Morgunblaðið - 04.07.1985, Side 3
MORGUNBLADIÐ.VIDSgPn jaVINNUIÍrFIMMTUDAGUR 4. JÚLÍ 1985
B 3
VIÐSKIPT AFULLTRÚINN —
Jin-Woong Oh er með aðalbæki-
stöðvar í Osló og vill ná sambandi
við íslenska kaupsýslumenn í inn-
flutningi og útflutningi.
U tanr í kis viðskipti
S-Kórea rill
Sjávarútvegur
Nokkrir Hvaleyrarmanna
kaupa Vélsmiðjuna Klett
NOKKRIR sömu aðila og standa
að fyrirtækinu Hvaleyri er keypti
Bæjarútgerð Hafnarfjarðar á dög-
unum hafa nú ásamt fleirum tekið
yfir Vélsmiðjuna Klett í Hafnar-
firði en þessi vélsmiðja hefur um
árabil selt færibönd og frystitæki í
fiskvinnslustöðvar um allt land.
Það eru þeir Hagvirkismenn
og Samherjamenn frá Akureyri,
sem að þessum kaupum standa,
ásamt nýorðnum framkvæmda-
stjóra Vélsmiðjunnar Kletts,
Matthíasi H. Matthíassyni, véla-
verkfræðingi, sem áður rak Fit
hf. Að sögn Jóhanns Bergþórs-
sonar, forstjóra Hagvirkis og
eins hinna nýju eigenda Kletts,
þá tóku nýju eigendurnir við
fyrirtækinu nú um mánaðamót-
in síðustu en Jóhann sagði að
forsaga þessara eigendaskipta
væri sú að hann hefði starfað
hjá Kletti á árum áður og haldið
vinfengi við fyrri eigendur fyrir-
tækisins, sem hefðu nú verið
orðnir fullorðnir menn og viljað
draga sig í hlé.
Að sögn Jóhanns er ætlunin að
halda áfram þeirri framleiðslu
sem Vélsmiðjan Klettur hefur
orðið þekkt fyrir og jafnvel
freista þess að hefja útflutning á
þessari framleiðslu. Jafnframt
er fyrirtækinu ætlað að annast
þjónustustörf fyrir frystihús
Hvaleyrar og togarana tvo.
treysta rið-
skiptatengslin
rið ísland
S-KÓREA er það land veraldar um
þessar mundir, sem státar af hvað
mestum hagvexti. S-Kóreumenn hafa
í flestu tilliti fylgt japönsku forskrift-
inni, sem byggist á mikilli atvinnu-
uppbyggingu heima fyrir og á öflugri
útflutningsstarfsemi með þéttu neti
viðskiptaskrifstofa er teygja sig um
allan heim.
Á Norðurlöndunum eru S-Kóreu-
menn með slíka viðskiptafulltrúa í
Helsinki, Stokkhólmi, Kaupmanna-
höfn og Osló. Nýlega var á ferð hér
á landi Jin-Woong Oh, fram-
kvæmdastjóri viðskiptaskrifstof-
unnar í Osló, og í samtali við Morg-
unblaöið kvaðst hann hingað kom-
inn til að reyna að treysta enn
frekar viðskiptasamböndin milli
þjóðanna.
Jin-Woong Oh hitti hér á landi
fulltrúa Félags ísl. stórkaupmanna
og einnig sérstaklega fulltrúa skó-
innflytjenda, sem versla margir
hverjir mikið við S-Kóreu. Þá hitti
hann einnig ýmsa aðra aðila, sem
hafa áhuga á innflutningi frá
S-Kóreu.
Jin-Woong Oh tók hins vegar
fram í samtali við Morgunblaðið að
hlutverk viðskiptaskrifstofanna
eins og þeirrar, sem hann veitir
forstöðu, væri ekki einungis að
koma á samböndum milli s-kór-
eskra útflytjenda og innflytjenda í
öðrum löndum, heldur hefðu þær
einnig milligöngu fyrir þá aðila,
sem hefðu áhuga á að flytja út til
S-Kóreu. Kvaðst hann því vilja
hvetja alla þá sem vildu koma á
hvers kyns viðskiptasambandi við
S-Kóreu, hvort heidur væri á sviði
innflutnings eða útflutnings, að
hafa samband beint við Korea
Trade Center í Osló, í Dæleneng-
gata 20, eða fyrir tilstilli Árna
Gestssonar í Glóbusi, aðalræð-
ismanns S-Kóreu á Islandi.
