Morgunblaðið - 10.08.1986, Side 28

Morgunblaðið - 10.08.1986, Side 28
28 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1986 Útgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Aöstoöarritstjóri Fulltrúar ritstjóra Fróttastjórar Auglýsingastjóri Árvakur, Reykjavík Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Styrmir Gunnarsson. Björn Bjarnason. Þorbjörn Guðmundsson, Björn Jóhannsson, Árni Jörgensen. Freysteinn Jóhannsson, Magnús Finnsson, Sigtryggur Sigtryggsson, Ágúst ingi Jónsson. Baldvin Jónsson. Ritstjórn og skrifstofur: Aðalstræti 6, sími 691100. Auglýsingar: Aöalstræti 6, sími 22480. Afgreiösla: Kringlan 1, sími 83033. Áskriftargjald 450 kr. á mánuöi innanlands. í lausasölu 40 kr. eintakiö. Samningar lög- reglumanna Eftir að fulltrúar samninga- nefnda ríkisins og Land- sambands lögreglumanna höfðu undirritað kjarasamning sinn hinn 18. júlí síðastliðinn gerði Kristján Thorlacíus, for- maður Bandalags starfsmanna ríkis og bæja (BSRB), harða árás á þá og stjórn BSRB sam- þykkti ályktun þar sem sagði: „Stjóm BSRB skorar á lög- reglumenn og allt launafólk á íslandi að vetjast með öllum tiltækum ráðum ódulbúinni árás íjármálaráðherra á gmnd- vallarrétt launafólks til þess að semja um kjör félagsmanna sinna sem fijálsir menn.“ Bjöm Amórsson, hagfræðingur BSRB, ritaði grein í Morgun- blaðið, þar sem hann riíjaði upp, hve mikilvægu hlutverki lögreglumenn hefðu gegnt í verkfallsaðgerðum BSRB og sagði meðal annars um þátt þeirra í verkfallinu 1984: „ . . . mótmæla- og stuðn- ingsganga þeirra vakti athygli langt út fyrir landsteinana - fékk meðal annars umfjöllun í BBC.“(!) O g hagfræðingur BSRB sagði einnig: „Eg hefði seint trúað — og trúi því reynd- ar ekki fyrr en ég sé úrslit atkvæðagreiðslunnar — að lög- reglumenn ríði á vaðið að afsala sér verkfallsrétti með eigin undirskrift.“ Þessi ummæli sýna, svo að ekki verður um villst, að í alls- heijaratkvæðagreiðslu lög- reglumanna um kjarasamning- inn var ekki einungis tekist á um laun lögreglumanna. For- ysta BSRB lagði höfuðkapp á, að samningurinn yrði felldur vegna þess að með samningn- um afsala lögreglumenn sér verkfallsrétti. I samningum við BSRB síðastliðinn vetur tóku Þorsteinn Pálsson, Qármála- ráðherra, og fulltrúar hans fram, að samhliða því sem ein- stök félög innan BSRB fengju samningsrétt og þar með verk- fallsrétt væri nauðsynlegt að undanskilja ákveðna hópa í öryggisþjónustu og heilsu- gæslu verkfallsrétti. Þetta var haft að leiðarljósi, þegar samið var við lögreglumenn. Einar ■ Bjamason, formaður Land- sambands lögreglumanna, sagði, að vissulega væri það neikvætt að missa verkfalls- réttinn, en þess bæri að gæta, að hann hefði í raun ekki verið mikils virði í verkföllum BSRB, þar eð lögreglumenn hefðu ávallt verið skyldaðir til að vinna. Auk þess stæði fyrir dyrum aukaþing Landsam- bands lögreglumanna í haust, þar sem úrsögn úr BSRB yrði til umræðu. Niðurstaðan í atkvæða- greiðslu lögreglumanna varð sú, að meirihluti þeirra sam- þykkti samninginn. Með hlið- sjón af því, hve forystusveit BSRB lagði mikið undir í and- stöðu sinni við samninginn, verða úrslit atkvæðagreiðsl- unnar