Morgunblaðið - 10.08.1986, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1986
Valdimar Örn verður væntan-
lega í heldur nútímalegri búningi
en þessum þegar hann kemur
fyrir sjónir milljóna sjónvarps-
áhorfenda í augiýsingum Calvins
Klein. En þessi mynd var tekin
af Valdimar uppi í Þjóðminja-
safni á föstudagskvöldið þar sem
hann var að leika í kvikmynd
byggðri á Grimms ævintýrum.
Morgunblaðið/Börkur
Calvin Klein vill
íslenskan leikara í
millj ónaauglýsingu
FYRIRTÆKI hins heimsfræga
hönnuðar Calvin Klein hefur
boðið ungum, islenskum leik-
ara, Valdimar Emi Flygenring,
samning um að leika aðalhlut-
verkið í gallabuxnaauglýsing-
um Calvin Klein, sem sýndar
era í sjónvarpsstöðvum um öll
Bandaríkin og einnig í fjöl-
mörgum öðrum löndum. Calvin
Klein er eitt stærsta nafnið í
bandaríska tizkuheiminum og
föt hans seljast í milljónaupp-
lagi viða um heim.
Gallabuxnaframleiðslan var
upphaflega aðeins hliðargrein hjá
fyrirtæki hans, en nú er svo kom-
ið að Calvin Klein er eitt mesta
selda vörumerkið í gallabuxnaiðn-
aðinum og notar hönnuðurinn oft
stórstjömur á borð við Brooke
Shields til þess að auglýsa vör-
una. Óþekktur leikari, sem fær
tækifæri til þess að koma fram í
auglýsingum á borð við þessar,
getur gengið að því vísu að verða
þekkt andlit meðal milljóna
manna og slíkt getur að sjálfsögðu
haft í för með sér hin ýmsu tæki-
færi; auk þess sem launin munu
vera góð.
Valdimar Öm er um þessar
mundir að leika annað aðalhlut-
verkið í kvikmynd, byggðri á
Grimms ævintýmm, sem banda-
rískur leikstjóri er að taka hér á
landi, m.a. í landi Keldna og í
Þjóðminjasafninu.
Blaðamaður Morgunblaðsins
náði tali af Valdimar Emi í Þjóð-
minjasafninu á föstudagskvöldið,
er hlé var gert á tökum. Hann
staðfesti að sér hefði verið boðinn
samningurinn um að leika í sjón-
varpsauglýsingum Calvin Klein,
en sagði að enn hefði ekki fengist
endanlegt svar við því hvort hann
fengi atvinnuleyfi í Bandaríkjun-
um.
Sauðárkrókur:
Fjárhagsvandi bæj-
arsjóðs verulegur
Sauðárkrókskaupstaður á við
verulegan fjárhagsvanda að
stríða um þessar mundir og
gjaldfallnar skuldir bæjarins við
Búnaðarbankann nema allt að
20 miUjónum, auk vanskila bæj-
arsjóðs við ýmsa aðra lánar-
drottna, að því er heimildir
Morgunblaðsins herma. Svo
slæm mun staðan vera að bænum
tókst ekki að greiða laun til
starfsmanna sinna um þar
síðustu mánaðamót, fyrr en Bún-
aðarbankinn hljóp undir bagga.
Þá hefur Innkaupastofnun ríkis-
ins um all nokkurt skeið neitað
að afgreiða pantanir til bæjarins.
„Það er alveg ljós að við eigum
ekki margra kosta völ og verðum
að sækja um skuldbreytingar hjá
opinberum aðilum, lánastofnunum
og bönkum," sagði Snorri Bjöm
Sigurðsson, nýráðinn bæjarstjóri á
Sauðárkróki, þegar hann var spurð-
ur hversu alvarleg staðan væri.
Þorbjöm Ámason, forseti bæjar-
stjómarinnar, var beðinn um að tjá
sig um málið. „Þetta er stórpólitískt
mál í sjálfu sér, en við viljum gjam-
an sjá lausn í sjónmáli áður en við
ræðum það opinberlega. Við emm
að reyna að bjarga þessum málum,
en það er ljóst að Qárhagsstaðan
verður ekki leyst nema með utanað-
komandi aðstoð. Þar á ég við
skuldbreytingar á því sem er í van-
skilum hjá lánadrottnum, en auk
þess verður að koma til lán, erlent
eða innlent.
Hér hafa verið miklar fram-
kvæmdir á undanfomum árum,
skólabyggingar o.fl. og ríkið skuld-
ar okkur stórfé vegna þeirra. Sú
skuld gæti numið allt að 8—10
milljónum þegar frá em taldar þær
5 milljónir sem því ber að greiða á
þessu ári. Á sama hátt og við fáum
þessa skuld greidda á nokkmm
I MAÍMÁNUÐI síðastliðnum voru
heildarútlán innlánsstofnana, þ.e.
viðskiptabanka og sparisjóða, 54
milljarðar og 455 milljónir krón-
ar. Þar af voru erlend endurlán
14 milljarðar 855 milljónir króna,
eða 27,3%. Til samanburðar má
geta þess að heildarútlán sömu
aðila í árslok 1970 voru 16.132
m.gkr. en erlend endurián aðeins
46 m.kr. eða 0,4%.
SigtufirðL
SIGLFIRÐINGUR SI 150, kom til
Sjgiufjarðar í gær, eftir gagnger-
ar breytingar i Þýskalandi. Mun
togarinn halda á veiðar innan
skamms.
