Morgunblaðið - 05.07.1986, Side 1

Morgunblaðið - 05.07.1986, Side 1
REYNIR ANTONSSON fæddist alblindur á báðum augum, en lækna- vísindin komu til hjálpar að svo miklu leyti sem það var hægt og færðu honum örlitla sjón á annað augað. Hann hefur ekki látið sjóndepru hindra sig í lífinu, hefur ferðast ótrúlega víða, numið við erlendan háskóla, skrifað leiklistar- gagnrýni ogveriðmeð reglulegan dálk í Degi. Þá hefur hann verið að skrifa sakamálaskáldsögu sem nú er tilbúin í handrit. B4 MEÐFÆDDUR HÆFILEIKI — Tryggvi Gunnarsson er aðeins 21 árs að aldri en hefur engu að síður skorað yfir 90 mörk í deildarkeppni íslandsmótsins í knatt- spyrnu. Flest mörkin gerðiTryggvi fyrir ÍR í 4. deildinni en nú leikur hann með KA í 2. deild og heldur uppteknum hætti. Hann segir hæfileikann að skora mörk meðfæddan — „ég held að það sé engin spurning," segir hann íviðtali hér íblaðinu. JHnrpmlblahtS) AKUREYRI PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ1986 BLAÐ Bæjarmálin eru mittbríds og mittgolf — segir Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar og forseti bæjarstjómar Akureyrar Gunnar Ragnars forstjóri Slippstöðvarinnar og forseti bæjarstjórnar. „ÞEGAR VIÐ tökum við núna eru nokkur stór mál sem krefjast úrlausnar. Fyrst og fremst eru það atvinnumáiin og það er okkar skoðun að við þurfum að leggja mikla rækt við að efla grunnatvinnu- vegina vegna þess að allt annað byggist á því. Það er ásetningur okkar að efla okkur á sviði sjávarútvegs og meðal annars þannig að auka við flota Útgerðarfélags Akureyringa. Og ég vil nefna eitt sem þarf að verða eitt af meginviðfangsefnum okkar á Akureyri og á Eyjafjarðarsvæðinu: það eru að verða miklar breytingar í þjóð- félaginu, það verður hraðari þróun á næstunni varðandi fólksflutn- inga — fólki fækkar á ystu annesjum og í innstu dölum og augljóst er að það mun flytjast inn á þéttbýlisstaðina — og það er okkar meginverkefni á næstu árum hér að skapa til þess skilyrði að þetta svæði nái því að verða öflugur þéttbýliskjarni. Að við missum ekki fólk á suðvesturlandið. Mannfjöldi hefur staðið f stað hér í nokkur ár en við þurfum að vinna þeirri stefnu fylgi að það sé hagkvæmt fyrir þjóðarheildina að nokkrir sterkir þéttbýliskjarnar byggist upp í öllum landshlutum — og að Eyjafjarðarsvæðið hafi þar vissan forgang. Svæðið verður að vera nógu aðlaðandi vegna búsetuskil- yrða, í víðasta skilningi þess orðs, til að fólk vilji flytja hingað og geri það i hæfilegu hlutfalli við aðra flutninga," sagði Gunnar Ragnars, forstjóri Slippstöðvarinnar hf., oddviti sjálfstæðismanna og nýkjörinn forseti bæjarstjórnar á Akureyri í samtali við Morgun- blaðið í vikunni. Gunnar sagði að afla þyrfti því enn meiri skilnings að vegna ein- stakra landkosta í Eyjafirði yrði landbúnaðarframleiðsla á svæðinu ekki minnkuð. „Hún verður að minnka á öðrum stöðum á landinu í staðinn, þar sem hún er óhag- kvæmari, og á ég þar sérstaklega við mjólkurframleiðsluna. Og við verðum að halda vöku okkur þó komið hafi tímabundinn afturkippur í sambandi við nýtingu á orku og samninga við stóriðjufyrirtæki. Stefna okkar verður að vera skýr um það að næsta stóriðjufyrirtæki sem reist verður á íslandi verði reist hér í Eyjafirði." Pjárhagfsstaða bæjarins oft verið betri — Fulltrúar fráfarandi meiri- hluti í bæjarsljórn hafa lýst því yfir að þið, sjálfstæðismenn og alþýðuflokksmenn, takið við góðu búi. Hvað segirðu um það? „Fjárhagur Akureyrarbæjar hef- ur oft verið betri en nú. Fjárhagsá- ætlun síðasta árs, 1985, fór veru- lega úr skorðum. Hún fór rúmlega 40 milljónir fram úr áætlun. Við urðum að greiða niður talsvert af þessu á fyrri hluta þessa árs og greiðslustaða bæjarins er þar af leiðandi mjög erfið í dag er við tökum við. Annað stórmál sem bíður okkar nú er að taka á því stóra vandamáli sem Hitaveita Akureyrar er. Það er eitt af þeim stórmálum sem við stöndum frammi fyrir og verðum að leysa á kjörtímabilinu. Hitaveit- an hefur safnað skuldum allt fram undir þennan dag og vandamálið er því gífurlegt. Þá hefur verið ákveðið að skapa þau skilyrði að Síðuskóli geti veitt þá kennslu sem nauðsynleg er í Síðuhverfí í haust. Það er ekki séð fyrir hvemig á að ijármagna það. Fráfarandi meiri- Úr Hafnarstræt- inu — göngugötu Akureyringa. hluti hafði ekki leyst það mál. Það kemur í okkar hlut — og við erum staðráðin í að gera það. Við höfum vilyrði fyrir því frá ríkisvaldinu að við fáum samning um byggingu þessa skóla — samning sem innifel- ur greiðslur fyrir verkið. Það er auðvelt að segja að við tökum við góðu búi. Fjárhagur Akureyrarbæjar hefur verið góður í gegnum árin og það hefur ekki síst verið sjálfstæðismönnum að þakka — en hann er lakari nú en áður. Og það er fyrst og fremst vegna þess hve fjárhagsútlát fóru langt fram úr ásetlun i fyrra. Þá höfum við verið í sameiginlegum framkvæmdum með ríkinu þar sem fráfarandi meirihluta tókst ekki að búa svo um hnútana að ríkisvaldið stæði að því eins og það átti að gera. Við tökum því við verulegum vandamálum." — Var það draumur ykkar sjálfstæðismanna, fyrir kosning- ar, að mynda meirihluta með Alþýðuflokknum? „Við sögðum það fyrir kosningar að myndaður hefði verið' vinstri Sjá næstu síðu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.