Morgunblaðið - 10.07.1986, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, VlDSKIPri/JflVlNNULÍF FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986
B 5
Bragi Hannesson, bankastjóri.
lántaka verða. Við það öðlast trygg-
ingadeiidin endurkröfurétt á hendur
lántaka, sem er útflytjandi. Teg-
undir ábyrgða eru fjórar:_
Framleiðsluábyrgð. Abyrgð er
veitt fyrir láni sem nota á til að
íjármagna framleiðslu vru og vænt-
anlegan
lánstíma.Útskipunarábyrgð
vegna láns til að standa undir
kostnaði frá því vara er send utan
og þar til greiðsla kaupanda berst.
Abyrgð vegna sannanlegs út-
flutnings fyrir láni sem ætlað er
að standa straum af kostnaði vegna
samfelldrar framleiðslu og útflutn-
ings. Útflytjandi þarf að geta sýnt
fram á að um varanleg viðskiptas-
ambönd sé að ræða og þarf lána-
stofnun ekki að framvísa skjöium
um pöntun eða sendingu til tiygg-
ingadeiidar. Samningsábyrgð. Það
er algengt að kaupandi geri kröfu
um að lánastofnun setji tryggingu
fyrir efndum útflytjenda. Abyrgð
er hægt að veita fyrir slíkri trygg-
ingu.
Bragi Hannesson bankastjóri gat
þess að iokum að forstjóri norsku
útflutningstryggingastofnunarinn-
ar, Helgi Kringstad, komi til íslands
í september næstkomandi til ráða-
gerða um starfsemi tryggingadeild-
ar útflutningslána. Ágætt samstarf
og upplýsingamiðlun er á milli
hinna norrænu útflutningstrygg-
ingastofnana og „er okkur hag-
kvæmt að taka þátt í því“, sagði
Bragi.
Viðskiptabankar:
Hagnaður Búnaðarbankans
109 millj. kr. á síðasta ári
milljón króna við lok síðasta
árs. Þau hækkuðu um 39,4%.
Langstærsti hluti útlána var
til atvinnuveganna, 5.099 millj-
ónir króna, þá 908 milljónir til
einstaklinga og 628 milljónir
til opinberra aðila. Sem fyrr
er hlutur landbúnaðar stærstur
í fýrsta flokknum eða 1.799
milljónir króna, lán til iðnaðar
og byggingarstarfsemi námu
911 milljónum til verslunar
1.240 milljónum til sjávarút-
vegs 573 milljónum og til
samgangna, ferðamála og
ýmissrar þjónustustarfsemi
563 milljónum króna.
Innlán jukust um 57,5%
HAGNAÐUR Búnaðarbank-
ans á síðasta ári var 109
milljónir króna. Innlán juk-
ust um 57,5% að meðaltali,
en athyglisvert er að aukn-
ingin var meiri á Reykjavík-
ursvæðinu (62,6%) en utan
þess (50,2%). Meðalaukning
innlána I bankakerfinu var
um 48% og jók því bankinn
hlutdeild sína. Utlán hækk-
uðu um 39,4% en lánskjara-
visitalan hækkaði um 35.6%)
í ársskýrslu bankans fyrir
árið 1985 kemur fram að
lausafjárstaða bankans batnaði
um 437 milljónir króna og í lok
ársins var hún jákvæð um 226
milljónir. Þar af 135 milljónir
í Seðlabankann og 70 milljónir
í erlendum bönkum.
í árslok 1985 námu heildar-
innlán í Búnaðarbankanum
7.055 milljónum króna og
hækkuðu um 2.575 milljónir
frá fyrra ári eða um 57,5% eins
og áður segir. A meðfylgjandi
mynd er sýnd samsetning inn-
lána. Hlutur spariinnlána þ.e.'
innstæður á almennum spari-
sjóðsbókum, gjaldeyrisreikn-
ingum og bundið fé hækkaði
og voru 85% af heild. Af ein-
stökum reikningum jukust
innlán mest á gullbók eða um
616% og metbók 297%. í árslok
stóðu samtals 1.547 milljónir
króna á gullbókar-reikningum
og 898 milljónir á metbók. Þá
jukust innlán á gjaldeyrisreikn-
ingum um 71,4% og námu 252
milljónum króna í árslok. Hlut-
deild bundinna innlána lækkaði
úr 34,8% í 27,7%.
Heildarútlán voru 6.621
ísland — Ameríka
Beinar síglingar milli Njarðvíkur og Norfolk
með M.v. RAINBOW HOPE". Flytjum stykkja-,
palla- og gámavöru, frystivöru og frystigáma.
Umboðsmenn okkar eru
Gunnar Guðjónsson sf
Hafnarstræti 5
P0 Box 290
121 Reykjavik
sími 29200 Telex 2014
Mendian Ship Agency. inc
201 E Citv Hall Ave . Suite 501
Norfolk Va 23510
USA
Simi (0041-625-5612
Telex 710-881-1256
Áætlun: Lestunardagar
NJARÐVÍK — NORFOLK
13. júlí - 23. júlí
3. ágúst — 13. ágúst
23. ágúst — 3. sept.
Rainbow
!,í# Navigation.lnc.
AUGLÝSINCASTOFA
MYNDAMÓTA HF