Siglfírðingur var smíðaður árið
1969 og var farinn að láta á sjá,
þegar hann var sendur til Þýskalands
til viðgerða Var frystitogarinn
ámm, verða skuldir bæjarins að
dreifast á eitthvert tímabil. Hér er
engin Viðey sem hægt er að nota
til að greiða niður skuld ríkisins við
bæjarsjóð," sagði Þorbjöm að lok-
Erlend endurlán viðskiptabanka
vora lítil lengi vel en fara vaxandi
frá 1973/74. í fyrra tekur hlutfall
erlendra endurlána stökk upp á við,
þegar afurðalán vom fjármögnuð
með erlendum lánum í stað lána úr
Seðlabanka, en jafnframt var gjald-
eyrisstaða Seðlabankans bætt vem-
lega en afurðalán em innifalin í
framangreindum tölum öllum.
lengdur og aðrar breytingar gerðar
á honum og er hann nú eins og nýr.
í gær komu þrír rækjubátar inn
til Sigiufjarðar með afla sinn og virð-
ist rækjuveiðin vera allgóð. Afli
bátanna var frá sex og upp í 20 tonn.
Var unnið úr aflanum í öllum fisk-
vinnslustöðvum á Siglufirði í gær.
- MJ
um.
* *
Utlán íslenzkra innlánsstofnana:
27% erlend endurlán
Siglfirðíngur kominn
heim eftir breytingar
Rannsóknir á íslenska melrakkanum:
Fyrstu „gullnu eyjarnar“
eiga að fæðast næsta vor
NÆSTA vor er von á fyrstu
íslensku „gullnu eyjar“ yrðling-
unum í rannsóknarverkefni
RALA og fleiri stofnana.
„Gullna eyjan“ er verðmætt lit-
arafbrigði sem fæst með
blöndun hvítrefs og silfurrefs.
Við tilrauniraar eru notaðir
hvítir íslenskir melrakkar og
innfluttir silfurrefir og bláref-
ir.
Rannsóknimar em samstarfs-
verkefni Rannsóknarstofnunar
landbúnaðarins, veiðistjóraemb-
ættisins, Tilraunastöðvar Háskól-
ans í meinafræði á Keldum,
Búnaðarfélags íslands og Sam-
bands íslenskra loðdýraræktenda.
Dr. Stefán Aðalsteinsson deildar-
stjóri hjá RALA, Páll Hersteins-
son veiðisljóri og Eggert
Gunnarsson dýralæknir á Keldum
hafa mest unnið að rannsóknun-
um. Rannsóknasjóður Rannsókn-
arráðs ríkisins og Framleiðnisjóð-
ur landbúnaðarins hafa veitt
styrki til verkefnisins.
Rannsóknimar hófust á síðasta
ári með því að safnað var yrðling-
um, hvítum og mórauðum, af
grenjum. Var þeim safnað saman
á Möðruvöllum í Hörgárdal og
settir þar í sóttkví, en þetta fyrsta
ár hafa rannsóknarmenn átt í erf-
iðleikum vegna skæðra sjúkdóma
sem em í villta fslenska refastofn-
inum og heijuðu mjög á dýrin.
„Ég tel að það hafí þó orðið til
þess að forða íslenskum loðdýra-
bændum frá miklu tjóni því nú
dettur er.gum í hug að taka villta
Morgunblaðið/Hjörtur Glsloson
Blárefslæða á Möðruvöllum með afkvæmi sín og íslensks hvftrefs.
refí heim á búin og þeir sem það
ætluðu að gera hættu snarlega
við þegar sjúkdómamir komu í
Ijós á Möðmvöllum," sagði Stefán.
Aðalmarkmið rannsóknarinnar
er að rannsaka hvaða verðmæti
kunna að felast í hinum ýmsu lit-
arafbrigðum íslenska melrakkans.
Stefán sagði að þetta verk gæti
gefíð bændum einhveija von um
nýjungar í loðdýraræktinni. Allar
nýjungar sem yrðu markaðsvara
væm mikils virði. Hann sagði að
rannsóknarverkefnið hefði þegar
vakið athygii erlendis og fylgdust
loðdýraræktendur á hinuin Norð-
urlöndunum spenntir eftir að sjá
hvað út úr henni kæmi.
í vetur vom blárefstófur sædd-
ar með sæði úr íslenskum hvítref-
um. Tilgangurinn er að framleiða
hvíta blendinga með eiginleikum
blárefsins í vexti, þroska, frjósemi
og feldgæðum. Tvær tófur festu
fang og gutu alls 18 yrðlingum,
sem allir em með blárefslit, en
með dulinn erfðavisi fyrir hvítum
lit sem fæst fram í næsta ættlið.
Þessir yrðlingar verða paraðir
saman í vetur og afkvæmum
þeirra síðan blandað við silfurrefí
þannig að vorið 1988 ættu þá að
fást yrðlingar af „gullnu eyjar“
afbrigðinu með sæmilegum eigin-
leikum og árið 1990 ættu tiiraun-
Páll Hersteinsson, veiðistjóri, vigtar hvítref.
imar að vera komnar það langt
að hægt verður að útvega bænd-
um nothæfan hvítref í blendings-
framleiðslu, að sögn Stefáns.
Reyndar verða gerðar tilraunir í
vetur með að sæða einhveija af
blendingunum frá því í vor með
sæði úr silfurrefum, þannig að
einhveijir „gullnu eyjar" yrðlingar
ættu að fæðast þegar næsta vor.
í sumar hefur verið haldið
áfram við að safna yrðlingum úr
grenjum og em nú 40-50 yrðling-
ar í einangmn á Keldum. FYamtíð-
arstaður fyrir þessa tilraunastarf-
semi hefur ekki verið ákveðinn,
að sögn Stefáns, en það mál er
allt í athugun.