Morgunblaðið - 23.01.1986, Síða 7

Morgunblaðið - 23.01.1986, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, VlÐSKlPn/ArVlNNULÍF FIMMTUDAGUR 23. JANÚAR1986 B 7 og innheimtudeild aðalbanka. Ari hefur starfað erlendis í bönkum í Bretlandi og Noregi. Ari er kvæntur Stefaníu Brynj- ólfsdóttur og eiga þau eitt bam. Birgir Jónsson hefur verið ráð- inn útibússtjóri Landsbankans á ísafirði. Hann hefur starfað í Landsbankanum í 24 ár. Birgir hefur starfað í útibúinu á Sel- fossi í ýmsum deildum og gegnt þar stöðu skrifstofustjóra um árabil. Hann hefur starfað er- lendis hjá Royal Bank of Scotland. Birgir er kvæntur Elínu Sigurð- ardóttur og eiga þau tvö böm. Kristinn Jóns- son hefur verið ráðinn útibús- stjóri við Ár- bæjarútibú í Reykjavík. Hann hefur starfað í Landsbankanum frá árinu 1962. Kristinn starfaði fyrst í inn- heimtudeild að- albanka og síðar um árabil í Langholtsútibúi, þar sem hann var skrifstofustjóri. Kristinn er kvæntur Fjólu Stein- grimsdóttur og eiga þau þtjú böm. Magnús Gísla- son hefur verið ráðinn útibús- stjóri Lands- bankans á Sel- fossi. Hann hef- ur starfað í Landsbankanum í 32 ár. Magnús hefur verið úti- bússtjóri á Akur- eyri frá 1975, en hafði áður gengt störfum deildar- stjóra og skrifstofustjóra í sama útibúi. Magnús er kvæntur Ásbjörgu Ingólfsdóttur og eiga þau þrjú böm. Brynjólfur Þór Brynjólfsson hefur verið sett- ur útibússtjóri við Múlaútibú Landsbankans í Reykjavík til tveggja ára í fjarveru Sigurð- ar Óla Sigurðs- sonar. Hann hef- ur starfað sem skrifstofustjóri í Breiðholtsútibúi undanfarin þrjú ár. Brynjólfur Þór hefur starfað í Landsbankanum frá árinu 1967, og m.a. verið útibús- stjóri í útibúi bankans á Bíldudal. Brynjólfur Þór er kvæntur Ragn- heiði Jónsdóttur og eiga þau þrjú böm. Richard B. Þor- láksson hefur verið ráðinn úti- bússtjóri við Höfðabakka- útibú í Reykja- vík. Hann hefur starfað í Lands- bankanum frá árinu 1956, í ýmsum deildum aðalbanka, í Austurbæjarúti- búi og í Vega- mótaútibúi. Hann var útibússtjóri í Árbæjarútibúi frá stofnun þess og veitti auk þess Höfðabakkaútibúi forstöðu frá því það var opnað árið 1984. Richard hefur starfað erlend- is hjá Barclays Bank í London. Richard er kvæntur Svölu Vetur- liðadóttur og eiga þau fjögur böm. Guðmundur Vilhjálmsson hefur verið ráð- inn útibússtjóri Landsbankans á Akranesi. Hann hefur starfað í Landsbankanum í 21 ár og verið skrifstofustjóri við útibúið á Eskifirði og úti- bússtjóri við úti- búin í Grindavík og á Homafirði. Guðmundur hefur starfað erlendis hjá Den Danske Bank og Royal Bank of Scotland. Guðmundur er kvæntur Emu Jóhannsdóttur og eiga þau þijú böm. Helgi Jónsson hefur verið ráð- inn útibússtjóri Landsbankans á Akureyri. Hann hefur starfað í Landsbankanum í nær 40 ár. Helgi starfaði fyrst í útibúinu á Selfossi í fjölda ára og var þar m.a. skrifstofu- stjóri. Hann var um skeið framkvæmdastjóri Hrað- frystihúss Ólafsvíkur og síðar úti- bússtjóri við útibú Landsbankans á ísafirði og á Akranesi. Helgi er kvæntur Hallbjörgu Teitsdóttur og eiga þau 4 böm. Jónas Gestsson hefur verið sett- ur útibússtjóri við útibú Lands- bankans í Sand- gerði. Hann hef- ur starfað í Landsbankanum frá árinu 1976. Jónas var skrif- stofustjóri við útibúið í Ólafsvík frá stofnun þess, en áður starfaði hann um árabii í Samvinnubankan- um m.a. sem útibússtjóri í Gmndar- firði. Jónas er kvæntur Elínu Ólafs- dóttur og eiga þau þijú böm. Níels B. Jóns- son hefur verið ráðinn útibús- stjóri Lands- bankans á Höfn í Homafirði. Hann hefur starfað í Lands- bankanum í 24 ár. Níels hefur veitt forstöðu ýmsum deildum í útibúinu á Akureyri og auk þess gegnt stöðu útibússtjóra Landsbankans á Bfldudal. Níels er kvæntur Hildi Sigur- steinsdóttur og eiga þau þijú böm. Audion Sealmaster. Allt að 58 sm breiðir pokar Tekur flestallar þykktir. Audion Pronto. Verð 6.500 kr. m. sölusk Engin forhitun. Stórar vélar eingöngu? Nei, líka einfaldar,ódýrar pokalokunarvélar. Pokalokunarvélar frá 6.500 kr. Þær henta stórum sem smáum rekstrareiningum, t.d. þegar pakk- að er varahlutum, rafmagnsvörum, nöglum eða skrúfum; fatnaði; s matvörum, t.d. kartöflum eða samlokum; sælgæti, t.d. § poppkorni, kúlum eða karamellum; þvottaefni; hljóm- plötum; fræi, blómaáburði og gróðurmold; smámynt og þannig mætti lengi telja. Audion Speedpack. Snfður pokann eftir vörunni um leið og pakkað er. Úrval annarra pökkunarvéla. Plastprent selur úrval annarra pökkunarvéla af öllum stærðum og gerðum. Jafnframt höfum við í 26 ár framleitt alls konar plastumbúðir úr eigin filmu, með og án áprentunar. Það er því engin tilviljun að flestallir íslendingar meðhöndla daglega vörur sem pakkað er í umbúðir frá okkur. Audion Contiseaier. Vélknúin. Fyrir færibandalok- un. Hraði 7,5 m/mín. Plastpökkun er framtíðarlausn. Plast sparar miðað við aðrar umbúðir, verndar vel og uppfyllir auknar kröfur um geymsluþol og auglýsingargildi. Forysta Plastprents byggist á tækniframförum, fjölhæfu starfsliði og mikilli reynslu. Þess vegna leysum við pökkunarvanda íslenskra fyrirtækja. ^ Plastprent hf. Plastumbúðir, pökkunarvélar, ráðgjöf. Höfðabakka 9. Sími 685600.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.