Morgunblaðið - 26.03.1985, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 26.03.1985, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 26. MARZ 1985 B 11 Valgarð Valgarðsson: „Fundum van- mátt gegn þessu liði“ „Þeir eru töluvert líkamlega sterkari en þeir menn sem viö er- um vanir aö leika gegn heima. Þeir spíla meö eilífum „klipping- um“ og plathreyfingum og hlaupa mikið án bolta. Þaö er því mjög erfitt aö leika gegn þeim,“ sagöi Valgarð Valgarösson. .Hver leikmaöur átti nóg meö aö passa sinn eigin mann í vörn- inni — ef maður reyndi aö hjálpa öðrum voru alltaf einn til tveir orönir fríir. Þetta hrundi allt hjá okkur á síö- ustu fimmtán mínútunum. Eins og spilaborg. Þeir tóku áhættuna á aö leysa meira upp í sókninni heldur en jjeir höföu gert — tóku alla áhættu sem þeir gátu og þaö gekk upp. Þaö má mikiö vera ef maður á eftir aö spila gegn svona flinkum handboltamönnum aftur. Þaö er virkilega gaman aö fá aö takast á viö þá en viö fundum vanmátt gegn þessu liöi, aö minu mati. Ef lið ætlar ekki aö tapa meö meira en 5—6 mörkum gegn svona liði veröa menn aö hafa trú á sér allan leikinn." Morgunblaöið/Skapti • Hinir sfóru og sterku varnarmenn Metaloplastika taka hér á móti Kristjáni Arasyni sem undirbýr skot á markið. Þaö eru Zlatko Portner (nr. 2) og Milosevic sem sækja aö honum en Veselin Vujovic (nr. 8) hefur gætur á Þorgils Óttari til hægri. „Mínir menn trúðu ekki að þeir gætu staðið í þessu liði“ - sagði Guðmundur Magnússon, þjáHari FH-inga, eftir tapið í Sabac Sagt eftir leikinn: „Við ofur efli að etja“ „Viö áttum viö algjört ofurefli aö etja,“ sagði Jón Erling Ragnarsson. „Mér fannst sig- urinn þó of stór miðaö viö gang leiksins. Menn gáfust upp í lok- in. En ég er sannfæröur um aö þetta er besta félagsliö i heimi — þaö er enginn veikur hlekkur í því. Isakovic átti t.d. „down leik" en þaö skiptir þá engu máli. Þá „brilleraöi" bara ein- hver annar í staöinn. Þetta eru frábærir leikmenn og allt virðist svo auövelt hjá þeim. Viö gát- um gert betur. Þetta var aöeins miölungsleikur fram í miöjan seinni hálfleik og svo hrundi allt," sagöi Jón Erling. „Við uröum fyrir gífurlegum vonbrigöum," sagöi Hans Guö- mundsson. „Fimmtán marka tap er allt of mikið og mögu- leikar okkar eru mjög litlir á aö komast áfram gegn svo sterku liöi. Viö stefnum þó að því aö vinna heimaleikinn og ég held aö viö eigum að geta þaö. Viö sprungum algjörlega í seinni hálfleiknum — gáfumst bara upp. Viö vorum aö minnka muninn, vorum aö ná neista í leik okkar á ný, en sprengdum okkur alveg viö þaö og hætt- um." Hans sagöi aö ef FH-ingar naeðu mjög góöum leik heima teldi hann þá eiga möguleika á 1—2 marka sigri. „ÞETTA var allt of mikill munur Viö geröum ailt of mikiö af byrj- endamistökum. Ég held aö mínir menn hafi ekki haft trú á því aö þeir gætu staöið í þessu liöi,“ sagöi Guömundur Magnússon þjálfari FH eftir leikinn. „Mórallinn var góöur í hálfleik hjá okkur — viö minnkuöum mun- inn síöan en þegar rúmlega tíu mín. voru búnar af seinni