Morgunblaðið - 18.10.1985, Blaðsíða 2
2 B
MORGUNBLADID, FÖSTUDAGUR18. OKTÓBER1985
Útbrunnin
stórstimi
Síöasla sumar skemmti
söngvarinn Scott
McKensie á veitinga-
staö í Virginia Beach,
USA. Þar söng hann og
spilaöi fyrir lífsþreytta sjóliða, sem
ekki kunnu gott aö meta. Hann
mundi sinn fífil fegri. Áriö 1968
seldist plata hans meö laginu „San
Francisco“ í átta milljónum eintaka.
Þetta lag samdi vinur hans, John
Phillips, sem var forkólfur hljóm-
sveitarinnar Mamas and Papas.
Þeim tókst mætavel aö vera í takt
viö tíöarandann. I laginu var fólk
hvatt til aö setja blóm í hár sitt, ef
þaö ætti leiö um San Francisco.
Viö vorum nágrannar í Virginia
Beach svo leiöir okkar lágu alloft
saman. Scott leigöi herbergiskytru
hjá ríkum lögfræðingi, sem átti villu
viö ströndina. Þar liföi hann eins og
hver annar strandaglópur. Þaö var
lítið eftir af glæsibrag stórstjörn-
unnar. Andlit hans var bóloirt af
lyfjaáti og hann þvertók fyrir aö láta
taka mynd af sér. Skær tenórrödd
hans haföi hinsvegar lifaö af sukk
og saurlifnað. Scott McKensie
skaust upp á stjörnuhimininn eftir
aö hafa þraukaö í poppbransanum
í tíu ár. Velgengnin gekk honum til
höfuös og veruleikaskynið brengl-
aöist. Hann lagöist í þunglyndi.
„Manic Depression" kölluöu lækn-
arnir þaö. Dópsalar, geölæknar og
eiginkonur nutu góös af himinháum
tekjum hans og fyrr en varöi var
hvereyriruppurinn.
j ellefu ár haföi hann búiö á
Meyjarströndinni. Þunglyndi hans
lamaöi hann og stöövaöi allt hugs-
anaflæöi. Hann mundi ekki einu
sinni nöfn fyrrverandi eiginkvenna
sinna. Þaöan af síöur gat hann rif jaö
upp hippaár sín í Kaliforníu.
„Ég var í vímu allan tímann,"
sagði hann afsakandi. „Allt þetta
kjaftæöi um hippa og blómabörn
var artalleoa tilbúninour blafta oo
kaupahóðna. Hugsjónir hippanna
voru álíka harösoönar. Þegar ég er
spuröur um afdrif blómabarnanna
rekur mig í rogastans. Meðaljóninn
er ennþá sá sami hér sem og annars
staöar. Blómabörn hafa alltaf veriö
furöufiskar í sjó meöalmennskunn-
ar. Merkasta framlag þeirra til
heimsins var aö skemmta sér og
slappa af. Hver veit nema þaö bæti
heiminn meira en fjas um stjórn-
mál.“
Frægö hefur oröiö fleirum aö
fjörtjóni. Afföll skemmtikrafta
sjötta áratugarins eru mikil. Lífsstíll
þeirra var ekki mjög heilsusamleg-
ur. Líkaminn var notaöur sem til-
rfliirvsctÁfo #Vfi r ^ÚriltÓn-
Hippar branndu gjarnan harskráningarspjöld. Þarna eru
þeir hinsvegar aö syngja sitt síöasta sem hippar.
Þeir sem spá í stjörnurnar segja
aö öld vatnsberans sé aö
gangaígarö. Hipparnireöa
blómabörnin voru fyrstu full-
trúar hinnar nýju aldar. Friður,
frelsi, jafnrétti og bræöralag voru einkunn-
arorö þeirra. Trú á persónulegan guö varö
aö víkja fyrir vísindalegum aöferöum til aö
skilja gagn alheimsins.
Hippar voru óskabörn týndu kynslóðar-
innar sem þurfti aö vinna baki brotnu til aö
byggja upp eftir síöari heimsstyrjöld. Mörg-
um stoltum foreldrum brá þó í brún, þegar
eftirlætisbörnin tóku aö leika lausum hala.
Þau ætluöu aö breyta heiminum meö kær-
leiksblómum (Flower Power). Blómabörnin
vildu ekki selja sál sína til auöhringja. Þess
í staö var reynt aö takmarka þarfir sínar viö
nauðsynleg lyfjagrös, mat og húsnæöi. Þeir
róttækustu fluttu í kommúnur og stunduöu
frjálsar ástir, hassreykingar og innhverfa
íhugun.
Ný viöhorf litu dagsins Ijós. heimsspeki
austurlanda komst í tísku og annarlegt
hugarástand var daglegt brauö í komm-
únum blómabarnanna. Gáfnaljósin lásu
Hermann Hesse og William Blake.
HarvardprófessorarnirTimothyLeary og
Ram Dass birtu niöurstöður vísindalegra
tilrauna meö ofskynjunarlyfin LSD og
meskalín. Þeir töldu aö lækna mætti Öll
mannanna mein meö hugvíkkunarlyfjum.
