Morgunblaðið - 07.09.1986, Blaðsíða 8
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986
8 B
Leyndardómar
pýramídans mikla
Pýramídamir eru tákn
Egyptalands og minni-
svarðar hinnar lítt
þekktu menningar sem
þar blómstraði fyrir
þúsundum ára. Þeir hafa löngum
þótt leyndardómsfullar byggingar
því aliar samtímaheimildir um
byggingu þeirra eru fyrir löngu
glataðar. Enginn veit með vissu
hvemig eða hvers vegna Egyptar
byggðu þá en tilgátur um það eru
margar til. í þessari grein verður
því fátt um skýr svör heldur verður
einungis stikiað á stóru í sögu pýr-
amídarannsókna og greint frá
nokkrum tilgátum.
Elsti pýramídinn
A valdatíma þriðju konungsætt-
arinnar í Egyptaiandi, um 2650 f.
Kr., er álitið að fyrsti pýramídinn
hafi verið reistur, þrepapýramídi
Zosers faraós. Hann var byggður
nálægt hinni fomu egypsku höfuð-
borg Memphis sem er skammt fyrir
sunnan Kaíró. Alitið er að þessi
fyrsti pýramídi sé til vitnis um
fyrstu tilraun Egypta til að byggja
grafhýsi úr tilhöggnum steini því
eldri grafhýsi voru gerð úr leirstein-
um.
Alitið er að upprunalega hafi
þessi pýramídi einungis verið eitt
geysimikið steinþrep sem reist hafi
verið yfir grafhýsi sem höggvið
hafði verið um þrjátíu metra niður
í klettinn sem pýramídinn stendur
á. En áður en byggingameistararn-
ir luku við steinþrepið er sem þeir
hafi fengið hugmynd sem markaði
upphaf pýramídaaldar; þeir bættu
við þrem þrepum og gerðu fjögurra
þrepa pýramída. Loks bættu þeir
við fimmta þrepinu og var þessi
fyrsti pýramídi þá orðinn rúmlega
60 metra hár.
Pýramídaöldin
Afkomendur - Zosers faraós létu
byggja nokkra þrepapýramída áður
en þeir réðust í að byggja fyrsta
pýramídann sem hafði slétta veggi
við Maidum, um 65 km suður af
Kaíró. Þar eru nú rústir einar en
álitið er að þessi pýramídi hafi ver-
ið 75 metra hár og mjög brattur.
Til allrar ógæfu var hann byggður
á sandi í stað kletts og hefur því
hrunið, hugsanlega áður en lokið
var við hann.
En byggingameistaramir virðast
hafa lært af þessu. Sneferu, fyrsti
faraó fjórðu konungsættarinnar
(frá um 2500 f. Kr. til 2400 f.
Kr.) lét byggja tvo pýramída við
Dashur, rétt sunnan við Saqqara.
Síðar voru stóru pýramídarnir þrír
við Giza reistir: hinn mikli Keops-
pýramídi, annar álíka mikill sem
kenndur er við Khafre og minni
pýramídi sem kenndur er við Men-
kaure. Keops-pýramídinn er ein-
stæður vegna þess að inni í honum
eru göng og hvelfingar, en í öllum
öðrum egypskum pýramídum er
aðeins einn gangur sem liggur að
grafhvelfíngu undir pýramídanum.
Hann er jafnframt stærstur allra
pýramídanna. Upphaflega mun
hann hafa verið 146 metra hár en
grunnlína hans um 231 metri.
Hvorki fyrr né síðar lögðu Egypt-
ar í að reisa siíka völundarsmíð sem
Keops-pýramídann. Fimmtu og
sjöttu konungaættimar héldu að
vísu áfram að reisa pýramída við
Saqqara og Abu-Sir en jafnvel í
hinum vönduðustu þeirra em stein-
amir gróflega tilhöggnir og fæstir
þessara pýramída hafa staðist
tímans tönn. Um 2189 f. Kr. klofn-
aði veldi faraóanna í smáríki og var
þá öilum pýramídasmíðum hætt.
Þegar ríkið var sameinað á ný, frá
2000 f. Kr. til 1750 f. Kr., var að
vísu tekið til við pýramídasmíðar á
ný en þeir pýramídar vom bæði
smáir og flestir þeirra gerðir úr
leirsteini. Það vom síðustu pýr-
amídarnir sem Egyptar byggðu.
Pýramídinn mikli
Keops-pýramídinn sem sjá má í
Þrepapýramídinn við Saqqara var reistur yfir grafhýsi Zosers fara-
ós og er hann 60 metra hár. Hann er talinn elstur allra pýramídanna
á Egyptalandi, byggður um 2650 f.Kr.
