Morgunblaðið - 05.07.1986, Síða 2

Morgunblaðið - 05.07.1986, Síða 2
2 B MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 5. JÚLÍ 1986 Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson Gunnar Ragnars stjórnar sínum fyrsta bæjarstjórnarfundi eftir kosning-ar. Til hægri er Valg-arður Baldvinsson, bæjarritari. meirihluti hér eftir þrennar síðustu kosningar og í að minnsta kosti tvö skipti af þessum þremur voru úrslit kosninganna aljgörlega vísbending kjósenda um að þeir vildu allt annað, sérstaklega 1982. Þá féll vinstri meirihlutinn — en Kvenna- framboðið sýndi að hann var einn vinstri flokkurinn til viðbótar og endurreisti gamla meirihlutann. Við lögðum áherslu á það í okkar kosn- ingabaráttu að bæjarbúar þyrftu breytta stjóm og nýja stjómarhætti og lýstum því jafnframt yfir að ef fráfarandi meirihluti félli einu sinni enn væri eðlilegast að okkar mati að þeir flokkar, sem verið hafa í minnihluta — Sjálfstæðisflokkur og Alþýðuflokkur - ræddu fyrst saman um meirihlutamyndun. Þessir flokkar eiga ágæta samleið hér á Akureyri." — Verða bæjarbúar varir við einhveijar sérstakar breytingar fljótlega, heldurðu, við það að þið komist i meirihluta? „Við höfum sett fram okkar málefnasamning þar sem við höfum lagt fram nokkur áhersluatriði sem við viljum einbeita okkur að. Einnig settum við saman verkefnalista yfír ýmis brýn verkefni sem við viljum takast á við alveg á næstunni. Við munum síðan pijóna við þann lista eftir því sem tilefni verður til. Þar eru nokkur mál sem við munum fela þeim nefndum, sem málin snerta, að íjalla um. Þar má benda á að við munum beina því til stjóm- ar Utgerðarfélags Akureyringa að Akureyrarbær hafí áhuga á því að það verði efling á fískiskipaflota fyrirtækisins og bærinn sé viljugur að veita alla þá aðstoð sem hann geti veitt til að svo megi verða. Nú, við munum beina því til hafnar- stjómar að hafíst verði handa við hönnun á fískihöfn sem fyrirhuguð er norðan við togarabryggjuna. Það er markmið okkar að ráðist verði í slíka höfn — hún er í raun forsenda fyrir því að við getum eflt okkur á sviði sjávarútvegs hér á Akureyri. Þá verður veitustjóm falið, í sam- ráði við bæjarstjóm, að eiga viðræð- ur við stjómvöld um það hvemig vandamál þeirra hitaveitna í landinu, sem verst eru settar, verði leyst. Þá er ákveðið að innrétta 2. áfanga Síðuskóla þannig að þar verði hægt að byija að kenna í haust — að ekki þurfí að keyra bömin í hverfínu enn einu sinni í aðra skóla. Að hægt verði að kenna þar öllum árgöngum. Þetta eru helstu mál sem við munum ráðast íánæstunni.“ Hef mikinn áhuga á að efla tengslin við bæjarbúa — Breytir það miklu fyrir þig að verða forseti bæjarstjómar? „Nei, það breytir kannski ekki miklu fyrir mig. Eg hef haft áhuga á málefnum þessa bæjar og þessar- ar byggðar og eyði miklu af mínum frítíma í þetta. Eg hef setið í bæjar- stjóm eins og kunnugt er undan- farið kjörtímabil. Þá var ég meðal annars formaður stjómar sjúkra- hússins en nú verður sú breyting á að ég gef ekki kost á mér lengur sem formaður þar. Það fór æði mikill tími í þau mál *- sá tími flyst nú yfír í það að vera forseti. Það starf felst ekki eingöngu í að sitja í forsæti og stjóma bæjarstjómar- fundum heldur er hiutverk hans mikið þar fyrir utan. Þetta er tals- vert erilsamt starf og ekki síst á sumrin þegar mikið er um gesti sem koma til bæjarins og forseti verður að sinna. Ég hef líka mikinn áhuga á því að efla tengsl okkar, sem stjómum, við bæjarbúa. Ég hef ekki fastmótað hugmyndir um hvemig mætti efla tengslin en ég held að mjög yrði af hinu góða ef forseti bæjarstjómar yrði reglulega til viðtals fyrir bæjarbúa sem vildu við hann raeða." — Breytist stjórnkerfi bæjar- ins eitthvað með nýrri bæjar- stjórn? „Við höfum auðvitað áhuga á því að hlutimir gangi hraðar fyrir sig en þeir hafa gert. Mörg dæmi em um það að mál hafí verið að velkjast fram og til baka í bæjar- kerfinu og við viljum koma í veg fyrir það. Það er óhjákvæmilegt að mál séu grandskoðuð en það hefur oft verið til vansa hve seinagangur hefur verið mikill — ég nefni lóða- mál í því sambandi. Við viljum skapa skilyrði fyrir því að bæjar- kerfíð geti verið skilvirkara. Við bindum miklar vonir við nýjan bæjarstjóra sem við höfum ráðið og auðvitað veltur mikið á því að hann sé ötull og fljótur að koma hlutunum í verk — framkvæma þá stefnu sem við mörkum. Á sfðasta kjörtímabili var unnið að endur- skoðun á stjómskipulagi