Morgunblaðið - 13.02.1987, Side 15
MINNSTUR!
LÉTTASTUR!
(3,1 kg)
VINNUÞJARKUR!
SPARNEYTINN!
(1.6 A)
HRAÐVIRKT
RÁSAVAL
gefur strax
SÁ EINI VATNSÞÉTTI!
SÁ EINI RYKÞÉTTI!
2 ÁRA ÁBYRGÐ!
KAUPLEIGUSAMNINGAR!
OPIÐ: Mán.-föst. 9-18 laugard. 14-17 sunnud. 14-17
BENCO hf.
LÁGMÚLA 7, SÍMI 84077.
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 13. FEBRÚAR 1987
Ferðafélag íslands:
Gönguferð og skíða-
ganga
Á sunnudaginn eru tvær ferðir.
Lagt verður í báðar frá Umferðar-
miðstöðinniaustanmeginkl. 13.00.
í annari ferðinni verður ekið að
Kolviðarhóli og gengið þaðan upp
á Hellisskarð og á Skarðmýrarfjall.
Þetta er þægileg gönguferð og ætti
að vera flestum fær.
Hin ferðin er skíðagönguferð milli
hrauns og hliða austan Skarðsmýr-
arfjalls og ef tíminn leyfir verður
gengið i Innstadal.
Fyrsta helgarferð ársins verðurí
Borgarfjörð 20.-22. febrúar og er
gistá Varmalandi.
Útivist, ferðafélag:
Tunglskinsganga og
fjörubál
I kvöld, föstudagskvöld. kl. 20
verðurtunglskinsganga og fjörubál
á dagskrá Utivistar. Gengið verður
hjá Ásfjalli við Hafnarfjörð og yfir
að ströndinni milli Sædýrasafnsins
og Straumsvíkur, en þar verður
kveikt fjörubál. Þá verður í kvöld
lagt af stað í tvær helgarferöir. Ann-
ars vegar er ferð i Tindfjöll, þar sem
gengið verður á Tindfjallajökul.
Tilvalið erað hafa gönguskíði með
í þá ferð. Hins vegar er þorraferð í
Þórsmörk. Gist verður í Útivistar-
skálunum Básum.
Kl. 13 á sunnudaginn er eins-
dagsferð sem kallast stórstraums-
fjöruferð um Hraunsand og
Hrólfsvík. Þetta er létt ganga austan
Grindavikur. Á heimleiö verðiir
stansað við Bláa lóniö. Brottför er
frá BSÍ, bensínsölu. Sjáumst.
SIMDNSEN
BÍLASÍMINN
Tónleikar í
Valaskjálf
Þær Laufey Sigurðardóttir, fiðluleikari, og Selma Guö-
mundsdóttir, píanóleikari, halda í kvöld tónleika í
Valaskjálf á vegum Tónlístarfélags Egilsstaða. Á sunnu-
daginn spila þær á Húsavík og á þriöjudaginn á Loga-
landi í Borgarfirði. Á efnisskránni eru m.a. verk eftir Jón
Nordal, Smetana og Brahms.
Bjarnadóttir, Gísli Alfreðsson,
Sigríður Þorvaldsdóttir, Sigurður
Sigurjónsson, Randver Þorláksson,
Þórunn Magnea Magnúsdóttir, Jón
Símon Gunnarsson, Emil Gunnar
Guðmundsson, Flosi Ólafsson, Jú-
líus Hjörleifsson og Hákon Waage.
Uppreisn á ísafirði
Leikrit Ragnars Arnalds, Upp-
reisn á ísafirði, verður sýnt sunnu-
dagskvöld kl. 20.00. Leikstjóri er
Brynja Benediktsdóttir. Hlutverk
verða í höndum sömu leikara og
áður, nema Rúrik Haraldsson leikur
nú Grím Thomsen í stað Helga
Skúlasonar, sem farinn er til kvik-
myndaleiks í Noregi.
í smásjá
Þetta nýja leikrit eftir Þórunni Sig-
urðardóttur verður sýnt á Litla
sviðinu, Lindargötu 7, laugardags-
kvöld kl.20.30. Leikritið fjallar um
líf og dauða og margt þar í milli.
Sögupersónurnar eru tvenn hjón,
þar af þrír starfandi læknar. Einn
þeirra fær alþjóðlega viðurkenningu
í upphafi leiks, en þegar óvænt ör-
lög breyta lífi þeirra þurfa þau að
endurmeta bæði líf sitt og starf.
