Morgunblaðið - 23.01.1986, Page 1

Morgunblaðið - 23.01.1986, Page 1
Stjórnunarfélag íslands 25 ára Stjómunarfélag íslands verður 25 ára á morgun og verður þess minnst með margvís- legum hætti. Félagið hefur verið einn braut- ryðjenda á íslandi hvað varðar nýjungar í stjómun fyrirtælcja og stofnana. Stjómunar- félagið heldur námskeið, ráðstefnur og fundi og rekur þrjá skóla, Tölvuskóla, Málaskól- ann Mími og Útflutnings- og markaðsskóla íslands. Síðastnefndi skólinn er í eigu féiags- ins og Útflutningsmiðstöðvar iðnaðarins. 4B HLUTVERK OG SKYLD- UR STJÓRNARMANNA Kröfur til stjómenda fyrirtækja aukast ár frá ári. Jafnframt hafa hugmyndir manna um hlutverk og skyldur stjómarmanna fyrir- tækja breyst. Hins vegar virðist sem ýmsir þeir er í stjómum sitja hafí ekki þekkingu á að vinna úr þeim uppllysingum sem fyrir þá em lagðar. Slíkt getur óneitanlega skað- að viðkomandi fyrirtæki. 16B VIÐSKIPTI ÆVINNULÍr miÐJA MORGUNBLAÐSINS FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986 BLAÐ B Innlánasstof nanir Heimildir til eigin vaxtaákvarðana enn um sinn óbreyttar ÞRÁTT FYRIR að lög um við- | hafa þessir aðOar ekki öðlast skiptabanka og sparisjóði hafi SYNING - Félag ísl. iðnrekenda og IBM á íslandi efndu til námsstefnu og umræðu um hugsanlega möguleika íslendinga í undirverktakastarfsemi fyrir alþjóðleg fyrirtæki á borð við IBM. í tengslum við námsstefnuna var haldin sýning og kynning á því sem dönsk fyrirtæki hafa verið að gera í þessu efni fyrir IBM. Sjá frá- sögn B2. Ferðamál * Islendingar stofna fyrstu íslensku ferða- heildsöluna erlendis Frá Önnu Bjamadóttur, fréttaritara Morgunblaðaina f ZUrich. tekið gUdi um síðustu áramót það sjálfstæði í ákvörðun vaxta sem lögin gera ráð fyrir. Astæðan er sú að frumvarp um Seðlabanka íslands hefur ekki náð fram að ganga á Alþingi. í 13. gr. gildandi laga um Seðla- banka segir að bankinn hafi heim- ild til að ákveða hámark og lág- mark vaxta inn- og útlána innláns- stofnana. í lögum um viðskipta- banka segir að bankastjóm og stjómir sparisjóða leggi megin lín- urnar I vaxtamálum viðkomandi stofnunar. Seðlabankinn ritaði bréf til viðskiptabankanna 10. janúar síðastliðinn vegna gildi- stöku laga um viðskiptabanka og sparisjóði þar sem tilkynnt er að „að höfðu samráði við viðskipta- ráðherra að vaxtaheimildir Seðla- banka í 13. gr. no. 10/1961 [séu] í gildi“, þrátt fyrir ákvæði hinna nýju laga. Og með vísan til þessa ákvað stjóm Seðlabankans 2. jan- úar að vaxtaákvarðanir Seðla- banka skuli gilda þangað til annað verður ákveðið. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hafa viðskiptabankamir og sparisjóðimir viljað fá að hækka vexti á almennum spari- sjóðsbókum, sem hafa verið nei- kvæðir frá miðju síðasta ári og sömu sögu má segja um vexti af afurðarlánum. Seðlabankinn hefur ákveðið vexti af almennum spari- sjóðsbókum, verðtryggðum lánum, afurðarlánum, skuldabréfum út- gefin fyrir 11. ágúst 1984 og vanskilavexti. Þá þurfa innláns- stofnanir að fá samþykki Seðla- banka fyrir breytingu á vöxtum annarra inn- og útlána. Matthías Bjamason viðskipta- ráðherra