Morgunblaðið - 03.07.1987, Síða 6
6 B
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 3. JÚLÍ 1987
Meðlimir Förðunarfélgsins ásamt hópi dansara, sem dansaði við lag Michael Jacksons,
The Thriller á tfttnefndu kvöidi í Broadway. Dansararnir eru farðaðir af förðunarfrœðing-
unum f anda verksins, sem er dans hinna framliðnu.
Skrfmslið hennar Ragnheiðar.
Japanskur strfðsmaður hannað-
ur af Ragnheiði Láru.
Ragnheiður Lára farðaði
þessa bresku fyrirsœtu,
Susan Mitzy sem er vel
þekkt í sfnu heimalandi.
þess að lengsta táin nái ekki alveg fram í
leistann, gera þarf ráð fyrir að fóturinn
renni a.m.k. tæpan sentimetra fram þegar
gengið er í skónum.
• Notið ekki sömu skóna dag eftir dag,
og gangið á mismunandi háum hælum.
• Skófatnaöur úr gerviefnum og gúmmfi
er vatnsheldur og heldur líka fótraka inni.
Ráðlegast er því að skipta um og fara í
leðurskó þegar á áfangastað er komið,
hafi maður þurft að vera í hlífðarskóm utan
dyra. Þeir sem þurfa að vinna í gúmmístíg-
vélum daglangt ættu að vera í sokkum úr
náttúruefni.
• Veljið íþrótta- og æfingaskó úr náttúru-
efnum eða með loftgötum á yfirleðri svo
fóturinn geti „andað".
• Séu fæturnir þreyttir eftir langan vinnu-
dag, en þú ætlar að fara út að skemmta
þér, er gott ráð að setjast á baðkars-
brúnina, láta kalt vatn úr krananum renna
yfir fæturna í eina mínútu, skipta þá yfir í
þolanlega heitt vatn næstu mínútu og
síðan sitt á hvað 4—5 skipti og enda á
köldu. Þurrkið nú fæturna vel og stráið þær
með barnapúðri, leggist á bakið á gólfið
og styðjiö fótunum skáhallt upp að veggn-
um. Slappið þannig vel af í fimm mínútur.
Þetta hefur undraverð áhrif til hvíldar og
maöur getur dansað heilt kvöld á eftir.
Fótasnyrting
Takið til þau áhöld, sem nota á: Bala
með volgu vatni, setjið í það baðsalt eða
matarsóda; handklæði; feitt krem, naglal-
akkseyði; fótarasp eða pimpstein; nagla-
skæri eða klippur; bómull; pappírsþurrkur;
naglaþjöl og trépinna; barna- eða fótapúð-
ur og naglalakk. Það er gott að hafa þetta
dót allt saman í lítilli körfu, þá er það allt
innan seilingar.
Byrjið á fótabaðinu og gefiö ykkur góðan
Byrjið á fótabaðinu og gefið ykkur góðan tíma
til að bleyta vel upp allt sigg. Þær sem eiga vanda
til að svitna á fótunum, setja sérstakt fótasalt, eða
bara matskeið af venjulegu matarsalti í vatnið, hin-
ar, sem hafa of þurra húð, ættu fremur að setja
nokkra dropa af bað- eða matarolíu í vatnið. Mat-
arsódinn, sem minnst var á, mýkir sigg og neglur.
Ætlið ykkur helst ekki skemur en 15 mínútur í fóta-
baðinu til að slappa vel af.
Þurrkið nú fæturna vel með handklæði.
Nuddið burt sigg, með fótaraspinum eða pimp-
steini.
Klippið táneglurnar þvert fyrir, helst með nagla-
klippum og sverfið brúnirnar sléttar. Varist að
klippa niður með hliðum naglanna, þannig getið
þið orðiö til að nöglin vaxi skökk fram og grói inn
í holdið, (inngróin nögl).
Séu naglaböndin þurr og föst á nöglinni, skal
núa feitu kremi á þau og ýta þeim síðan varlega
upp að naglarótinni með trépinna, sem bómullar-
hnoðra hefur verið vafið um endann.
Naglalakk hlífir, berið fyrst á glært lakk og síðan
minnst tvær umferðir af lituðu, það gerir fæturna
„líflegri". Áður en naglalakkinu er smurt á, verður
að hreinsa allt krem af nöglinni. Burstið það burt
með naglabursta eða pappírsþurrku og farið að
lokum yfir með naglalakkseyði. Setjið pappírsvafn-
inga milli tánna, áður en lakkað er.
Naglalakkið verður að fá aö þorna í minnst tíu
mínútur áður en áfram er haldið, en þá er fótasnyrt-
ingunni lokið með að borið er feitt krem á allan
fótinn, milli tánna og strjúkið upp á legg. Núið
sérstaklega inn í húðina á hælum, þar er hún oft-
ast þurr. Þurrkið vandlega brott kremið milli tánna,
eftir nuddið, og setjið barnapúður í staöinn.
Samkvæmt kenningum um svæðanudd, má á
fætinum finna bletti sem svara til allra hluta líkam-
ans. Tærnar tengjast t.d. höföinu, ilin maganum
og hællinn mjaðmarsvæðinu. Hérfylgja því nokkrar
ráðleggingar um beitingu fótanudds, sem gætu
linað verki, höfuðkvalir og spennu.