Þar aö auki geröu þeir samanburö á and-
legum upplifunum yogaflippara og eitur-
lyfjaneytenda.
Indverskir yogar vildu meina aö sýru-
hausar væru meö uppblásiö egó, en raun-
verulegir dýrlingar væru lausir úr viöjum
sjálfsins. Vinsælasti gúrú Woodstockkyn-
slóðarinnar; Satchidananda spuröi sposk-
ur hvort ekki væri líka hægt aö búa til verk-
fræöinga og lækna meö ofskynjunarlyfjum.
Bítlarnir og önnur poppgoö settust viö
fótskör andlegra meistara í Himalayafjöll-
um. John Lennon vakti mikinn usla meöal
klausturbræöra sinna, er hann ásakaöi
sjálfan dýrlinginn um ósæmilega hegöun
gagnvart Miu Farrow. Þykir fullvíst aö
Maharishinn hafi leitaö á þessa fagurlim-
uöu kvikmyndadís, er hún sat í sakleysi sínu
í einkasvítu hans. Þaö ríkti gjarnan gagn-
kvæmur misskilnigur milli hinna kristilegu
kærleiksblóma og hinna austurlensku vitr-
inga. Hin gyöinglega kristna trú telur mann-
inn bersyndugann í lifanda lífi, meöan aust-
rænir dulspekingar benda á leiöir til aö
höndla guðdóminn í lifanda lífi.
Eiturlyfjaneysla og innhverf íhugun geröi
marga hippa óvirka í baráttunni fyrir betri
heimi. Los komst á ungt fólk og þaö lagöi
gjarnan land undir fót. Vinsælustu hippaný-
lendurnar voru á vesturströnd Bandaríkj-
anna, í Suöur-Ameríku, Indlandi og í sólar-
löndum Evrópu. Þetta líferni kostaöi skild-
inginn enda var hippum oft núiö um nasir
aö þeir væru ekki sjálfum sér samkvæmir.
Þeir vildu vera náttúrubörn en ef einhverjir
liföu kóngalífi af aröi iönaöarsamfélaga, þá
geröu þeirþað.
Hlutverkaskipting kynjanna tók aö riðl-
ast og karlmenn vildu sinna uppeldi barna
sinna meira en áöur haföi tíökast. Kynlífs-
byltingin fólgst m.a. í auknu frumkvæöi
kvenna í ástarmálum. Lifað skyldi hátt,
hratt og hættulega.
íslenskir hippar eru kapituli útaf fyrir sig.
Þeir sukkuöu og slörkuöu en flestir héldu
sínu striki þegar lífsbaráttan tók viö. Hass-
neysla þeirra og subbulegt útlit fór samt
fyrir brjóstiö á íslenskum góöborgurum.
Eftirfarandi frásagnir fjalla um lífsferil
meðvitaös, framsýns fólks, sem einu sinni
varkallaöhippar.
Texti:
GÍSLI ÞÓR GUNNARSSON
listin (Acid rock) var dulmál eitur-
lyfjaneytenda.
Leonard Cohen lét hafa eftir sér
íviötali 1966.
„Stundum upplifi ég sætleika
dauöans.“ Þarna er um aö ræöa
beina tilvísun í áhrif ofskynjunar-
lyfsins LSD. Sömu efnahvörf eiga
sér staö í líkama þess sem droppar
sýru og þess sem er að deyja.
Eiturlyfjapostular héldu því fram
aö ofskynjunarlyf væru ekki vana-
bindandi og hliöarverkanir væru
minni en lækningaáhrifin.
Ein synd býöur annarri heim.
Margar poppstjörnur létu sér ekki
nægja marihúana, hass og LSD.
Hættuleg eiturlyf unnin úr ópíum
uröu banabiti margra mætra
manna úr poppheiminum. Sumir
dóu drottni sínum, en aörir uröu
einsog lifandi lík.
Gítarleikari Rnllinn Stnne«? Rrian
Jones, fannst látinn í sundlaug sinni
1969. Viö krufningu fannst mikiö
af valíum, amfetamíni og áfengi í
líkama hans. Dánarorsök hans er
ekki kunn enn þann dag i dag.
Sjálfsvíg, morö eöa asthmakast eru
hugsanlegar orsakir. Vitað er aö
hann var miður sín eftir aö ástkona
hans tók saman viö Keith Richard.
Félagar hans í Rolling Stones voru
nýbúnir aö senda honum reisu-
passann þegar hann skildi viö
þennan heim.
Dauði Brian Jones markaöi upp-
haf holskeflu ótímabærra dauös-
falla helstu spámanna hippakyn-
slóöarinnar. Jimi Hendrix, Janis
Joplin og Jim Morrison komu sér
fyrir kattarnef meö hjálp eiturlyfja
og áfengis.
Söngkona Mamas and Papas,
Cass Elliot, dó úr ofáti og lyfja-
neyslu í London 1974. Viö krufn-
ingu kom í Ijós aö stærðar kjötbiti
«?at fp«?tur j koki hennar. Mun þetta