Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 10

Morgunblaðið - 21.08.1987, Page 10
10 B MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 21. ÁGÚST 1987 Guðni Jón Guðbjartsson og Ragnheiður Guðmunds- dóttir opinberuðu trúlofun sína árið 1938 og giftu sig ári síðar. Á þeim tíma þekkt- ist nœr ekki að fóik byggi saman áður en það gekk f hjónaband. Við hittum Guðna og Ragn- heiði á heimili þeirra í Foss- voginum og spurðum þau fyrst hvort þeim finndust mikl- ar breytingar hafa orðið á trúlofunum frá því þau voru ung. „Þetta hefur dálítið breyst," segir Ragnheiður. „Á okkar tíma held ég að foreldr- ar hafi stjórnað meira. Þeir réðu auðvitað ekki makavali en þeir héldu brúðkaupið fyrir börnin sín og slíkt. Börn ráða sér mikið meira sjálf núna og fara jafnvel yngri að heiman. Trúlofanir fóru fram þegar parið var búið að ákveða að ganga í hjónaband. Við þekkt- um ekki dæmi þess að fólk trúlofaði sig án þess að ætla að giftast. Yfirleitt var gerður dagamunur við trúlofunina. Við Guðni trúlofuðum okkur daginn sem hann útskrifaðist úr Vélskólanum og þá var haldin mikil veisla. Það þótti sjálfsagt að fólk opinberaði trúlofun sína áður en það gifti sig. Þannig varð sambandið nánara og fólk kynntist bet- ur.“ „Síðan leið mislangur tími þangað til fólk gifti sig,“ segir Guðni. „Það fór mikið eftir efnahag. Við vorum bæði í námi og á þeim tíma voru engin námslán veitt. Þegar ég útskrifaðist komst ég í góða stöðu en það þótti gott að fá fasta atvinnu á þessum árum. Það sem gerði út um það að við gætum gifst fyrr en ella, var að við á varðskipinu Ægi björguðum norsku skipi og fengum vegleg björgunarlaun. Þegar við giftum okkur tókum við á leigu eitt herbérgi með aðgang að eldhúsi og baði og vorum óskaplega ánægð! Á þessum árum var algengt að stúlkur undirbyggju sig undir giftinguna með hús- mæðranámi sem var næstum eina menntunin sem stúlkum var boðin. Ragnheiður gerði það nú reyndar ekki því að hún var í hjúkrunarnámi. Okkurfinnst ekki bráðnauð- synlegt að fólk fari að búa saman áður en það giftir sig. Fólk verður að geta kynnst aðeins svo það viti að hverju það gengur. Um þetta mál eru auðvitað skiptar skoðanir en það er ákaflega mikið um það í dag að fólk þekki ekki hvort annað og það endar oft með skilnaði," segir Guðni. „Það fer eftir því hvernig fólk kynn- ist," heldurRagnheiðuráfram. „Tímarnir hafa breyst frá því við vorum ung. Þá þekktist næstum ekki að fólk byggi saman áður en það gekk í hjónaband. Það þótti furðu- legt. Mér finnst enn að fólk þurfi að minnsta kosti að vera hringtrúlofað. Barnabörn okk- ar hafa búið með án þess að vera hringtrúlofuð eða gift en við getum auðvitað ekki farið að ala upp annarra börn." „Auk þess býður nútímaþjóð- félagið upp á það að fólk búi saman ógift," segir Guðni. „Það er erfiðara fyrir hjón að komast af vegna þess að tveir einstaklingar fá meiri frádrátt og lánsmöguleikar eru betri en hjá hjónum. Það eru skipt- ar skoðanir um það hvort það borgi sig að ganga í hjóna- band.“ hefur þó mikla þýðingu út á við. Hún er staðfesting á samband- inu og fólk sér að við tilheyrum hvort öðru.“ Er fólk þá kannski að merkja sig? „Að vissu leyti," svarar Guð- rún, „og fólk, t.d. á skemmtistöð- um, ætti að virða það að aðili er í föstu sambandi. Það er mikilvægt að fólk kynn- ist vel áður en það tekur það stóra skref að gifta sig. Það er auðvitað misjafnt eftir einstakl- ingum hve langan tíma það tekur. Gifting getur breytt heilmiklu um samband fójks en alveg eins til hins betra. Ég held til dæmis að fólk beri meiri virðingu fyrir hvort öðru og heimilinu eftir að það er búið að binda sig í hjóna- bandi. Þú gengur ekki eins auðveldlega úr því. Auk þess er litið á hjónin sem eitt en annað gildir um sambýlisfólk." „Sambúðin er góður reynslu- tími,“ bætir Baldur við, „en hjónabandið setur meiri reglu eða formfestu á sambandið." H.l. GUÐRÚN Kristín Erlingsdóttir og Baldur Ármann Steinarsson eru búin að vera trúlofuð f rúmt ár og eru nú að festa kaup á fbúð f Hlíðunum. Saga þeirra er svipuð og hjá öðru ungu fólki. Þau voru búin að vita hvort af öðru í nokkur ár, áður en þau kynntust betur og ári eftir það voru þau trúlofuð. Nú eru þau að hefja sinn búskap í íbúð sem þau eru að kaupa. Ég spyr þau fyrst hvert sé við- horf þeirra til trúlofunar. Guðrún verður fyrir svari. „Trúlofunin er ekki takmark í sjálfri sér heldur lítum við á hana sem undanfara giftingar. Við erum bæði alin upp við það að hjónaband sé æskileg- asta sambúðarformið. Okkur finnst samt ekkert nauðsynlegt að trúlofa sig áður en maður gift- ir sig. Það hefur bara hver sinn háttinn á.“ „Okkur langaði til þess að trú- lofa okkur," segir Baldur, „en sambandið breyttist í sjálfu sér lítið við það. Við tengjumst fastari böndum en tilfinningarnar eru alltaf þær sömu. Trúlofunin Guðrún og Baldur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.