Leikendureru ArnarJónsson,
Anna Kristín Arngrímsdóttir, Sigurð-
ur Skúlason og Ragnheiður Steind-
órsdóttir.
Leikstjóri er Þórhallur Sigurðs-
son.
Hallæristenór
Gamanleikurinn Hallæristenór,
eftir bandaríska leikskáldið og lög-
fræðinginn Ken Ludwig, verður
sýndurá stóra sviði Þjóöleikhússins
í kvöld og fimmtudagskvöld.
Leikurinn gerist á hótelsvítu í
Ohioríki í Bandaríkjunum fyrir um
hálfri öld. (talskur hetjutenór á að
syngja hlutverk Othello á hátíöar-
sýningu Clevelandóperunnar. En
það gengur á ýmsu og virðist á
stundum að ekkert ætli að verða
úrsýningunni.
Leikhúsið í kirkjunni:
Kaj Munk
í Hallgrímskirkju sýnir Leikhúsið
i kirkjunni leikritið um Kaj Munk, í
leikgerö Guðrúnar Ásmundsdóttur.
Leikritið fjallar um æfi og starf
danska prestsins og frelsishetjunn-
ar Kaj Munk, allt frá barnæsku og
þartil nasistartóku hann af lífi árið
1944.
Þó slegið sé á létta strengi, er
megináhersla lögð á trúarstyrk og
eldmóð predikarans Kaj Munk. Að-
alhlutverk er í höndum Arnars
Jónssonar, sem leikur Kaj Munk á
fulloröinsárum, en með hlutverk Kaj
Munk sem barns fara þeirbræðurn-
ir ívar og Daöi Sverrissynir. Tónlist
er eftir Þorkel Sigurbjörnsson og er
hún leikin af Ingu Rós Ingólfsdóttur
og Herði Áskelssyni.
Sýningar eru á sunnudögum kl.
16 og mánudögum kl. 20.30.
Miðapantanir eru í síma 14455.
Dagurvonar
Áföstudag og sunnudag kl.20.00
er leikrit Birgis Sigurðssonar, Dagur
vonar, á dagskrá. Leikstjóri er Stef-
án Baldursson.
Leikritið, sem gerist í Reykjavík á
sjötta áratugnum, er nokkurs konar
uppgjör milli einstaklinga og eiga
átökin sér stað innan fjölskyldu þar
sem væntingar einstaklinganna eru
ólíkarog hagsmunirskarast.
Leikmynd og búninga hannar
Þórunn S. Þorgrímsdóttir, tónlist er
eftir Gunnar Reynir Sveinsson og
lýsingu annast Daniel Williamsson.
Leikendureru: Margrét H. Jóhanns-
dóttir, ValdimarÖrn Flygenring,
Sigurður Karlsson, Guðrún S. Gisla-
dóttir, Sigríður Hagalín og Þröstur
Leó Gunnarsson.
Leikfélag Hafnarfjarðar
Halló Ivtla þjóð sýnt
á sunnudag
Leikritið Halló litla þjóð eftir
Magneu Matthíasdótturog Benóný
Ægisson verður frumsýnt í Bæj-
arbíói á sunnudag kl. 20.30. Leik-
stjóri er Andrés Sigurvinsson.
Leikritið fjallar um ótrúlega hraða
uppstigninu Alla Djóks eftir inn-
viðum kerfisins.
Næstu sýningar verða þriðjudag
og fimmtudag á sama tíma.
Leikskemma Leikfé-
lagsins v/Meistaravelli:
Þar sem djöflaeyjan
rís
Þar sem djöflaeyjan rís, verður
sýnt föstudag kl.20 og sunnudag
kl 20. Þetta fjöruga og skemmtilega
leikrit Kjartans Ragnarssonarfsem
gert er eftir skáldsögu Einars Kára-
sonar) hefur fengið afbragðs við-
tökur, enda góð skemmtun fyrir alla
aldurshópa.
Við minnum á veitingarhúsið á
staðnum, sem opið er sýningardag-
ana frá kl. 18. Borðapantanir eru í
síma 14640 eða íveitingahúsinu
Torfunni í síma 13303.
