Morgunblaðið - 18.04.1986, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 18.04.1986, Blaðsíða 3
f MI5MUNHNDÍ T£N6ÍU6fíR ‘MQRGUNBLAÐIÐ,:FÖSTUDAGUK18. APRÍL1986 B 3 /vrv/ — ttng 'mj * * ajáiaa/ - tenginj 4 Z rrvrvr/ - tencjing * 3 /Ir^ — tcnginj * / 1. 2. 3. 4. Ef tengt er á þennan hátt ber það merki um vilja- festu, og dugnað en einnig hörku og frekju. Þessi tegund tengingar bendir til þess að viðkom- andi sé vingjarnlegur og hjálpsamur. Helsti ókostur er aftur á móti leti og ósjálfstaeði. Manneskjur sem tengja á þennan hátt eru sagðar uppteknar af því að gera vel. Þær eru kurteisar og ákveðnar en stundum tilgerðarlegar og falskar. Þetta er einkennandi fyrir samviskusamt fólk sem er skapandi og greint en stundum er erfitt að átta sig á ýmsum gjörðum þess. áþekk. Hitt er þó kunnugt að skrift frá því í barnaskóla og þar til festa er komin í höndina breytist og fær að þroskast eftir geðþótta, eigin- leikum og færni hvers og eins. Þegar fara á að skilgreina skrift þarf fyrst að vera Ijóst hvað talist getur einföld og óbrotin skrift og miða þá við forskriftarstílinn sem viðkomandi hefur lært. Á því bygg- ist nákvæm greining rithandar hve mikið og á hvern hátt sérhvert einkennandi tilfelli hennar víkur frá því sem kallað er „normalt". Það er líka athugandi að menn skrifa aldrei nákvæmlega eins í tvö skipti og ýmsir þættir eins og veik- indi og hugarástand, til dæmis þreyta og spenna, hafa áhrif á skriftina. Þegar tal barst að því við þá þremenninga hvort skrift yfirleitt væri ekki að verða úrelt fyrirbæri á öld tölvuvæðingar og tækni sögðu þeir áhugann fyrir hand- skrift sjaldan hafa verið meiri, nú væru í gangi námskeið sem haldin væru til að kenna fólki að skrifa betur en ella og mikil ásókn væri á þau. Ekki mun reynast unnt í þetta skipti að fara nákvæmlega út í það hvernig almennt á að skilgreina skrift. Það er ótal margt sem þarf að hafa í huga s.s. skriftartilsögn í upphafi, þjálfun viðkomandi, hvernig penni er valinn til verksins, hvort letrið er feitt eða grannt, mjúk eða hörð áferð, hvort ritað er hægt eða hratt og hvernig lykkj- ur kommur og punktar eru af- greiddir. Þá er einnig nauðsynlegt að athuga spássíur, hvort skrifað er upp við línu, hvort skriftin bein- ist upp eða niður á við og svo mætti endalaust telja. Benda má þeim á sem áhuga hafa, að margt er til um þessi fræði á erlendum bókum og nokkuð hefur verið þýtt á íslensku svo sem bókin „Skrift og skapgerð" sem Guðbrandur Magnússon kennari á Siglufirði, mikill áhugamaður um skriftarmálefni, þýddi hér á árum áður. Eitthvað kann svo glöggur að nema af þeim sem á listilegan hátt „lásu" þá fimm ofan í kjölinn sem voru svo vinsamlegir að gerast „fórnarlömb". Þess skal getið hér í lokin að þeir Björgvin, Þorvaldur og Þórir höfðu ekki hugmynd um það fyrr en eftirá hvaða persónur skrifuðu þá texta sem þeir fengu i hendurn- ar. Texti: Guðbjörg R. Guðmunds- dóttir. góðan dag! Öllu skiptir að kartöfluútsæðið sé heilbrigt og gott. Þannig erÁGÆTIS útsæðið. Margartegundir: Gullauga, Rauðar íslenskar, Helga (rautt Gullauga), Bintje. Þitt er valið, nú ertíminn Síðumúla34 sími681600 gildi slíks yfir höfuð. Hinsvegar geri ég ráð fyrir að þeir hafi gefið sér þá forsendu að skrift- arsýnishornin hafi verið frá fólki, sem á einhvern hátt er í sviðsljósi og því dregið þá álykt- un að um athafnásama eða sjálfstæða einstaklinga væri að ræða. Annars sætti ég mig ágæt- lega við þessa umsögn og er fegin að þeir fóru ekki að tíunda einhverja stórkostlega galla út frá skriftinni . . ." Kristinn Sigmundsson: Félagslyndur og vingjarnlegur Krlstlnn munds- son ópsru- sSngvari Enn einu sinni var hitt á rétta kynið, hér væri um karlmann að ræða. Skriftina sögðu þeir mjög sérstæða en augljóst væri að þetta væri duglegur og framkvæmdasamur maður. Þá sáu þeir á gleiðu letrinu að um félagslyndan og vingjarn- legan mann væri að ræða og bentu ennfremur á að þar sem endadrættir orðanna væru mjög stuttir eða engir væri á ferðinni traustvekjandi maöur, þagmælskur og öruggur. Að lokum lásu þeir úr skriftinni að hann væri mjög svo greindur og ynni líklega við huglæg störf. Þegar Kristinn var spurður hvort þessi lýsing ætti við hans persónuleika, sagðist hann bara vona að eitthvað af þessu gæti átt við sig, það væri ann- ars nær lagi að inna félaga hans eftir því. „Ég held að minnsta kosti að ég sé fremur félagslyndur og reyni í lengstu lög að vera vingjarnlegur. Það væri annars gaman ef þetta ætti allt við mig,“ sagði hann að lokum. V, 'rjr*NJ Guðni Guðmundsson: QuAni QuA- munds- sonrokt- or Monnts- skólans I Roykjavfk munur væri oft á skrift kynj- anna. I Ijós kom að þessi maður var atorkusamur, það sást gjörla á halla skriftarinnar. Samkvæmt reglunum átti hér að vera á ferðinni maður sem var sveiflukenndur í framkomu og gat stundum verið óþægi- lega opinskár. Rektor mennta- skólans var að lokum sagður nægjusamur, praktískur, iðinn, ákafurog duglegur. Það var slegið á þráðinn til Guðna og hann inntur eftir því hvernig honum litist á lýsing- una. Sagðist hann varla vera dómbær á hana en í fljótu bragði ekki sjá neitt sem væri áberandi vitlaust. Sveiflukenndur í framkomu Guðni var strax skilgreindur sem karlmaður en svona í lokin gátu þeir félagar þess að í raun ætti aldrei að kyngreina fólk í rithandarlestri. Þeir sæju þetta frekar sem skriftarkennarar, því það væri staðreynd að ÝSINGAÞJÓNUSTAN / Sf A

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.