ekki túlkuð á annan veg en sem áfall fyrir hana. Þegar jafnframt er haft í huga, að í desember síðastliðnum tapaði forysta BSRB í baráttunni um það, hvort kennarar yrðu áfram í bandalaginu, er óhjá- kvæmilegt annað en forystu- menn BSRB líti í eigin barm og hugi að málflutningi sínum og baráttuaðferðum Aðdragandi þess að lög- reglumenn sömdu var langur og strangur. I byijun apríl höfðu 300 lögreglumenn, eða rösklega helmingur lögreglu- þjóna landsins, sagt upp störf- um. Þeir kröfðust hærri launa, lögðu áherslu á, að á fámennis- stöðum væru menn ekki einir að störfum og fóru fram á, að menntun ekki síst símenntun yrði aukin og bætt. Dómsmála- ráðherra neytti lagaheimildar til að framlengja uppsagnar- frestinn úr þremur mánuðum í sex. Samningurinn frá 18. júlí og samþykkt hans í alls- heijaratkvæðagreiðslunni bindur enda á þá óvissu, sem uppsagnimar höfðu í för með sér. Þegar viðhorf íslendinga til einstakra stofnana í landinu var kannað, kom í ljós, að lög- reglan naut hvað mestrar virðingar. Þess er ekki að vænta, að það álit breytist, eftir að lögreglumenn hafa ákveðið að afsala sér verkfalls- rétti og samþykkja nýgerða samninga um kaup og kjör. Þvert á móti má ætla, að þorri þjóðarinnar fagni því, að lög- reglan verði ekki oftar aðili að þeirri orrahríð, sem einkennt hefur verkfallsbaráttu opin- berra starfsmanna í þau tvö skipti, sem þeir hafa barist með þessu vopni síðan Aiþingi afhenti þeim það fyrir áratug. Stundum er orð á því haft, að á Skeiðarársandi megi sjá flest það, sem einkenn- ir íslenzka náttúru öðru fremur, jökla, sanda, fjöll og fljót, bæði jökulfljót og bergvatnsár og blómlegar sveitir beggja vegna sandanna. Fegurð landsins er óvíða jafn mikil og einmitt á þessu svæði. Þar má líka sjá skóga, sem hafa dafnað vel í nágrenni við jökulinn. Bæjarstaðaskógur við Skaftafell er al- þekktur og mikill fjöldi ferðamanna gengur um hann á hveiju sumri en færri þekkja Núpsstaðarskóg og ferðir þangað fátíðar miðað við það, sem gerist annars staðar. Núpsstaðarskógur er vestan við Skeið- aráijökul í hlíðum Eystrafjalls, ótrúlega mikill og blómlegur skógur, sem hefur fengið að vera í friði að mestu fyrir ágangi sauðfjár eða of miklum mannaferðum og árangurinn hefur ekki látið á sér standa. Þeim mun skemmtilegra er að koma á þessar fáfömu slóðir. Þegar komið er að Lómagnúp að vestan er ekki ekið yfír brúna yfir Núpsvötn, heldur beygt til vinstri og ekið eftir varnargörðum, sem liggja að Núpsvötnum. Síðan verður leiðin bæði torsótt og villugjöm vegna margra vegaslóða, sem þama liggja, eins og ferða- félagar höfundar Reykjavíkurbréfs komust að raun um, þegar reynt var að finna færa leið yfír Núpsá og Súlu, sem fara þarf yfir á allmörgum stöðum til þess að komast inn í Skóga. Ámar em að því leyti til auðveldar yfirferðar, þegar vöð hafa verið fundin, að botninn er grýttur og þess vegna ekki mikil hætta á að farartæk- in festist í sandbleytu eða mjúkum botni. Hins vegar er býsna mikið vatn í ánum sums staðar en þó fer það eftir því á hvaða tíma dags er farið yfir þær og bezt að gera það fyrri hluta dagsins. Þegar hins vegar komið er yfir ámar, sem