Þjóðleikhúsið:
Rympa á rusla-
haugnum
Barnaleikritið Rympa á rusla-
haugnum eftir Herdísi Egilsdóttur
verðursýnt á stóra sviðinu laugar-
dag og sunnudag kl. 15.00.
Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld,
hönnuður leikmyndar og búninga
erMessíanaTómasdóttir, dansa-
höfundur Lára Stefánsdóttir, Ijósa-
hönnuður Björn Bergsteinn
Guðmundssson, en Jóhann G. Jó-
hannsson útsetur tónlistina og
stjórnar hljómsveit á sviðinu.
Tónlist og dans setja mikinn svip
Rympa á
ruslahaugnum
Barnaleikritið Rympa á ruslahaugnum eftir Herdísi Egils-
dóttur, sem frumsýnt var í Þjóðleikhúsinu í síðustu viku
verður sýnt á stóra sviðinu laugardag og sunnudag kl.
15.00. Leikstjóri er Kristbjörg Kjeld. Á myndinni eru þau
Sigrún Edda Björnsdóttir og Gunnar Rafn Guðmundsson
í hlutverkum sínum í verkinu.
á leikinn. Leikritið gerist á rusla-
haug, sem er iöandi af lífi og munu
rúmlega 20 ungirballettdansarar
sjá til þess. Sigríður Þorvaldsdóttir
leikurskemmtilega skassið Rympu,
sem býr á ruslahaugnum með haus-
lausa tuskukarlinum, Volta. Það
verður aldeilis búhnykkur fyrir hana
þegar tvö börn birtast á öskuhaug-
unum á flótta frá heimili og skóla.
Fjölskrúðugur hópur ungra leikara
og dansara taka þátt í sýningunni
og eru þau flest úr Listdansskóla
Þjóðleikhússins.
Aurasálin
Gamanleikurinn Aurasálin eftir
franska skopsnillinginn Moliere
verður sýndur laugardags- og
þriðjudagskvöld kl. 20. Sveinn Ein-
arsson þýddi og leikstýrir þessum
300 ára gamanleik sem enn er með
vinsælustu gamanleikjum allra tíma.
Finnski listamaðurinn Paul Suomin-
en hannaði leikmynd og Helga
Björnsson, tískuteiknari hjá Louis
Féraud í París teiknaði búningana.
Jón Þórarinsson samdi tónlist við
verkið og varæfingastjóri tónlistar
Agnes Löve. LjósahönnuðurerÁs-
mundur Karlsson, sýningarstjóri
Jóhanna Norðfjörð og aöstoðar-
maður leikstjóra Þórunn Magnea
Magnúsdóttir.
Bessi Bjarnason leikur burðar-
hlutverkið, aurasálina Harpagon, en
í öðrum hlutverkum eru Pálmi Gest-
son, Lilja Guðrún Þon/aldsdóttir,
Jóhann Sigurðarson, Guðlaug María
Leiklistarskóli íslands:
Þrettándakvöld
Shakespeares
Helgina 12.-14. febrúarsýnir
Nemendaleikhúsið í Lindarbæ gam-
anleikinn Þrettándakvöld eða Hvað
sem þið viljið eftir William Sha-
kespeare í þýðingu Helga Hálf-
dánarssonar. Einnig verða sýningar
nk. mánudag og fimmtudag. Allar
sýningar hefjast stundvislega kl.
20.30.
Það er 10. árgangur Nemenda-
leikhússins sem útskrifast nú ívor
frá Leiklistarskóla íslands sem leikur
í sýningunni og nýtur dyggrar að-
stoðar 1. bekk skólans. Leikstjóri
er ÞórhallurSigurðsson, leikmynd
og búningar eru eftir Unu Collins,
lýsingu sér Ólafur Örn Thoroddsen
um en Valgeir Skagfjörð semur tón-
list. Serti fyrr segir eru sýningar í
Lindarbæ og þar er hægt að panta
miða allan sólarhringinn i síma
21971.
FERÐALOG
Frístundahópurinn
Hana nú:
Laugardagsgangan
Vikuleg laugardagsganga
Frístundahóspins Hana nú í Kópa-
vogi verðurá morgun, laugardaginn
14.febrúar. Lagt af stað kl.10frá
Digranesvegi 12. Markmið
göngunnarer: Samvera, súrefni,
hreyfing. Hækkandi sól, skemmti-
legurfélagsskapur. Heitt molakaffi.
Allirvelkomnir.