Morgunblaðið - 14.12.1986, Síða 31
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. DESEMBER 1986
Ódýr leið til endurnýjunar
PjthopkiA
Hafnargötu 90, Keflavik, sími 4790
Mailer gerir mynd
Rithöfundurinn frægi leikstýrir sjálfur mynd, sem gerð er
eftir einni af bókum hans, Harðjaxlar dansa ekki.
Bandaríski rithöfundurinn
Norman Mailer stendur nú
í ströngu í Provincetown í
Massachusetts í Bandaríkjunum
við að leikstýra myndinni Harð-
jaxlar dansa ekki, en hún er
gerð eftir samnefndri bók hans
(Tough Guys Don’t Dance) sem
komið hefur út í íslenskri þýð-
ingu. Með aðalhlutverk fara
Ryan O’Neil og Isabella Rossell-
ini.
Skáldsaga Mailers var met-
sölubók árið 1984 og fjallar um
Tim Madden (O’Neil), kvensam-
an rithöfund og fyrrum hnefa-
leikamann, sem vaknar einn
daginn haldinn minnisleysi alkó-
hólismans og með þá veiku
tilfinningu að hann hafi orðið
konu sinni að bana. Reiknað er
með að myndin verði frumsýnd
í Bandaríkjunum næsta haust
en hún á að kosta fimm milljón-
ir dollara.
Hér er langt í frá um frumraun
Mailers á kvikmyndasviðinu að
ræða því hann gerði þrjár ódýrar
og hörmulegar bíómyndir á sjö-
unda áratugnum. „Þær voru
áhugaverðar að vissu marki en
misheppnaðar eftir það," sagði
rithöfundurinn, sem hefur einnig
fengist við stjórnmál, hnefaleika
og leiklist um ævina. „Hérna er
ég að reyna að gera fagmann-
lega, hefðbundna bíómynd.”
Rithöfundurinn og leikstjórinn
Norman Mailer.
Hún er hluti af tveggja mynda
samningi, sem Mailer gerði við
þá Cannonbændur, Golan og
Globus, en hinum hluta samn-
ingsins hefur Mailer þegar
fullnægt með handriti sínu að
mynd Jean-Luc Godard, Lé kon-
ungi.
Mailer skrifaði einnig handrit-
ið að „Harðjöxlum” en það tók
hann þrisvar sinnum lengri tíma
að skrifa það en sjálfa bókina.
Það hafði aðeins tekið hann tvo
mánuði að skrifa söguna en
hann var hálft ár með handritið.
„Það reyndist erfiðara en ég
hélt. Atriði sem komu vel út við
stjóri. „Rithöfundurinn á sitt
verk frá upphafi til enda og hann
er allt í senn eiginmaður, faðir,
afi og þræll þess. Kvikmynda-
leikstjóri er alger andstæða
rithöfundarins; hann lifir og
hrærist úti í þessum stóra
heimi.”
Mailer bjóst við að tökur
stæðu yfir í „sjö hræðilegar vik-
ur“, en það hefur komið honum
á óvart hversu mjög hann hefur
notið þeirra. „Ég hef gaman af
að vinna með leikurum.” Og það
er gagnkvæmt. „Ég held að
hann hafi skrifað handritið með
mig í huga,” segir Ryan O’Neill,
sem minnist þess að hafa boxað
endrum og sinnum við þennan
núverandi yfirmann sinn. „Núna
fer hann mun verr með mig en
nokkurn tímann í leikfimisaln-
um.“
Mailer vonast satt að segja
eftir metsölumynd svo hann
geti sest aftur í leikstjórastólinn
sem fyrst. „Ég held að ég hafi
þurft á hvíld frá ritstörfunum að
halda. Það er svo skrítið að
vegna þess að leikstjórnin kallar
á þá eiginleika í mér sem ekki
hafa verið notaðir í 15 ár og leyf-
ir þeim eiginleikum sem hafa
unnið hvað mest að hvílast, hef-
ur þetta verið stórskemmtilegt.
