Morgunblaðið - 04.07.1985, Síða 4

Morgunblaðið - 04.07.1985, Síða 4
4 B MORGUNBLAÐI&.VIDSinPn/MVINNUIÍFFIMMTUDAGUR 4. JÚLl 1985 Erlendis Þungur róður í gámaflutningum borð og auka þannig flutningsget- una. Vegna þessarar hagræðingar eru gámar nú notaðir við flutninga á um 75% allrar vöru sem hentar fyrir gáma. í þróuðum löndum, þar sem fyrir hendi er sérstakur búnaður í flestum höfnum til lest- unar, losunar og flutninga á gám- um, er þetta hlutfall nærri 90%. Þótt enn gefist tækifæri til að auka gámaflutninga, til dæmis í Kína og á Indlandi, verður frekari aukning aðallega að koma frá vax- SKIPAFÉLÖG víða um heim sem halda uppi siglingum á fostum áætl- unarleiðum eiga nú vanda í vænd- um. Þessar áætlunarsiglingar hafa fram til þessa að mestu sloppið við þá óvægu samkeppni sem hrjáð hef- ur bæði útgerðir olíuflutningaskipa og skipa sem flytja ósekkjaða vöru. En nú eru tveir hörðustu keppinaut- arnir, llnited States Lines í Banda- ríkjunum og Evergreen Line á Tai- wan, að hefja fasta hnattsiglingar, sem eiga eftir að valda fjaðrafoki. Evergreen og US Lines munu auka flutningagetu á alþjóðasigl- ingaleiðum um 10%. Bæði félögin munu einbeita sér að því að það verði skip keppinautanna — ekki þeirra eigin — sem bætast við þann vaxandi flota skipa sem nú eru verkefnalaus. Bæði hafa félög- in sannað samkeppnishæfni sína. Evergreen er stærsta skipafélag heims í gámaflutningum, US Lines er í fjórða sæti. Aðalstjórnandi US Lines er Malcolm McLean, maður- inn sem gjörbylti vöruflutningum með skipum þegar hann tók fyrst- ur upp flutninga í gámum, og Ev- ergreen hefur verið ógnvaldur í augum annarra skipafélaga með miklum undirboðum á farmgjöld- um í Kyrrahafsflutningum. Þar sem nokkuð hefur dregið úr vexti milliríkjaviðskipta var komið að því að hreinsa þyrfti til á flutn- ingamarkaðnum. Frá því á sjötta áratugnum hafa skipafélögin styrkzt með umskiptum yfir í gámaflutninga. Með því að pakka öllu, allt frá stereótækjum yfir í úrgangspappír, niður í stóra, staðl- aða gáma, gátu skipafélögin lækk- að kostnað við lestun og losun og aukið flutningagetu skipanna. En nú eru gámaflutningarnir orðnir alls ráðandi á flutningaleiðunum; þeir geta ekki lengur aukizt á kostnað gömlu lausavöruflutn- inganna. Það eru ekki aðeins skipafélögin sjálf sem gjalda aukinnar sam- keppni á höfunum, heldur einnig svæðasamtök skipafélaganna, kon- ferensurnar sem verið hafa eins- konar einokunarhringir og hafa haft með höndum skipulag gáma- flutninganna. Svæðasamtökin ákveða farmgjöldin og ætlazt er til að þau reyni að koma í veg fyrir offramboð á flutningsgetu á þeim siglingaleiðum, er undir þau heyra. En völd svæðasamtakanna hafa farið minnkandi, og margir spá því að þau verði að engu með tiikomu þessara fyrirhuguðu hnattsiglinga. Ljóst er að hvorki Evergreen né US Lines láta svæðasamtökin spilla fyrirætlunum sínum. Ev- ergreen hefur ætíð staðið utan svæðasamtakanna. Ein tilraun var gerð til að fá félagið með í samtök- in, en hún mistókst. Árið 1982 var Evergreen veitt aukaaðild að svæðissamtökunum Far Eastern Freight Conference (FEFC), sem ræður yfir siglingum milli Evrópu og Austurlanda fjær. En það fyrir- komulag fór út um þúfur með beiskju á báða bóga