hálfleik gáfust menn upp. Fjórar sendingar fóru beint útaf, þrjár sendingar beint í hendur þeirra og þrjú dauöafæri fóru forgöröum, og munurinn allt í einu orðinn tíu mörk. Gegn svona liði má ekkert misheppnast — mistökin veröa a.m.k. aö vera í algjöru lágmarki. Þetta er besta liö sem ég hef séö — og hef ég séð þau mörg og leikiö gegn mörgum. Breiddin hjá þeim er rosaleg — þó besti maö- urinn „klikkaöi", en Isakovic átti ekkert sérstakan dag, kom bara annar í hans staö. Mrkonja í hinu horninu lék frábærlega — viö réö- um ekkert viö hann. Þetta er svakalega reynslumikiö liö. Þessir karlar leika ekki bara saman i þessu liöi heldur í lands- liðinu líka og eru því geysilega rút- íneraöir. Ég geri mér grein fyrir því aö viö eigum enga möguleika á aö komast áfram — seinni leikurinn er bara formsatriöi," sagöi Guö- mundur. „Þeir vinna keppnina" „Ég spái því aö þeir vinni keppn- ina," sagöi Þorgils Óttar Mathie- sen, fyrirliöi FH-liösins. „Þetta liö er heilum klassa fyrir ofan okkur. Þetta er taliö besta félagsliö í heimi og leikmenn þess eru allir atvinnumenn. Ég taldi þaö verri kost aö mæta þeim frekar en Athl- etico Madrid eöa Dukla Prag. Spánska og tékkneska landsliöiö voru i B-keppninni i Noregi og leikmenn þessara tveggja liöa eru því þreyttir núna. Mér fannst vörnin nokkurn veg- inn í lagi hjá okkur en sóknin var slök. Og viö sprungum er 15 mín. voru eftir — en fram aö því lögöu menn sig alla fram. Menn voru hreinlega búnir og þá gengu þeir alveg yfir okkur." „Mjög svekktur“ „Ég er mjög svekktur meö þessi úrslit," sagöi Kristján Arason. „Viö spiluöum ágætlega í u.þ.b. 40 mín- útur en síöan kom hreinlega upp- gjöf í liðiö. En þetta liö er eins og allir vita stórkostlegt, þeir voru klassa fyrir ofan okkur. Þessi munur er þó of mikill. Þeir eru vitanlega betri en viö en þessi markamunur sýndi ekki styrkleika- muninn. Þaö heföi veriö gott aö tapa meö 8—10 marka mun. Þeir tóku miklu meiri áhættu í leik sín- um en í landsleikjunum heima um daginn — í hraöaupphlaupum og „sirkusmörkum". Mér fannst vanta sjálfsaga og yfirvegun í leik okkar þegar líöa tók á — ótimabær skot voru reynd, menn mátu færin ekki rétt og þaö má alls ekki gegn svona liöi. Mér finnst þetta liö betra en landsliöiö þeirra var á Ólympiuleik- unum. Örvhentu leikmennirnir þeirra tveir eru t.d. sterkari en Ur- ina „gamli" var. Mrkonja er líka miklu betri en hægri hornamaöur- inn sem var meö landsliöinu í Los Angeles. „Unser Freund," kallaöi Bogdan hann („vinur okkar"), því hann klúöraöi svo mörgum dauöa- færum í þeim leik. Viö munum reyna aö gera betur heima og viö gerum þaö vissulega. En þá veröur að vera meiri skyn- semi í liöinu. Ég held aö islenskir handbolta- menn ættu aö geta lært mikiö af þessum mönnum. Þaö er eins og kennslubókardæmi í handknattleik aö sjá þá leika," sagöi Kristján. „Þaö var mjög erfitt aö standa í markinu," sagöi Haraldur Ragn- arsson, en hann var inni á mest allan tímann. „Ég náöi ekki aö sýna mitt rétta andlit. En þetta eru bestu einstaklingar