Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 10.07.1986, Blaðsíða 12
12 B ' ðf?í>r Í.IÍJI. nr ít'TíWnrTMMl'? GlðA iímuoíiom VIÐSKIFTIAIVINNULÍF MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 Danmörk Fyrir 13 áruni hófst ævin- týriíÁlaborg Melsen Trvk heimsótt ÆVINTÝRIÐ hófst fyrir tæpum 13 árum þegar Sven Melsen ákvað ak stofna eigið fyrirtæki í Alaborg í Danmörku. Þá var það hans draumur að með tíð og tíma gæti fyrirtækið vaxið og veitt allt að 10 starfsmönnum vinnu. Nú vinna rúmlega 70 manns hjá Sven, eignir fyrirtæk- isins eru metnar á 380 milljónir króna og veltan um 180 milljónir króna. Verksmiðjan er ekki lík venjulegu fyrirtæki. Þegar inn er komið ber fyrst fyrir augu fallegan gosbrunn með tijám umhverfís og minnir fremur á anddyri hótels en iðnfyrir- tækis. Það er greinilegt að Sven kappkostar ásamt starfsfólki sínu að gera vinnustaðinn aðlaðandi, án alls íburðar. Undirverktaki Melsen Tryk er undirverktaki og annast silkiprentun fyrir mörg framleiðslufyrirtæki. Það annast gerð merkinga, t.d. á saumavélar fyrir Husquama og síma fyrir Siem- ens, og Sven sagði að mikið væri að gera. Þremur árum eftir að hann hóf starfsemina veitti hann 25 mönnum vinnu og árið 1976 flutti fyrirtækið í nýtt 1850 fermetra húsnæði. En það leið ekki á löngu uns Melsen Tiyk hafði sprengt hús- næðið utan af sér og á síðasta ári var hafín smíði á 5000 fermetra húsnæði og var flutt inn í síðasta SILKIPRENTUN - Sven Melsen stofnaði fyrirtæki sitt fyrir 13 árum og í siðasta mánuði flutti hann inn í 5000 fermetra húsnæði. Hann leggur mikla áherslu á aðlaðandi umhverfi, eins og sést þegar gengið er inn í verksmiðjuna. Starfsmaður að vinna við teiknun á tölvu, sem Sven Melsen hefur tekið i sina þjónustu. mánuði. Og um leið tryggði Sven sér 40 þúsund fermetra lóð. Verkefnin eru næg, en aðeins er unnið átta tíma á sólarhring. Sven segir að honum fínnist það ekki fysilegur kostur að taka upp vakta- vinnu til að nýta hús og tæki betur. Ástæðan er sú að hann vill sjálfur fylgjast með framleiðslunni: „Ég get ekki unnið allan sólarhringinn." Hann segist ganga um verksmiðj- una oft á dag til áð fylgjast með og veit þvi hvemig eintökum verk- efnum miðar. Allir í einkennisbúningi Andrúmslofíð í fyrirtækinu er nokkuð sérstakt. Allir ganga í ein- kennisbúningi: „Það kemur liðsandi í mannskapinn," segir Sven og bendir á að á sex mánaða fresti sé skipt um búning, snið og liti og bætir við brosandi: „Og auðvitað verður að setja merki fyrirtækisins á þá því annars þyrftu starfsmenn- imir að borga skatta af þeim.“ Sven teiknar sjálfur búningana. Skrifstofa fyrirtækisins er opin, það eru engar lokaðar hurðir. Sven segir að hann vilji þannig opna fyr- irtækið og auðvelda starfsmönnum að leita til yfírmanna með vanda- mál sín. Gestir taka strax eftir því að flestir sem vinna hjá Melsen Tryk em ungir, 16—25 ára. Sven segir að sér haldist vel á mannskap. Flestir koma til hans ófaglærðir og fá þeir þjálfun. Sven segir að starfs- manni, sem unnið hefur hjá fyrir- tækinu í tvö til þrjú ár, sé gefíð tækifæri til þess að fara á vömsýn- ingar erlendis. Tæknin í þessari atvinnugrein þróast mjög hratt og Sven leggur mikla áherslu á að bæði hann og starfsmenn fylgist vel með. Margt af því sem teiknað er hjá fyrirtækinu er gert á tölvur. En hvemig gengur reksturinn? Sven brosir að þessari spumingu og segir: „25% veltunnar er vegna hráefnis, 25% vegna launa og af- gangur hagnaður fyrir skatta." Gæði „Það er dýrt að gera mistök í framleiðslu “ * Gæðastjórnunarfélag Islands vinnur að því að efla gæðastjórnun Gæðastjórnunarfélag íslands var stofnað fyrir skömmu. Til- gangur félagsins er að auka veg gæðastjómunar hér á landi. Fyrsti formaður var kjörinn Gunnar H. Guðmundsson, rekstr- arráðgjafi. Gunnar sagði að fyrirtæki, stofn- anir og einstaklingar gætu gerst aðilar að félaginu. Hann benti á að á undanfömum ámm hefðu viðhorf tii gæðamála og -stjómunar verið að breytast og væm ekki lengur einkamál sérfræðinga. Skilningur á nauðsyn þess að allir starfsmenn fyrirtækja og stofnana létu gæða- mál til sín taka er að aukast, að sögn Gunnars: „Til að háu gæða- stigi í framleiðslu eða þjónustu verður að koma til samstarf allra bæði innan og utan fyrirtækisins." Það vom Japanir sem vöktu stjómendur fyrirtækja á Vestur- löndum upp af væmm blundi og á síðustu tíu ámm hefur mönnum orðið Ijóst hvað megi ná miklum árangri með gæðastjómun. í öllum ríkjum Vestur-Evrópu em starfandi gæðastjómunarfélög og á Englandi fer nú fram opinbert átak í gæða- málum: „Við íslendingar emm frekar seinir til en við verðum að fylgjast með. Kröfur neytenda verða stöðugt meiri," sagði Gunnar. Hann benti á að fyrir nokkmm ámm hefði athugun á rafmagns- tækjum sem framleidd em í Japan og i Bandaríkjunum sýnt að bilana- tíðni tækja frá síðamefnda landinu væri 1.000 sinnum hærri en í Jap- an: „Þetta er spuming um sam- keppnishæfni, um afkomu og síðast en ekki síst er vert að hafa í huga að mistök í framleiðslu em dýr. Þá em vinnustaðir þar sem stjómn gæða er tekin alvarlega betri vinnu- staðir," sagði Gunnar. Gunnar sagði að undirverktakar, þ.e. fyrirtæki sem framleiða hluti sem önnur nota í framleiðslu sína, verði að fylgja strangri stjómun í gæðum, annars er samstarf af þessu tagi nánast útilokað. Nokkur fyrirtæki hér á landi hafa þegar tekið upp og em langt komin í að byggja upp kerfísbundna stjómun gæða, „og hafa þegar náð ágætum árangri. En því miður em þessi fyrirtæki of fá ennþá," sagði Gunnar. Félagið mun halda fræðslufund í ágústmánuði og ráð- stefnu á komandi hausti. Þá er félagið þegar komið í samband við EOQC, Evrópusamtök gæðastjóm- Gunnar H. Guðmundsson unarfélaga, en á næstunni sagði Gunnar að megjnverkefnið væri að ná til fleiri aðila í atvinnulífínu og bjóða þeim aðild að félaginu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.