Morgunblaðið - 07.09.1986, Blaðsíða 20
íftjfc
+
f
EITT ELSTA VEITINGAHÚS í REYKJAVÍK
GAMLl TÍMINN...
NÝI TÍMINN...
Ef veggvmir
íÞórscafé
gætu talað..
íslensk skemmtanamenningf
á sér ekki langa sögu, varla
mikið lengri en 40 ára, enda
má segja að skemmtanalif á
alþjóðavísu hafi ekki hafist
hér á landi fyrr en eftir
seinni heimsstyrjöldina. En
þótt 40 ár séu ekki langur
tími í sögu þjóðar, hafa
fjórir síðustu áratugir verið
býsna viðburðaríkir á sviði
skemmtanalífsins og
breytingar bæði stórstígar
og hraðar. Ef veggir
veitingahússins Þórscafé
gætu talað myndu þeir geta
sagt þá sögu í smáatriðum.
Lúdó og Stefán gerðu garðinn frægan í Þórscafé á 7. áratugnum
og var ein hressasta rokksveit sins tíma.
Hjónin Ragnar V. Jónsson og
Júlíana Erlendsdóttir, stofnend-
ur Þórscafé.
Jónsson og Júlíana Erlendsdóttir
stofnuðu Þórscafé árið 1946 má
segja að brotið hafí verið blað í
sögu skemmtanalífs í Reykjavík.
Þau hjón voru á vissan hátt braut-
ryðjendur í veitingahúsarekstri
eftirstríðsáranna, þar sem nýr tími
kallaði á breytt viðhorf og ferskar
hugmyndir. Fyrstu árin var starf-
semin til húsa að Laugavegi 105,
Þórscafé minnist þess nú að 40
ár eru liðin frá stofnun fyrirtækis-
ins. A þessum tíma hafa vissulega
orðið miklar breytingar í íslensku
skemmtanalífi og þær breytingar
eru samofnar sögu Þórscafé. Á
sama hátt má segja að saga dægur-
tónlistar og íslenskra danshljóm-
sveita verði ekki skilin frá sögu
Þórscafé. Þar hafa íslenskir hljóm-
listarmenn löngum átt sér öruggt
athvarf enda hefur staðurinn boðið
upp á lifandi danstónlist allt frá
upphafi.
1 Qörutíu ára sögu veitingahúss
kennir að vonum ýmissa grasa og
þar hafa ólíkar kynslóðir skemmt
sér — hver með sínu sniði. Raunar
hafa ýmsir haft á orði, að kynslóða-
bilið hverfi þegar gengið sé inn í
Þórscafé og má það vissulega til
sanns vegar færa. Staðurinn býður
upp á tóniist og skemmtanir fyrir
fólk á öllum aldri og ekki annað
séð, en að fólk á mismunandi ald-
ursskeiðum hafi skemmt sér þar
prýðilega saman í gegnum árin.
Breytt viðhorf
Þegar þau hjónin Ragnar V.
Þórskabarett hóf göngu sína í Þórscafé skömmu eftir breytingarnar 1976. Þórscafé hefur síðan ávallt
boðið upp á skemmtidagskrá yfir vetrartímann. Hér má sjá Jörund, Halla og Ladda og lengst til hægri
eru tveir liðsmenn hljómsveitarinnar Galdrakarlar, sem um árabil lék í Þórscafé.
í húsi Sveins Egilssonar, þar sem
nú er Brunabótafélag íslands. Opið
var á hveiju kvöldi — tvisvar í viku
voru gömlu dansamir og hin kvöld-
in nýju dansamir. Mæltist það
fyrirkomulag vel fyrir á þessum
árum og var yfirleitt fullt hús á
hvetju kvöldi.
Samkvæmt lögum á þessum
ámm vom hótelin einu staðirnir
sem leyfí höfðu til vínveitinga og
því vom ekki vínveitingar í Þórs-
café frá stofnun og allt til ársins
1976. Þrátt fyrir það var Þórseafé
frá upphafí einn Qölsóttasti og vin-
sælasti skemmtistaðurinn í
Reykjavík og er svo enn þann dag
í dag. Sú staðreynd er ef til vill
merkilegasti þátturinn í litríkri sögu
hússins.
Árið 1958 flutti Þórscafé í eigið
húsnæði að Brautarholti 20, þar
sem starfsemin er enn í dag. Á
nýja staðnum var rekstrinum hagað
með svipuðu sniði og á þeim gamla,
allt til ársins 1976. í október það
ár var enn brotið blað í sögu húss-
ins er það fékk vínveitingaleyfi og
opnaði eftir stórkostlegar breyting-
ar.
Ragnar V. Jónsson stjórnaði
rekstri Þórscafé allt til ársins 1971,
en þá keyptu Jón Ragnarsson sonur
hans og Björgvin Ámason, tengda-
sonur Ragnars, fyrirtækið ásamt
eiginkonum sínum. Jón hvarf úr
rekstrinum árið 1974 og Ragnar
kom inn í fyrirtækið á nýjan leik,
og ráku þeir Ragnar og Björgvin
Þórscafé saman ásamt eiginkonum
sínum allt þar til Ragnar andaðist
árið 1981. Björgvin Arnason hefur
frá árinu 1971 verið framkvæmda-
stjóri Þórscafé og er í dag aðaleig-
andi ásamt Rakel Ragnarsdóttur
eiginkonu sinni og Ragnari V.
Björgvinssyni syni þeirra.
Lifandi tónlist i.öndvegi
Eins og áður segir verður saga
Þórscafé vart greind frá sögu lif-
andi dægurtónlistar. Frá opnun
staðarins, fyrir 40 árum, hefur
ávallt verið lifandi tónlist í húsinu
og jafnvel á svartasta skeiði diskó-
bylgjunnar, þegar íslenskir dægur-
tónlistarmenn áttu í fá hús að
venda, hélt Þórscafé merkinu uppi
og var á tímabili eina veitingahúsið
í Reykjavík þar sem lifandi tónlist
var leikin að staðaldri.
Óhætt er að segja að flestir okk-
ar þekktustu tónlistarmanna og
söngvara í gegnum tíðina hafi ein-
hvem tíma á ferli sínum komið fram
í Þórscfé auk þess sem húsið hefur
alið nokkrar vinsælustu hljómsveitir
og söngvara landsins. Þar skal fyrst
telja KK-sextettinn, sem af mörg-
um er talin hafa verið ein besta
hljómsveit sem starfað hefur hér á
landi fyrr og síðar, en hljómsveitin