Morgunblaðið - 16.06.1985, Qupperneq 1
MENNING
LISTIR
PRENTSMIDJA MORGUNBLAÐSINS SUNNUDAGUR 16. JÚNÍ1985
BLAÐ
LEIKHÚS
FÁRÁNLEIKANS
HEIMUR
ABSÚRDLSTANS
eftir Odd Björnsson
(„Hvernig ég skýri leikritin mín?
Ætli þau lýsi ekki ofnœmi."
Haft eftir leikritahöfundi.)
ð ræða
„absúrd-leikhús" er einna líkast
því að blása í nefið á fíl (sem kall-
ast rani): þú bólgnar mest sjálfur
og getur endað sem blaðra. Þá er
bara um að gera að springa ekki
með lágum hvelli, það er m.ö.o. dá-
lítið vandasamt ef ekki erfitt.
Meðfram vegna þess að við upplif-
um það á hverjum degi, og svo
bætist oná það alltsaman að orð
hafa meira eða minna glatað
merkingu sinni, einkum vegna of-
og misnotkunar þeirra sem þurfa
að hafa hátt og vera með áróður.
Gildir þetta sérílagi um auglýs-
endur og ýmsa stjórnmálamenn —
og reyndar flesta þá sem þurfa að
láta ljós sitt skína. Hlutverk
skáldsins, afturámóti, er m.a. að
leitast við að ljá orðum merkingu.
Kannski er þessi „harmleikur
orðanna" þó forsenda þess að ná
tökum á umræðuefninu — ef ekki
sjálf forsendan fyrir „absúrd-
leikhúsinu", leikhúsi fáránleikans.