Morgunblaðið - 04.07.1985, Page 1
STRIÐIAÐSIGI
í GÁMAFLUTNINGUNUM
Talsverðar sviptingar virðast framundan
meðal þeirra skipafélaga sem halda uppi
áætlunarsiglingum á heimshöfunum. Tvö
risafélög utan samtaka áætlunarskipafé-
laganna ætla að segja þeim stríð á hend-
ur, eftir því sem best verður séð, og marg-
ir telja þetta tákna endalok konferens-
anna sem hafa verið ráðandi í áætlunar-
siglingum á heimshöfunum.
HÖFUÐSTAÐUR
FJÁRMÁLALÍFS EB
Lúxemborg hefur verið
óhrædd við að reyna að laða
til sín erlend fjármálafyrir-
tæki. í þriðju grein Önnu
Bjarnadóttur um Lúxemborg
fjallar hún um bankastarf-
semina í landinu og hvernig
Lúxemborgarmenn ætla sér
að verða höfuðstaður fjár-
málalífs í Evrópubandalaginu.
VIÐSKIPn AIVINNULÍF
_________________L__________________fí
PRENTSMIÐJA MORG UNBLAÐSINS FIMMTUDA G UR 4. JÚLÍ1985 BLAD
Rafeindaiðnaður
Um 140%sölu-
aukning hjá
Pólnum hf.
Kynnir tengil milli voga og allra gerða tölva
PÓLLINN hf. er um þessar mundir að setja á markað sérstakan tengil sem
hefur í fór með sér að eftirleiðis verður hægt að tengja tölvuvogir fyrirtækis-
ins við allar hinar mismunandi og ósamstæðu einkatölvur sem hér eru á
markaði. Að sögn Birgis Úlfssonar hjá Pólnum í Keykjavík var þessi tengill
milli tölvanna og voganna þróaður á tiltölulega skömmum tíma af sérfræð-
ingum fyrirtækisins á ísafirði eftir að óskir fóru að berast um slíkt í
tengslum við sölu fyrirtækisins á vogum á erlendum vettvangi og eins vegna
óska innanlands.
Póllinn hf. er helsti frumkvöðull
framleiðslu tölvuvoga fyrir fisk-
iðnaðinn og framleiðir nú allar
tegundir voga fyrir þann iðnað en
að auki fjölnotavogir fyrir annars
konar iðnað, t.d. lyfjafram-
leiðendur, og auk þess hefur fyrir-
tækið gert töluvert af því að
sérsmíða vogir vegna sérhæfðari
verkefna. Á næstunni mun Póllinn
setja á markað sérstaka skrán-
ingarstöð fyrir fiskiðnaðinn, sem
annast tímaskráningu líkt og
stimpilklukka og skráir fjölda
fiska frá vélunum. Að öðru leyti
snýst nú þróunarstarfið innan
Pólsins að mjög um alls kyns bún-
að í tengslum við fiskeldi og fyrir-
tækið er farið að bjóða viðvörun-
GENGIS-
SKRÁNING
Nr. 122 — 3. júlí 1985
Kr. Kr. Toll-
Eúl KL 09.15 Itap Nala íeníi
IDoUari 41,66« 41,780 41,790
1 SLpund 54,408 54365 52384
Kan. dollari 30,701 30,790 30,362
1 Konskkr. 33203 33313 3,7428
1 Norsk kr. 4,7549 4,7686 4,6771
1 SæoRk kr. 4,7582 4,7719 4,6576
1 Fl mark 6,6101 6,6291 6,4700
1 Fr. franki 4,4989 43119 4,4071
1 Belg. franki 0,6804 0,6823 0,6681
1 N». franki 163887 16,4359 15,9992
1 HolL fQrllini 12,1568 12,1918 11,9060
IVþmark 13,7017 13,7412 13,4481
1ÍL líra 032148 0,02155 0,02109
1 Austurr. sck. 1,9490 1,9546 1,9113
1 PorL rwudo 03401 03408 03388
INppmrU 03396 03403 03379
1 Jap. jen 0,16787 0,16835 0,16610
1 írakt pund NDR. (NérsL 42,964 43,088 42,020
dráttarr.) 41,7362 413561 413085
1 Belg. franki 0,6762 0,6782 -J
Úlfsson og Sigfús Kristmansson með undratækið sem tengir vogirnar við allar gerðir tölva.
arkerfi fyrir fiskeldisstöðvar sem
lætur vita ef vatnshæð verður
óeðlileg í kerjum, svo og stýrikerfi
fyrir ljós sem gerir kleift að lækka
eða hækka Ijósmagn i stöðvunum
á sjálfvirkan hátt.