ekki verður gert nema á jeppum eða öðmm slíkum farartækjum, má segja að beinn og breiður vegur liggi inn í Skóga. Þar er auðvelt að finna skemmtileg tjald- stæði og gott að vera. Gönguleiðir em fjölmargar í næsta nágrenni, bæði stuttar og langar. Ágæt grein eftir Sigurð Sigurð- arson, um Núpsstaðarskóg, sem birtist hér í Morgunblaðinu hinn 4. júní sl. reyndist góður föranautur á slíkum gönguferðum. Fyrr á öldinni var nokkuð algengt að farið væri í skemmtiferðir í Núpsstaðar- skóg úr nærliggjandi sveitum. I árbók Ferðafélags íslands, sem út kom 1983 og fjallar um Vestur-Skaftafellssýslu austan Skaftár og Kúðafljóts segir svo um þær ferðir: „Á þriðja tug aldarinnar var nokkuð um það, að farið væri í skemmtiferðir einu sinni á sumri. Var þetta nefnt að fara í smalareið og hygg ég að sá siður hafi lengst haldist í Fljótshverfí og á Síðu. Ungmennafélögin í þessum sveitum vom driffjöðrin í þessum ferðum, sem stundum snemst upp í hreina náttúmskoðun. Einna algengast var þá að fara inn í Núpsstaðar- skóga." Sú var tíðin, að Núpsstaðarskógur var nýttur að einhveiju leyti. Sagt er frá því í fyrmefndri árbók frá 1983, að skógarvið- ur til eldsneytis hafí verið sóttur í skógana úr Fljótshverfi og að stundum hafí skógar- böggum verið fleytt niður Núpsvötn. Þeir hafí þá verið bundnir með vír og hirtir á eymnum suður við Núpshlíð. Ferðalangar á þessum slóðum um miðjan júlímánuð komust að raun um, að aðrar nytjar mátti hafa þama. Það kom sem sé í ljós, að töluvert var af silungi í Núpsá, svo að hægt hefði verið að lifa af landinu og gæðum þess! Útsýni af Eystrafjalli, sem stendur milli Núpsstaðarskóga og Skeiðaráijökuls, til Lómagnúps, yfír sandana og vötnin og í austur til Súlutinda og Skeiðaráijökuls er stórbrotið. Greiðfært er að Súlutindum en ganga að Grænalóni, sem er stærsta jökul- lón á Island og eitt af þeim stærstu í veröldinni er sjálfsagt býsna löng. Nátt- úmfegurð er einstök, þegar gengið er um skóglendið inn að Kálfsklifi og fossunum tveimur, Núpsárfossi og Hvítárfossi. Þar er raunar farartálmi á ieiðinni og hefur myndarlegri keðju verið komið fyrir til þess að auðvelda ferðamönnum áfram- haldið. Ungum ferðafélaga reyndist það létt verk að klifra upp eftir keðjunni, en ekki er víst, að það sé á allra færi. Þeir, sem á annað borð hafa ánægju af ferðum um íslenzk öræfi ættu að huga að ferð um Núpsstaðarskóg. En ekki getur höfundur Reykjavíkurbréfs tekið undir þá skoðun Sigurðar Sigurðarsonar í fyrr- nefndri grein hér í blaðinu að auðvelda eigi ferðir á þessar slóðir með því að fljúga þangað með ferðamenn. Þá yrði lítið úr töfmm óbyggðanna ef skipulagður ferða- mannaiðnaður legði þær undir sig. Lakagígar Þegar farið er um Vestur-Skaftafells- sýslu er ástæða til fyrir ferðalanga að leggja leið sína inn í Lakagíga. Þangað er greiðfær leið nánast alla leið. Vegurinn frá þjóðveginum og inn að gígunum er mjög góður og fær öllum bílum. Nokkrar ár em á leiðinni en lítið vatn er í þeim og botninn traustur. Landið er ákaflega fallegt á köflum á þessari leið, að ekki sé talað um Lakagíga sjálfa, þegar komið er á áfangastað. Gera má ráð fyrir að það taki um einn til