Alþýðublaðið - 09.10.1920, Qupperneq 2
2
ALÞVÐUBXABIÐ
Glaxo skapar hraust
og bráðþroska börn.
GLAXO ér eingöngu nærlng-
arefni hreinnar mjölkur, bætt
með rjóma og mjólkur-sykrl
og er því fullkomin barna-
fæða, þegar biönduð hefir
verið með sjóðandi vatnl
eingöngu. Börnin fá ekki
aðeins það sem þau þurfa,
til þess að verða hraust og
sterk og ánægð, þau eru elnn-
ig trygð gegn allskonar sjúk-
dómum, er komið geta af
neyziu venjulegrar mjölkur.
Kostamjólkin
skapar bráðþroska börn.
Umboðsmenn á íslandi:
Þórður Sveinsson & Go., Reykjavík.
Eigendur Glaxo: Joseph N.than & Co. Ltd., Londoa & Ncw Zealand.
Aígreidísla
blaðsins er í Alþýðuhúsinu við
Ingólfsstræti og^Hverfisgötu.
Sími 088-
Auglýsingum sé skilað þangað
eða i Gutenberg í siðasta lagi ki.
10 árdegis, þann dag, sem þær
eiga að koma i biaðið.
Áskriftargjald ein lzr. á
mánuði.
Auglýsingaverð kr. 1,50 era.
eindálkuð.
Útsölumenn beðnir að gera skil
til afgreiðslunnar, að minsta kosti
ársfjórðungslega.
Blaðið Verkamaðurinn á Akur-
eyri skýrir svo frá:
„Það er ekki orðið sjaldgæft að
menn drekki sig ölfaða í áfengis-
blöndu úr Iyfjabúðinni hér á Ak-
ureyri. Oftar en einu sinni hefir
það sannast fyrir rétti, að áfengið
sem neytt var hefir verið þaðan,
sambland af spíritus og glysseríni
eða einhverju öðru efni, sem hægt
var að telja læknislyf við vissum
sjúkdómum. Þessi lyf, sem rétt-
ast væri að kalla einu nafni
drykkjumannaiyf, hafa verið seld
án lyfseðils, hverjum sem hafa
vildi, og án þess að miðað væri
við venjulega læknisskamta. Svo
gengdarlaus hefir hún verið, þesbi
áfengissala lyfjabúðarinnar, að nú
fyrir skemstu voru einum Norð*
manni seld&r fimm hálfflöskur í
einu af áfengi, sem lyfjabúðin
kallar brjóstsaft. Vitanlega vantar
allar sannanir fyrir þvf, að þessi
brjóstsaft sé að nokkru leyti til-
búin sem læknislyf, þar sem hún
er seld án lyfseðils, og einum
manni er seld tvítugfóld fyrirferð
við það, sem læknar eru vanir að
taka til handa einum sjúklingi, en
hitt cr víst, að brjóstsaftia er
áfeng, Þrfr Norðmenn verða svo
ölvaðir, af þessum hálfflöskum,
sem nefndar hafa verið, að þá
verður alla að setja í járn og yfir-
heyra, vcgna óspekta sem þeir
valda. Fyrir réttinum bera þeir
allir, að þeir hafi orðið ölvaðir af
þrjó -tsaftinni og engu öðru, og
hafi einn þeirra, Ingveld Isaksen,
20 ára að aldri, keypt allar flösk-
urnar á kr. 7,30 hverja flösku
Ingveld þessi ber það fyrir rétt
inum, að hann hafi keypt brjóst
saftina eftir tilvísun háseta af
gufuskipinu .Rolf*, sem hafi sagt
að brjóstsaftin væri áfeng.
Bæjarfógetinn hér mun hafa
skipað svo fyrir, að lyfjabúðin
hætti þessari stórskamtasölu á
brjóstsaftinni, en þá er að sjá
hvort ekki verður farið að selja
eitthvað acnað, sem er álíka út-
gengilegt og brjóstsaftin Vanille
dropar í þriggjapelaflöskum kváðu
vera mjög útgengileg vara. Bróð-
ir lyfsaians hér, Stefán Thoraren-
sen lyfsali í Reyhjavík, hefir sent
hingað norður tvo kassa með va-
nilledropum, sinn til hvors þeirra
bræðranna Björns Grímssonar kaup-
manns á Akureyri og Gríms Gríms-
sonar kaupmanns í Ólafsfirði. í
öðrum kassanum eru 10 þriggja-
pelaflöskur af vanilledropum, en í
hinum eru S fl. af sama vökv.a.
Lögreglan hér hefir handsamað
kassana. Björn var þá búinn að
taka á móti sínum kassa og sagði
hann eina fiöskuna brotna sem í
kassanum átti að vera, en heyrst
hefir að eitthvað muni hafa lekið
niður í kollinn á nábúa Björns um
leið og flaskan brotnaði. Kunnugir
menn segja þessa vaniiledropa frá
herra Thorarensen líkasta Coníaki
og umbúðirnar þriggjapelaflöskur
b-nda til þess að ekki eigi að
nota þá á sama hátt og venjulega
krydddropa, sem ætíð eru seldif
í 5 og io gramma giösum, enda
engar líkur tii að jafnsmáar verzl-
anir sem þeirra bræðra gætu selt
meira yfir árið en sem svaraði
einni flöskunni ef nota ætti þessa
vanilledropa á venjulegan hátt
Stjórnarráðið fyrirskipaði í vetur.
að lyfjabúðirnar skyldu gera grein
fyrir þeim vínanda (spiritus), sem
þær fengju frá útiöndum. í þeim
tilgangi áttu þær að halda samao
þeim lyfseðlum sem læknarnir gæfn
út á áféngi, og senda Hagstofunni*
Ekkert hefir enn heyrst um árang-
urjnn af þessari fyrirskipun, nem*
á ísafirði, þar kvað Kerúlf læknir
hafa gefið út lyfseðla árið igl9
fyrir áfengi er svaraði tuttugutunö*
um af brennivíni. Fróðlegt verðuf
að sjá skýrslu um áfengisútlát
þeirra Thorarenssona. Búast
við að hún veiði eitthvað á þessa
leið: Lyfjabúðin á Akureyri selt
á árinu 5° þús. hálfflöskur ^
brjóstsaft. Það eru ekki nema $