Morgunblaðið - 29.09.1987, Qupperneq 4
4 B
Nýjungar
Ginseng (panax ginseng C.A.
Meyer) af haesta gæðaflokki frá
Kóreu. Ginseng er ma. notað til
að styrkja mótstöðuafl líkam-
ans gegn streitu og sjúkdóm-
um.
J/ti TÓfíÓ
Þessir fjórir afoxarar, selen, E og
C vítamín og /3-karótín (for-
veri A vítamíns) eyða óæskileg-
um sindurefnum í fæðu og
sígarettureyk og eru álitin góð
krabbameinsvörn. Margir nær-
ingarfræðingar telja þetta
heppilegustu bætiefnasam-
setningu á markaðinum í dag.
Hollar fjölómettaðar fitusýrur
fyrir hjarta og æðakerfi. Ekkert
annað lýsisþykkni á islandi er
jafn ríkt af omega-3 fitusýrum,
þ.e. 50% innihald af EPA og
DHA. Hylkin innihalda ekki A
og D vítamín.
Gerið verðsamanburð.
TÓRÓ HF
S/öumúla 32, 108 Reykjav/k, o 686964
jMoraunlitaMÍ) /IÞROTTIR ÞRHXJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
HANDKNATTLEIKUR / EVROPUKEPPNIN
Auðveldur sigur Víkinga
á „nýja Laugaveginum!"
Víkingar sigruðu Liverpool
Handball Club 29:13 í fyrri leik
liðanna í 1. umferð Evrópu-
keppni meistaraliða, sem fram
fór í Liverpool á Englandi á
sunnudaginn. Staðan í hálfleik
var 10:5.
ins og við var búist voru Eng-
lendingamir slakir og sigurinn
því auðveldur. Siggeir Magnússon
var markahæstur með 9 mörk,
Bjarki Sigurðsson gerði 8, Guð-
mundur Guðmundsson 4, Hilmar
Sigurgíslason 3, Árni Friðleifsson
og Ingólfur Steingrímsson 2 hvor
og Karl Þráinsson 1 mark.
Leikurinn var sögulegur, níu Eng-
lendingum var vikið af velli í tvær
mínútur, í flest skiptin fyrir að
hanga aftan í leikmönnum Víkings,
en Víkingar voru aldrei reknir af
velli. Höllin sem leikið var í var
ekki af löglegri stærð, var minni
en salurinn í gamla Hálogalandi að
sögn Víkinganna. Og ekki nóg með
það: gólfið var eins og nýji Lauga-
vegurinn, lagt tígulsteinum!
Síðari viðureign liðanna fer fram
hér á landi um næstu helgi. Hann
verður að sjálfsögðu einungis
formsatriði, eftir úrslitin á sunnu-
daginn. Englendingunum stóð til
boða að leika báða leikina á heima-
velli sínum, en þeir vildu ekki missa
af ferðinni, vildu heimsækja þessa
miklu handboltaeyju, eins og þeir
orðuðu það við Víkingana.
Víkingar fóru út síðari hluta laugar-
dags, gistu í London og óku síðan
upp til Liverpool eldsnemma á
sunnudeginum. Eftir leik héldu þeir
svo suður á bóginn á ný.
Hátt fall Breiðabllks
Liðið tapaði með 17 marka mun gegn HIK í Danmörku
„ÞETTA vareinn af þessum leikjum, þar sem
ekkert gengur upp. Við vorum mjög vel undirbún-
ir, mótherjarnir komu okkur ekki á óvart, en eftir
15-20 mínútna leik hrundi leikur okkar algjör-
lega,“ sagði Geir Hallsteinsson, þjálfari Breiða-
bliks, eftir 28:11 tap liðsins gegn danska liðinu
HIK í Evrópukeppni félagsliða í handbolta.
Að sögn Geirs var leikurinn í jafnvægi fyrsta stundar-
fjórðunginn, en þá var staðan 9:7 fyrir Danina.
„Þar með var þessu lokið. Við nýttum ekki færi og það
var sama hvað reynt var — ekkert gekk upp. HIK er
sterkt lið o g rúllaði SKA Minsk upp á æfíngamóti á dögun-
um, vann Rauðu Stjörnuna og Barcelona í Evrópukeppn-
inni í fyrra með fjórum mörkum á heimavelli, en 17
marka tap er ekki eðlilegt," sagði Geir.
Fjölmargir íslendingar hvöttu UBK til dáða, en þeir urðu
fyrír miklum vonbrigðum. í hálfleik var staðan 13:8 og
skoruðu því leikmenn UBK aðeins þrjú mörk eftir hlé.
Hans Guðmundsson var markahæstur með ijögur mörk,
en sjö leikmenn skoruðu sitt markið hver.
Seinni leikurinn verður í Laugardalshöll á laugardaginn
og taldi Geir að miðað við eðlilega getu ætti Breiðablik
möguleika á sigri.
Björn Jónsson og félagar í Breiðabliki urðu að sætta sig við stóran ósigur gegn HIK um helgina.
ANDKLÆÐA
ÞURRKARI
Handklæðahitari fyrir handklæði.
Hlý og smekkleg nýjung,
sem þurrkar og hitar handklæðið þitt.
Notar orku eins og Ijósapera.
Verð aðeins kr. 6.790.—
LÆKJARGÖTU 22 HAFNARFIRÐI SÍMI 50022
▲IPÁM
UÓSAPERUR
L0GA
LENGUR
FINNSK FRAMLEIÐSLA
Heildsölubirgöir
JpÞÝSK-ÍSLENSKAHF
■ ■ Lynghálsi 10-110 Reykjavík - Sími: 82677
Hollar fjölómettaðar fitusýrur
fyrir hjarta og æðakerfi. Ekkert
annað lýsisþykkni á Islandi er
jafn rlkt af omega-3 fitusýrum,
þ.e. 50% innihald af EPA og
DHA. Hylkin innihalda ekki A
og D vttamín.
Gerið verðsamanburð.
Jtfi TÓRÓ HF
Siöumúla 32. I08 Reykjavik. o 686964