Morgunblaðið - 29.09.1987, Síða 3

Morgunblaðið - 29.09.1987, Síða 3
3«orfluitMaMt> /IÞROTTIR ÞRMJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987 B 3 HREYSTl Hið hægfara slys Færð þú bakverki af því að vera lengi í sömu stellingu? argir finna bakverki eftir að hafa setið lengi eða staðið og einstaka kannast vafa- laust við þá tilfinningu að geta tæpast rétt úr sér eftir að bogra lengi yfir einhverju verkefninu. „Verst er að ryk- suga,“ heyrir maður marga segja. En af hverju gerist þetta að menn fara að verða órólegir eftir smástund í sömu stellingunni og finna síðan til við að skipta um stellingu? Jú, væntanlega vegna þess að stell- ingin var ekki góð. Hér á efri myndinni getur að líta góða líkamsstöðu, líkam- inn er beinn og f góðu innbyrðis jafn- vægi. Hér fær hryggsúlan stuðn- ing, ekki einasta frá bakvöðvum, heldur einnig frá maga- og mittisvöðvum og um leið er passað upp að á sveigjur líka- mans séu innan skaplegra marka. Þetta er mjög mikilvægt því að í hryggsúlunni er hveijum hryggjarlið staflað ofan á þann næsta fyrir neðan og það gildir jú um það sem maður staflar upp að minnst hætta er á hruni ef staflinn er beinn! Þetta má þó enginn skilja svo að hryggsúl- an eigi að vera þráðbein. Ef svo væri myndi vanta í hana alla fjöðrun. Hinsvegar er það mín skoðun að maðurinn eigi sífellt að reyna að vera svolítið beinni en honum er tamt, flestir eru nefnilega að kikna undan þyngdaraflinu og verða hoknir í herðum og með framsettan kvið strax á besta aldri. Um leið og maður teygir betur úr hryggsúlunni fær hún allan nauðsynlegan stuðning frá vöðvum umhverfis hana, en fái hún að síga saman „hangir“ húr. beinlínis uppi á spennu liðband- anna sem umlykja hvern lið í líkamanum. Það er þama sem skaðinn skeður því engin liðbönd þola iangvarandi teygingu. Svo á meðan við bogrum yfir ryksug- unni eða sitjum eins og hrúgöld þá eru liðböndin að togna. Allir eftir að bakið hefur verið í slæmri stellingu. í slæmu stell- ingunni er nefnilega einhver hryggjarliðurinn teygður út fyr- ir sín eðlilegu mörk, liðfletir hans hætta að standast rétt á og þegar aftur á að rétta úr, finnum við til. í sinni verstu mynd getur svona birst sem „skessuskot" í mjóbaki og hægt er að skýra „hálsríg" á sama hátt. Hvað ber okkur þá að varast? í síðasta pistli talaði ég héma um slæmar setstellingar sem vissu- lega hafa eyðilagt margt bakið en við sjúkraþjálfarar höfum ekkert síður ímugust á öðm hokri eins og t.d. þegar menn standa hálfbognir yfir vinnu sinni í stað þess að færa verk- efnin upp í olnbogahæð og rétta síðan úr sér. Margir kynnu þá að segja sem svo: „Ég kemst ekki hjá því að beygja mig í minni vinnu." Því er þá til að svara að hægt er að haila sér fram án þess að beygja bakið, einfaldlega með því að setja spennu á maga- og bakvöðva og beygja svo frá mjöðmunum. Þetta gildir sem dæmi við öll algeng heimilisstörf svo sem við ryksuguna, við upp- þvottinn og við að búa um rúm. Ég skal þó vera fyrstur til að viðurkenna að það er meira en að segja það að venja sig af því sem maður hefur gert rangt í áravís. En prófaður að byija. Hallaðu fram yfír vinnuna án þekkja tognanir af afspurn ef ekki af eigin reynslu, þannig hafa t.d. flestir orðið fyrir því að togna á ökkla. En liðböndin geta ekkert síður tognað af hægfara, stöðugu álagi. Við slíkar kringumstæður finnum við engan skerandi sársauka, ekkert slitnar og ekki kemur út mar. En engu að síður verður slys. Hægfara slys þó svo að mörg ár geti liðið áður en afleið- ingar þess fara að valda veru|eg- um óþægindum. Og þarna