Morgunblaðið - 10.07.1986, Side 6

Morgunblaðið - 10.07.1986, Side 6
6 B MORGUNBLAÐIÐ, VTOSKIPTÍ/iöVINNULÍF FIMMTUDAGUR 10. JÚLÍ 1986 EJretland SALA RÍKISFYRIRTÆKJA — Thatcher, forsœtisráðherra Bretlands hefur lagt mikið kapp á að selja fyrirtæki í eign ríkisins. Frá því hún tók við völdum árið 1979 hafa mörg fyrirtæki í eigu ríksins verið seld einstaklingum, en það er margt sem bendir til þess að erfitt verði um sölu á fyrirtækjum á næstunni og á síðustu stundu hefur verið hætt við sölu. Á brattan að sækja í sölu ríkisfyrirtækja RÍKISSTJÓRN brezka íhalds- flokksins undir forsæti Margaret Thatcher hefur lagt ríka áherzlu á sölu ríkisfyrirtækja til einkaað- ila frá því hún tók við völdum i maí 1979, en tregða er nú hlaup- in í viðskiptin og salan ekki jafn auðveld og áður. Á fyrstu sex stjómarárunum kepptust einstaklingar og fjárfest- ingaaðilar við að kaupa upp hluta- bréf fyrrum ríkisfyrirtækja á borð við Amersham International PLC, British Telecommunications PLC og Cable & Wireless PLC auk um 12 annarra ríkisfyrirtækja sem þá voru seld einkaaðilum á hagstæðu verði. En um miðjan júní sl. frestaði ríkisstjómin um ótiltekinn tíma að selja vopnasmiðjumar Royal Ordn- ance PLC, sem fyrirhugað var að leysa úr ríkiseign í sumar. Á undan- fömum mánuðum hefur einnig verið hætt við á síðustu stundu að selja ríkisflugfélagið British Air- ways og Land Rover og Leyland Tmcks-deildir bílasmiðjanna BL PLC (British Leyland). Þessar frestanir hafa aukið þrýsting á ríkisstjómina, sem reikn- að hafði með tekjum upp á 4,75 milijarða punda (rúmlega 300 millj- arða króna) af eignasölu fyrir apríllok. En margskonar erfíðleikar em framundan. Sala óvíss Með því að hraða sölu ríkisfyrir- tækja án þess að salan hafí verið nægilega undirbúin á ríkisstjómin á hættu að lenda í svipuðum vand- ræðum og með Royal Ordnance í fyrra mánuði. Sem dæmi má nefna að salan á ýmsum svæðis-vatnsveit- um, sem átti að hefjast á næsta ári og reiknað var með að færði ríkissjóði í það minnsta 5 milljarða punda (um 317 miiljarða króna), er nú í óvissu vegna andstöðu stjómenda þeirra við þær fyrirætl- anir yfírvalda að selja veitumar hverja fyrir sig á mörgum ámm. Jafnvel þótt sala á ríkisfyrirtækj- um hafí verið vandlega undirbúin er vafasamt að verðbréfamarkað- imir geti tekið við svo miklu framboði hlutabréfa til sölu á skömmum tíma. Reiknað er með að salan á gasfélaginu British Gas færi ríkissjóði tvo milljarða punda (um 127 milljarða króna) í haust þegar þriðjungur hlutabréfanna verður boðinn til sölu. Félagið verð- ur selt í þrennu lagi og nemur söluverðið alls sex milljörðum punda (um 380 milljörðum króna). Er það hæsta verð sem fengizt hefur í nokkm landi fyrir ríkiseign til þessa. Haldi ríkisstjóm Thatchers ekki þeirri stórhuga tímasetningu sem hún hefur ákveðið varðandi sölu ríkisfyrirtækja, minnka þær ríkis- tekjur sem ætlaðar vom til að standa undir skattalækkunum, eða jafnvel til að tryggja að skattar hækkuðu ekki frá því sem nú er, fram að næstu þingkosningum, sem eiga að fara fram eigi síðar en í júní 1988. Rýmun ríkistekna af olíuvinnslu í Norðursjó, sem áætlað er að minnki um helming í ár niður í 6 milljarða punda, eykur enn á þörf ríkisstjómarinnar fyrir tekjur af sölu ríkiseigna. En sumir halda því fram að með því að ana út í sölu ríkisfyrirtækja til að halda tímaáætlun sé ríkisstjómin að fara á bak við þá gmndvallarforsendu sem sala ríkiseigna til einkaaðila byggðist á: Að auka afköst ríkis- fyrirtækja með því að auka samkeppnina. Feikilegt átak Erfiðleikamir sem ríkisstjómin stendur frammi fyrir þurfa ekki að koma á óvart þegar haft er í huga gífurlegt umfang þessa verkefnis. Hér er um að ræða yfirgripsmestu sölu sögunnar á ríkisfyrirtækjum, og fyrirtækin sem seld hafa verið em allt frá vömflutningafélagi