Morgunblaðið - 21.04.1985, Síða 3

Morgunblaðið - 21.04.1985, Síða 3
— . MORGUNBLADIÐ, SUNNUDAGUR 21. APRÍL 1985 C 3 JÓNAS HALLGRÍMSSON JÓHANN SIGURJÓNSSON Jónas Hallgrímsson LJóðhorn Sölvi Sveinsson Jóhann Sigurjónsson (1880—1919) hefur lengi notið al- menningshylli fyrir leikrit sín, einkum Fjalla-Eyvind og Galdra- Loft. Ljóðum hans hefur hins veg- ar ekki verið gefinn jafnmikill gaumur og skyldi, og hefur þó rætzt úr síðustu áratugi, enda virðist nýrómantíkin höfða til samtímans. Jóhann gat „látið hjörtu slá með orðsins mætti“, eins og hann óskaði sér í ljóði, hann var „einn af þessum fáu“. Kvæði hans eru einlæg og tilfinn- ingarík, orðfæri þeirra meitlað og myndsýnin skörp. Þessi einkenni birtast öll í litlu Ijóði um Jónas Hallgrímsson: Dregnar eru litmjúkar dauðarósir á hrungjörn lauf í haustskógi. Svo voru þínir dagar sjúkir en fagrir, þú óskabarn ógæfunnar. Ævidögum Jónasar er líkt við skóg á haustdegi: hann er fallegur í fjölbreyttri litadýrðinni, en ber dauðann í sjálfum sér. í örfáum línum er dregin upp náttúrumynd, þrungin söknuði og hverfulleik, og málið sveigt undir hugsun skálds- ins: litmjúkar dauðarósir og hrun- gjörn lauf eru vísast úr smiðju Jó- hanns, í senn merkingrrík orð og hlaðin tilfinningu. Og í samkennd- inni með Jónasi Hallgrímssyni, óskabarni ógæfunnar, felst með sínum hætti sú ákafa lífslöngun sem öðru fremur einkennir ljóð Jóhanns — blandin dauðageig. Höfundurinn er kennari í Fjöl brautaskólanum rið Ármúla. Oröahækur Erlendar bækur Siglaugur Brynleifsson The Oxford Guide to English Usage. Compiled by E.S.C. Weiner. Oxford — At the Clarendon Press 1984. The Oxford - Duden Pictorial English Dictionary. Oxford University Press 1984. „The Oxford Guide to English Usage er ætluð þeim, sem þarfnast upplýsingar um myndun og notkun enskra orða, um framburð, réttrit- un, merkingu og málfræðireglur ... bókin á að veita svör við spurning- um um réttan framburð, réttritun og merkingu orða, sem menn eru alltaf að spyrja um ..." Fjölmörg dæmi um orðanotkun eru tekin úr ritum ýmissa 20. aldar höfunda og að því leyti er ritið frábrugðið öðrum, sem seilast yfir lengri tímabil. Réttur framburður einnar þjóð- tungu er ekki eins einfaldur og ætla mætti, í þessari bók er grundvöllurinn, „sá framburður sem er síst staðbundinn og sem var upphaflega iðkaður af menntuðu fólki í suðurhlutum Englands“. Ýmsir geta sjálfsagt haft eitthvað að athuga við það hvort þetta sé sá eini rétti framburður á ensku, en þetta er ríkjandi mat nú. Eins og segir í inngangi eru not ritsins takmörkuð við þau orð. framburð og merkingar orða sem menn eru almennt ekki vissir um hvernig eigi að nota rétt. Miðaö er við „venjulega orðanotkun" svo að ritið er takmarkað. Kaflinn um málfræði, stefnir að því sama, undirstöðuatriði eru tek- in og þá einkum þau, sem þvælast fyrir fólki að nota rétt. Bók þessi er sjálfsagt hentug sem handbók við kennslu, ekki síst málfræðikaflinn, sem gæti komið að nokkrum notum, ekki síst hér- lendis, þar sem málfræðikennsla í ensku er bönnuð samkvæmt reglu- gerðum og kunnáttu namenda í ensku hefur hrakað mjög á síðustu tíu, fimmtán árum. „The Oxford-Duden Pictorial English Dictionary", er unnin í samvinnu við Dudenredaktion Bib- liographisches Institut, Mannheim. Þetta er orðabók byggð á myndum af þeim fyrirbrigðum, sem orðin tjá. Þau fyrirbrigði eru fjölmörg sem verða tjáð auðveldlegar á þennan hátt en með oft langsömum skýringum í orðum. Alls eru hér skýrð 28.000 orð á þennan hátt. Efnið er flokkað niður og síðan fylgja myndir hverjum efnisflokk, orðasafn er síðan í bókarlok með tilvísun til myndsíðnanna. Duden orðabækurnar hafa lengi talist mjög hentugar orða-og orða- skýringabækur. Þessi bók er mjög hentug til notkunar með venju- legum enskum orðabókum og kem- ur sér vel fyrir nemendur og aðra. Eftirtaldar prjóna- og saumavélar eru til sölu 6 Interlock-prónavélar á kr. 15.000,00 pr. stk. 4 Flatlock-saumavélar á kr. 8.000,00 pr. stk. 5 Overlock-saumavélar á kr. 8.000,00 pr. stk. 2 Földunarvélar á kr. 6.000,00 pr. stk. 2 Zigzag-vélar á kr. 5.000,00 pr. stk. 1 Töluvél á kr. 5.000,00 pr. stk. Séu allar vélarnar keyptar einum pakka kosta þær kr. 100.00,00. Allar upplýsingar gefur HreiÖ ar Jónsson í síma 96-22831. Amaro hf., Akureyri. RITVINNSLA II Öflugt, nútímalegt ritvinnsluforrit Auðvelt og skemmtilegt í notkun Ritvinnsla II, sem er notuð á margar tegundir tölva hefur fjölmarga góða kosti, en sá stærsti er fyrir flesta hversu auðveld notkunin er. Ekki er krafist tölvuþekkingar og allar val- myndir og leiðbeiningar eru á íslensku. - Sérstakt kennsluskjal sem þjálfar byrjendur. - Sýnir allan texta á skjánum án aukatákna. - Hefur reynst vel og hlotið lof. Tölvuskólinn FRAMSÝN, Tölvufræðsla Stjórnunarfélagsins og Tölvuskóli Menntaskólans á Akureyri bjóða vönduð námskeið í notkun Ritvinnslu II. Ritvinnsla II var valin til notkunar í ríkisstofnunum á ATLANTIS og IBM PC tölvur. Útsölustaðir: ATLANTIS hf., Skúlagötu 51 v/Skúlatorg S:6211 63 Skrifstofuvélar hf., Hverfisgötu 33 S: 20560 Örtölvutækni hf., Ármúla 38 S: 687220 Gísli J. Johnssen, Smiðjuvegi 8, Kópavogi S: 73111 Kristján Ó. Skagfjörð, Hólmaslóð 4 S: 24120 Míkró hf., Skeifan 11 S:685610 Ritvinnsla II - sparar þér ómældan tíma og fyrirhöfn við ritstörf af ýmsum toga. SKÚLAGÖTU 51 SÍMI 621163

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.