einn og hálfan tíma að aka frá þjóðvegi inn í Laka. Á leiðinni inn í Laka er komið að gömlu eyðibýli, sem nefnist Eintúnaháls. Bæjar- stæði er þar sérstaklega fallegt. Þar standa upp timburkofar en auk þess mikið af húsatóftum og vel má sjá hvað heimreiðin að þessu býli hefur verið myndarleg. Ár- bók Ferðafélagsins segir um Eintúnaháls: „Þar var búið frá því á fyrri hluta 19. aldar til 1934. Stundum var þar tvíbýli. Bærinn stóð í um 220 m hæð yfir sjó og því ekki ýkja miklu hærra en Holt og Heiðarsel . . . Oft var Eintúnaháls at- hvarf þreyttra afréttarmanna, sem lent höfðu í stormum og stórrigningum við smölun að hausti. Bar ósjaldan við að gist væri í Hálsinum eins og jafnan var sagt en gestrisni íbúanna var takmarkalaus." Fyrir mörgum ámm heyrði höfundur Reykjavíkurbréfs aldraða konu lýsa æsku sinni í Eintúnahálsi. Þótt ekki væri mikill matur öllum stundum var bömum bannað að tína ber og borða þau. Ástæðan var sú, að fólk taldi berin eitmð. Slíkur var óttinn við afleiðingar Skaftáreldanna um eitt hundrað ámm áður. Raunar þarf engum að koma á óvart þótt ótti við afleiðingar þeirra miklu elds- umbrota hafi lifað með þjóðinni og þá ekki sízt Vestur-Skaftfellingum langt fram á síðustu öld. Á þeim ámm er talið að um 20% þjóðarinnar hafí látizt vegna hungurs og margvíslegra kvilla. Þá er talið að rúm- lega helmingur af nautgripum landsmanna hafí fallið, rúmlega 80% af öllu sauðfé og tæplega 80% af öllum hrossum. Við nútímamenn skynjum tæpastþað gífurlega áfall, sem þjóðin varð þama fyrir. En þegar komið er í Lakagíga er auð- velt að víkja þessum hugsunum frá sér. Slík er náttúmfegurð á þeim slóðum. Þeg- ar komið var þar um miðjan júlí var jörð enn mjög blaut og síðasti spölurinn að Laka raunar ófær vegna snjóskafla, sem þar vom á nokkmm stöðum. En ungt fólk, sem þarna var á ferð, lét það ekki á sig fá og braut sér leið í gegnum þær hindran- ir. Var fróðlegt að fylgjast með því, hvemig æskan lærir að takast á við þau vanda- mál, sem fylgja ferðum um óbyggðir og sigrast á þeim. Hvort sem gengið er á Laka eða nær- liggjandi gíga er útsýni mikið í allar áttir, austur til Vatnajökuls, að Langasjó og vestur um svo að m.a. mátti sjá Reynis- fjall við Vík í Mýrdal. Lakagígamir sjálfír em svo sérstök náttúmfyrirbæri. Á leiðinni inn í Lakagíga er m.a. farið yfír Geirlandsá. Með því að fara örstuttan spöl út af veginum er hægt að komast að Fagrafossi í Geirlandsá, sem er áreiðan- lega einhver fegursti foss á landinu. Skattar Á þessu sumri hafa orðið meiri umræð- ur um skattamál en í allmörg ár áður. Þar skiptir mjög í tvö hom. í viðtölum, sem blaðamaður' Morgunblaðsins tók við nokkra skattgreiðendur á fömum vegi kom MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 10. ÁGÚST 1986 29 í ljós, að um helmingur var fyllilega sáttur við skattgreiðslur sínar en hinn helmingur- inn mjög óánægður. Af almennu umtali fólks má ráða, að það em ekki einungis svonefndir hátekjumenn, sem greiða þunga skatta á þessu ári heldur nær sú þunga greiðslubyrði til fólks, sem að flestra mati telst hafa meðaltekjur. Að einhveiju leyti emm við hér að kljást við þá miklu breytingu í