yfír í eitt stærsta símafélag veraldar. „Það er auðvelt að gagnrýna áætlunina," segir Michael Osbome aðalhagfræðingur verzlunarbank- ans Kleinwort Grieveson Ltd. í Ixindon. „Það er lítill vandi að ýkja einstök atriði sem farið hafa úr skorðum, en þau geta ekki spillt fyrir yfírtöku einkaaðila á ríkis- fyrirtækjum." Erfiðleikamir hljóta hins vegar að fara vaxandi nú þegar færa þarf tímasetningu áætlunarinni fram. Á fyrstu sjö valdaárum sínui seldi ríkisstjómin opinber fyrirtæl fyrir 8,1 milljarð punda (um 51 milljarða króna), en á næstu þren ur ámm er fyrirhugað að selj eignir fyrir 14,1 milljarð punda (ui 894 milljarða króna). Auk Britis Gas-félagsins og vatnsveitanna m nefna Rolls-Royce Ltd. sem smíði flugvélahreyfla, National Bus Co sem rekur langferðabifreiðir o strætisvagna og British Airporí Authority sem annast rekstur Hea' hrow, Gatwick og Stanstead-fluj vallanna, en öll þessi fyrirtæki er á sölulista. Fyrst og fremst er nú áríðan« fyrir brezku stjómina að geta losi. að við British Gas. Stjóminni c nauðsynlegt að sala hlutabréfa gasfélaginu gangi vel svo unnt ver að viðhalda því trausti sem stjóm: nýtur á fjármagnsmörkuðum c koma í veg fyrir hækkun vaxta c skatta, en sú hækkun gæti rið stjóminni að fullu því skoðanakani anir sýna að hún nýtur nú þeg; minna fylgis en Verkamannaflokl urinn, og skammt er til kosning; Verð hlutabréfa í British Gas verc ur að vera það lágt að það vel áhuga fjárfestingaaðila, en þó ekl það lágt að það geti valdið aukin: gagnrýni Verkamannaflokksins að verið sé að láta ríkiseignir útsöluverði. Sala til neytenda Til að örva áhuga smærri fjá festenda hefur ríkisstjómin ákveð að þeim 13 milljónum neytend sem kaupa gas af British Gas ver gefinn kostur á að kaupa hlutabr í félaginu á hagstæðu verði. Þá fa hver starfsmaður félagsins ókeyp hlutabréf fyrir í það minnsta I pund (um kr. 4.440,-) auk þess se hann nýtur forgangskjara við kai á viðbótarbréfum. Og ofan á al þetta birtast í sjónvarpi hnitmiöað; auglýsingar sem eiga að sýna fra á kosti þess að eignast hluti í Bri ish Gas. Sumir sérfræðingar halda þ fram að svona mikið hlutabréf framboð geti valdið erfiðleikum verðbréfamörkuðunum þegar til viðbótar koma hlutabréf í öðmm ríkisfyrirtækjum sem fyrirhugað er að selja auk mikils framboðs á nýj- um og viðbótarhlutabréfum í fjölda einkafyrirtækja. Á fyrrihluta yfír- standandi árs komu á markaðinn i Bretlandi viðbótarhlutabréf fyrir samtals 2,6 milljarða punda (um 165 milljarða króna) samanborið við 1,3 milljarða punda (um 82,5 milljarða króna) allt árið 1984, árið sem ríkisstjórninni tókst að selja 50,2% hlutabréfa í British Telecom- munications PLC fyrir 3,9 milljarða punda (rúml. 247 milljarða króna). Til að auka á erfíðleikana telja sum- ir að British Gas og vatnsveiturnar skorti það aðdráttarafl fyrir fjár- festendur sem hátæknifyrirtæki á borð við British Telecommunicat- ions og bílasmiðjur Jaguar PLC, sem ríkisstjómin seldi 1984. Segja sérfræðingamir að ríkið hafí nú þegar losað sig við þau fyrirtæki sem auðseljanlegust voru. Og eftir því sem næstu þing- kosningar nálgast gæti ótti við endurþjóðnýtingu fyrirtækjanna fælt kaupendur frá. Talsmenn Verkamannaflokksins hafa gefíð í skyn að þeir muni í það minnsta endur-þjóðnýta vatnsveitumar, komist þeir til valda eftir kosning- ar. En jafnvel þó það verði ekki gert gætu nýjar starfsreglur veitn- anna stórlega skert ábatavonir fjárfestenda. Andstaða hjá Rolls Royce Ríkisstjórnin stendur einnig frammi fyrir vaxandi andstöðu við fyrirætlanirnar frá bæði stéttarfé- lögum og stjómendum sumra þeirra fyrirtækja sem fyrirhugað er að selja. Stéttarfélög sem 38.000 starfsmenn Rolls Royce eru félagar í beijast gegn sölu fyrirtækisins, meðal annars vegna þess að þeir óttast að salan geti leitt