sem maöur hefur spilaö viö — og heimavöllur- inn er gifurlega góöur. Áhorfendur voru frábærir, hitinn i húsinu mikill og því erum viö óvanir heima. Fimm til tiu marka tap heföi veriö miklu skemmtilegra (!) tap. Þaö er niöurlægjandi aö tapa meö svona miklum mun. Ég tel þaö góöan árangur ef viö næöum aö vinna þá heima — en möguleikinn á aö komast áfram er náttúrulega ekki raunhæfur, þaö gera sér allir grein fyrir því." Frá Skapta Hallgrímssyni blaðamanni Morgunblaösins í Júgóslavíu MorgunblaðM/Skaptl • Guömundur Magnússon, þjálfari FH-inga, til vinstri á biaðamanna- fundi í Zorka íþróttahöllinni strax aö leik loknum á laugardagínn. Aleksander Pavlovic, þjálfari Metaloplastika: „Mikiö afrek af liði frá svona litlu landi að komast í undanúrslit“ „VIÐ BIÐUM meö þaö þangaö til í síöari hálfleík aö keyra hraöann upp og þá lókum viö mjög vel,“ sagöi Soran Chevkovic, lands- liösþjálfari Júgóslava og aöstoö- armaöur þjálfara Metaloplastika, eftir leikinn á laugardag. Chevko- vic þessi þjálfaöi liö þetta þar til í fyrra og hann geröi þaö aö því stórveldí sem það nú er. „Vörn okkar var mjög góö í seinni hálfleiknum og andstæö- ingar okkar lentu því i miklum vandræöum. Sigur okkar var aldr- ei í hættu — þaö var engin spurn- ing. FH-leikmennirnir geröu allt sem þeir gátu en munurinn er ein- faldlega mjög mikill á liöunum. Ég býst viö sigri í Reykjavík lika," sagöi Chevkoviv aö endingu. „Viö geröum allt of mörg mistök í sóknarleiknum en þaö kom sem betur fer ekki aö sök í dag," sagöi hornamaöurinn snjalli Jasmin Mrkonja eftir leikinn viö FH. „Viö lékum óvenju mikiö sem einstakl- ingar i dag — venjulega leikum viö mun meira saman sem heild." Mrkonja var spuröur aö því hvaöa liði hann vildi mæta í úrslita- leik keppninnar: „Ég vona aö viö lendum á móti Dukla Prag — viö veröum að fá tækifæri til aö hefna ófaranna frá því í fyrra er þeir sigruöu okkur í úrslitaleik Evrópukeppni meistara- liða á vítakeppni,” sagöi hann. „Viö lékum mjög hratt í leiknum og þar af leiöandi uröu mistökin fleiri en góöu hófu gegndi," sagöi Alexander Pavlovic, þjálfari Met- aloplastica. „Viö erum komnir meö góöa forystu og ég held aö viö get- um farið rólegir til islands — viö töpum þessum mun aldrei niöur." Hvert er óskalið þitt í úrslitaleikn- um? „Ég vonast til aö leika gegn Atlet- ico Madrid en ég er hræddur um aö engu aö síöur veröi þaö Dukla Prag sem viö mætum i úrslitum eins og í fyrra." Þjálfarinn fór siöan aö skýra júgoslavnesku blaöa- mönnunum frá því hvernig hann hygöist leika i urslitaleiknum gegn Dukla, greinilega ekki hræddur um aö liö hans kæmist ekki áfram! „Leikmenn FH búa margir hverj- ir yfir miklum hæfileikum. Þeir leika mjög kraftalegan handknatt- leik. Mér er sagt aö þeir séu áhugamenn i íþróttinni og ég held aö þaö sé rétt. Þaö sést á leik- mönnum liðsins. En það er mjög mikið afrek hjá liöi frá svo litlu landi aö komast í undanúrslit í Evr- ópukeppni meistaraliöa," sagöi Pavlovic.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.