efnahags- og fjár- málum, sem verður, þegar verðbólgan lækkar á skömmum tíma úr 130% í 10-20%. Kannski hafa menn ekki gætt nægilega vel að sér í þeim efnum. En að öðm leyti er ljóst, að ein af ástæðunum fyrir þungri skattbyrði hluta skattgreið- enda er sú, að skattvísitalan var ekki ákveðin í samræmi við raunveralegar launabreytingar milli ára. Ástæðulaust er að eyða mörgum orðum að þeim mismun- andi skoðunum, sem fram hafa komið í því sambandi. Þjóðhagsstofnun vanmat þessar launabreytingar, þegar skattvísital- an var ákveðin. Hins vegar sendi hún frá sér upplýsingar, sem vom nær lagi í apríl. Menn em sammála um, að þá hafí verið hægt frá tæknilegu sjónarmiði að breyta skattvísitölunni en íjármálaráðherra taldi pólitískar forsendur ekki vera fyrir hendi til þess. Nú má auðvitað deila um það, hvort þetta mat ráðherrans hafí verið rétt, en afleiðingin af þeirri ákvörðun er hins veg- ar þessi: í íjölmörgum fyrirtækjum er nú þegar byijaður mikill þrýstingur á stjóm- endur um launahækkanir langt umfram þær launabreytingar, sem um var samið í kjarasamningum fyrr á þessu ári. Að einhveiju leyt.i má kannski rekja þennan þrýsting til þess, að augljóslega hefíir ver- ið launaskrið á ferðinni í ár hjá opinbemm aðilum, en aðal ástæðan er sú, að fjölmarg- ir launþegar greiða svo mikinn hluta launa sinna í skatt síðari hluta ársins að þeir eiga ekki fyrir nauðsynjum. Það er heldur ótrúlegt, að atvinnurekendur geti staðið gegn þessum þrýstingi mjög lengi. Þess vegna er hættan sú, að launastefnan og um leið efnahagsstefnan, sem mörkuð var með kjarasamningunum fyrr á þessu ári brotni niður með haustinu vegna þess, hvað skattar koma þungt niður á sumum þjóðfélagshópum. Slíkar launahækkanir leita svo óhjákvæmilega út í verðlagið þar sem afkoma fyrirtækja hefur verið mjög misjöfn. Þau hafa nú þegar haldið að sér höndum lengi með verðhækkanir, þrátt fyrir meiri kostnaðarhækkanir en ætlað var fyrr á þessu ári m.a. vegna breytinga milli erlendra gjaldmiðla innbyrðis, sem koma fram hér með margvíslegum hætti. Verði niðurstaðan hins vegar sú, að launa- hækkanir af þessu tagi leiði út í verðlagið er augljós hætta á því, að verðbólguskrið- an fari af stað á ný. Ef þróunin verður á þennan veg hefur það mat íjármálaráðherra sl. vor, að ekki væm pólitískar forsendur fyrir hendi til þess að breyta skattvísitölu orðið til þess að auka mjög þrýsting á launa- og efna- hagsstefnu ríkisstjómarinnar, svo að vægt sé til orða tekið. Skattamál em viðkvæmari en flest önn- ur. Miklu skiptir, að skattgreiðendur telji, að sanngimi ráði ferðinni. Þeir mega held- ur ekki fá það á tilfinninguna, að árangur í baráttu gegn verðbólgunni skili sér í hærri sköttum og þyngri skattbyrði! Þá er hætt við að skattgreiðendur telji þessa baráttu ekki mikils virði. Ábendingar lágu fyrir, um meiri launabreytingar en skatt- vísitala gerði ráð fyrir það snemma, að hægt hefði verið að breyta vísitölunni og létta þannig skattgreiðslur nokkuð. Þess vegna munu margir skattgreiðendur telja, að fyllstu sanngimi hafí ekki gætt við skattlagningu að þessu sinni. Hvalir Eins og hvalamálið hefur þróast era á því býsna margar