er komin skýring á því hvers vegna erfitt getur verið að rétta úr sér þess að leyfa bakinu að bogna. Stutta stund í einu til þess að byrja með. Sjálfsagt ferðu fljótt að finna fyrir þreytu í rassvöðv- um en það skildi þó aldrei vera vegna þess að þeir eru ekki notaðir rétt dagsdaglega? Líkaminn mótast jú eftir því hvemig við notum hann á hveij- um degi allan daginn, ekkert síður en eftir því hvaða leikfimi við kunnum að gera 2—3 sinnum í viku. ' Hilmir Agústsson IÞROTTASAMBOND NORÐURLANDA Þátttakendur á fundi samstarfsnefnda íþróttasambanda Norðurlanda á Homafirði í byijun mánaðarins. Samstarfsnefndin lýsir áhyggjum vegna takmarkaðs fjárstuðnings Norræna menningarmálasjóðsins SAMSTARFSNEFND íþrótta- sambanda Norðurlandanna (Felleskomiteen), sem í eiga sæti um 40 manns, hélt fund á Hótel Höfn í Hornafirði 3.-6. september sl. í umsjá íþrótta- sambands íslands. Norræna samstarfsnefndin samanstendur af fulltrúum frá Danmörku, Finnlandi, Færeyj- um, íslandi, Noregi og Svíþjóð, og að þessu sinni áttu Græn- lendingar tvo áheyrnarf ulltrúa ífyrsta sinn. Sveinn Björnsson forseti ÍSÍ setti fundinn með ávarpi. Fund- arstjóri var Gísli Halldórsson heiðursforseti ÍSÍ og fundarrit- arar Magnús H. Ólafsson og Edda Jónsdóttir. Það er meginmarkmið nefndar- innar að vera ráðgefandi aðili í íþróttamálefnum landanna, mynda með þeim samræmt skipulag og markmið og skapa sem viðtækasta samstöðu í alþjóðlegum samtökum. Fundurinn fjallaði um mörg mikilvæg málefni varðandi norrænt íþróttasamstarf og hér á eftir verður getið nokk- urra þeirra og ályktana fundar- ins. 1. Fjárstuðnlngur Norrœna menningarmálasjóðsins Samstarf íþróttafólks og íþróttaleiðtoga er mikilvægur þáttur í norrænu samstarfi. Fundar- menn árétta — eins og þeir raunar hafa gert á fyrri fundum — von- brigði sín með hversu takmörkuðu fjármagni Norræni menningar- málasjóðurinn ver til stuðnings þessum þýðingarmikla þætti. Sérstaklega verður það að teljast mikilvægt, að unglingum á jaðar- svæðum, eins og t.d. Grænlandi, íslandi og Færeyjum, gefist tæki- færi að heimsækja og fá til sín í heimsókn íþróttaiðkendur frá hin- um Norðurlöndunum. Samstárfsnefndinni er ljóst, að nú- verandi framlag er fjarri því að vera i samræmi við þarfir og ákvað því að leggja fram í enn ríkari mæli aukinn rökstuðning fyrir um- talsverðri aukningu á fjárstuðningi sjóðsins. Sem lið í slíkum rökstuðn- ingi ákvað samstarfsnefndin, að íþróttasambönd Norðurlandanna í sameiningu byðu til íþróttamálaráð- stefnu á fyrri helmingi næsta árs. Til þeirrar ráðstefnu yrði boðið menntamálaráðherrum allra land- anna, fulltrúum í menningarmála- nefnd Norðurlandaráðs, svo og þeim fulltrúum í viðkomandi ráðu- neytum sem annast íþróttamálefni. Jafnframt er vakin athygli á, að auk fjárframlags frá Menningar- málasjóðnum mætti efla norrænt samstarf með hagstæðari flugfar- gjöldum og var bent á í því sambandi, að miklu ódýrara er að fljúga sömu vegalengd frá höfuð- borgum Norðurlandanna ef flogið er til Suður-Evrópu en til Norður- Evrópu. 