í fyrrasumar. Hvað US Lines snertir þá vill fé- lagið því aðeins gerast félagið í svæðasamtökum að því sé heimilt að flytja vörur á lægri farmgjöld- um en samtökin ákveða. Harðnandi samkeppni verður áfall fyrir eigendur gámaflutn- ingaskipa. í fyrra skiluðu mörg skipafélögin methagnaði, aðallega vegna aukinna flutninga til Bandaríkjanna, sem stöfuðu af miklum hagvexti þar í landi. Þótt þessi aukning hafi aðallega komið þeim skipafélogum til góða sem annast flutninga á Kyrrahafsleið- um hafa fá skipafélög heims haft ástæðu til að kvarta. Gámaflutn- ingageta í heiminum hefur aukizt úr 180.000 tuttugu feta gáma ein- ingum (TEU), en það eru þær ein- ingar sem skipafélögin miða við, á árinu 1970, í 2,3 milljónir TEU samkvæmt áætlun yfirstandandi árs. Feitu árin Á árunum frá 1978 til 1983, þeg- ar alþjóðaviðskipti jukust að jafn- aði aðeins um 2% á ári, jukust gámaflutningar að meðaltaki um nærri 12% árlega. Þar kom einnig til að allar verðmætari vörur eru fluttar í gámum, og sá flutningur gefur aukinn hagnað. Að magni til eru um 3,5% allra flutninga með skipum í gámum, en ef miðað er við verðmæti er gámaflutningur- inn 31%. Eigendur gámaflutningaskipa geta boðið viðskiptavinum sínum þægindi og sparnað umfram venjulega vöruflutninga, og þess vegna hefur aukningin verið jafn ör og raun ber vitni. Með flutning- um í gámum eykst sjálfvirknin, bæði um borð í skipunum og í höfnum. Gámana má setja beint á jarnbrautarlestir eða flutningabíla án þess að hreyfa við vörunni í þeim. Gámunum má stafla þétt um andi milliríkjaviðskiptum. En þar sem hagvöxtur (sérstaklega í Bandaríkjunum) hefur hægt á sér, eru horfurnar ekki góðar. Þessi minnkandi hraði hagvaxtarins á helztu mörkuðum skipafélaganna — tveir þriðju allra gámaflutn- ingaskipa halda uppi flutningum til Norður Ameríku og frá — er samfara mikilli fjölgun nýrra skipa. Evergreen og US Lines hafa fengið og eru með í smíðum ný skip til að annast hnattsiglingarn- ar. Keppinautar þeirra eiga einnig skip í smíðum vegna þess að þeir álitu að framboð á vörum til flutn- ings héldi áfram að aukast og vegna þess að ýmsar ríkisstjómir reyna að halda lifinu í skipasmíða- stöðvum heima fyrir sem ekki hafa næg verkefni með því að bjóða skipafélögunum skip á gjafverði. Margir þeirra sem ekki eiga ný skip í smíðum hafa gripið til þess að breyta skipum sínum þannig að þau geti flutt fleiri gáma. Tímarit- ið Containerisation International, sem fjallar um gámaflutninga, tel- ur að á árinu 1984 hafi eigendur gámaflutningaskipa lagt inn pant- anir á nýsmíði með heildarburð- armagni er nemi 17% þess flutn- ingamagns sem þeir áttu fyrir, og að á yfirstandandi ári muni þeir panta 10% til viðbótar. Þar sem það tekur eitt og hálft til tvö ár að smíða gámaflutningaskip er þess ekki langt að bíða að þessi nýsmíði verði komin í gagnið. Keppinautarnir Evergreen hefur pantað fleiri skip en nokkurt annað félag, og fær þau fyrr. Flutningageta ný- smíðinnar hjá Evergreen verður meiri en núverandi flutningageta bandaríska skipafélagsins Sea- Land, sem nú er þriðja stærsta gámaflutningafélag heims, og nýsmíðin hjá US Lines er litlu minni. Samtals munu US Lines og Ev- ergreen bæta um 10% við flutn- ingagetu allra skipa