Sala Pólsins hefur aukist um
140% það sem af er þessu ári mið-
að við sama tíma í fyrra, og hefur
aukning orðið jafnt á innan-
landsmarkaði sem á utanlands-
markaði. Fyrirtækið hefur lokið
við fjögur stór verkefni í
fiskiðnaðarfyrirtækjum það sem
af er árinu, þ.e. í Meitlinum í Þor-
lákshöfn, í nýja hraðfrystihúsinu
á Hellissandi, hjá Heimaskaga og
HB á Akranesi. Þá er nýlokið
stóru verkefni í frystihúsi í Al-
aska, þar sem 2 starfsmenn fyrir-
tækisins dvöldust um mánaðar-
tíma við uppsetningu tölvuvoga-
kerfis og nýverið hefur fyrirtækið
fengið staðfestingu á talsvert
umfangsmiklu verkefni í Noregi í
tengslum við síldarvinnslu þar.
Pólsvogir mega heita allsráð-
andi í fiskvinnsluhúsum í Færeyj-
um og í kjölfar sjávarútvegssýn-
ingarinnar í fyrra skipti Póllinn
um umboðsmann í Noregi með
þeim árangri að áætluð árssala
þangað er farinn á fjórum fyrstu
mánuðum þessa árs, og hefur
þetta haft í för með sér að
umboðsaðili Pólsins þar hefur tek-
ið öll sín áform til endurskoðunar
í samráði við Pólsmenn hér heima.
Svipað er upp á teningnum í
N-Ámeríku en þar hefur Póllinn
samvinnu við fyrirtæki Þorsteins
Þorsteinssonar verkfræðings í
Bandaríkjunum sem framleiðir nú
Pólsvogir þar vestra samkvæmt
leyfi en kaupir allan hugbúnað frá
Pólnum hér á landi. Viðræður eiga
sér nú stað milli forráðamanna
Pólsins og Þorsteins Þorsteinsson-
ar hvernig haga skuli sölumálum
fyrirtækisins í Bandarikjunum og
Kanada í framtíðinni og er stefnu-
mörkunar í þeim efnum að vænta
á næstunni.
Nýjung
Línudeilir — athyglisverð
ísl. uppfinning í símtækni
ÍNLENSKlíR rafeindavirki, Óskar
H. Valtýsson, hefur hannað nýtt
tæki, rás, sem sett er á síma þar
sem fleiri en eitt símtæki eru á
sömu línu. Línudeilirinn, en svo
nefnist rásin, vinnur þannig að öll
talfærin hafa jafnan aðgang að lín-
unni, en talfærið sem lyft er upp
fyrst hefur línuna. Önnur fá ekki
aðgang að henni, nema að lagt sé á
aftur.
Línudeilirinn er tegunda- og
gæðaprófaður af tæknideild
Pósts og síma og samþykktur til
notkunar. Að sögn óskars mun
hann hefja framleiðslu á rásinni
og selja hana fyrst innanlands,
en síðar ef vel gengur erlendis.
Hann hefur þegar kynnt nokkr-
um erlendum aðilum rásina.
Rásin er í litlu plasthylki, á
stærð við krónupening. Hægt er
að setja hana í klær talfæranna,
en einnig má setja hana inn í
þau, í tenglana eða þar sem
henta þykir í línulögn. Línudeil-
irinn mun kosta innan við 300
krónur frá framleiðanda. Óskar
sagði að algengt sé að þar sem
tveir eða fleiri símar eru tengdir
sömu línu hafi verið farið út í að
breyta símtækjum (sido-breyt-
ingar),sem er kostnaðarsamt, og
einnig fylgja því ýmsir gallar.
Þá er ekki hægt að breyta mörg-
um tegundum símtækja.
Línudeilirinn hefur engin
áhrif á gæði, s.s. hringingu og
tal, þeirra símtækja sem hann er
tengdur.
Óskar H. Valtýsson hefur unn-
ið að gerð rásarinnar undanfarin
fimm ár í frístundum, en hann
er starfsmaður Pósts og síma.
Línudeilirinn verður boðinn öll-
um innflytjendum símtækja til
sölu, en að sögn óskars er mjög
auðvelt að setja hann í tæki og
tengja.