Morgunblaðið - 26.03.1985, Page 7
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1985
B 7
Morgunblaðiö/Friðþjófur
ráinsson lék mjög vel gegn Evrópumeisturunum. Hér svífur hann inn á teiginn og skömmu síðar lá boltinn í markinu.
Jafnt í Svíþjóð
Frá Magnúsi Þorvaldssyni, fréttamanni MorgunMaösins í Svíþjóö.
LUGI og rússneska liöið OSKA
Moskva gerðu jafntefli, 23:23, í
fyrri leik sínum í undanúrslitum
Evrópukeppni bikarhafa hér í
Lundi á sunnudag. Staðan í
leikhléi var jöfn, 10:10.
Fyrirfram var rússneska liöiö
taliö mun sigurstranglegra en
Svíarnir komu á óvart með góö-
um leik. Er tíu mínútur voru til
leiksloka leiddu Svíarnir meö
fjögurra marka mun, 21:17, en
misstu það niður í jafntefli.
Geysilegur hraöi var í leiknum —
en undir lokin réöu leikmenn
Lugi ekki viö hann. Höföu þó
leikiö mjög vel fram aö því.
Russneska liðið er taliö eitt
þaö besta í heimi í dag og veröur
aö telja líkurnar á því aö þaö fari
í úrslitin gegn Víkingum eöa
Barcelona mjög miklar. Liöiö er
geysilega sterkt á heimavelli sín-
um.
Markvöröur rússneska liösins
var besti maöur vallarins, varöi
nálægt 20 skotum.
Mörk Lugi skoruöu eftirtaldir:
Sten Sjögren 6 (3 víti), Jónas
Sandberg 5, Roland Nilsson 4,
Hans Krantz 4 og Tomas Heinon-
en 4.
Mörk CSKA: Kidjajev 6, Baran
6 (3 víti), Rimanov 4, Vasiljiev 4
og Pugatjov 3.
Alfreð frábær
Frá Jóhanni Inga Gunnaraayni, Mttamanni Morgunblaóaina í V-Þýakalandi.
ESSEN tók forystu í 1. deilar-
keppnínní í V-Þýskalandi er
þeir lögöu Gummersbach að
velli, 25—14, á heimavelli um
helgina. Alfreð lék mjög vel,
sennilega hans besti leikur á
ferlinum. Hann skoraöi átta
mörk, þar af þrjú úr víti. Hann
átti fimm línusendingar sem
gáfu mark, auk þess fiskaði
hann þrjú víti og var mjög
sterkur í vörn.
Þetta var fyrsti tapleikur
Gummersbach síöan í nóvember.
Ef Essen leikur svona vel í næstu
leikjum er ekkert sem getur kom-
iö í veg fyrir aö þeir veröi meist-
arar í ár.
Kiel tapaöi fyrir Atla Hilmars-
syni og félögum hans í Bergkam-
en, 20—21. Atli átti góöan leik
og skoraöi 3 mörk.
Siguröur Sveinsson kom mikiö
viö sögu er lið hans, Lemgo,
vann góöan sigur á Schwabing,
22—20. Siguröur skoraöi 10
mörk í leiknum og er nú markh-
æstur í deildinni, hefur skoraö
131 mark.
Siguröur skoraöi fyrstu fimm
mörk leiksins.
Sýndu allir afbragös góöan leik og
geröu sig varla seka um mistök.
Guðmundur fyrirliöi lék vel í horn-
inu og Viggó og Þorbergur báru
hita og þunga af spilinu. Steinar
baröist eins og Ijón í sókninni en
hefði mátt ógna meira í vörninni og
jafnvel skjóta meira. En þaö var
fyrst og fremst liösheildin sem
vann þetta stóra afrek.
Liö Barcelona er sagt mjög
sterkt á heimavelli sínum og sjálf-
sagt er þaö rétt. En liöiö veröur aö
leika mun betur en þaö geröi á
sunnudagskvöldiö gegn Víkingi ef
þaö ætlar aö sigra meö átta marka
mun og komast áfram í Evrópu-
keppni bikarhafa. Sér í lagi var
sóknarleikur liösins óskipulagöur
og þar réöi einstaklingsframtakiö
alveg ríkjum. Leikmenn eru þó há-
vaxnir og haröir i horn aö taka.
Þeir veröa erfiöir á heimavelli á því
leikur enginn vafi.
í stuttu máli: Víkingur — FC
Barcelona 20—13 (11—4) í Evr-
ópukeppni bikarhafa í handknatt-
leik.
Mörk Víkings: Viggó Sigurösson
6 2v, Þorbergur Aöalsteinsson 5
2v, Hilmar Sigurgíslason 3, Karl
Þráinsson 3, Steinar Birgisson 1,
Guömundur Guðmundsson 1, Ein-
ar Jóhannesson 1.
Mörk FC Barcelona: Zerano 3
1v, Castelli 2, Segales 2, Melo 2,
Uria 2, Zortiz 2 2v.
Dómarar voru norskir og
dæmdu þeir af nokkru óöryggi á
stundum en í heildina sluppu þeir
sæmilega frá leiknum. Voru þó
Víkingum frekar óhagstæöir ef
eitthvað var. Víkingar fengu fjögur
vítaköst í leiknum en Barcelona 3.
Sóknarnýting Víkings var 53% sem
er gott.
Sjö sinnum var leikmönnum Vík-
ings vikiö af leikvelli samtals í fjór-
tán mínútur. Fjórum leikmönnum
Barcelona var vikiö af velli í átta
mínútur.
— ÞR.
Morgunbtaðtð/Skapti HaÉgrirraaon
HANS ÞRUMAR f MARK METALOPLASTIKA
FH-ingar tðpuðu stórt, 32:17, í fyni undanúrsiitaleik sínum í Evrópukeppni meistaraliða í handknattleik, í Sabac í Júgósiavíu á laugardag gegn
Metaloplastika Sabac. í liði Sabac, sem taKð er besta fólagslið í heimi, er valinn maður í hverrí stöðu, enginn veikur hlekkur, enda eru sex af |
byrjunariiði Metaloplastika einnig í byrjunariiði júgóslavneska landsliösins alla jafna, og Júgóslavar eru sem kunnugt er Ólympíumeistarar í
handknattleik. FH-ingar lóku nokkuð vel framan af leiknum á laugardag en undir lokin hrundi leikur þeirra eins og spilaborg og hvert markiö af
öðm var gert hjá þeim. Staðan í leikhléi á laugardag var 14Æ fyrir Mettoplastika. Á myndinni aö ofan skorar Hans Guðmundsson eitt af mörkum
FH í fyrri hálfleiknum — með þrumuskoti sem Basic, markvörður og fyririiði júgóslavneska liösins, réö ekkert viö. TR vamar eru Veeelin Vukovic
(númer 3) og Mrkonja (númer 7). Inni á Knunni er ÞorgHs Óttar Mathiesen. Blaöamaður Morgunblaðsins var meö FH-ingum í Júgósiavíu og er
frásögn hans og myndir aö finna á Maðstöum B10 og B11.
J ........... ” ' “ ' ‘ ' “ |