Tíminn - 17.09.1965, Page 7
FÖSTODAGUR 17. september 1965
TÍMINN
Þessa dagana eí stodd hér í borg hljómsveit Ingimars Eydal frá
Akureyri. Þeir félagarnir eru hér í skyndiheimsókn og eru aS
leika inn á hljómplötu. Þeir ætla einnig a3 leika í Glaumbæ í kvöld,
föstudagskvöld og laugardagskvöld, áSur en þeir snúa norðair á ný.
á ný.
MINNING
Gísli J. Johnsen
Einn hinna landskunnu aldamóta
manna, Gísli J. Johnsen, útgerð-
armaður, konsúll og kaupmaður,
léxt hér í bænum hinn 6. septem-
ber s.l., 84 ára að aldri.
Gísli var fæddur Vestmannaey-
ingur, danskur í föðurætt, og er
ætt hans þar rakin til Suður-Jót-
lands, en í móðurætt var hanh
kominn af Jóni Steingrímssyni,
en einnig af Dalverja- og Höfða-
brekkuættum.
Gísli J. Johnsen var landskunn
ur athafnamaður fyrjr störf sín
við sjávarútveg og v^rzlun. Hann
er einn með þeim fyrstu hér á
landi, sem tekur vélaafl í þágu
fiskveiða, bæði á sjó og landi, og
er þá hugsað til upphafs vélbáta-
aldarinnar og vélfrystingar á
bejtusíld og síðan .sjávarafurðum.
En samhliða útgerð og fiskverkun
rak hann jafnframt verzlun í Vest
mannaeyjum allt þar til verðhrun
ið mikla éftir fyrri heimsstyrjöld
reið yfir.
Upp frá því settist Gísli J.
Johnsen að í Reykjavík og hefur
rekið þar heildverzlun og þá með-
al annars með skip, vélar og
annað, er að sjávarútvegi lýtur, en
einnig ýmsan annan vélakost.
Af sérstökum áhugamálum
Gísla J. Johnsen eru kunnust
sjúkrahúsið í Vestmannaeyjum
og framlög hans til slysavarna-
mála.
Fyrri kona Gísla J. Johnsen
var Ásdís Gísladóttir, og eignuð-
ust þau þrjú börn, Sigríði, Gísla
og Soffíu. Síðari kona hans var
Anna Ólafsdóttir yfirhjúkrunar-
kona, sem víðkunn varð af starfi
sínu á Vífilsstöðum á sinni tíð.
Gísli J. Johnsen var höfðings-
maður í sjón og raun.
G. M.
Gerum við
allar gerðir
af '
Diesel
úíu
erfum
endum
póstkröfu.
DIESILL Vesturgötu 2
(Tryggvagötumegin) sími 20940.
I
MINNING
BJÖRN LÁRUSSON
frá Ósi
f dag verður gerð frá Akraness-
kirkju útför Björns Lárussonar,
fyrrum bónda að Ósi í Skilmanna-
hreppi, en hann lézt á Akranesi
9. þ.m. tæplega 83 ára að aldri.
Björn var fæddur að I mgsbakka
í Helgafellssveit 13. okt. 1882. Fór
eldrar hans voru hjónin Rósa
Jónsdóttir og Lárus Björnsson,
sem bjuggu nokkur ár að Kóngs-
bakka, en lengst af í Borgar-
firði, enda taldj Björn- sig ætíð
Borgfirðing. Hann var yngstur
5 systkina. Rósa móðir hans var
Eyfirðingur, en faðir hans var úr
Kjósinni.
I.
Björn var gáfaður hugsjóna-
maður. Félagslyndur og vel í-
þróttum búinn á yngri árum.
Hann var nær tvítugu, þegar 20.
