Tíminn - 10.10.1965, Blaðsíða 11

Tíminn - 10.10.1965, Blaðsíða 11
SUNN’UDAGUR 10. október 1965 TÍMINN 11 14 tækrahverfunum, eða í óhreinum vistarverum og fátæktin hafði allt- af verið orsök að eymd þeirra. — Kom hann að finna yður í gærkvöldi? — Hver? — Eiginmaður yðar. Hún hristi höfuðið. — Kom hann stundum? — Stöku sinnum, já, en ég hefði viljað hann kæmi aldrei. — Þér fóruð ekki niður í skrif- stofu hans? — Ég fór aldrei þangað. Það var í skrifstofu hans, sem hann talaði við föður minn í síðasta skiptir og þremur klukkutímum síðar fundu þeir föður minn — hengdan. Þetta virtist venjuleg regla hjá Fumal — að gera fólk gjaldþrota, ekki aðeins ' þá sem stóðu honum í vegi eða móðguðu hann, heldur bara hvern sem honum datt í hug til að sýna vald sitt, til að sann- færa sjálfan sig um vald sitt. j ÚTVARPIÐ Sunnudagur 10. október 8.30 Létt morgunlög 8.55 Fréttir 9.10 Morguntónleikar. 10.30 Messa l Dóankirkjunni. Prestur: Séra I Jón Auðuns dómprófast- ________________ lur. Org- anleikari: Dr. Páll ísólfsson. 12. 1S Hádegisútvarp. 14.00 Miðdeg istónl'elkar: Frá tveimur tónlist arhátiðum álfunnar. 15.30 Kaffi tíminn. 16.00 Sunnudagslögin 16. 30 Veðurfregnir. Guðsiþjónusta Fíladelfíusafnaðarins í útvarps- sal, 17.30 Barnatími: Anna Snorradóttir stjómar. 18.30 Fræg ir söngvarar: Lauritz Melchior syngur. 18.55 Tilkynningar. 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir 20.00 íslenzk tónlist: Verk eftir Pál ísólfsson. 20.10 Ámar okkar Jón Jónsson jarðfræðingur flytur erindi um Skaptá og Hverfisfljót. 20.40 Joseph og Joliann Strauss: Fílharmoníusveit Vínarborgar leikur lög eftir þá bræður. 21.00 í slóð Áma Oddssonar dagskrá með upplestri og frásögum í umsjá Vignis Guðmundssonar, blaðamanns. 22.00 Fréttir og veð urfregnir. 22.10 Danslög 23.30 Dagskrárlok. — Þér vitið ekki, hvaða gesti hann fékk í gærkvöldi? Síðar mundi Maigret verða að segja aðstoðarmanni sínum að rannsaka þessi herbergi. Sú til hgusun að gera það sjálfur var honum mjög ógeðfelld, en það varð að gera. Það var. ekkert til sem sannaði að 'þessi kona hefði ekki í gærkveldi drukkið í sig kjark til að drepa eiginmann sinn og það var ekki ómögulegt, að byssan fyndist í herbergjum henn ar. — Ég veit það ekki . . . Mig langar ekki til að vita neitt leng ur . . . Vitið þér hvað mig langar? j Að fá að vera í friði og . . . Maigret hafði ekkert heyrt. i Hann stóð enn rétt við rúmið og j sá að frú Fumal starði á eitthvað ■ að baki honum. Síðgfci glampaði ljós og í sömu andrá þaut konan fram úr rúminu og af ótrúleg- um krafti réðst hún að Ijósmynd- aranum, sem hljóðlaust hafði birzt í dyragættinni. Hann reyndi að hörfa undan, en hún hafði náð haldi á vélinni hans, henti henni ofsalega í gólfið, reif ein- tók upp aftur til að grýta henni aftur af enn meira afli. Maigret brá í brún er hann þekkti þarna fréttamann frá einu kvöldblaðanna. Einhver — hann vissi ekki hver — hafði sagt blöð- unum fréttirnar og hann myndi rekast á allt stóðið niðri. — Augnablik, sagði hann arðlega. Hann tók upp vélina og filmuna úrJienni. — Farið út drengur minn . . . sagði hann við unga manninn. Við frú Fumal sagði hann. — Farið aftur í rúmið. Ég bið forláts á því sem fyrir kom. Ég mun sjá til þess, að þér verðið látnar í friði hér eftir. En einn af aðstoðarmönnum mínum verð- ur.að leita í herbergjum yðar. Hann hraðaði sér út úr herberg- inu og hefði helzt kosið að yfir- gefa húsið fyrir fullt og allt. Ljós- myndarinn beið eftir honum við stigann. — Ég hélt ég mætti. . . — Þér voruð einum of djarfur. Eru fleiri fréttamenn hér. — Nokkrir. — Hver lét ykkur vita? — Veit það ekki. Ritstjórinn sendi eftir mér fyrir hálftíma. Það hlaut að hafa verið maður- inn frá Medico-Legal stofnuninni. Alls staðar fyrirfinnst fólk, sem stendur í sambandi við blöðin. Niðri biðu sjö eða átta blaða- menn og fleiri var sjálfsagt