2. íþróttir og flölmiölar Á fundi samstarfsnefndarinnar fyr- ir tveimur árum í Osló, var sett á fót sérstök nefnd, skipuð fulltrúum allra landanna, til að gera úttékt á stöðu og tengslum íþróttanna gagn- vart fjölmiðlum. Nefndarálitið lá fyrir þessum fundi og verður tekið til umfjöllunar af stjórn hvers íþróttasambands. íþróttasamböndin leggja á það áherslu að eiga gott og opinskátt samstarf við fjölmiðla. Á fundinum nú voru aðilar sam- mála um eftirfarandi: — að ’ leggja höfuðáherslu á að tryggja eignarrétt íþróttahreyfing- arinnar á öllum íþróttaviðburðum sem fjallað er um í fjölmiðlum — beinar útsendingar í sjónarpi og útvarpi eigi sér stað samkvæmt samningi milli sérsambandanna og sjónvarps/útvarps — að sjónvarpi beri að leggja eðli- legt markaðsmat á íþróttir sem dagskrárefni — að íþróttirnar eigi ekki að berá neinn kostnað af dagskrárgerð í sjónvarpi/útvarpi — að sjónvarp/útvarp viðurkenni auglýsingar sem einn af mikilvæg- ustu tekjustofnum íþróttanna — að reyna að koma á samræmd- um norrænum reglum í sambandi við sjónvarpsauglýsingar — að taka jákvæða afstöðu til sam- eiginlegrar norrænnar gervihnatta- sendingar Samstarfsnefndin telur það mikil- vægt að varðveita norrænan íþróttaáhuga og sérkenni, sem hluta af norrænni menningu. íþróttasambönd Norðurlandanna munu áfram fylgjast grannt með fjölmiðlaþróuninni og efna til nauð- synlegra skoðanaskipta og sam- starfs. 3. Norrænar reglur varöandi lyflaoftlrlh íþróttasambönd Norðurlandanna hafa frá því á fundi sínum í Svíþjóð 1983 starfað eftir sameiginlegum reglum varðandi lyfjaeftirlit. Þann- ig er framkvæmd á eftirliti og sýnatöku með sama hætti í öllum löndunum. Gerist aðilar brotlegir við reglur um lyQaeftirlit, hvort heldur um er að ræða iðkendur eða leiðtoga, er þeim refsað skv. þeim lögum og reglum er gilda í hverju landi. 4. Samstarf á alþjódavett- vangi Samstarfsnefndin leggur áherslu á, að norræn íþróttasamtök þurfi að vera meira samstiga til að hafa aukin áhrif í alþjóðlegum íþrótta- samtökum. Sama gildi í þeim tilvik- um þegar fleiri en eitt Norðurland- anna sæki um að annast framkvæmd alþjóðamóta, t.d. heimsmeistaramóta, Evrópumóta, Ólympíuleika, alþjóðlegra funda o.s.frv. Framkvæmdastjórum íþróttasam- bandanna var falið að fjalla sérstak- lega um þessi mál og leggja niðurstöður sínar fyrir næsta fund nefndarinnar. 5. Friöarsýning íþróttaiök- enda í Finnlandi Fundur samstarfsnefndarinnar lýsti stuðningi sínum við framkomna til- lögu finnsku sendinefndarinnar um að efna til sérstakrar „friðaríþrótta- sýningar/keppni" í Finnlandi í lok næsta árs eða bytjun ársins 1989. Blað um þátttöku í þessum sér- stæða íþróttaviðburði verður sent íþróttasamböndum og íþróttaiðk- endum í þeim löndum Evrópu og N-Ameríku, sem undirrituðu örygg- issáttmálann í Helsingfors 1975, auk annarra landa sem æskilegt er talið að verði þátttakendur. Lögð skal áhersla á þátttöku afreksí- þróttafólks. 6. íþróttir og konur Norræna samstarfsnefnd leggur áherslu á mikilvægi þess að starf- semi íþróttasamtakanna verði með þeim hætti, að fleiri konur taki þátt í starfinu, bæði sem leiðbeinendur/ leiðtogar og iðkendur. Þeir starfshópar innan íþróttasam- bandanna, er láta sig einkum varða framvindu þessa þáttar, munu eiga samstarf með skoðanaskiptum og fundarhöldum hver öðrum til upp- örvunar og hvatningar. íþróttasamböndin eru á einu máli um, að á hinni fjölmennu alþjóðlegu kvennaráðstefnu í Osló í ágúst 1988, verði gerð glögg grein fyrir viðfangsefninu „Konur og íþróttir" og sýnt fram á hversu líkamsæfing- ar og útivera eru þýðingarmikill þáttur í vellíðan einstaklingsins. Iþróttasamband Danmerkur bauð til næsta fundar í samstarfsnefnd- inni haustið 1989. Samhliða fundinum gafst þátttak- endum kostur á að heimsækja sjávarafurðadeild KASK og þiggja veitingar. Einnig gafst kostur á að fara á hestbak, leika golf, fara í sund og gufubað o.fl. Loks var far- ið í bátsferð á Jökulsárlóni. Þátttakendur í fundinum rómuðu mjög allan viðurgerning hótelsins og heimamanna. Fréttatilkynning frá ÍSÍ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.