Hugurinn er ferskari en hann
hefur verið árum saman.“
Nýja myndin
hans Eastwoods
Til málunar á baðkör, sturtu- Nú er hægt að skipta um lit á
botna, vaska og öll hreinlætis- gömlu flísunum.
tæki.
lestur komu ekki eins vel út í
sviðsetningu."
Græðgin, sem er drifkraftur
sögunnar, var látin tengjast kók-
aíni en ekki fasteignaviðskiptum
eins og í bókinni og broddurinn
var tekinn af sumum hinna blóð-
ugri atburða sögunnar. „Það
verður að fara fínum höndum
um hryllingsmynd ef hún á ekki
að verða blóðvöllur."
Það er líka mikill munur á því
að vera rithöfundur eða leik-
Enn hefur borgarstjórinn Clint
Eastwood sent frá sér bíó-
mynd. Þessi nýjasta heitir Heart-
break Ridge en Eastwood er
framleiðandi og leikstjóri hennar
auk þess sem hann fer að sjálf-
sögðu með aðalhlutverkið.
„Þú ættir að vera lokaður í búri
sem á stæði: Opnið aöeins ef til
styrjaldar kemur,“ segir einhver
við Tom Highway liðþjálfa (East-
wood) þegar hann kemur til starfa
við sitt nýjasta verkefni, Myndin
hefst árið 1983 og Highway hefur
gegnt virkri herþjónustu í land-
gönguliði Bandaríkjanna lengur en
flestir félagar hans hafa lifað. Hann
vann hetjudáðir í Kóreustríðinu og
Víetnamstríðinu. Langt er síðan
konan fór frá honum. Hann drekk-
ur of mikið, lendir í of mörgum
kráarslagsmálum og er eins hissa
á nýliðunum og þeir eru á aðferð-
<3g$>
Er baðkarið orðið gamalt og slitið, eða liturinn
ekki við hæfi, flísarnar gamlar og Ijótar? Fram
að þessu var eina leiðin að skipta um. Nú er
iausnin komin og mjög einfalt að
endurnýja eða breyta um lit glerj-
ungs og emeleraðra hluta. Það er
einfaldlega lakkað yfir hreinlætis-
eða heimilstækin með „CERA-
MICO“. - Hringið eða leitið
upplýsinga.
ÚTSÖLUSTAÐIR:
Liturinn, Reykjavík
Litaver, Reykjavik
Málningarbúðin, Akranesi
Litabúðin, Ólafsvik
G.A. Böðvarsson, Selfossi
Skapti hf., Akureyri
Kf. Fram, Neskaupstað
Kf. Héraðsbúa, Egilsstöðum
KEA byggingav., Akureyri
G.S. byggingavörur,
Vestmananeyjum
BYKO, Kópavogi
BYKO, Hafnarfirði
Mailer með Ryan O’Neill og ieikkonunni Debra Sandlund.
Norman
um hans við að halda uppi aga á
meðal þeirra. Hann kallar þá „döm-
ur“ hvenær sem hann getur og
efast um kynhneigð þeirra.
Highway fær sitt stríð á endan-
um og tækifæri til að reyna
hugrekki og getu nýliðanna í al-
vörubardögum, þar sem kúlurnar
eru alvörukúlur, menn drepast og
dáðir eru drýgðar.
Og hvaða stríð haldið þið að
Highway hafi fengið upp í hendurn-
ar til að spreyta sig á? Grenada-
stríðið.
Einu Grenadabúarnir sem sjást
í myndinni fagna ákaflega þegar
landgönguliðið mætir á staðinn og
einu óvinirnir eru Kúbanir.
Eastwood hefur verið hrósað
fyrir frammistöðu sína í myndinni.
Vincent Canby hjá The New York
Times telur að leikur hans sé með
Eastwood: harðastur harð-
jaxla.
því besta sem hann hefur gert.
Handritið gerði James Carabatsos
en með aðalkvenhlutverkið fer
Marsha Mason, sem leikur fyrrver-
andi eiginkonu Highways.
erkommn
frá
•* q&OHq •
ypNs&s
•••••
HúAaður meö 24 karata gulli í gjafaöskju
Tilvalin jólagjöf
Verð kr.
2.820.-
SKOLA VÖRÐUSTÍG 6.
SÍMI 13469.