Morgunblaðið - 04.07.1986, Qupperneq 17

Morgunblaðið - 04.07.1986, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1986 17 íslenskum viðskiptahagsmunum. Hins vegar hafa stjórnvöld verið tregari í taumi varðandi heimild til kaupa á skuldabréfum erlendis og hlutabréfum í óskyldum fyrirtækj- um. Það er undarleg afstaða þegar haft er í huga að heimilt er félaga- samtökum að kaupa sumarbústaði í suðurlöndum. Kaup á fasteign og verðbréfum hefur engan eðlismun. Hvort tveggja er íjárfesting og eru yfirgnæfandi líkur á að fjárfesting á verðbréfum reynist hagkvæmari en kaup á fasteign. Heimild til verðbréfakaupa erlendis mun þó vera á leiðinni og er það enn eitt skrefið til aukins fijálsræðis í við- skiptum. Þá hefur verið opnað fyrir erlend- ar lántökur vegna fjármögnunar- leigustarfsemi sem er byítingar- kennd aðgerð af hálfu stjórnvalda. Hvað vantar enn? Þrátt fyrir góðan vilja stjóm- málamanna og embættismanna sér- staklega í tíð núverandi ríkisstjóm- ar til að auka fijálsræði í viðskiptum em enn ljón á veginum. Stórt vandamál er vöntun á hlutabréfamarkaði á íslandi. Níu af hveijum tíu íslenskum hlutafé- lögum em smá fjölskylduhlutafélög. Öll íslensk fyrirtæki þjást af skorti á eigin fé. Hver er lausnin? Gera þarf hlutabréfaeign að eft- irsóknarverðum hlut sem gefa á svipaða eða betri ávöxtun en banka- eða skuldabréfaávöxtun. Því verður að meðhöndla hlutabréfakaup eins og sparnað og því þurfa þau að vera skattfijáls og hömlur á að afnema á greiðslu arðs. En þarna er ákveðinn tvískinnungur í gangi í afstöðu stjórnvalda. Leggir þú peninga í banka eða kaupir skulda- bréf er það sparnaður og því ekki skattlagður. Spamaðurinn skilar sér til fyrirtækis sem rekstrarlán, eykur fjármagnskostnað og skuldir og minnkar eigið fé. Vitlegra væri að almenningur legði peninga milli- liðalaust í fyrirtækið og kæmi því þannig á flot aftur, sér og þjóð- félaginu í heild til hagsbóta. Þá er það spurningin um fjöl- skyldurnar sem eiga fyrirtækin. Þær vilja ekki missa völdin í fyrir- tækinu. Leið út úr því væri að heimila myndun hlutabréfaflokks sem ekki fylgdi atkvæðisréttur eða skertur atkvæðisréttur. Margir vilja viðhalda höftum Andstæðingar ftjálsra viðskipta og heilbrigðs atvinnulífs hafa ekki svo lítið býsnast yfir Hafskipsmál- inu. En þeir hafa einnig býsnast yfír því sem þeir nefna ftjálshyggju- stefnu í íslensku viðskiptalífi. Þeir fullyrða að breytingar á viðskipta- lífinu sem hér hafa verið tíunduð þjóni einungis vafasömu viðskipta- Iífi og ýti undir svik og undanskot. Enginn þessara málamanna hef- ur leitað að skýringum á því hvaða kringumstæður leiddu til fjármálaó- reiðunnar hjá Hafskip. Með því að leggjast gegn minnkun hafta og ófrelsis og með því að hindra að heilbrigð skynsemi verði innleidd í íslenskt viðskiptalíf og atvinnulíf, með þeim hætti sem byijað er að gera og uppnefnd er fijálshyggja, eru menn að ýta undir að fleiri Hafskipsmál verði til. Höfundur er framkvæmdastjóri Samvinnusjóds íslands hf. Fróóleikur og skemmtun fyrirháa semlága! Afkomendur Eyrbekk- inga vestanhafs SÉRA Kolbeinn Þorleifsson vai' nýlega staddur á Washington- eyju í Wisconsin-fylki í Banda- ríkjunum. Sr. Kolbeinn hefur stundað rannsóknir varðandi forfeður sína frá Eyrarbakka sem fluttu vestur um haf og var erindi hans að færa skjala- safni Washington-eyjar ýmis ættfræðileg- og sagnfræðileg skjöl varðandi íslensku innflytj- endurna, forfeður þeirra og ættingja á íslandi. Skjölin voru gefin við hátíðlega athöfn þann 22. júní sl. og komu þá saman í fyrsta skipti afkom- endur íslensku innflytjendanna, u.þ.b. 60 talsins. Meðal þeirra skjala sem gefín voru, eru ættar- tölur allt aftur til 800 e. kr. auk bóka og hljómplatna tengdum ættingjunum á íslandi. A meðan á dvölinni stóð safnaði Kolbeinn að sérýmsum heimildum varðandi íslensku landnemana á Wisconsin-eyju, myndum af af- komendum þeirra og fleiru sem hann hyggst síðan búa til útgáfu hér heima. Hér stendur sr. Kolbeinn Þorleifsson við feijuna sem siglir til Washington-eyjar. Feija var vígð 1970 og heitir því rammíslenska nafni Eyrarbakki. VIÐIR 35 ARA 1951 -1986 Vl? 10% AFMÆUS AFSLÁTTUR VID KASSANN! Verslunin Víðir er 35 ára á þessu ári og við höldum veglega uppá það. í því tilefni bjóðum við 10% HEILDARAFSLÁTT af öllum viðskiptum þessa viku. Afslátturinn fer fram við kassann - 10% er dregið frá heildarupphæð, hvort sem hún er stór eða smá. ATH. TÓBAKSVÖRUR UNDANSKILDAR í Mjóddinni: Allir krakkar fá djús og popp Opið til kl.21 í Mjóddinni-en 01 mr J Lokað á laugurdögum í sumar AUSTURSTRÆT117 alíBif STÓRMARKAÐUR MJÓDDINNI

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.