Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 13

Morgunblaðið - 02.06.1987, Qupperneq 13
I lilormmliltitut. /ÍÞRÓTTIR ÞRŒUUDAGUR 2. JÚNÍ 1987 B 13 Corvettan fullþroskuð T-KORT • / lönaóarbankinn -hútima kttfki Mikið vatn er til sjávar run- nið og margir bílar af færibönd- unum komnir síðan fyrsta Corvettan leit dagsins Ijós árið 1953, með blóðlatri sexstrokka vél og bíllinn talinn hálf mis- lukkaður. Síðan hefur hún gengið í gegnum öll breytinga- skeið amerísks bílaiðnaðar og haldið velli, með fáum, en rót- tækum breytingum. Tvennt má telja að einkenni jafnt fyrstu, sem hina nýjustu Vettu og allar þar á milli: Boddýið er úr plasti og afturljósin eru tvö hvorum megin og kringlótt! Flest annað hefur tekið breytingum. Ameríkanar hafa verið stoltir af Vettunni sinni og kallað hana eina ameríska sportbílinn. Ekki er það nú allskostar rétt, þ.e. hún verðskuldaði lengst af ekki þann titil, að kallast sportbíll, sumar Jósepsson gerðirnar voru skrifar hreint ókeyrandi ef vegurinn var ekki beint af augum, aðrar voru svona þokkalegar, ekkert meira og Evr- ópumenn brostu í kampinn á sínum „alvöru" sportbílum. En 1984, þegar Corvettan hafði verið framleidd nánast óbreytt síðan BÍLAR Morgunblaðiö/Sverrir Rennilegur vagn Corvettan er rennileg hvar sem á hana er litið og aksturseiginleikar hennar eru mu'n betri en búast mætti við. Sannkallaður sportbíll! 1967, urðu heldur betur umskipti. Vettan hafði hamskipti og fékk ítalskan svip, án þess þó að týna alveg svipmóti fyrirrennarans, og það sem mest er um vert, hún fékk alla aksturseiginleika sportbílsins. Þá loksins gátu Kanar með sanni talað um sportbílinn sinn. Ein snjóhvíf á íslandi Fyrir nokkrum dögum kom hingað til lands Vetta af þessari nýju kyn- slóð og að sjálfsögðu fórum við á stúfana að kanna gripinn. Það var auðsótt mál hjá eigandanum að fá að taka í bílinn. Skemmst er frá því að segja, að bílinn reyndist miklu betri og skemmtilegri en maður ímyndaði sér af lestri blaða- dóma erlendra. Vélaraflið er feiki- nóg frá V-8 5,7 lítra vélinni (það er gamla góða 350-rellan með öllum nýmóðins rafeindabúnaði), fimmgíra sjálfskiptingin tekur við eins og beinskipting, ABS-hemla- kerfið er frábært, maður traðkar af öllu afli á bremsunum og bíllinn stoppar á undrastuttri vegalengd og virðist ekkert vera að gerast. Fjöðrunin er engu lík, gefur vel eftir þegar ójöfnur vegarins eru aflíðandi, en þó stinn eins og á að vera í sportbíl, og í beygjum leggst bíllinn hreinlega ekki neitt! Og svo má ekki gleyma einu því mikilvæg- asta í slíku tæki: Röddin er ekta! Djúpar, fjarlægar drunur, þrungnar orku sem verða hæfilega sterkar á gjöfínni. Þessi bíll er hreinasti- draumur bflaáhugamannsins, en líklega aðeins draumur — fyrir flesta a.m.k. Nýr kostar hann ein- hvers staðar á bilinu tvær til tvær og hálf milljón, þessi var fluttur inn notaður og kostaði eitthvað minna. Nú er því miður ekki rúm til að gera ítarlega grein fyrir nýju Vett- unni, verður vonandi hægt síðar, við skulum láta myndirnar tala og fá helstu staðreyndimar um vagn- inn: Vél: V-8,5,71234 hö DIN, bein innsp. Hröðun 0-100: 6,8 sek. Hám.hraði: 240 km/klst. Pjöðrun: Glertreflastyrkt blaðfjöður úr plasti, þverstæð. Lengd/breidd/hæð: 4483/1804/1186 mm Hemlar: Diskar við öll hjól, kældir, ABS. Eigin þyngd: 1407 kg. Dekk: Good Year Eagle P245/50 VR 16. Morgunblaðið/Sverrir Draumur! Bíliinn er hreinasti draumur bíla- áhugamannsins, en nokkuð dýr.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.