hliðar. Ein er sú, sem snýr að hvalveiðunum sjálfum. Skoðanir em áreiðanlega mjög skiptar um það, hvort yfirleitt beri að veiða hvali eða ekki. Eftir því, sem meiri upplýsingar hafa komið fram um lifnaðarhætti þessara dýra hefur samúð fólks með þeim vaxið og almenn REYKJAVÍKURBRÉF Laugardagur 9. ágúst * Ljósmynd/Haraldur Hjaltason Hvítárfoss til vinstrí og Núpsárfoss til hægri. Þegar faríð er í Núpsstaðarskóg eru þessir fossar meðal þess, sem fyrír augu ber, þótt nokkrum erfið- leikum sé bundið að komast að þeim. andstaða við hvalveiðar er sjálfsagt mjög mikil bæði hér og erlendis, og þá ekki sízt erlendis, þar sem almenningsálitið hefur snúizt gegn hvalveiðum að langmestu leyti. Segja má, að Alþingi hafí tekið af skarið í þessum efnum með samþykkt sinni frá 2. febrúar 1982, þar sem fallizt var á að hætta hvalveiðum í atvinnuskyni. Hins vegar var ákveðið að í kjölfar þess, yrðu teknar upp hvalveiðar í vísindaskyni í samræmi við samþykktir Alþjóða hval- veiðiráðsins. Deilt hefur verið um það, hvort við íslendingar væmm að fara í kringum samþykktir ráðsins með ákvörðun okkar um að veiða 200 hvali. í forystu- grein Moergunblaðsins fyrir ári sagði svo um þennan þátt málsins: „Ályktun Al- þingis frá 2. febrúar 1983 er stuðningur við vemdun hvala. Náttúmvemdarráð hef- ur dregið í efa, að nauðsynlegt sé að veiða 200 hvali vegna rannsókna. Ýmsar þær tegundir, sem ætlunin er að veiða hér, svo sem steypireyður og hrefna em friðaðar. I þessu máli eins og öðmm verða embætt- ismenn að lúta samþykkt Alþingis. Við megum alls ekki gefa höggstað á okkur með því að fara í kringum þær samþykkt- ir, sem leyfa vísindalegar hvalveiðar. Það gæti stefnt miklum hagsmunum svo sem á Bandaríkjamarkaði í hættu fyrir minni hagsmuni; engri þjóð, sízt af öllu smáþjóð, líðst það að byggja stefnu sína og ákvarð- anir á tvöföldu siðgæði." Halldór Ásgrímsson, sjávarútvegsráð- herra hefur verið helzti talsmaður ríkis- stjómarinnar í hvalamálinu og tekið þær ákvarðanir, sem máli skipta. Hann hefur verið eindreginn talsmaður þess, að ákvörðun okkar um að veiða 200 hvali væri í samræmi við alþjóðlegar samþykkt- ir. Ráðherrann lýsti niðurstöðum síðasta fundar Alþjóða hvalveiðiráðsins, sem sigri fyrir okkur íslendinga. Nú liggur það fyr- ir, eftir viðskipti íslenzkra stjórnvalda og bandarískra, að túlkun íslenzku ríkisstjóm- arinnar á þeim samþykktum hefur orðið að lúta í lægra haldi að vemlegu leyti fyrir túlkun bandarísku ríkisstjómarinnar, þótt Halldóri Ásgrímssyni og samstarfs- mönnum hans hafi tekizt að koma í veg fyrir, að sjónarmið Bandaríkjastjórnar yrðu ráðandi að öllu leyti. Aðvörunarorð forystugreinar Morgunblaðsins frá þvi fyr- ir ári sýnast því ekki hafa verið ástæðu- laus. Þriðji þáttur þessa máls er sá, sem snýr að viðskiptum íslenzku ríkisstjómarinnar og Hvals hf. vegna vísindalegu veiðanna. Hingað til hafa menn staðið í þeirri trú, að Hvalur hf. mundi njóta hagnaðarins, ef einhver yrði af þessum veiðum en bera tapið ef um slíkt yrði að ræða. Nú hefur Halldór Ásgrímsson upplýst, að hann telji ekki óeðlilegt, að íslenzka ríkið beri hér einhvem kostnað. Þetta er óskiljanleg