Morgunblaðið - 02.06.1985, Síða 4

Morgunblaðið - 02.06.1985, Síða 4
4 C MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 2. JtJNl 1985 Bergnuminn af fjölmiðlaefni nútúnans rró listmálari af íslandi situr ekki auðum höndum. Fréttir hafa borist af a.m.k. tveimur stórum sýningum á verkum hans í París um þessar mundir. Önnur er í boði Parísar- borgar í Moderne safninu við Avenue President Wilson, nefnist Paysages 1959—1985 og stendur frá 7. maí til 16. júní. í þessum „landslagsmyndum“ vill hann innlima myndir af allri heimskringlunni, eins og segir í fyrirsögn blaðsins Le Matin. Stór og vönduð sýningarskrá hefur verið gefin út, mikið skreytt myndum af verkum listamannsins í lit og svarthvítu, og með greinum og lofsamleg- um ummælum um hann. Einnig er einhver hluti sýningarinnar hjá Gilbert Brownstoen í Sait Gillesgötu 17. fram til 21. júní. Ennfremur hefur Erro verið með sýningu í Paris í Grande Halle de La Vilette og lýkur henni 20. maí. J A\ -.‘Sáck~, ^-/\ IRtSÍ'iíp *É *öT ’ ^ „Hver er þessi málari sem heima á fslandi dreymdi um það að verða fiskimaður eða gullleitar- maður, en nú getur haldið upp á silfurbrúðkaup sitt með sérstæðri tækni, sem felst í því að stefna í málverkinu saman myndum ann- arra, myndum sem við þekkjum öll og kunnum utanbókar af kynn- um okkar af þeim á síðum dag- blaðanna okkar, í bókunum, í kvikmyndunum, af sjónvarps- skjánum og á múrveggjunum?" spyr blaðamaðurinn Maiten Bou- isset í upphafi viðtals við Erro í Le Matin í tilefni sýningar hans. Og bætir við: „Hver er þessi dáði vík- ingur sem nýtur þess að æða um heiminn, hlæja, borða góðan mat og dreypa á víni, og getur svo stað- ið heilu dagana í vinnustofunni sinni án þess að líta af léreftinu, þessi yfirvegaði risi sem hefur dálæti á öðrum um leið og hann kann að halda í sína eigin ströngu gagnrýni og stendur pólitískt föst- um fótum?" Blaðamaðurinn kallar Erro einhvern stórkostlegasta myndgerðarmann okkar tíma og vill fá að vita hvers vegna Erro er svona bergnuminn af fjölmiðla- efninu. Hvers vegna sleppir listmálari sínu eigin myndefni, sem fæðist í hans persónulega hugmynda- heimi, og fer allt í einu að nota bara myndir annarra? og Erro svarar: „Maður lifir í þeim, er heltekinn af þeim. Er umkringdur af þeim og ómögulegt að sleppa. Það er ofur eðlilegt að ein kynslóð listamanna nýti sér þetta óvið- jafnanlega efni sem svo mjög snertir okkar tíma. Mér finnst ég vera einhverskonar sagnaþulur, fréttaritari hjá geysistóru fyrir- tæki sem safnar öllum myndum heimsins og mitt hlutverk sé að vinna úr þeim greinargerð. Eftir á að hyggja, vann Rubens annars nokkuð öðru vísi? Hann hafði safnað í Rómaborg óhemjumiklu upplýsingaefni og hann hafði ótrúlegan fjölda af hjálparmönn- um. Þetta er nokkuð svipað, með þeim tilbrigðum þó að hjá mér leikur fjöldi Ijósmyndara, teikn- ara og blaðamanna hlutverk hjálparfólks. Hvernig verður maður þá myndveiðimaður? „Undir lok 6. áratugarins bjó ég í námunda við Maubertorg og sá daglega út um gluggann minn tuskusafnarana með barnavagna á undan sér, sem losuðu úr þeim einhver ósköp af dagblöðum og tímaritum. Ég hreifst af þessu. I fyrstu tók ég af þeim myndir, síð- an keypti ég þau. Fyrir 2 franka gat ég fengið mörg kíló af þessum dásemdum. Þá byrjaði ég að klippa út úr þeim, raða saman efn- inu og fór síðan að langa til að líma það upp. Ég hafði áhuga á hvers konar myndum, hvort sem þær voru pólitískar, félagslegar, sögulegar, vísindalegar, menning- arlegar eða kynæsandi, hvort sem þetta voru Ijósmyndir, teikni- myndir, endurprentanir, auglýs- ingamyndir, aðeins ef þær voru á prenti. Ég ferðast mikið og stund- úm er það aðferð til að finna nýtt efni. Ég fæ líka hjálp frá vinum mínum. Þannig útvegaði vinur minn, sem er lækissonur, mér efni úr læknisfræði og lífræði í mynda- flokkinn Nervscape. Það getur tekið brjálæðislega mikinn tíma að safna nægu myndasafni til að geta byrjað á myndaflokki. Það tók mig t.d. 15 ár að safna efniviði í rússnesku pólitísku skopmynd- irnar.“ Hvers konar tækni notarðu til að vinna myndirnar sem þú kallar Scape? „Fyrsta myndröðin var Gala- pagos. Hún er dálítið sérstök. Ég hafði fundið mynd í tímaritinu Life af þessum sérstöku eðlum og málaði mynd eftir ljósmyndinni. Annars og í hinum myndunum mínum er ég vanur að vinna úr efniviðnum upplímingarmynd (ein slík er á sýningunni). Sá hluti verksins er mest spennandi, frjálslegast unninn, verður næst- Hluti af málverki eftir Erré.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.