Morgunblaðið - 07.09.1986, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 07.09.1986, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 7. SEPTEMBER 1986 B 15 ég héldi uppi almennilegum aga.“ Eins og fyrr segir var það í jan- úar ’85 sem Jón Oðinn fór í fyrsta skiptið með lið á landsmót. Þegar kom á keppnisstað í Reykjavík mætti hann einum af forvígismönn- um júdóíþróttarinnar þar í borg. Þeir tóku tal saman og Reykvíking- urinn spurði hver væri þjálfari norðanmanna. Jón Óðinn svaraði sannleikanum samkvæmt og þá sagði sá reykvíski að bragði: „Nú já, það er þá þjálfaravandamál hjá ykkur." „A þeirri stundu var ég alveg sammála honum en eftir mótið runnu á mig tvær grímur," segir Jón Óðinn og glottir. „Þá var ástæða til að vera montinn“ Og hann hafði sannarlega ástæðu til að efast um að þjálfara- skortur stæði júdóíþróttinni fyrir þrifum á Akureyri því af 31 verð- launum, sem veitt voru á þessu Islandsmeistarmóti, féllu 17 í skaut akureyrsku piltunum. Fyrir þjálfara þeirra var þetta stór stund. „Það var keppt á tveim- ur völlum, ég var stressaður og þar kom að ég hætti að geta fylgst nógu vel með mínum mönnum. Eg æddi því á milli þeirra að spyija hvemig hefði gengið og alltaf fékk ég sama svarið: Eg vann.“ nú ekki mjög skemmtilegur þá. Eg fékk skömm í hattinn fyrir nuddið og þar kom að ég hætti því alveg og ákvað að einbeita mér að yngri flokkunum". Og það verður ekki vefengt að þessi ákvörðun hefur borið ríkuleg- an ávöxt, en að vinna til verðlauna á keppnismótum er kannski ekki það eina sem íþróttir ættu að snú- ast um. Hafa þær ekki einnig eitthvert uppeldislegt gildi? Þessu síðasta samsinnir Jón Óð- inn strax. Hann segist sannfærður um að júdóið hafí hjálpað piltunum að þroskast og þeir „hafa orðið betri drengir við að æfa íþróttina. Það hefur færst í vöxt að foreldrar komi og tali við mig og undantekn- ingarlaust hefur þeim þótt júdóið gera sínum piltum gott. Sjálfur veit ég dæmi þess að menn hafa tekið algjörum stakkaskiptum til hins betra við að æfa júdó í svolít- inn tíma. Gagnrýni hef ég fengið einnig en kannski frekar í gríni en alvöru. Það er nefnilega sagt að strákamir verði svo montnir hjá mér að við ekkert verði jafnað. Þeir hafa líka æma ástæðu til að ganga beinir í baki“, segir Jón Óð- inn og er greinilega skemmt. „Þætti slæmt að sjá starf mitt verða að engn“ „Það má segja að ég sé alltaf Ljósm./Jón Hauksson Jón Óðinn segir til. Meðal þeirra atriða sem hann leggur mikla rækt við er fjölbreytni æfinga. Þessi fjölbreytni verður þó ávallt að taka mið af þeim ákveðnu tæknilegu þáttum sem áhersla er á hveiju sinni. Aðrir á myndinni eru Freyr Gauti Sigmundsson, æfinga- félagi Jóns Óðins, Trausti Harðarson og lengst til hægri er Jóhann Gísli Sigurðsson. Árangurinn á þessu móti fór fram úr björtustu vonum Jóns Óð- ins. „Þeir unnu þrisvar sinnum meira af glímum en ég hafði búist við fyrirfram og það var ekki slæmt. Þremur til ijórum dögum eftir mót- ið byijaði það að renna upp fyrir