Morgunblaðið - 04.07.1986, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 04.07.1986, Blaðsíða 47
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 4. JÚLÍ 1986 47 Guðmundur Steinsson stekkur hór hátt f loft upp og skorar síðara mark sitt í leiknum gegn ÍA. UM helgina fer fram þriAja stiga- mót sumarsins í golfi, Coca- Cola-mótiA, á Akureyri auk ann- arra móta víAs vegar um landiA. Coca-Cola mótið er elsta opna mótið og verður nú haldið í 20. skipti. Skráningu lýkur í kvöld klukkan 21, en keppt verður á morgun og sunnudag. Leiknar verða 36 holur með og án forgjaf- ar, en síðan leika meistaraflokks- menn aðrar 36 holur t keppni um iandsliðsstig. Verksmiðjan Vífilfell gefur veg- leg verðlaun til keppninnar. Fari einhver holu í höggi, fær sá hinn sami bílhlass af kóki, og einnig verða veitt sórstök verðlaun fyrir lengsta upphafshögg á 9. braut og högg næst holu á 18. braut. Opið unglingamót og opið há- forgjafarmót (forgjöf yfir 20) verður á Strandarvelli við Hellu á morgun. Keppnin hefst kl. 10 í fyrramálið og eru góð verðlaun í boði gefin 1. deild kvenna: KR vann IBK 9 Leik KR og ÍBK sem fór fram á KR-vellinum lauk með 1:0 sigri KR. Um miAjan fyrri hálfleik skor- aði Kristrún Heimisdóttir eina mark leiksins beint úr auka- spymu. Á Skaganum mætti (A—UBK og lauk leiknum meö sigri UBK eitt mark gegn engu. Sigríður Sigurð- ardóttir skoraði mark Blikanna. Tvö sparimörk Guðmundar í skemmtilegum baráttuleik LAUGARDALSVÖLLUR1. deild: Fram - ÍA: 3:1 (1:0) Mörk Fram: Guömundur Torfason 2, Guö- mundur Steinsson Mark ÍA: Guöbjörn Tryggvason Guh spjald: Höröur Jóhannesson Rautt spjald: Sveinbjörn Hákonarson Dómari: FriÖgeir Hallgrímsson. Hann dœmdi þokkalega, lét leikinn halda vel ófram, en mœtti gefa áhorfendum betri bendingar um ó hvað hann dæmir. Áhorfendur 1310 EINKUNNAGJÖFIN: Fram: Friörik FriÖriksson 3, Ormarr örlygsson 3, Jón Sveinsson 3, Þorsteinn Þorsteinsson 3, Janus Guölaugsson 3, ViÖar Þorkelsson 3, Kristinn Jónsson 3, Pétur Ormslev 3, Gauti Laxdal 4, Guðmundur Steinsson 3, Guömund- urTorfason4. Samtals 35 stig. ÍA: Birkir Kristinsson 3, Hafliöi Guöjónsson 3, Heimir Guðmundsson 3. Siguröur Lórusson 3, SigurÖur B. Jónsson 2, Sveinbjörn Hákonar- son 2, Júlíus P. Ingólfsson 2, Höröur Jóhannes- son 2, Ólafur Þóröarson 3, Valgeir Baröason 2, Guöbjörn Tryggvason 4. Stefón ViÖarson (vm) lék of stutt. Samtals 29 stlg Þetta var sérlega vel leikinn og skemmtilegur leikur. Skagamenn skoruðu strax á upphafsmínútun- um og héldu forystunni fram í miðjan síðari hálfleik. Þá loks komu Frammarar boltanum inn eftir að mark frá þeim hafði legið í loftinu nánast alian leikinn. Guðmundur Torfason skoraði þá tvö glæsimörk Texti: GuAjón Arngrfmsson Mynd: Bjarni Eiríksson og hefur nú skorað ellefu mörk í tíu leikjum í 1. deild, og Fram er komiö með nokkuð örugga forystu ídeildinni. Leikurinn var sem fyrr segir opninn og skemmtilegur, og strax á fyrsti tíu mínútunum fengu liðin fimm góð marktækifæri, Skaga- menn tvö og Frammarar þrjú. En úr fyrra færi sínu skoruðu Skaga- menn fyrsta markið í leiknum. Sakleysisleg sending kom utan af hægri kanti inn á vítateig Fram og varnarmenn liðsins virtust ekki hafa miklar áhyggjur af henni. En líklega hefur einhver þeirra snert boltann lítillega því einn af öðrum misstu þeir af sendingunni og skyndilega var Guðbjörn Tryggva- son einn með boltann rétt fyrir utan markteig. Hann skoraöi því fremur auðveldlega. Þetta mark dugði Skagamönn- um næstum því til sigurs í leiknum. Frammarar sóttu mun meira allan fyrri hálfleik og í þeim síöari sömu- leiðis. Þeir léku vel saman úti á vellinum og tókst oft að skapa sér þokkaleg færi. Þeir reyndu mikið að komast upp í hornin og gefa fyrir, en Sigurðarnir í miðju Skaga- varnarinnar hirtu alla skallabolta. Og inn á milli áttu Skagamenn ágæt upphlaup og marktækifæri. Það var ekki fyrr en 20 mínútur voru til leiksloka að Fram