Morgunblaðið - 02.08.1986, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 02.08.1986, Qupperneq 6
6 C MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 1986 Höggmynda- sýning Helga í sex borgum V-Þýskalands EFTIR ÁRNA JOHNSEN Viðamikil höggmyndasýn- ing Helga Gíslasonar mynd- höggvara verður sýnd í 6 borgum í Vestur-Þýskalandi á þessu ári, en fyrstu sýning- unni er lokið í Vestur-Þýska- landi. Umsagnir um sýningu Helga í vestur-þýskum blöð- um eru mjög lofsamlegar, en alls er um að ræða 30 verk og þar af eru fjórar teikning- ar. Helgi hefur unnið að undirbúningi þessarar sýn- ingar um langt skeið, en upphaflega stóð til að um eina sýningu yrði að ræða. í umsögnunum um sýningu Helga eru menn sammála um að maðurinn sé það sem myndir Helga snúast um, menn sjá sérkenni íslendings- ins og náttúruna í verkum hans og þeir finna titring sem veldur umhugsun. „Þessi sýning byrjaði í Vestur- Berlín,“ sagði Helgi þegar Morgun- blaðið spurði hann um sýninguna, „í Galleri Kunstlicht í nóvember sl. Undirbúningur hófst fýrir löngu. Á árinu 1983 gerði ég handbók um verkin og einnig myndband, bæði með íslenskum og enskum texta og þetta myndband gengur með sýn- ingunni. Á myndbandinu eru verkin sýnd, steypuaðferðin og fleira. Þeir bræður, Stefán og Wolfgang Edel- stein hafa verið mér mjög hjálplegir og það var Wolfgang sem kynnti verk mín fyrir Galleri Kunstlicht, sem vildi taka þau til sýningar og hefur opnað leiðina, en Stefán hefur meira og minna skipulagt hinar sýningamar í samvinnu við þýsk- íslensku félögin úti. Til þess að koma þessu af stað úti fékk ég nokkum styrk frá menntamála- ráðuneytinu og einnig hef ég fengið góða aðstoð frá Eimskipafélaginu og Flugleiðum, þeir hafa verið mér innan handar eins og þeirra var von og vísa og það er gott að eiga þá að. Önnur sýningin var í andyri ráðhússins í Köln, sú þriðja var Frankfurt í júní, þá fer sýningin til Freiburgar .Hamborgar og að lok- um til Diisseldorf á norræna viku sem hefst 22. október og þangað fer ég á vegum menntamálaráðu- neytisins. Sýningin í Diisseldorf verður í Galleri Vömel sem er við aðalgötu þar í borg. Ég verð að segja það að það hefur verið ákaf- lega gott að komast aðeins út og fá svona góð viðbrögð sem raun ber vitni og þó ekki hafi verið ann- að en að fá gagnrýni um verkin hjá milljónaþjóð, þá er það mjög ánægjulegt.“ í blaðinu Moabit Times segir gagnrýnandinn: Viðfangefni mynd- verka Helga Gíslasonar eru form líkamans: Höfuð, háls eða bolur. Eitt grundvallaratriði er einkenn- andi: Rýmið sem bronsið umlykur er opnað og virkar eins og skorið hafi verið í það. Helgi vill á þennan hátt vinna á móti þyngdaraflinu sem felst í efninu. Island, eyjan milli gamla og nýja heimsins langt norður í hafi, kemur allt í einu upp í meðvitundinni vegna sýningarinn- MH ■ Frá höggmyndasýningu Helga í Berlín Helgi Gíslason í vinnustofu sinni viö nýjasta verkið sem mun fara á Reykjaví- kursýninguna í Kjarvals- stöðum á næstunni. Hægra megin fjær stendur brjóstmynd af Agnari Kofoed-Hansen flugmála- stjóra, og höggmynd í tré, en stóri flekinn í bakgrunni er mót af hliði sem Helgi er að vinna fyrir Seðlaban- kann sitt,“ segir gagmýnandinn, „einnig tekst honum að breyta þyngdarlög- máli bronsins með því að lyfta því frá undirstöðunni, gera það léttara. Helgi Gíslason er ekki þægilegur listamaður, en einmitt þess vegna er það þess virði að takast á við þessa sýningu." í Kölnarblaðinu Köln Rundschau segir gagnrýnandinn m.a.: Úr verk- um Helga Gíslasonar geislar kyrrð og einfaldleiki, eins og titlamir gefa oft til kynna: „Kona“, „Rót“, „Hreyfing", eða „Torso“. Myndim- ar em oft þéttar.form sem hvílir í sjálfu sér, en er samt þrungið sgennu. Enda segir listamaðurinn: „Ég lít á brons sem skref hinnar eilífu leitar að ...“ Gagnrýnandinn segir að það veki strax athygli áhorfandans að nærri öll verkin fjalli um manninn, líkama hans, hreyfíngu og hæfíleika og í lok umsagnarinnar segir gagnrýn.and- inn að það sé ljóst að Helgi vilji hafa stöðuga endurskoðun á skoð- unum á gildismati varðandi verk mannlegrar sköpunar og miðað við það að það sé bæði listrænn og heimspekilegur skoðanamáti sem vert sé að íhuga, þá sé það jafn víst að verk listamannsins hafí tryggt sér sess um langan tíma. ar í Galleri Kunstlicht hér í Moabit. Mér hefur alltaf fundist þetta nafn meira framandi en nöfn annarra Evrópulanda. Nafnið tengist í huga mér við Atlantis, einhveijum frum- heimi úr grárri fomeskju sem hvarf ofan í djúp hafsins í hrikalegum átökum náttúruaflanna. Eða mér er hugsað til hinna fomu og hug- uðu víkinga sem gengu á land þar á klettóttum og hrikalegum fjörðum Islands. Imyndunarafl mitt varð ekki fýrir vonbrigðum. Listamaður- inn sjálfur, Helgi Gíslason, virðist vera hress og náttúrulegur maður með lifandi augnaráð. Höggmyndir Helga Gíslasonar sýna á hve sterk- an hátt listamaðurinn á rætur sínar í klettóttu landslagi Islands og hijúfu veðurfari þess, bæði hvað varðar mótíf myndanna og efni. Samt kemur mjög ljóst fram hve næmur listamaðurinn er fyrir krafti formsins sem gerir myndirnar lif- andi. Þetta kemur sérstaklega fram í fíngerðu byggingarlagi verkanna. Flest mótífín eru höfuð og líkamar sem oftast virðast aðeins vera til staðar, en geisla út sterka tjáningu með hermi sínu og stellingum án þess þó að rígbinda áhorfandann tilfínningalega. Mér sýnist að lista- manninum hafi tekist á meistara- legan hátt að útfæra teikningamar sem héngu á veggnum yfír í hið plastíska form. í blaðinu Kölner Stadtanzeiger segir gagnrýnandinn að það sé ekki einfalt verk að fjalla um verk Helga Gíslasonar, því þarna sé listamaður sem hafí mikinn sköpunarkraft og tilhneigingu til stórbrotinna átaka. „Maður verður að viðurkenna fæmi listamannsins til að umgangast efni :\ Á í samkeppninni um list- skreytingu við nýju flug- stöðina á Keflavíkurflugvelli var hugmynd Helga keypt af dómnefnd, en hún var hugsuð all stór eins og sjá má af viðmiðun við manninn fremst á myndinni. Hug- myndin er að útfæra þessa höggmynd minni innan húss íflugstöðinni

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.