Morgunblaðið - 02.08.1986, Síða 5

Morgunblaðið - 02.08.1986, Síða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986 C 5 la, Landslag, 1986,280x280 sm. komu. Hann fullyrðir einnig að ekki sé til neitt sem heiti „norræn list“. Einnig gerir Öystein Hjort mjög greinargóða úttekt í sýningarskrá á stöðu myndlistarmanna og list- framleiðslu á Norðurlöndum í dag. Náttúrutilbrigði Listamennimir sem sýna eru afar ólíkir og spannar list þeirra mjög vítt svið. Þama má beija augum allt á milli blæbrigðaríkra verka Hreins Friðfínnssonar og kitch- súrréallískra skurðgoðafígúra Bjöm Nörgaards. Sum verkin minna okkur á géometríska af- straktlist, önnur á minimal list eða tengsl við Fluxus og enn önnur á áhrif frá amerískri list, Willem de Kooning t.d. Það kemur glöggt fram að samband norrænna lista- manna við náttúmna er mjög sterkt og frelsi einstakiingsins virðist mik- ils metið. Finnski listamaðurinn Jukka Makelá sem tók þátt í Biennalinum hér í París 1980 sýnir stór áferða- mikil afstraktmálverk sem eru að hans sögn „sjálfsprottin úti í náttúr- unni og endurunnin á vinnustof- unni“. Verk þessi varpa frá sér norðlægri vetrarbirtu og minna á ísaleysingar á vomm. Verk Sigurð- ar, „Bústaður" og „Sterrenbeeld", hafa einnig í sér fólginn sterkan náttúmkraft og í skúlptúmm norska myndhöggvarans Bárd Brei- vik er djúp tilfinning fyrir náttúr- unni, krafti hennar og veikleikum. Við vitum að borgir þessara landa em engar stórborgir á við New York og París og hin óendan- lega víðátta sem þar er ýtir undir sterkari tengsl við náttúmna. Leiftrandi installasjón og myndsögnskáld Ein ástæðan að baki margbreyti- Helgi Þorgils Frifijónsson, Kona og hundur, 1984, dúkrísta 60x38,5 sm. rd Breivik, Bogi, 1986,70x70x35 am. Bard Breivik, Dualisme concret, 1986. an, Réseau, 1985,336 skúlptúreiningar 6x6x6 sm. leika sýningarinnar er sú að lista- mennimir em á öllumm aldri, — sumir komnir yfír fímmtugt og aðr- ir tæplega þrítugir. Af listamönnum yngri kynslóðarinar vakti sænska listakonan Stina Ekman sérstaka athygli mína. Hún fyllir lítinn sal sem hún fékk til umráða litlum marghymtum skúlptúreiningum (60x60x60 mm) sem gerðar em úr aluminíum, bronsi og balsamvið, og festir þá með jöfnu millibili á vegg- ina, en lætur jafnstóra múrsteina hvíla á gólfinu. Salurinn verður eins og stjörnubjartur himinn við þessa installasjón, — leiftrandi af litlum höggmyndum, þar sem hver eining aðskilur sig frá annarri með ólíkri formgerð. Við hliðina á installasjón Stinu Ekman hefur hinum persónulega og kaldhæðnislega myndheimi Helga Þorgils verið komið fyrir. Hann sýnir 3 málverk, grafíkmynd- ir og dúkristur. Helgi er sannkallað myndsöguskáld sem nýtir þekkingu sína á listasögunni af skvnsamlegu viti til þess að koma hugmyndum sínum á framfæri. Ævintýraheimur hans virðist sakleysislega skondinn á yfírborðinu en undirtónninn er nístandi háð, hráslagalegur ein- manaleiki, kynórar og fáránlegheit tilverunnar. Það er afar erfitt að sundur- greina listaverkin þ.e.a.s. segja að þetta verk sé eftir Svía, þetta ís- lending o.s.frv. Enda hefur það engan tilgang. Það sem skiptir aðal- máli er hvað aðgreinir hvert verk í sjálfu sér og hvemig hver lista- maður kemur með sína eigin útfærslu, sinn eigin tjáningarmáta, — afstöðu hvers og eins til vanda- mála myndlistarinnar, — hvemig listamaðurinn vinnur úr efniviðn- um, hvemig hann notfærir sér arfleið sína og hvemig hann aðlag- ast utanaðkomandi áhrifum. Sameiginlega tekst þeim að vekja með okkur tilfinningu um að ein- hver sterkur kraftur sé að leysast úr læðingi þama í norðurátt. Það er einnig mikilvægt að taka það fram að hér ríkir enginn sam- keppnisandi. Öllum listamönnunum er gert jafn hátt undir höfði og sá sem myndskreytir kápu sýningar- skrárinnar er sænskættaði popp- listamaðurinn Claes Oldenburg sem ekkert kemur nálægt sýningunni að öðru leyti. Ahugi Frakka á nor- rænni list fer vaxandi Ástæðan fyrir því að áhugi Frakka á norrænni list hefur aukist síðastliðin 2—3 ár er ef til vill sú að þeir eru að átta sig á því að við eigum eitthvað sameiginlegt. Þó að Frakkland liggi ekki utan við mörk- in, þá er samt einhver utangarðs- mórall, einhver minnimáttarkennd sem hefur heijað á myndlistar- heiminn hér síðastliðin 10—15 ár. Ungir franskir myndlistarmenn hafa verið undir miklum áhrifum frá nágrönnum sínum, Þjóðveijum og Itölum og jafnvel Bandaríkja- mönnum. En nú er þetta að breyt- ast. Smám saman eru þeir að enduruppgötva séreinkenni sín svipað og þjóðirnar í norðrinu og það virðist nægja til að tengja okk- ur sterkum skilningsböndum. Á skjön við tíðarandann Það sem einkennir umfram allt þessa sýningu er að hún er dálítið á skjön við tíðarandann í listum eins og hann er í dag. Styrkur henn- ar er ekki í því fólginn að undir- strika einhveija ákveðna stefnu, hinn óstýrláta expressionisma til dæmis, — bergmála tískustefnur dagsins í dag, — heldur er hann fólginn í því að sýna okkur 15 ólíka myndlistarmenn hlið við hlið með ólíkan bakgrunn, ólíkar listrænar skoðanir og ólík vandamál. Verkin eru i háum gæðaflokki, þó er eng- inn einn framúrskarandi persónu- leiki sem stendur þama öðrum framar. Það má líkja heildaráhrif- unum við 37,5 gráðu hita, (eða 37,2 eftir nýjustu mynd Jean Jacqu- es Beineix) þar sem loftið verður hvorki of kalt né of heitt, súrt né of sætt og í því tilfelli má geta þess að minni þjóðimar era oft bragðmeiri en þær risavoxnu líkt og ávextimir í aldingarðinum. Höfundur er listfræðingur og býr ÍParis. iard, Venus apocalyptique, 1886 og allegórískar ffgúrur 1983—1986. Verk Sigurfiar Guðmundssonar, Bústafiur 1983—86, Venus 1986, Svarta verkið 1986, Sterrenbeeld 1983—84. í bakgrunnl er verk eftir Paul Osipow, stúdía fyrír O.W. 1986.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.