að vænta. — Hvað kom í raun og veru f.vrir, höfuðsmaður? — Ef ég vissi það, strákar mín- ir, væri ég ekki lengur hérna. Ég vil að þið gefið okkur frið til að vinna og ég heiti því að ef við uppgötvum eitthvað . . . — Megum við ljósmynda K'er- bergin? — Verið þá fljótir að því. Fólk það sem, yfirheyra þurfti var of margt til að hægt væri með góðu móti að fara með það allt á lögreglustöðir.a. Hér voru mörg auð herbergi. Lapointe var að störfum og sömuleiðis Bolfils og Torrense sem var nýkominn á vettvang ásamt Lesueur. Hann sagði Torrence að fara og rannsaka þriðju hæðar her- bergin og sendi Bonfils upp í íbúð Monsieur Jóseps. Hinn síðar- nefndi var ekki kominn aftur frá Rue Rambuteau. — Þegar hann kemur spyrjið hann nokkurra spurninga, en ég býst ekki við hann segi margt. FuIItrúar hins opinbera ákær- anda voru farnir og sömuleiðis flestir sérfræðingar Glæpadeildar- innar. _ — Sendið eina þjónustustúlkuna — Noemi — til Madame Fumal og segið hinum að bíða í dag- stofunni. Þegar síminn hringdi í skrif- stofu hins látna tók Louse Bourg- es upp tólið eins og ekkert væri sjálfsagðara. — Þetta er einkaritari Herra Fumals . . . Já . . . Já, hann er hérna. Ég skal gefa yður sam- band. Hún sneri sér að Maigret. — Það er til yðar . . . Frá stöð- inni. — Halló? Það var forstjóri rannsóknar- lögreglunnar. — Innanrjkisráðherrann var að hingja til mín ... — ~Er hann búinn að frétta þetta? — Já, allir vita um þetta. Hafði einhver blaðamannanna komið fréttunum í útvarpið? Mjög sennilegt. — Var hann bálvondur? — Það er ekki rétta orðið. Hann var fúll. Hann vill fá upp- lýsingar um rannsóknina nákvæm- lega stig af stigi. Vitið þér nokk- uð? — Nei. í dag morgun Mánudagur 11. október 7.00 Morgunútvarp. 12.00 Hádeg isútvarp 13.00 Við vinnuna. 15.00 16.30 Síðdegisútvarp. 18.20 Þing Ifréttir. Tón- leikar. 18.45 Tilkynningar 19.20 Veðurfregnir. 19.30 Fréttir 20.00 Um daginn og veginn Ingi björg Þorgeirsdóttir talar. 20.20 „Heitt ég ann þér, ættland kæra“ Áskell Snorrason tónskáld leikur frumsamin lög á orkel Kópavogs kirkju. 20.45 Pósthólf 120 Lárus Halldórsson les bréf frá hlustend um. 21.05 „Valkyrjan“ óperu- atriði eftir Wagner. 21.30 Útvarps sagan; ..Vegir og vegleysur" Ing ólfur Kristjánsson les (7) 22.00 Fréttir og veðurfregnir 22.10 Á leikvanginum Sigurður Sigurðs son talar um íþróttir. 22.25 Kammertónleikar. 23.15 Dag- skrárlok. VALERIY TARSIS lifa. Hann gerði það sem hann gat fyrir „sjúklingana“, gætti þess að „lækingin“ yrði þeim ekki skaðleg og fékk þá látna lausa eftir nokkra mánuði, sem geðheila. Virð- ingin fyrir honum var slík, að enginn dirfðist að mótmæla gerðum hans eða spyrja um ástæðurnar fyrir þeim. Auk þess, hvað yrði sagt í Evrópu? Það var eitt að hirða ekki um skoðanir heima fyrir eða að verða brennimerktur sem barbari erlendis og af öllum heiminum. Þegar Nezhevsky talaði um ágæti sovétskra geðlækninga, brosti hann og sagði góðlátlega: — Við erum komnir fram úr sjúkradeild 6, það er geðslegra á þeirri 7. — Og hún er enn hryllilegri, bætti hann við i hugan- um, hann mundi eftir öllum þægindunum í Sing-Sang. Hon- um fannst ályktun læknisins í sögu Chekhovs enn þá við- eigandi: —Eftir að hafa skoðað hælið, komst hann að þeirri niðurstöðu að þetta væri siðspillandi stofnun, sem hefði hin verstu áhrif á geðheilsu sjúklinganna. Það eina, sem gat talizt skynsamlegt var að loka stofn- uninni og hleypa sjúklingum út. En til þessa hafði hann ekki vald. Það höfðu orðið nokkrar framfarir, 7. sjúkradeild- in var hrein og þokkaleg, en hún var þó enn svívirðilegri stofnun en sú 6., því að hér var beinlínis reynt að eyði- leggja menn en ekki að lækna þá. Nezhevsky fannst það ískyggileg tilviljun að hann bar sama nafn og föðurnafn og læknirinn í sögu Chekhovs og hann fann til samvizkubits þegar hann las: — Andrey Erfimovich var heiðarlegur og skynsamur