sagði að litið væri svo á að heimild viðskiptabankanna til ákvörðunar vaxta eigi einungis við þegar Seðlabankinn nýti sér ekki heimild til vaxtaákvarðana, að nokkru eða öllu leyti. í frumvarpi um Seðlabankann sem býður af- greiðslu er gert ráð fyrir að þeirri megin reglu verði fylgt að innláns- stofnanir ákveði sjálfar vexti. ÍSLENDINGARNIR Böðvar Val- geirsson, eigandi Ferðaskrifstof- unnar Atlantic, Skúli Þorvalds- son, eigandi Hótel Holts og Ómar Benediktsson framkvæmdastjóri Landkynningarskrifstofu ís- lands í Hamborg, ætla að skrifa undir stofnsamning nýs íslensks ferðafyrirtækis i Vestur-Þýska- landi eftir helgina. Þeir verða jafnstórir bluthafar í fyrirtæk- inu og Ómar verður fram- kvæmdastjóri þess. Hann lætur af störfum hjá Landkynningar- skrifstofunni um miðjan mars og hið nýja fyrirtæki tekur til starfa l.apríl. Böðvar hefur lengi haft hug á að stofna ferðaheildsölu sem sér- hæfir sig í íslandsferðum í Ham-. borg. Hann fékk Skúla til liðs við sig og Ómar hvatti þá til fram- kvæmda þegar þeir bám hug- myndina undir hann. Hann ákvað að ganga til liðs við þá eftir að ákveðið var að flytja landkynning- arskrifstofuna til Frankfurt. „Eg hef alltaf stefnt að því að fara út í einkarekstur og þetta er tækifæri til þess,“ sagði Ómar. Vetrartíminn er mesti annatími ferðaheildsala. Ómar ætlar að nota sumarið til að undirbúa starfsemina næsta vetur vel. „Takmarkið er að fá sem flest fólk sem eyðir pening- um til íslands," sagði hann. Fyrir- tækið mun koma íslandsferðum sem það kaupir af íslenskum ferða- skrifstofum eða stuðlar að sjálft, á framfæri í Vestur-Þýskalandi. „Það er mjög erfitt að fá þýska ferðaheildsala til að taka íslands- ferðir inn í sína starfsemi án þess að styrkja þá á einhvem hátt,“ sagði Ómar. „Það er dýrt og auk þess hafa flestir ferðaheildsalar marga áfangastaði á boðstólum og þeir gleyma gjaman litla íslandi. En það heftir sannast að átak ber árangur. Einn ferðarheildsali réð t.d. starfs- mann til að sjá eingöngu um ís- landsferðir fyrir fimm ámm og nú hefur ferðamönnum þessa fyrirtæk- is til íslands fjölgað úr 22 í 400.“ Þýski ferðamarkaðurinn er stór. Um 9000 Þjóðveijar komu til ís- lands á síðasta ári og Ómar telur að það sé hægt að fjölga þeim með því að höfða til nýrra hópa. Fyrir- tækið mun bjóða upp á alls kyns ferðir svo sem dagsferðir, helgar- ferðir og ráðstefnuferðir auk sí- gildra ferðamannaferða. Stefnt verður að því að bjóða einnig ferðir til Færeyja og Grænlands. Eigend- umir þrír hyggjast víkka starfssvið fyrirtækisins að sögn Ómars og taka þá á móti íslenskum ferða- mönnum og íslenskum útflutningi í Vestur-Þyskalandi. Sjá einnig: Ferðamál B8. 2,9% 2,9% ~ 3,5% | Zb% j Hagvöxtur á Noröurlöndunum 1983—86 ÞJÓÐHAGSSTOFNUN spáir 2% hagvexti á yfirstandandi ári, en áætlað er að hann hafi verið 2,5% á árinu 1985. Miðað við spá fyrir önnur Norðurlönd verður vöxturinn minnstur á íslandi fyrir utan Svíþjóð, 0,8%. Á undanfömum fjórum árum hefur hagvöxtur verið mestur í Noregi og í Finnlandi. FINNLAND 1983 1984 1985 1986

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.