öldin gekk í garð. Fyrsti áratug-
ur aldarjnnar varð hinum unga
manni mikilsverður skóli, sem
mótaði skoðanir hans og viðhorf
til lífsins æ síðan. Hann var sann
ur fulltrúi aldamótakynslóðarinn-
ar. Hugur hans stóð fyrst til sjó-
mennsku og var hann á skútum
fáein ár, en kunnj þar ekki við ; hug hans allan. Hann tók þátt í
sig, enda sjóveikur. Hann réðist j störfum Umf. Reykjavíkur hin
því í smíðanam haustið 1901 til | fyrstu ár og var lengi síðan virk-
Magnúsar Ámasonar, trésmíða- j ur ungmennafélagi. Hann taldi
meistara, Aðalstr. 18 í Reykjavík. j þag eina hina mestu gæfu í líf
Nám hans hófst með byggingu inu að hafa kynnzt og unnið með
Uppsala, en það hús stendur enn hinum mörgu félagslyndu hug-
Hann minntist þess jafnframt
með gleði, að í þeim kosningum
var aðflutningsbann á áfengi sam
þykkt. Björn var alla ævi mjkill
bindindismaður og lengi félagi í
reglu góðtemplara. Hann fór
aldrei dult með þá skoðun sína,
að áfengið væri mesti bölvaldur
mannkynsins. Hann var heill og
sannur þar sem annars staðar.
Ungmennafélagshreyfingin átti
á horni Túngötu og Aðalstrætis
Það var eign Magnúsar Árnasonar
og Kristins sonar hans, sem var
skjpstjóri. Aðrir synir Magnúsar
voru sr. Ólafur í Arnarbæli og
Sigurður, héraðslæknír á Pátreks-
firði. Báðir þjóðkunnir menn á
sinni tíð. Björn bjó hjá þessari
fjölskyldu meðan smíðanámið
stóð yfir og minntist hennar jafn-
an með þakklæti og virðingu.
Taldi hann Magnús góðan og nær
gætinn húsbónda og læriföður.
Sveinsprófi lauk hann haustið
1904.
Það var mikið happ fyrir Björn
að Iðnaðarmannafélag Reykjavík-
ur stofnaði á þessum árum kvöld
skóla fyrir iðnaðarmenn, sem var
upphafið að Iðnskólanum í Reykja
vík. Þar kynntist hann frábærum
kennurum, sem mótuðu skoðanir
hans varanlega. ' Má þar nefna
Þorstein Erlingsson, skáld, sr.
Ólaf Ólafsson, fríkirkjuprest og
Guðmund Finnbogason síðar lands
bókavörð. Allir þessir kennarar
tendruðu elda hugsjóna og frels
is í brjósti hins unga og hrifnæma
manns.
II.
Hann var í fyrsta sinn á kjör
skrá í Reykjavík í hinum sögulegu
kosningum 1908. Hann skipaði sér
af eldmóði gegn Uppkastinu og
minntist þeirra kosninga jafnan
síðan af hrifningu. Allar aðrar
kosningar féllu í skuggann fyrir
þeim. Honum fannst þá svo fersk
ur og frjáls blær yfir kjósendum
og viðbrögð þeirra málefnaleg.
Upp frá því skipaði hann sér í rað
ir hinna frjálslyndari kjósenda.
enda í samræmi við lífsskoðun
hans.
sjónamönnum í Umf. Reykjavikur,
og mjnntist þar sérstaklega
Tryggva Þórhallssonar, Guðbrands
Magnússonar og sr. Jakobs Ó.
Lárussonar. Á þeim árum var
Björn einn af forgöngumönnum
skíðabrautarinnar í Eskihlíðinni
og stundaði daglega sund við höfn
ina í Rvík með Sigurjóni Péturs-
syni o.fl.
Þá fylgdist hann vel með stefn
um í trúmálum. Hreifst af kenn-
ingum Haraldar Níelssonar og
sótti allar hans samkomur. Mótaði
það trúarskoðanir hans upp frá
því.
Af framangreindu má það ljóst
vera, að Björn bjó sig vel undir
lífsstarfið og gaf sig þeim hreyf
ingum á vald, sem líklegastar
voru ungum mönnum til þroska.
Skoðanir hans og svipmót ein-
kenndust af áhrifum þeim, er
hann varð fyrir í Reýkjavík á
fyrsta tug aldarinnar.
m.