mér að nú væri rík ástæða til að vera montinn." „Þá þótti ég leiðinlegur“ Það er eftirtektarvert að Jón Óðinn hefur á seinustu þremur vetr- um byggt upp sterkan kjarna ungra júdómanna á Akureyri en nær eng- inn úr þessum hópi er enn búinn að ná þeim aldri að keppa í flokki fullorðinna. „Þetta á sér einfalda skýringu," segir þjálfarinn ungi, „fyrst þegar ég var að byija þjálfunina var ég alltaf að nöldra í þeim eldri að fara nú að mæta á æfíngar. Maður þótti að læra sjálfur samhliða þjálfun- inni. Eftir því sem strákamir verða betri þeim mun meiri vinna verður það fyrir mig að undirbúa æfingar. Ég verð að gæta þess að staðna ekki þrátt fyrir velgengnina, ég vil alltaf gera betur. Til þess að ná þessu markmiði verð ég að vera opinn fyrir gagnrýni, jafnt annarra sem minnar innri raddar. Ég stefni að því að fara einu sinni til tvisvar á ári til útlanda að kynna mér þjálf- un þar.“ Jón Óðinn fer fremur dult með framtíðarhorfur sínar, „en það er þó ljóst að hér á Akureyri verð ég næstu 10 árin. Að minnsta kosti fer ég ekki að hugsa mér alvarlega til hreyfings fyrr en einhver getur tekið við þjálfuninni af mér. Mér er illa við að láta júdóið lognast út af hér í bæ og sjá vinnu mína verða til einskis." J.H. INNLAUSNARVERÐ VAXTAMIÐA VERÐTRYGGÐRA SPARISKÍRTEINA RÍKISSJÓÐS Í2.FL.B1985 Hinn 10. september 1986 er annar fasti gjalddagi vaxtamiða verðtryggðra spariskírteina ríkissjóðs með vaxtamiðum í 2. fl. B1985. Gegn framvísun vaxtamiða nr. 2 verður frá og með 10. september n.k. greitt sem hér segir: ___________Vaxtamiði með 50.000,- kr. skírteini_kr. 1.979,00_ Ofangreind fjárhæð er vextir af höfuðstól spariskírteinanna fyrir tímabilið 10. mars 1985 til 10. september 1986 að viðbættum verðbótum sem fylgja hækkun sem orðið hefur á lánskjaravísitölu frá grunnvísitölu 1239 hinn 1. september 1985 til 1486 hinn 1. september 1986. Athygli skal vakin á því að innlausnarfjárhæð vaxtamiða breytist aldrei eftir gjalddaga. Innlausn vaxtamiða nr. 2 ferfram gegn framvísun þeirra í afgreiðslu Seðlabanka Islands, Hafnarstræti 10, Reykjavík, og hefst hinn 10. september n.k. Reykjavík, 29. ágúst 1986 SEÐLABANKI ÍSLANDS EFÞÚ KAUPIR KOKKrO-PLAST KORKFLÍSAR NÚNA í ÁR ÞA REISISIIR SLnÁBYRGÐlPI OKKAR EKKI ÚT FYRR EIS Þetta merkl ósamt óbyrgðarskírteinl, trygglr 10 óra slitóbyrgð ó KORK-O-PLAST gólffllsum. Vlð erum þeir elnu sem ftyljum þessa gœðavóai til landslns. KORK-O-PLAST er með slitsterka vinylhúð og notað á gólf sem mikið mæðir á, svo sem á flugstöðvum og á sjúkrahúsum. KORK-O-PLAST er auðvelt að prífa og pægilegt er að ganga á pví. Sérlega hentugt fyrir vinnustaöi, banka og opinberar skrifstofur. KORK-O-PLAST byggir ekki upp spennu og er mikið notað í tölvuherbergjum. KORK-O-PLAST fæst í 14 mismunandi korkmynstrum. mid EF ÞÚ BÝRD ÚTI Á LANDI ÞÁ SENDUM VIÐ ÞÉR ÓKEYPIS SÝNISHORN OG BÆKLING. Einkaumboð á íslandi Þ. ÞORGRÍMSSON & CO ÁRMÚLA 16 - REYKJAVÍK - SÍMI 38640

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.