Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 2

Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 2
2 B /ÍÞRÓTTIR ÞRIÐJUDAGUR 2. JÚNÍ1987 KNATTSPYRNA / LANDSLIÐIÐ Islendingar mæta A-Þjóðveijum á morgun ÍSLENDINGAR og Austur- Þjóðverjar spila landsleik í knattspyrnu á Laugardalsvelli á morgun, miðvikudag, kl. 20.00. Þetta verður fimmti leik- ur þessara liða í 3. riðli Evrópukeppninnar. Tvœr breytinar hjá íslenska liðinu frá því í leiknum gegn Frökkum. Islendingar tefla nú fram sínu sterkasta liði og ætti á góðum degi að geta lagt það austur-þýska að velli hér heima. Austur-Þjóðveij- ar unnu fyrri leikinn með tveimur mörkum gegn engu. Þá lék Ásgeir Sigurvinsson ekki með, en hann er mættur í slginn nú. Hann á góðar minnigar frá leik þessara liða í Laugardalnum 1975. Þá skoraði hann sigurmarkið í 2:1 sigri íslands. Tvær breytingar eru á hópnum síðan í leiknum gegn Frökkum í vor. Lárus Guðmundsson kemur nú inní hópinn eftir nokkurt hlé. Hann kemur inn fyrir Sigurð Grétarsson. Pétur Amþórsson kemur inn í liðið eftir stórgóðan leik gegn Hollend- ingum í undankeppni Olympíu- leikanna á dögunum. Hann kemur inn fyrir Pétur Ormslev, sem gaf ekki kost á sér vegna meiðsla. íslenska liðið tók létta æfíngu á Laugardalsvelli í gærkvöldi og einn- ig í gærmorgun. í dag verða tvær æfíngar og svo ein í fyrramálið. Það er ekkert gefíð eftir og allt lagt í sölumar til að vinna leikinn á morgun. Byijunarliðið verður að öllum líkindum skipað þessum leikmönn- um: Bjarni Sigurðsson, Atli Eðvalds- son, Sævar Jonsson, Gunnar Gíslason, Ágúst Már Jonsson, Sigurður Jonsson, Ásgeir Sigur- vinsson, Ómar Torfason, Ragnar Margeirsson, Arnór Guðjohnsen og Pétur Pétursson. Aðrir leikmenn: Friðrik Friðriks- son, Guðni Bergsson, Lárus Guðmundsson, Viðar Þorkelsson og Pétur Arnþórsson. Þá má búast við að Siggi Held gefí Lárasi Guðmundssyni tækifæri og skipti honum inná fyrir Pétur Pét- ursson, ef leikurinn þróast þannig. Dómaratríóið kemur frá Danmörku. Dómari verður Hennig Lund-Sör- ensen og línuverðir Alex Jacobsen og Ove Hust. Eftirlitsmaður UEFA er Jacques Colling frá Luxemborg. Leikurinn hefst stundvíslega kl. 20.00 á Laugardalsvelli. Forsala aðgöngumiða er í Austurstræti í dag og á morgun frá kl. 12 til 18. og á Laugardalsvelli á morgun frá kl. 12.00. Verð aðgöngumiða í stúku kosta kr. 700, í stæði kr. 400 og kr. 150 fyrir böm. Homaflokkur Kópavögs mun leika létt lög fyrir leik og í hálfleik. Staðan fyrir leikinn á morgun: Sovétríkin A-Þýskaland Frakkland ísland Noregur 4 3 1 0 9:1 7 4 1 2 1 2:2 4 4 1 2 1 2:2 4 4 0 2 2 1:6 2 1 0 1 1 0:4 1 Lárus Guðmundsson: „Gaman að vera aftur í hópnum“ að er gaman að vera aftur kominn í hópinn,“ sagði Lár- us Guðmundsson, eftir æfínguna í gær. En Láras er nú í landsliðs- hópnum eftir nokkurt hlé. Leikurinn leggst vel í mig. Von- andi fæ ég tækifæri til að spreyta mig í leiknum. Ég á 'þó ekki von á því að verða í byijunarliðinu," sagði Láras. Hann á að baki 14 landsleiki, sem þykir kanski ekki mikið, en hann átti ekki upp á pallborðið hjá Tony Knapp þegar hann var iandsliðs- þjálfari. En vonandi er Láras kominn í hópinn til að vera. Morgunblaðið/Bjami Eiríksson íslenska landsliðið í knattspymu æfði tvívegis í gær. Þessi mynd var tekin á seinni æfíngunni í Laugardal. Á myndinni eru þeir Pétur Pétursson, Ásgeir Sigurvinsson og Lárus Guðmundsson. A-Þjódveijar sterkir AUSTUR-ÞJÓÐVERJAR koma með sitt sterkasta iiö í leikinn á morgun. Liðið kemur til ís- lands i dag með leiguflugvél frá Berlín. Flestir leikmanna liðsins ieika með Dynamo Berlin og Loko- motiv Lapzig. Lokomotiv lék einmitt til úrslita í Evrópukeppni bikarhafa við Ajax á dögunum og tapaði með einu marki gegn engu. Þetta segir töluvert um styrkleika liðsins. Austur-þýska landsliðið er þannig skipað: Markverðir: Rene Muller JörgWeissflog Aðrir ieikmenn: Matthias Döschner Rainer Emst Ulf Kirsten Matthias Liebers Matthias Lindner Lokomotiv Leipzig Wismut Aue Dynamo Dresden Dynamo Berlin Dynamo Dresden Lokomotiv Leipzig Lokomotiv Leipzig Pran Pastor Frank Rohde Carsten Sánger Dirk Stahmann Rico Steinmann Jörg Stöbner Andreas Thom Uwe Zötsche Detler Schössler Christian Backs Hans Richter Thomas Doll Matthias Sammer Dynamo Dresden Dynamo Berlin Rot Weiss Erfurt Magdeburg F.C. Karl Marx Stad Dynamo Dresden Dynamo Berlin Lokomotiv Leipzig Magdeburg Dynamo Berlin ’jokomotiv Leipzig Dynamo Berlin Kynamo Dresden Þjálfari: Bemd Strange. SPURT ER / Hvernig fer landsleikur íslands og Austur-Þýskalands? Helga M. Gylfadóttir „ÉG veit varla hvað ég á að segja þvf ég fylgist lítið með knattspymu. En spái þó að íslendingar vinni 1:0. Mér fínnst Amór Guðjo- hnsen vera besti knatt- spymu maður íslands." Markús Hauksson „Austur-Þjóðveijar vinna 2:1 í skemmtilegum leik. Þeir hafa á að skipa betra liði en við. Ætli það verði ekki Amór Guðjohnsen sem skori mark íslend- inga.“ Sigurjón IMilsen „ÉG spái 1:0 fyrir ísland. Strákamir hafa staðið sig vel að undanfomu. Ég held að A-Þjóðveijar séu ekki svo sterkir að við getum ekki unnið þá á heima- velli.“ Dagur Agnarsson „ÞETTA verður erfiður leikur fyrir íslendinga. Ég held að Austur-Þjóðveijar vinni með tveimur mörkum gegn engu. Þeir era miklu betri en við.“ Guðrún J. Bragadóttir ÉG segi bara 2:1 fyrir Island. Annars fylgist ég ekkert með fótbolta og hef ekki hundsvit á honum. Þekki varla íslensku leik- mennina." Sigurgeir Bjarnason „ÉG vona að íslands vinni, segjum 3:2. Ég hef ekkert vit á knattspymu og pæli ekki mikið í henni."

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.