heims. En áhrifin verða mun meiri á þeim siglingaleiðum sem þau ætla að þjóna. Áætlað er að þegar bæði fé- lögin hafa tekið upp fyrirhugaðar hnattsiglingar sínar á árinu 1986 muni flutningagetan á leiðinni austur yfir Atlantshafið aukast um 25%, en á vesturleiðinni um 23%. Á Kyrrahafi verður þá aukn- ingin 18% á austurleiðinni og 13% á vesturleiðinni. US Lines hefur þegar gert ráð- Af landi á sjó Malcolm McLean, sem nú er á áttrsðisaldri, hefur tekið marga áhættuna á svinni, en enga meiri en nú. Hnattsiglingarnar sem skipafélag hans, US Lines, er að hefja með fjárfestingu upp á einn milljarð dollara eiga rstur að rekja til upphafs flutningarekstrar McLeans árið 1934, þá með einni vöruflutningabifreið. Árið 1955 seldi McLean bifreiðaflutn- ingafyrirtski sitt fyrir 6 milljónir dollara til að stofnsetja nýtt félag, sem nú er Sea-Land, og varð stsrsta gámaflutningafélag heims. McLean fékk hugmyndina um gámaflutninga á sjó frá reynsl- unni í vöruflutningum á landi. Árið 1956 hóf hann fyrstu gám- flutningana á sjó með því að breyta olíuflutningaskipi úr síð- ari heimsstyrjöldinni þannig að það gæti flutt 58 gáma á dekki. Umsvif Sea-Land jukust smátt og smátt og varð Sea-Land stærsta gámaflutningafyrirtæki heims. Árið 1969 seldi McLean tóbaksfyrirtækinu R.J. Reynolds flutningafélagið og er talið að hann hafi hagnazt um 500 millj- ónir dollara á sölunni. Hann hélt áfram að stjórna rekstri Sea- Land og átti sæti í stjórn félags- ins. En vegna ágreinings um reksturinn lét McLean af störf- um þar árið 1977 og keypti þá meirihluta í US Lines, sem átti í rekstrarerfiðleikum. Það er til marks um hve Mc- Lean er mikils metinn að honum hefur tekizt að fá bandaríska banka, meðal annarra Bank of America og Citibank, til að fjár- magna hnattsiglingarnar — sem telja verður allvafasamt fyrir- tæki. Sem stendur er hlutfall skulda/eigna US Lines metið á rúmlega fjóra á móti einum, og kostnaður vegna afborgana og vaxta rúmlega 200 milljónir doll- ara á ári. US Lines hefur skuld- bundið sig til að lækka skulda- hlutfallið niður í tvo á móti ein- um fram til ársins 1987. Næstu tvö árin hafa því úrslitaþýðingu. Undirstaðan að hnattsigling- um US Lines er 12 gámaflutn- ingaskip smíðuð hjá Daewood í Suður-Kóreu, og kostar hvert þeirra 46 milljónir dollara, sem þykir mjög lágt verð. Fimm skipanna voru afhent á fyrra ári, hin sjö verða afhent í ár. 20% kaupverðsins eru staðgreidd, 80% greiðast á næstu tíu árum. Þetta eru góð kjör. Þau verða að vera það. US Lines hafa á brattan að sækja til að áætlan- irnar standist. Og samkeppnin í farmgjöldum hefur áhrif á af- komuna. Á fyrsta ársfjórðungi þessa árs varð 7,5 milljón doll- ara halli á rekstri McLean Ind- ustries, eiganda US Lines, en á sama tíma í fyrra 11,5 milljón dollara hagnaður. Veltan jókst hinsvegar um 20% á þessu tíma- bili og varð 259 milljónir dollara. stafanir til að fjármagna nýsmíð- ina. Minna er vitað um fjárhag Evergreen. Félagið var stofnað ár- ið 1968 til að annast vöruflutninga á sjó, og það var ekki fyrr en árið 1975 að það tók upp flutninga í gámum, en síðan hefur það vaxið með ótrúlegum hraða. Evergreen er einkafyrirtæki, eins og algengt er í Suðaustur-Asíu, og eiga stjórnarformaðurinn