maður en hann skorti skapfestu og skoðanafestu til þess að bæta lífskjör og aðstöðu þeirra sem byggðu hælið. Þótt hann væri kominn á eftirlaunaaldur (eftirlaunin myndu hrökkva fyrir fábreyttum þörfum hans) vissi hann að iðjuleysið myndi verða honum ömurlegt og því myndi fvlgja svartsýni og depurð. Hann reyndi því að „láta gott af sér leiða“ eins og þeir frjálslyndu á síðasta hluta nítjándu aldar nefndu þá stefnu sína. Þeir álitu byltingu vonlausa og reyndu því að vinna að stefnu sinni með því, sem þeir nefndu: „að láta gott af sér leiða“. Hann hafði þá hneykslazt á þeim en nú var hann orðinn gamall og þreyttur. Þótt hann gæti aðeins bjargað fáeinum einstaklingum á ári frá hælisvist var nokkuð unnið með þvi, hælisvistin var jafn þjakandi og fangabúðavistin. Og það mátti teljást árangur, að bjarga þó ekki væri nema einum manni. Andrey Efimovich var einmana.Hann þótti oft sýna sam- starfsmönnum sínum hroka, en það var ekki af meðfædd- um hroka, heldur stafaði það af því að hann hafði hina mestu ömun á embættismannalýðnum og einkum og sér í Iaglyá l8ek.nu.þi. Þíjð sn,aBt hann ónotalega. þegar. hgnn las 1^:, ofð;;:.Andrey:,lErimóiVich J .sögu Chekhovs: — Ég vinn hinu illa, ég tek við óverðskulduðum launum, ég er óhéiðárlegur. Við erum það allir, hinir opinberu embættismenn. Ég er að- eins hluti og þáttur mikils félagslegs ó.réttlætis, sem ekki verður komizt hjá . . . Óheiðarleiki minn er orsök tím- anna . . . Læknirinn í sögu Chekhovs óskaði sér, „að hann hefði lifað fyrir nokkrum öldum, Nezhevsky hafði kosið sér líf fyrir nokkrum þúsundum ára, í Hellas, landi skálda og heimspekinga. Hann var umkringdur hafsjó meðalmennsk- unnar. Hann átti ekki samleið með neinum. gat ekki talað við neinn . . . Það voru allir önnum kafnir við að vinna sér inn peninga, útvega sér húsnæði eða þægilega stöðu og þessu fylgdi rógburður, öfund og meinsemi. Tímarnir fyrir byltingu voru ólíkt geðslegri, Merezhkovsky hafði á réttu að standa, þegar hann spáði „komu þursanna." Nezhev- sky las aldrei bækur Sovéthöfunda, því að hann leit á þá sem nokkurs konar ríkisstarfsmenn. Fjölskylda hans var dreifð og hann átti enga nána vini, en hann var nýlega tekinn að veita Zoya Makhova athygli. Zoya var tuttugu og níu ára gömul og ókunnugum leizt hún stolt. Hún var dökk yfirlitum, hávaxin og bar sig vel. 0 Augu hennar voru svört, valdsmannsleg og köld. Menn álitu § hana kaldrifjaða og einbeitta, sjálfsnægjufulla og stíflund- aða. En í rauninni var hún kona, sem kvaldist og þoldi ekki ómennskuna og gat ekki einangrað sig því að hún elskaði mannkynið í fjÖlþreýtileika sínum. Hún elskaði það því meir, þar sem hún hafði orðið að fara á mis við eigin hamingju. Eiginmaður hennar var smámunasamur emb- ættismaður, læknisnefna, sem gretti sig í hvert sinn sem hann heyrði orðin, „hjarta, sál og andi.“ Þau voru barnlaus, hann áleit að börn myndu „hamla þjónustu þeirra hjón- anna við land þeirra og vísindin." Hann gat því einskorðað sig við starfa sinn. Þótt hann væri tæplega fertugur, var hann þegar aðalaðstoðarmaður heilbrigðismálaráðherrans og eftirlitsmaður allra geðveikishæla landsins. Zoya var kona hans að nafni til. Eins og þúsundir annarra hjúa deildu þau íbúð, þar sem það gat tekið allt upp undir tuttugu ár að fá íhúðir á löglegan hátt. Ýmsir kunnu ráð til þess að komast fram hjá reglugerðum og fyrirmælum um þessi efni, en Zoya var barn í slíku. Eiginmaður hennar var flokksfélagi og óttaðist að skiln- aður myndi spilla framavonum sínum, Zoyju var sama. Þau áttu fátt sameiginlegt og umgengust sem herbergisfélagar, henni fannst hún ekki vera honum á neinn hátt skuld- bundinn. Hún naut vinnu sinnar, tignaði vísindi og harmaði að í stað þess að notfæra sér árangur þeirra, giltu aðeins þurr- lc) Colllns and Harvill Press 1965

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.