Morgunblaðið - 10.07.1986, Side 4
4 B
MORGUNBLAÐIÐ, vmsHPnjaviNNULíF FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
ISLANDS
AMERÍKA
PORTSMOUTH/NORFOLK
Ehrira Oria 15. júli
Bakkafoss 29./ÚIÍ
Elvira Oria 12. ág.
Bakkafoss 26. óg.
NEW YORK
Elvira Oria 14. júlí
Bakkafoss 28. júlí
Ehrira Oria 11. óg.
Bakkafoss 25. ág.
HAUFAX
Ehrira Oria 18. júlí
Ehrira Oria 15. ág.
BRETLAND/ MEGINLAND IMMINQHAM
Eyrarfoss 13. júli
Álafoss 20. júli
Eyrarfoss 27. júlí
Álafoss 3. ág.
FEUXSTOWE
Eyrarfoss 14. júlí
Álafoss 21. júlí
Eyrarfoss 28. júlí
Álafoss 4. ág.
ANTWERPEN
Eyrarfoss 15. júlí
Álafoss 22. júlí
Eyrarfoss 29. júlí
Álafoss 5. óg.
ROTTERDAM
Eyrarfoss le.júii
Álafoss 23. júlf
Eyrarfoss 30. júli
Álafoss 6. ág.
HAMBORQ
Eyrarfoss 17. júli
Álafoss 24. júlí
Eyrarfoss I.ág.
Álafoss 7.óg.
QARSTON
Fjallfoss 21. júlí
Fjallfoss 4. ág.
IMMINGHAM
Laxfoss 28. júlí
BREMERHAVEN
Laxfoss 29. júlí
NORÐURLÖND/ EYSTRASALT FREDRIKSTAD
Reykjafoss 15. júlí
Skógafoss 22.JÚII
Reykjafoss 29. júli
Skógafoss 5. ág.
ÁLABORG
Skógafoss 24. júlí
Skógafoss 7. ág.
HORSENS
Reykjafoss 18. júlí
Reykjafoss 1. ág.
QAUTABORQ
Reykjafoss 16. júlí
Skógafoss 23. júli
Reykjafoss 30. júlf
Skógafoss 6. óg.
KAUPMANNAHÖFN
Reykjafoss 17. júlí
Skógafoss 25. júlí
Reykjafoss 31-júlf
Skógafoss 8. óg.
HELSINQJABORQ
Reykjafoss 17. júlí
Skógafoss 25. júll
Reykjafoss 31. júlf
Skógafoss 8. ág.
HELSINKI
Dettifoss 28. júlf
RIQA
Dettifoss 31. júlí
QDYNIA
Dettifoss 2. ág.
Áætlun innanlanas.
Vikulega: Reykjavík, fsa-
fjöröur, Akureyri, Húsavík.
Hálfsmánaðarlega: Siglu-
fjörður.Sauðárkrókur og
Reyðarfjörður.
EIMSKIP
Pósthússtraeti 2.
Sfmi: 27100
Tryggingadeild útflutningslána
Getur breytt miklu
fyrir útflytjendur
TRYGGING — Útflytjendur geta keypt tryggingu gegn tjóni er þeir verða fyrir vegna
útflutnings hjá tryggingadeild útflutningslána. Þá getur deildin einnig veitt ábyrgðir fyrir iánum
vegna útflutnings.
ÞAU gleðilegu tíðindi gerðust
fyrir islenska útflytjendur síðast-
liðið vor að Alþingi samþykkti
frumvarp að breytingum á lög-
um um Iðnlánasjóð. Þar er
kveðið á um að við sjóðinn skuli
starfrækt tryggingadeild út-
flutningslána. Hlutverk þessarar
deildar er í fyrsta lagi að veita
islenskum útflutningsfyrirtækj-
um tryggingu vegna hugsanlegs
taps á kröfum á hendur erlend-
um kaupendum. Og i annan stað
að veita bönkum eða öðrum lána-
stofnunum ábyrgð vegna útflutn-
ingslána.
Heildarskuldbindingar trygg-
ingadeildar geta verið samkvæmt
lögum allt að 100 milljónir kr. sér-
stakra dráttarréttinda, SDR, eða
um 4.800 milljónir króna. Til sam-
anburðar má geta þess að útflutn-
ingur á síðasta ári nam í heild
33.750 milljónum króna.
Bragi Hannesson bankastjóri
Iðnaðarbankans sagði að iðgjöld
hefðu ekki verið ákveðin, en deildin
tekur til starfa um næstu áramót.
Tryggingagjöldin eiga að standa
undir rekstri deildarinnar, greiðslu
bóta vegna tjóna og myndun vara-
sjóðs. Varasjóðurinn á að nema að
minnsta kosti 10% af ábyrgðum.
Ef fé deildarinnar nægir ekki ásamt
varasjóði til greiðslu bóta greiðir
Ríkisábyrgðarsjóður það sem upp á
vantar. Tryggingadeildin á hins
vegar að greiða til baka og eiga
iðgjöld að hækka til að það sé unnt
á næstu tveimur árum.
Deildarstjóri tiyggingadeildar-
innar hefur verið ráðinn Stefán
Melsted lögfræðingur.
Vátrygging
krafna á hendur
erlendum kaupendum
Útflytjendur geta tryggt kröfur
á hendur erlendum káupendum
vegna útflutnings á íslenskum vör-
um eða þjónustu. Bæði er hægt að
kaupa tryggingu vegna vanefnda
kaupenda (viðskiptaleg áhætta) og
vegna stjómmálaástæðna í landi
kaupenda (stjómmálaáhætta).