jafnaði — einmitt þegar Skagamenn voru að ná því að brjóta þá niður, og leikmenn Fram að missa einbeit- inguna í flýtinum við að sækja. Og hvílíkt mark. Gauti Laxdal lék þá frá miðju í átt að Skagamarkinu og þegar hann nálgaðist vítateiginn nam hann staðar og renndi til hliðar á Guðmund Torfason sem sneri bakinu í markið um þremur metr- um utan teigs. Meö varnarmann á bakinu náði Guðmundur að snúa sér og þruma með vinstri færi af slíkum krafti í biáhorn marksins að Birkir gerði ekki minnstu tilraun til að verja. Boltinn lá fyrir aftan hann þegar hann áttaði sig. Aðeins sjö mínútum síðar náði Fram forystunni og aftur með fal- legu marki. Eftir fallegt þríhyrn- ingsspil á vinstri vængnum, sem Janus, Viðar, Gauti og Guðmundur Steinsson tóku þátt í, kom há fyrir- gjöf að ÍA-markinu sem Guðmund- ur skallaði fast að marki. Birkir gat aðeins krafsað í boltann á leið hans efst í markhornið — en inn fór hann, 2:1 Þriðja markiö kom svo þegar 5 mínútur voru eftir. Gauti Laxdal var þá enn á ferðinni — komst laglega í gott skotfæri á vítateig. Fast skot hans lenti neðst í stönginni og frákastinu náði Guðmundur Steinsson sem ekki gat annað en skorað. Sem fyrr segir var þessi leikur skemmtilegur og vel leikinn. Bæði liðin jöfn og léttleikandi og óvenju- margir áhorfendur fengu heilmikið fyrir peningana. Sveinbjörn Hákonarson var klaufalegur að fá rautt spjald á síð- ustu mínútum leiksins fyrir að sparka aftan í Viðar Þorkelsson eftir smá baráttu úti á miðjum velli. Þar hljóp skapið með hann í gönur. Og hann vissi það strax sjálfur því hann mótmælti dómn- um ekki vitund. af Samverki, Hellu, og Húsasmiðj- unni, Reykjavík. Hið árlega júlímót Rakarastofu Jörundar fer fram á golfvellinum í: Grafarholti um helgina og hefst klukkan 13 á morgun. 80 keppend- ur tóku þátt í mótinu í fyrra og má búast við enn meiri fjölda nú. Leikið er með fullri forgjöf og fær sigurvegarinn ferð til Skotlands í verðlaun. Sá sem verður næst holu á 2. braut fær 2 veiðidaga fyrir tvær stangir í Grafará ásamt afnotum af veiðihúsi og sá sem verður með besta skor fær fría klippingu næsta árið í verðlaun. Þá verður Lancome-kvenna- mótið hjá Golfklúbbi Suðurnesja á morgun og opna SR-mótiö hjá Golfklúbbnum Leyni á sunnudag- inn, svo nefnd séu helstu golfmót helgarinnar. Hvergerðingar ílukkupottinn ( GÆR var dregið í 16 liða úrslit Mjólkurbikarkeppni KSÍ í húsi Osta- og smjörsölunnar, en fyrir- tækiö styrkir KSÍ vegna keppn- innar. Reglum um 16 liða úrslit bikar- keppninnar hefur verið breytt þannig að ef lið úr 1. eða 2. deild dregst gegn liði úr 3. eða 4. deild, skal leikið á heimavelli 3. eða 4. deildarliðsins. Forráðamenn flestra liðanna voru viðstaddir og mátti heyra að sumir áttu sér óska- mótherja. Þannig vildu Hvergerð- ingar fá ÍA, Víðismenn vildu leika gegn ÍBK í Garðinum og Austri og Fylkir vildu heimaleik gegn 1 - deild- arliði. . 4. deildarlið Hveragerðis datt í lukkupottinn, Víðismenn fengu ósk sína uppfyllta eins og Austri og . Fylkir. Óskar H. Gunnarsson, fram- kvæmdastjóri Osta- og smjörsöl- unnar dró fyrsta liðið, en eftirtalin lið leika saman: KR-Mr VHMr-(BK IBV-UBK Gríndavflc-Valur KS-Víkingur Au«tri-FH Hveragerói-ÍA Fyildr-Fram Leikir KS og Víkings og Fylkis og Fram verða þriðjudaginn 8. júlí, en hinir leikirnir miðvikudaginn 8. júlí. Allir leikirnir hefjast klukkan 20. Þá var dregið í 8 liða úrslit í bikarkeppni kvenna og fara leikirnir fram 14. júlí. UBK dróst gegn ÍA, KA gegn Fram, ÍBK gegn KR og Valur gegn Aftureldingu. Morgunblaéið/Bjami Eiríksson „Ég vissi það,“ sagði Úlfur Jónsson, liðsstjóri Hvergerðinga, sigri hrósandi þegar I Ijós kom að hann hafði dregiA óskaliðið ÍA, gegn HveragerAi. AAalsteinn Steínþórsson, formaður mótanefndar KSÍ staAfestir, dráttinn og Óskar H. Gunnarsson fylgist með. Golfmót um helgina © Kaplakrikavöllur FH—Vídlr íkvöldkl. 20.00.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.