Morgunblaðið - 02.06.1987, Side 16
FRJALSAR
Moses
sigraði
í 122.
skipti
í röð
EDWIN Moses hljóp 400
metra grindahlaup sem
gestur í landskeppni Ítalíu
og Sovétríkjanna um helg-
ina og sigraði. Moses hefur
verið ósigrandi í greininni
síðasta áratug og var þetta
122. sigur hans í röð.
Moses hljóp á 48.9 sekúnd-
um, en Vladimir Budko
frá Sovétríkjunum hafnaði í 2.
sæti á 50.61.
Tvær sovéskar stúlkur náðu
besta árangri ársins á mótinu.
Maria Pinigina hljóp 400 metr-
ana á 50.04 og Natalia Lisov-
skaja varpaði kúlunni 21.51
meter.
Heimsmet
Hinn tvítugi Tékki, Jan Zelezny,
bætti heimsmetið í spjótkasti um
tæpa tvo metra á móti í Tékko-
slóvakíu á sunnudaginn. Zelezny
kastaði spjótinu 87.66 í þriðju
tilraun, en met Klaus Tafelmei-
ers frá Vestur-Þýskalandi var
85.74. Met Uwe Hohn, Austur-
Þýskalandi, með gamla spjótinu
er 104.8 metrar.
Evrópumet
í Búlgaríu bætti Khristo Markov
Evrópumet sitt í þrístökki um
einn sentimeter, stökk 17.81
meter. Það er besti árangur, sem
náðst hefur í ár, en langt frá
heimsmeti Willie Banks frá
Bandaríkjunum, sem er 17.97.
Þá kastaði vestur-þýski
ólympíumeistarinn Rolf Danne-
berg kringlunni 67.60 metra á
móti í Vestur-Berlín og er það
besti árangur, sem náðst hefur
í greininni í ár.
Símamynd/Reuter.
Tékkinn Jan Zalezny fagnar
hér heimsmeti sínu í spjótkasti um
helgina, hann kastaði 87,65 metra.
íuémR
Morgunblaöið/Júlíus
Kátir vinningshafar með Iþróttamanni ársins
Eðvarð Þór Eðvarðsson, íþróttamaður ársins, er hér ásamt þremenningunum heppnu, sem hann afhenti viðurkenningar.
á sunnudaginn. Til vinstri er Sigurður Samúelsson, á herðum Eðvarðs er ívar Öm Benediktsson og til hægri er Gústaf'
Elí Teitsson.
IÞROTTAGETRAUN MORGUNBLAÐSINS
Fjórtán ára ísfirð-
ingur fyrstur til að
hreppa Lundúnaferð
FYRSTA hluta íþróttagetraun-
ar Morgunblaðsins er nú lokið,
og annar hluti hefst í blaðinu
í dag, eins og sjá má á bls. 3
B. Á sunnudaginn var sigurveg-
urum í fyrsta hlutanum af-
hentar viðurkenningar sínar.
Þeir heppnu að þessu sinni voru
Sigurður Samúelsson, 14 ára
frá ísafirði, Gústaf Elí Teitsson, 13
ára úr Reykjavík og Ivar Om Ben-
ediktsson, 9 ára frá Akranesi.
Dregið var úr réttum lausnum í lok
síðustu viku og þá kom nafn Sigurð-
ar Samúelssonar fyrst upp úr
bunkanum. Hann hlýtur því að
launum ferð til Lundúna í ágúst-
mánuði næstkomandi þar sem farið
verður á Wembley-leikvanginn og
fylgst með viðureign Englands-
meistara Everton og bikarmeistara
Coventry um góðgerðarskjöldinn.
Sigurður, Gústaf Elí og ívar Örn
fengu svo allir æfingagalla og
íþróttatösku frá Henson, Morgun-
blaðsklukku og Morgunblaðsbol.
Það var Eðvárð Þór Eðvarsson,
íþróttamaður ársins 1986, sem af-
henti þremenningunum viðurkenn-
ingamar.
Sem fyrr segir hefst annar hluti
íþróttagetraunarinnar af þremur í
blaðinu í dag og em böm og ungl-
ingar hvattir til að taka þátt - enn
á eftir að draga um tvær Lundúna-
ferðir.
Frá Jóhanni Inga
Gunnarssyni
í Þýskalandi
HANDBOLTI
Pállog
félagar
unnu
fyrri
úrslita-
leikinn
Páll marka-
hæstur með fimm
PÁLL Ólafsson varð marka-
hæstur í liði Dusseldorf um
helginar er liðið vann fyrri
úrslitaleik vestur-þýsku bik-
arkeppninnar í handknatt-
leik gegn Grosswaldstadt.
Þetta var heimaleikur Dus-
seldorf, en leikið var í
Krefeld í Uerdingen. Úrslitin
urðu 22:21 eftir að Gross-
waldstadt hafði verið yfir,
12:8, f leikhléi.
Það var einmitt ekki fyrr en
Páll Ólafsson fékk að
spreyta sig af alvöru, í seinni
hálfleiknum, að lið Diisseldorf
fór almennilega
í gang. Leikur-
inn var jafn í
byrjun, staðan
var 4:4, en síðan
sýndi Grosswaldstadt að liðið
eitt það besta í Þýskalandi. Lið-
ið náði góðri forystu og hafði
yfir 12:8 í hálfleik sem fyrr seg-
ir.
Mér fannst leikmenn Diisseldorf
bera allt of mikla virðingu fyrir
leikmönnum Grosswaldstadt.
Þeir notuðu hraðaupphlaup allt
of lítið og agaleysi var í sókn-
inni hvað skot varðaði. Þá var
markvarsla liðsins lítil sem eng-
in í fyrri hálfleik.
En leikmenn Diisseldorf komu
svo sannarlega tvíefldir til leiks
eftir hlé. Páll lék meira og það
skilaði sér - baráttan var miklu
meiri. Staðan var 9:14 fyrir
Grosswaldstadt snemma í hálf-
leiknum en þá snérist leikurinn
við. Þegar fimm mín. voru til
leiksloka komst Diisseldorf svo
yfir í fyrsta skipti, 21:20 og það
var einmitt Páll Ólafsson sem
skoraði 21. markið. Diisseldorf
skoraði svo aftur, komst í 22:20,
en Grosswaldstadt minnkaði
muninn í 21:22 fyrir leikslok.
Það má segja að miðað við
hvemig leikurinn var í fyrri hálf-
leik geti leikmenn Dusseldorf
verið ánægðir með úrslitin. Það
hefur oft verið þannig í vetur
að lið Diisseldorf hefur leikið
betur á útivelli en heima. Liðið
tapaði t.d. aðeins með eins
marks mun á útivelli gegn
Grosswaldstadt í deildinni, og
kæmi mér ekki á óvart þó þeir
yrðu bikarmeistarar. Flestir
hallast þó að því að Grosswald-
stadt sigri og það getur kannski
einmitt reynst Diisseldorf að
enginn býst við neinu af liðinu.
Páll varð markahæstur í liðinu
sem fyrr segir, skoraði 5 mörk.
Schoene og Töpfer gerðu einnig
5 mörk en hjá Grosswaldstadt
varð landsliðsmaðurinn Schwalb
markahæstur með 7.
Seinni úrslitaleikur iiðanna
verður í Grosswaldstadt mánu-
daginn 8. júní næstkomandi.
LOTTO: 3 5 8 10 26