bæjarins og nú á síðustu vikum síðasta lq'ör- tímabils var gerð breyting á sam- þykkt þar um. Það er rétt byijunin en gífurlega mikið starf er fram- undan varðandi þessar breytingar." Komum betur út úr kreppunni en ég þorði að vona — Ef við snúum okkur að Slippstöðinni: hvernig er staðan þar f dag? „Það er nú svo að skipaiðnaður í Vestur-Evrópu hefur átt f miklum erfíðleikum. Það er kunnara en frá þurfí að segja að ríkisstjómir margra landanna hafa gripið til þess að styrkja þennan iðnað — bæði beint og óbeint — en nú hafa þær gefíst upp á því, eða em um það bil að hætta. Afkastagetan í heiminum hefur verið miklu meiri en eftirspumin þannig að þetta ástand skapaðist. Þetta hefur haft í för með sér að þrátt fyrir þessa styrki hefur verið mikið um að fyrirtæki hafa orðið gjaldþrota og önnur hafa einnig lokað þó þau hafí ekki orðið gjaldþrota. Önnur hafa fækkað mannskap mjög vem- lega og nú er svo komið að afkasta- getan í Vestur-Evrópu hefur minnkað mjög mikið en pantanir virðast vera að aukast á ný. Þau fyrirtæki sem eftir em hafa því meira að gera nú en áður. Með þessu er ég að segja að við eram kannski komnir langleiðina gegnum þá kreppu sem verið hefur í grein- inni sfðustu þijú til fjögur ár að minnsta kosti. Nú, varðandi okkur héma þá höfum við auðvitað ekki farið varhluta af þessu ástandi. Vegna þess hve fískiskipaflotinn hér á landi var orðinn stór var sett algjört stopp á nýsmíðar, þannig að við höfum þurft að byggja nánast allt okkar starf á undanfömum ámm á viðgerðum og ýmsum breyt- ingum á skipum og ég held að við getum sæmilega við unað þegar við lítum til baka — ég held að við höfum komist í gegnum þessa kreppu miklu betur en við gátum reiknað með á sínum tíma þegar við sáum að hveiju stefndi." Gunnar sagðist til dæmis hafa haft vemlegar áhyggjur af þessu og „í mínum huga býst ég við að hafí verið að við myndum bera skarðari hlut frá borði en raun ber vitni. Hins vegar er það óneitanlega svo að fyrirtæki eins og okkar — sem er með svona mikið af fólki í vinnu sem flest hefur unnið hér mjög lengi — á ekki hægt með að segja upp eða ráða fólk eftir því hvemig kaupin gerast á eyrinni varðandi verkefni hveiju sinni. Og í þessum viðgerðum undanfarin ár höfum við í raun aldrei ráðið okkar næturstað, jafnvel ekki vitað hvað næsti mánuður bæri í skauti sínu. Viðgerðimar em mjög árstíða- bundnar. Það hefur verið mikið að gera á vorin og sumrin og fram á haust. Veturinn hefur verið erfiðasti tíminn að brúa en einhvem veginn hefur það tekist þó nokkmm sinn- um höfum við verið komnir alveg út á ystu nöf. Það sem kom okkur mjög til góða síðasta vetur var samningurinn við Kanadamenn um breytingar á fjómm toguram. Nú emm við einmitt að ljúka við fjórða togarann — og emm að semja um áframhaldandi verkefni í haust við Kanadamenn." Bæjarmálin mitt bridds og mitt golf Það er vitaskuld tímafrekt starf að vera forstjóri í stóm fyrirtæki eins og Slippstöðinni og þá fer mikill tími hjá Gunnari í störf fyrir bæinn. „Það hafa margir haft á orði við mig að ég geti hreinlega ekki haft tíma til að sinna öllu sem ég þarf að sinna — en ég segi þá á móti að ég spili ekki bridds og ekki golf þannig að segja má að bæjarmálin séu mitt bridds og mitt golf — þau em mitt áhugamál. Hér á Akureyri á ég heima — mér líður vel hér — og ég vil ekki sjá mitt byggðarlag fara halloka í barátt- unni. Ég hef aflað mér ákveðinna áhrifa í mínu starfí og held því að ég geti orðið til góðs í bæjarmála- pólitíkinni. Þess vegna er ég að þessu," sagði Gunnar Ragnars. Morgunblaðið/Skapti. Hermann Árnason, endurskoðandi og Gísli Jónsson, forstjóri Ferða- skrifstofu Akureyrar við grillið — sennilega orðnir svangir. Séð yfir veislustað- inn í bakgarðinum hjá Ingu lækni og Sverri. Sævar Hallgrímsson kjötidnaðarinaður fer fimum höndum um skrokkinn. Hann sá um að allir fengju „væna flís af feitum sauð“ ... GÖTUGRILL ÍGOÐABYGGÐ ÍBIJAR við Goðabyggð hafa það fyrir sið einu sinni á ári að halda götugrill svokallað. Þá tekur fólkið við götuna sig saman og grillar saman í einhveijum garðinum, etur og drekkur og leikur sér. Þessi árvissi viðburður var síðasta laugardag. Götunni var lokað fyrir bílaum- ferð, grillin, skreytingamar og langborðin dregin fram og síðan þrír lambaskrokkar grillaðir. Hraustlega var síðan tekið tU matarins, að sjálf- sögðu, enda miklir matmenn i Goðabyggðinni!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.