Göng og herbergi i Keopspýramidanum. Dulspekingurinn Adam
Rutherford áleit að spásögn um sögu mannkyns væri sett fram í
lengdareiningum ganga og herbergja inni i pýramídanum með tákn-
rænum hætti og rökstuddi þessa kenningu sina af miklu andríki,
Einstök ártöl hafa verið færð inn á þessa mynd samkvæmt kenningu
hans.
Margir Egyptalandsfræðingar
telja að stóru pýramídarnir hafi
verið reistir á þennan hátt. Þeir
hugsa sér að braut úr hörðum
leir hafi verið Iögð umhverfis
pýramídana og þannig haf i verið
unnt að draga tilhöggnar gTjót-
blokkirnar upp og koma þeim
fyrir eftir því sem verkinu mið-
aði.
dag er ekki hinn sami og fommenn
litu. Upprunalega var hann allur
klæddur hvítum kalkseini sem end-
urvarpaði sólargeislunum, enda
nefndu Forn-Egyptar hann Ljósið.
Veggbjörgin féllu nákvæmlega
saman svo samskeyti urðu varla
greind. Hinn mikli þríhyrningur,
sem gnæfði af gulri sandbreiðunni,
hefur verið óvænt sýn og gagntak-
andi — hann logaði allur eins og
tröllaukin skuggsjá og hefur sést
úr mikilli Qarlægð.
í lok tólftu aldar hefur kalk-
steinsklæðning pýramídans mikla
enn verið á sínum stað því arabíski
ferðalangurinn Abdul Latif skrifar
um pýramídann á þessa leið: „A
steinana var fomletur ritað og er
það nú óskiljanlegt. Ég hef engan
mann hitt, á öllu Egyptalandi, sem
skilur þetta letur. Og áletranirnar
em svo margar, að væri eftirrit
gert, aðeins af yfirborði pýramíd-
anna tveggja, myndi það fylla meira
en sex þúsund blaðsíður." .
Engar áletranir er framar að
finna á veggjum Keops-pýramíd-
ans. Ljóst er að gijótið í vegg-
klæðningu hans hefur verið sótt til
Mokattam-hæðanna, sem em suð-
austur af Kaíró. Mikill landskjálfti
varð á Egyptalandi tveimur ámm
eftir að Abdul Latif var þar á ferð,
og hmndi þá Kaíróborg til gmnna.
Var þá ráðist á pýramídana og
þaðan tekið byggingarefni til að
reisa hina föllnu borg. Keops-pýr-
amídinn var rúinn nær allri klæðn-
ingu sinni og toppur hans
skemmdur þannig að nú er hann
um 137 metrar á hæð. Þessi eyði-
leggingarstarfsemi stóð áratugum
saman og létu hinar fornu bygging-
ar þá mikið á sjá.
Lengi var það mönnum hulin
ráðgáta hvað pýramídinn mikli
hefði að geyma. Inngangurinn var
vandlega falinn og tókst ekki að
finna hann þó reynt væri til þess
öldum saman. Hvorki stjómendum
Grikkja né Rómveija, eða Egyptum
sjálfum tókst að finna hina innri
ganga og herbergi, þó munnmæla-
sögur um innganginn væm margar.
Leiðangnr A1 Mamouns
kalífa
En þar kom að menn réðust til
inngöngu og vom þeir að leita að
fjársjóði, sem munnmælasögur
hermdu að geymdur væri í pýramíd-
anum. Árið 820 e. Kr. safnaði
kalífinn A1 Mamoun srijöllustu verk-
fræðingum sínum og húsasmiðum
saman ásamt verkamönnum á há-
sléttunni við Gizeh, og bauð þeim
að opna Keops-pýramídann.
Þeir höfðu hvorki uppdrætti né
vinnuteikningar, en fóm eftir göml-
um sögusögnum um að innganginn
væri að finna á norðurhlið pýramíd-
ans. Þess má geta að A1 Mamoun
kalífi var sonur Harouns A1 Rasc-
hid kalífa sem frá er sagt í „1001
nótt". Hann var ráðinn í að fínna
hina miklu ijársjóði sem munnmæli
hermdu að faraóamir hefðu fólgið
í pýramídanum.
Én þeir, sem byggðu pýramíd-
ann, virðast hafa gert ráð fyrir því
að menn myndu reyna að bijótast
þar inn. Þess vegna hafa þeir kom-
ið innganginum fyrir nokkmm
fetum utar miðjum vegg, og tölu-
vert hærra uppi en ætla mátti
líklegt. Því fór það svo, að starfs-
menn A1 Mamouns strituðust við
að ijúfa pýramídann í nokkra mán-
uði án þess að sjá votta fyrir gangi
eða herbergi. Hefðu þeir ekki haft
önnur ráð en að nota hamar og
meitil, er hætt við að starfíð hefði
enst þeim öll ríkisstjórnarár kon-