Iðnaður
ÖII röru-
bretti
framleidd
innanlands
MEÐ nýjum vélbúnaði, sem
Trésmiðja Þórðar í Vestmanna-
eyjum hefur fest kaup á, mun
fyrirtækið geta framleitt öll
vörubretti, einota og sterkari,
sem frystihús, skipafélög og
stórverksmiðjur nota hér á
landi.
í frétt frá Trésmiðju Þórðar
segir að fyrirtækið hafi fram-
leitt bretti fyrir þessa aðila
undanfarin ár, en með nýjum
vélum og endurskipulagningu
gjörbreyttist samkeppnisað-
staða þess við erlenda aðila.
Afkastageta nýju tækjanna er
um 300 þúsund bretti á ári og
fullnægir það eftirspurn inn-
antands.
IBM System/36
varanleg lausn
viðráðanlegl verð
Oft eru það fjárhagsleg atriði sem ráða
því hvort ráðist er í tölvuvæðingu og
hvernig henni reiðir af.
Margir halda að stórar og fullkomnar
tölvur séu svo dýrar að reynt er að leysa
málin með því að kaupa smátölvur sem
síðan reynast ófullnægjandi.
Það er því ástæða til þess að vekja at-
hygli á hversu hagstæð kaup eru í hinni
fullkomnu IBM System/36 tölvu.
39.000, -
39.000 krónur á mánuði hlýtur að teljast lág greiðsla fyrir öfluga
tölvusamstæðu. Það er reyndar erfitt að nefna verð á tölvum því að
samsetningarkostirnir eru nær óteljandi og hugbúnaðarþarfir mjög
misjafnar. Að auki bjóðum við mismunandi greiðsluskilmála.
Til þess að gefa nokkra vísbendingu um hið hagstæða verð á tölvu-
búnaði frá IBM verða hér tekin dæmi um tvær samstæður sem mest
hafa selst að undanförnu. Hvor þeirra um sig getur hentað sem byrj-
unarsamstæða í fyrirtækjum í hvers konar atvinnurekstri:
A) öflug IBM System/36 með 30 MB seguldiski, stafaprentara,
tveimur skjám, stjórnhugbúnaði og hjálparforritum.
mánaðargreiðsla kr. 39.000
staðgreiðsluverð kr. 987.000
B) Enn öflugri IBM System/36 með 60 MB seguldiski, línu-
prentara, fjórum skjám, stjórnhugbúnaði, hjálparforritum
og þremur notendakerfum.
mánaðargreiðsla kr. 58.000
staðgreiðsluverð kr. 1.510.000
1 mánaðargreiðslum er innifalin full viðhaldsábyrgð á vélbúnaði, þ.e.
allir varahlutir og vinna sem þarf til þess að halda tölvubúnaðinum
í fullkomnu lagi. Þar er jafnframt gert ráð fyrir 36 mánaða kaupleigu-
kjörum á vélbúnaði og kaupum á hugbúnaði. Allar upphæðir eru
miðaðar við gengi þann 27.6.’85 og almenn vaxtakjör þann dag.
Eins og áður var sagt eru möguleikarnir nánast óþrjótandi; margvís-
legur vélbúnaður, hugbúnaður af ýmsu tagi og margs konar greiðslu-
kjör. Sölumenn okkar geta áreiðanlega fundið einhverja þá lausn
sem hentar þínu fyrirtæki.
Auk þess að vera á hagstæðu verði er
IBM System/36 varanleg fjárfesting
vegna þess að hægt er að stækka hana
á ýmsa vegu eftir því sem þörf krefur
og nýir kostir bjóðast.
Skaftahlíð 24,105 Reykjavik.
Sími 91-27700.