af- staða. Það er nóg komið að því, að skattgreiðendur, beri kostnað af nánast hveiju sem er. Nóg er nú samt, þótt þeir eigi ekki líka að niðurgreiða hvalkjöt í refafóður! Hvalur hf. er ekki fyrirtæki, sem er á heljarþröm, heldur þvert á móti öflugt einkafyrirtæki. Það á að vera metnaðar- mál forráðamanna Hvals hf. að bera sjálfír kostnað, ef hann verður að lokum af þeim veiðum, sem nú em stundaðar. Þeir eiga ekki að hlaupa undir pilsfald ríkisstjómar- innar. Hvalur hf. hefur ómældan hag af því einu að geta haldið skipum úti og starf- rækt verksmiðju sína á sumri hveiju. Fjórði þáttur hvalamálsins er svo máls- meðferð ríkisstjómarinnar gagnvart Bandaríkjastjóm. Svo að talað sé tæpi- tungulaust hefur bandaríska ríkisstjómin þvingað íslenzku ríkisstjómina til þess að fallast á niðurstöðu, sem gengur gegn fyrri ákvörðunum ríkisstjómarinnar og túlkunum hennar á samþykktum Alþjóða hvalveiðiráðsins. Yfirlýsingar íslenzkra ráðamanna um ánægjulega lausn hvala- málsins breyta hér engu um. Bréfaskriftir Matthíasar Á. Mathiesen, utanríkisráð- herra til Schultz breyta hér engu um. Sú yfirlýsing Eyjólfs Konráðs Jónssonar, for- manns utanríkismáianefndar í Morgun- blaðinu í gær, að „þessi lausn sé til frambúðar og er að gera mér vonir um, að við íslendingar fáum að veiða hval nokkurn veginn óáreittir, kannski einir þjóða, vegna þess að við höfum haldið rétt á málum" er í hæsta máta óraunsæ og fær vart staðizt. Bandarísk stjórnvöld og aðrir munu halda áfram að beijast fyr- ir því gagnvart okkur á vettvangi Alþjóða hvalveiðiráðsins að setja hvalveiðum í vísindaskyni svo þröngar skorður, að for- sendur fyrir þeim kunni að bresta hér á landi. Úr því, sem komið var hefði ríkis- stjómin átt að láta á það reyna, hvort viðskiptaráðuneytið í Washington sendi staðfestingarkæm til forsetans og hver viðbrögð hans yrðu. Full ástæða er til að ætla, að forseta Bandaríkjanna hefði ekki komið til hugar að beita okkur íslendinga viðskiptaþvingunum. Að þeirri niðurstöðu fenginni hefði þessu máli verið lokið af hálfu Bandaríkjamanna en nú er því að- eins lokið á þessu sumri. Það er svo önnur saga, að margir íslendingar munu hugsa sitt um afskipti bandarískra stjómvalda af þessu máli. Þau em í engu samræmi við samskipti þessara tveggja þjóða síðustu áratugi. En það em auðvitað fáránleg sjón- armið, sem forstjóri Hvals hf. hefur viðrað opinberlega, að það sé markviss stefna Bandaríkjastjórnar að koma okkur á kald- an klaka. Þótt hvalamálið hafí margar hliðar snýr það þó fyrst og fremst að okkur sjálfum. Við hljótum að gera upp við okkur hvem- ig við gætum bezt hagsmuna þjóðarinnar og hvað við treystum okkur til þess að ganga langt gegn almenningsálitinu í hin- um vestræna heimi. Við hljótum líka að halda reisn okkar í samskiptum við aðrar þjóðir. „Að einhverju leyti má kannski rekja þennan þrýsting til þess, að augljóslega hefur verið launa- skrið á ferðinni í ár hjá opinberum aðilum, en aðal ástæðan er sú, að fjölmargir laun- þegar greiða svo mikinn hluta launa sinna í skatt síðari hluta ársins að þeir eiga ekki fyrir nauðsynjum/

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.