og fjölskylda hans meirihluta í félaginu. Mörg skipa félagsins eru skráð í Panama og rekin þaðan. Önnur eru skráð á Taiwan og rekin í nafni Evergreen Marine Corporation. Vegna þrýst- ings yfirvalda á Taiwan verður það fyrirtæki gert að opnu hlutafélagi á næsta ári og hlutabréf seld fyrir sem svarar 130—150 milljónum dollara. í fyrra nam hagnaður Tai- wan-félagsins 30,7 milljónum doll- ara. Þegar Panama-deildin er tek- in með nam heildarhagnaðurinn á síðasta ári 64 milljónum dollara og heildarveltan 780 milljónum doll- ara. Talsmenn Evergreen hafa jafn- an neitað því að hafa fengið opin- bera styrki til rekstrarins, og ekk- ert hefur komið fram 'til að hnekkja þeim staðhæfingum. Hinsvegar játa talsmennirnir náin tengsl við Marubeni Corporation í Japan. I hnattsiglingum US Lines verð- ur eingöngu siglt austur yfir höfin. Ferðirnar hefjast í New York, og þaðan liggur leiðin um Rotterdam, Jeddah, Sameinuðu arabísku furstadæmin, Singapore, Hong Kong, Taiwan og Japan, og svo um Panamaskurðinn til Savannah í Georgíuríki. Siglingar Evergreen verða bæði austur og vestur yfir höfin, en skip þess koma ekki við í höfnum við Persaflóa. Áætlað er að hringferðirnar taki 80—85 daga. Talsmenn hnattsiglinganna segja að þær bjóði upp á meiri sveigjanleika auk viðkomu á helztu mörkuðum heims. Skip frá Ever- green geta nú flutt farm frá Evr- ópu til Singapore, og jafnframt verið með farm til Bandaríkjanna. Áður var það svo að skip sem komu frá Evrópu urðu að losa í Singapore og sigla síðan hálftóm til Japans áður en þau héldu á ný til Evrópu með viðkomu í Singa- pore. Báðar þessar hnattsiglingar verða komnar í fulla áætlun á næsta ári með vikulegum ferðum. US Lines notar til flutninganna 12 ný skip smíðuð hjá Daewoo-skipa- smíðastöðinni í Suður-Kóreu. Þetta eru 950 feta (290 metra) skip með 4.200 TEU-burðargetu, stöðl- uð fyrir 40 gáma. Evergreen verð- ur með 24 ný skip, smíðuð í Taiwan og Japan. Þau eru minni, 2728 TEU, og eiga að flytja venjulega 20 feta gáma. Nýju skipin sem US Lines verð- ur með eru stærstu gámaflutn- ingaskip sem smiðuð hafa verið. Og stærfi mega þau ekki vera, því þá kæmust þau ekki um Panama- skurðinn. Þau eru ferðminni en gengur og gerist og eyða minna eldsneyti. En það getur reynzt US Lines erfitt að nýta sér jafnan að fullu þessa hagkvæmni í rekstri nýju skipanna. í flutningum frá Evrópu til Austurlanda fjær er til dæmis mikið um þungavöru. Keppinautarnir halda því fram að skip US Lines geti af þeim sökum ekki flutt fleiri gáma en önnur skip, ef þau eigi að haldast ofan- sjávar. Flutningar US Lines á Kyrrahafsleiðum verða „alla leið á sjó“, félagið flytur vörurnar til austurstrandar Bandaríkjanna um Panamaskurðinn. Sumir keppi- nautanna flytja vörurnar til vest- urstrandarinnar og þaðan land- leiðina þvert yfir Bandaríkin. Stærstur þeirra er Sea-Land, en það vill svo til að það var McLean stjórnarformaður US Lines sem stofnaði það félag, og næststærsti keppinauturinn er President Lines í Bandaríkjunum. Þessir flutn- ingar eru að vísu dýrari en sjó- flutningar US Lines, en þeir taka 8—14 dögum skemmri tíma. Afgreiðsluhraðinn Stundum getur afgreiðsluhrað-

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.