til þess að erlendir aðilar geti þannig náð tök- um á fyrirtækinu, sem er eitt þróaðasta hátæknifyrirtæki Bret- lands. Alex Ferry, framkvæmda- stjóri sambands skipa- og vélsmiða, Confederation of Shipbuilding and Engineering Unions, segir að með því að bjóða hlutabréfin á fijálsum markaði væri erlendum fjárfest- ingaraðilum auðvelduð leið til að gleypa fyrirtækið. Hcfur sambandið aldrei þessu vant leitað samstarfs við þá þingmenn íhaldsflokksins, sem komu í veg fyrir sölu Land Rover til General Motors Corp. í Bandaríkjunum, við að stöðva söl- una á Rolls Royce. Stjómendur þeirra tíu vatnsveitna, sem fyrirhugað er að selja, eru ekki á einu máli um hvort selja beri veiturnar allar á einu bretti eða eina og eina í einu. Nauð- synlegt er að eining náist innbyrðis milli stjórnendanna ef vel á til að takast um söluna, en margir þeirra eru andvígir óskum yfirvalda um að selja veiturnar hverja fyrir sig. Sala ríkiseigna, sem hófst strax eftir valdatöku íhaldsflokksins fyrir sjö árum, gekk hnökralaust fram yfír það er British Telecommunicat- ions-félagið var selt 1984, og í sumum tiltellum var árangurinn mjög góður. Sem dæmi um það má taka söluna á Jaguar. Árið 1980 var Jaguar-deild í ríkisfyrirtækinu BL PLC. og smíðaði rennilega en ótrausta bíla auk þess sem 47 millj- ón punda (nærri þriggja milljarða króna) tap var á rekstrinum. Árið 1984 var fyrirtækið selt starfs- mönnum og einkaaðilum fyrir 297 milljónir punda (um 18,8 milljarða króna). Árið eftir var hagnaður af rekstri Jaguar fyrir skatta 121 milljón punda (nærri 7,7 milljarðar króna) og 90% kaupenda voru fylli- lega ánægðir með bílana, miðað við 20% árið 1980. Úrbóta kraf izt „Sá þiýstingur sem fylgdi flutn- ingunum yfir í einkarekstur neyddi okkur til að leggja okkur alla fram við reksturinn," segir John Egan, stjómarformaður hjá Jaguar. „Við komum hlutunum í lag vegna þeirr- ar vissu að við yrðum að standa á eigin fótum." Ríkisstjórnin bendir gjaman á bætta afkomu hjá British Aero- space PLC, flutningafyrirtækinu National Freight Ltd., símafyrir- tækinu Cable & Wireless PLC, og hjá Amersham Intemational PLC, sem framleiðir rannsóknar- og heilsugæzluvaming sem sönnun þess að þessi stefna stjórnarinnar hafí borið árangur. Þótt hagnaður hafi aukizt hjá British Telecommunications eru menn alls ekki á eitt sáttir um það hvort þjónustan hafi batnað eða versnað við að fyrirtækið komst í einkarekstur. En með því að fá um eina milljón nýrra fjárfestingarað- ila, sem ekki höfðu áður stundað hlutabréfakaup, til að kaupa hluti í British Telecommunications hefur ríkisstjóminni tekizt annað: Að stækka hóp hlutafjáreigenda í landi þar sem tekjur af svona fjárfesting- um hafa jafnan verið taldar hálf vafasamar. Svo til allir Bretar þekkja ein- hvem sem keypti hlutabréf í British Telecommunications og bréfín hafa tvöfaldað verðgildi sín frá því þau vom gefín út fyrir tveimur ámm. „Það er ekkert sem hvetur fólk jafn mikið til að kjósa þig en að gefa því eitthvað sem eykur verðgildi sitt,“ segir Osbome hjá Kleinwort Grieveson-bankanum. (Það em samt ekki allir jafn yfír sig hrifnir. Kona nokkur í London, sem keypti B.T.-hlutabréf; segir • þrátt fyrir hækkunina: „Eg skil ekki af hveiju við þurfum að borga fyrir hlutabréf sem við áttum fyrir sem skattgreið- endur.“) Fjölgun hluthafa Ríkisstjómin heldur því fram að fjöldi þeirra einstaklinga í Bretlandi sem eignazt hafa hlutabréf hafí tvöfaldazt á undanfömum sjö ámm, og þeir séu nú um sex milljónir, eða 14% þjóðarinnar. Þá segir stjómin að rúmlega 350.000 starfsmenn fyrrum ríkisfyrirtækja sem seld hafa verið einkaaðilum hafí eignazt hluti í þeim fyrirtækjum sem þeir starfa við. En eftir söluna á British Telecommunications hefur verið á

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.