitt Nóbelsverðlaun, sem þótt hafa meira en lítið furðuleg; Nýleg verðlaunaveiting, sem kom hálfri öld eftir að sú mikilvæga uppfinning hafði verið gerð, er viðurkenna átti; tvær verðlaunaafhendingar til af- reksmanna, sem reyndar höfðu lítið annað afrekað en að betrumbæta vísindalegar rannsóknaaðferðir (annar þeirra er nú sagður vera einasti Nobelsverðlaunahaf- inn, sem er atvinnulaus og talinn og talinn búa við einkar kröpp kjör). Nobelsverð- launin í læknisfræði, eðlisfræði og efna- fræði hafa kannski oftar en nægilegt til- efni var beinlínis fallið meðlimum Sænsku akademíunnar í skaut eða þá öðrun sænskum vísindamönnum í áhrifastöðum — það er að segja, að verðlaunin í þessum greinum hafa þá lent til þeirra aðila, sem einmitt hafa hvað mest með val verð- launahafa að gera. Þá er alls ekki laust við að stundum hafi gætt beinnar illgirni, þegar gengið var vísvitandi framhjá verðugum vísinda- manni við úthlutun verðlaunanna. Var þannig bandaríska vísindamanninum Jon- as E. Salk hafnað sem verðugum Nobels- verðlaunahafa, bara af því að keppinautar OG NÚ ER ÞAÐ AFSTRAKT KAFLAR ÚR ÓPRENTUÐU SAMTALI VIÐ SVEIN BJÖRNSSON LISTMÁLARA

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.