Árið 1909 hverfur Björn aftur í
Borgarfjörðinn og fer að búa á
Heggstöðum í Andakíl með systr
um sínum og jafnframt eru for-
eldrar hans þar i heimili. Stund-
aði hann smíðar jafnframt bú-
skapnum, enda fáir jafn vel mennt
aðir og hánn í þeirri grein. Árið
1914 kvæntist hann rjómabústýru
l
'II
0FUNAR
INGIR
ÁMTMANNSSTIG 2
HAI l.l)OH KKISTINSSOIN
<Tulismfðu? Sim< 16*17»
þar í sveitinni — Aldísi Jónsdótt
ur, bónda á Stokkseyri Grímsson-
ar. Aldís er frábær ágætiskona
og hefur verið Birni styrk stoð í
meira en hálfa öld og aldrei
meiri en hin síðari árin, er mikið
reyndi á umhyggjusemi hennar og
nærgætni, er Bjöm var farinn
að líkamskröftum.
Börn þeirra eru sex. Þrjár dæt-
ur og þrír synir. Á Akranesi eru
búsett: Rósa, Lárus, Sigurjón og
Ingibjörg. Ingveldur Ólafía býr
að Skútustöðum í Mývatnssveit.
Ragnar er látinn fyrir nokkrum
árum. Hann var búsettur á Akra-
nesi. Allt eru þetta hinir beztu
þjóðfélagsþegnar.
Að Ósi í Skilmannahreppi fluttu
svo ungu hjónin 1916, og bjuggu
þar í 32 ár. Við þá jörð var Björn
síðan kenndur. Árið 1948 bregða
þau búi og flytja á Akranes og
áttu þar heima upp frá því.
Svo var mikil tryggð Björns
við þessa jörð, að hann neitaði að
selja hana, — þegar börn hans
óskuðu ekki eftir að hefja þar bú-
skap — nema hafa tryggingu fyr-
ir því að þar yrði vel búið og
jörðin bætt. Varð honum þar fylll
lega að ósk sinni. Ungur og fram
úrskarandi duglegur bóndi keypti
jörðina, og hefur gert þar svo
miklar framkvæmdir í ræktun
og byggingum, að hún er nú með
beztu jörðum í Borgarfjarðarhér-
aði. Með þessu fylgdist Björn og
gladdist yfir. Þar rættust draum-
ar hans um þann stað sem hann
hafði lifað beztu ár ævi sinnar
og tekið mikilli tryggð við.
IV.
Um sjötugt tók heilsu Björns
að hnínga, og mörg síðustu árin
var hann sjúklingur og komst
ekkert óstuddur. Þannig lét lík-
aminn stöðugt undan Eili kerlingu
en andinn var hinn sami. Æsku-
hugsjónirnar loguðu skært til
hins síðasta. Á þær sló aldrei
neinn fölva. Hann var sannfærður
í trú sinni á lífið og ódauðleik-
ann.
Fátt mat Björn meira af and-
legum ljóðum en þetta erindi úr
sálmi Guðm. Guðm. og lýsir það
einmitt skapgerð hans:
„Fyrst ér að vilja veginn finna,
vaka, biðja í nafni hans,
meistaranna meistarans.
Þreytast ekki, vinna, vinna,
vísdóms æðstu köllun sinna:
Leita sífellt sannleikans“.
Mikill dugnaðar- og atorku-
maður er fallinn. Hann gerðj
miklar kröfur til annarra, en þó
mestar til sjálfs sín. Hann leit-
aði stöðugt sannleikans í hverju
máli. Kallið kom honum ekki á
óvart. Hann var ferðbúinn. Eg
sé þennan eftirminnjlega sam-
ferðamann ganga glaðan og reif-
an inn til síns herra. Hugljúf minn
ing um hann mun lifa áieð konu
hans, börnum, tengdabörnum,
barnabörnum og vinum hans öll
um. Það er mikill söknuður, þeg
ar sterkir stofnar falla. Blessuð
sé minning Björns Lárussonar frá
Ósi.
Daníel Ágústínusson.
KM 32
srHur
Hrærivélin
400 W MÓTOR - £ SKALAR _ HNOÐARJ - ÞEYTARI
VERÐ INNAN VIÐ 4000 KR.
ÚRVAI AUKATÆKJA JAFNAN FYRIRLIGGJANDI
BRAUN HRÆRIVÉLIN FÆST t RAFTÆKJA
VERZLUNUM t REYKJAVtK OG VÍÐA UM LAND
BRAUN-UMBOÐIÐ
RAFTÆKJAVERZLUN tSLANDS HF. REYKJAVtR