Tryggingin gildir frá því varan er
send frá framleiðanda, en þó er
hægt að láta hana gilda frá undirrit-
un samnings, ef um sérstaka og
sérpantaða vöru er að ræða. Trygg-
ingadeildin setur að jafnaði skilyrði
um hve langur lánstfmi í viðskiptun-
um má vera. Lánstími vegna
greiðslu á neysluvörum, hráefnum
og hálfunnum vörum má ekki vera
lengri en 180 dagar. Lánstími er
styttri þegar um matvöru og hús-
gögn er að ræða en lengri ef
fj árfestingarvömr em fluttar út.
Tjón sem seljandi kann að verða
fyrir er ekki bætt að fullu, heldur
tekur hann nokkra áhættu sjálfur.
Bragi sagði að í Danmörku væri
viðskiptaleg áhætta tryggð allt að
90% og í Noregi 80%. Tjón vegna
stjómmálalegrar áhættu er tryggð
allt að 85—90% í Danmörku og 90%
í Noregi. Enn er ekki ljóst hvert
hlutfallið verður hjá Iðnlánasjóði.
Sex tegnndir trygginga
Tryggingadeildin mun bjóða upp
á sex tegundir trygginga, auk
ábyrgða: Trygging vegna við-
skiptalegrar áhættu eftir send-
ingu. Útflytjandi er fyrst og fremst
að verjast tjóni vegna gjaldþrots
kaupenda. Ef kaupandi verður
gjaldþrota eða fær greiðslustöðvun
em bætur greiddar í lok lánstfma
en þó þvf aðeins að útflytjandi hafí
efnt skuldbindingar sínar. Þá er
einnig bætt tjón vegna þess að
kaupandi neitar móttöku án gildra
ástæðna.
Trygging vegna sfjómmála-
legrar áhættu eftir sendingu.
Með því að kaupa tryggingu af
þessu tagi getur útflytjandi varið
sig gegn tjóni vegna stjómmála-
legra eða efnahagslegra ástæðna.
Greiðslustöðvun frá landi kaupenda
hindranir á yfírfærslu gjaldeyris,
takmarkanir á innflutningi, stríð,
borgarastyijaldir o.s.frv. geta vald-
ið útflytjanda tjóni. Bætur em ekki
greinddar fyrr en í fyrsta lagi 6
mánuðum eftir gjalddaga.
Almenn trygging Tryggingin
nær til allra krafna seljanda á hend-
ur erlendum viðskiptamönnum og
bætir tjón bæði vegna viðskipalegr-
ar og stjómmálalegrar áhættu. Þeir
sem flytja að staðaldri út vöm/
þjónustu geta keypt þessa trygg-
ingu, ef um staðgreiðsluviðskipti
eða greiðslu innan 180 daga er að
ræða. Þá em bætur aðeins greiddar
ef útflytjandi hefur upplýsingar um
greiðsluhæfni viðskiptamanns sem
em ekki eldri en 12 mánaða. í
Danmörku er iðgjald almennrar
tryggingar 0,18% og 0,45% í Nor-
egi af hverri kröfu.
Trygging vegna viðskiptalegr-
ar og/eða stjómmálalegrar
áhættu bæði fyrir og eftir send-
ingu. Trygging af þessu tagi er
einkum veitt þegar seld em úr landi
fjárfestingarvömr sem em fram-
leiddar sérstaklega eftir óskum
kaupenda. Hún getur náð yfír fram-
leiðslutímann og væntanlegan
lánstima.
Trygging vegna verktaka-
starfsemi. Hægt er að kaupa vöm
gegn því tjóni sem hlýst af því að
umsamið verk er ekki unnið. Einnig
ef afhending efnis og tækja bregst
og innstæða á bankareikningi er
fyrst. Tjón er aðeins bætt ef það
verður eftir að samningur hefur
verið gerður.
Trygging vegna tilboðsgerðar
og vinnu. Utflytjandi getur tryggt
fyrir hugsanlegu tjóni er hlýst af
því að hann hefur þurft að leggja
fram bankaábyrgð vegna tilboðs-
gerðar og útboðsgjafí gengið að
ábyrgðinni án réttmætra ástæðna.
Abyrgfðir
Tryggingadeild útflutningslána
getur veitt bönkum, lánastofnunum
og fyrirtækjum ábyrgðir vegna lána
sem lúta að framleiðslu vöm fyrir
erlendan markað. Tilgangurinn er
að styrkja stöðu útflutningsfyrir-
tækis við að fjármagna útflutning.
Ábyrgðin er sjálfskuldarábyrgð
þ.e. hún er greidd þegar vanskil
ÖRUGG SKULDABRÉF
10,5%ÁRSÁVÖXTUN
SKULDABRÉF M3ÓLKURSAMSÖLUNNAR
SKULDARI RlKISSJÓEXJR ' ‘ "
o
aíereiðslum s
andsbanki íslands býður nú örugg
' skuldabréf til sölu í öllum
fgreiöslum sínum og hjá Fjármálasviði
bankans að Laugavegi 7.
rm
/ i / kuldabréf Mjólkursamsölunnar,
/ / skuldari ROdssjóður íslands.
Bréfin eru að upphæö kr. 100.000.- og 200.000.
til 7 ára, með 2 afborgunum á ári.
Nánari upplýsingar veitir Fjármálasvið
Laugavegi 7, símar 621244 og 20825, og
verðbréfadeildir bankans um land allt.
L
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna í 100 ár
+