Morgunblaðið - 29.09.1987, Page 5
ij L
-,r. OSTTfVftlliV d£MÍ*kY«VMM*<**ltfl?
IHoygmiblaMb /IÞROTTIR ÞRŒXJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
B 5
VERTÍÐ
amir hafa tryggt sér þar sæti
og enginn þeirra vili eiga á
hættu að detta úr hópnum. Þeir
hafa alla tíð gefið allt í hand-
boltann og fastlega má gera ráð
fyrir að þeir gefi örlítið meira í
vetur til að vera sem best undir-
búnir fyrir lokaátökin í Seoul í
september á næsta ári.
Fyrirkomulag mótsins er með
öðrum hætti en áður — leikið
verður í tveimur lotum. Fyrstu
níu umferðimar verða leiknar á
rúmum sex vikum, en hlé verður
gert á deildinni frá miðjum nóv-
ember og fram í lok janúar
verið leikið og eykur það óviss-
una og um leið spennuna.
„Valsmenn hafa Einar Þorvarð-
arson og hann gerir gæfumun-
inn,“ sagði ónefndur þjálfari við
mig í gær, en samkvæmt spá
forráðamanna félaganna verður
Valur íslandsmeistari að þessu
sinni. Valsmenn eru óneitanlega
sigurstranglegir, en víst er að
stigin nást ekki án fyrirhafnar
og vertíðin er rétt að hefjast.
Góða skemmtun!
Steinþór
Guðbjartsson
1. deild karia í handknattleik hefet á morgun
Atvinnumenn komnir heim og lífga mikið upp á deildina
Gera má ráð fyrir skemmtilegu og spennandi móti
Atli Hilmarsson leikur með Fram ( vetur
að dást ,að snilli hans.
og eiga áhorfendur örugglega oft eftir
Annað kvöld hefst 1. deiid
karla í handknattieik.
Margt bendir til þess að kom-
andi keppnistímabil verði mun
skemmtilegra en það síðasta.
Þar ber fyrst að nefna að Einar
Þorvarðarson, Sig-
urður Gunnarsson
og Atii Hilmarsson,
þrír af bestu hand-
knattleiksmönnum
Íslands, eru komnir
heim og leika með
íslenskum 1. deiid-
arliðum eftir að hafa
gert garðinn fræg-
ann í atvinnu-
mennsku erlendis.
Margir þekktustu
þjálfarar heims og
margfalt fleiri leik-
menn telja Einar
einn besta mark-
manninn í íþróttinni.
Sigurður og Atli
hafa staðið sig mjög
vel með landsliðinu
og eiga örugglega
eftir að skemmta
áhorfendum oft í
vetur með félagslið-
um sínum. Þá má
nefna að Gunnar
Einarsson þjálfar
Stjömuna og hver
veit nema hann eigi
eftir að leika með
liðinu í vetur. Sem kunnugt er
var Gunnar einn af bestu hand-
knattleiksmönnum landsins
fyrir nokkrum árum og hélt
uppteknum hætti í Noregi, en
þaðan kom hann í sumar.
Árangur landsliðsins hefur ekki
farið framhjá neinum. Það und-
irbýr sig markvisst fyrir
Ólympíuleikana í Seoul í Suður-
Kóreu og flestir leikmanna þess
verða í eldlínunni í 1. deild í
vetur. Takmark allra áhuga-
manna er að keppa á Ólympíu-
leikum, íslensku landsliðsstrák-
vegna landsleikja. Seinni hluti
mótsins hefst 24. janúar og 18.
og síðasta umferðin verður 30.
mars. Best væri fyrir alla að
hafa ekkert hlé, en betra er að
hafa eitt langt en að marg slíta
Styrkur
Slgurður Gunnarsson styrkir lið ís-
landsmeistara Víkings mikið enda fer þar
ein helst skytta landsins.
mótið í sundur. Þá eru umferð-
imar yfírleitt á miðvikudögum
og sunnudögum og getur áhuga-
fólk um handbolta skipuiagt
frítíma sinn út frá því. Auðvitað
hefði verið betra að hafa alla
leiki á miðvikudögum og sunnu-
dögum og vonandi verður
niðurröðunin þannig næst.
Leikimir fara fram i fímm
íþróttahúsum á Akureyri, i
Reykjavík, Kópavogi og Hafnar-
firði. í tveimur þessara húsa,
iþróttahúsi Seljaskóla og
íþróttahúsi Vals, hefur ekki fyrr
^ --
Mmmm
FOLX
Reykjavíkurmeistarar Vals í handknattleik
Valur varð Reykjavíkurmeistari í handknattleik á dögunum og eru á myndinni með bikarinn, en forráðamenn félaganna í
1. deild spá Valsmönnum fslandsmeistaratitlinum í vetur.
■ VALUR verður íslandsmeist-
ari í 1. deild karla í handknattleik
1987-88 samkvæmt spá forráða-
manna 1. deildarfélaganna, en
mótið hefst annað kvöld. Hvert fé-
lag fékk þrjá atkvæðaseðla, þar sem
spá átti um endanlega röð. Fyrsta
sæti gaf eitt stig, annað sætið tvö
stig og svo kolli af kolli. Valsmenn
fengu samtals 58 stig, Víkingur
fékk 80 stig, FH 117, Fram 127,
Breiðablik 133, KA 156, Stjarnan
213, KR 213, ÍR 267 og Þór 286.
■ ÓLAFUR Viggósson, ungl-
ingalandsliðsmaður í knattspymu,
sem leikið hefur með Þrótti á Nes-
kaupstað, er genginn yfír í KR.
Ólafur, sem er mjög efnilegur mið-
heiji og enn í 2. flokki, fer í skóla
í Reykjavík í vetur og á örugglega
eftir að vekja athygli í 1. deild
næsta ár.
■ SVEINBJÖRN Hákonarson,
einn besti maður Skagamanna í
fótboltanum í sumar, flutti til
Reykjavíkur um helgina og sam-
kvæmt heimildum Morgunblaðsins
ætlar hann að skipta um félag og
leika með Reykjavíkurliði næsta ár.
Og nú er það spumingin hvort hann
velji Val eða Fram eða KR eða
Víking, en víst er að hann styrkir
hvaða lið sem er. Sama má segja
um konu hans, Rögnu Lóu Stef-
ánsdóttur, sem hefur verið lykil-
leikmaður í kvennaliði ÍA, en fer
nú í annað félag. Valur og KR
hafa bæði heyrst nefnd í því sam-
bandi.
■ GUÐFINNUR Ólafsson var
endurkjörinn formaður Sundsam-
bands íslands á ársþinginu, sem
fram fór á ísafírði um helgina.
Kristinn Kolbeinsson kom nýr inn
í aðalstjóm og Halldór Ragnars-
son og Guðmundur Páll Jónsson
vom kosnir í varastjóm ásamt Sig-
rúnu Guðmundsdóttur, sem var
þar fyrir. í aðalstjóm vom einnig
endurkjörin Ellen Ingvadóttir, Jón
Helgason og Ingimundur Ingi-
mundarson.
Þingið var átakalítið og málefna-
legt og var almenn samstaða um
ársreikningana, en hagnaður var
rúmlega milljón krónur 31. júlí.
■ KNA TTSP YRNUFÉLA GIÐ
Árvakur lagði sitt af mörkum til
að leikmenn 1. deildarliðs KR
kæmust í frí í sólina á Spáni að
loknu keppnistímabilinu. KR-ing-
arnir gáfu út myndarlegt blað,
Báruna, til að fá upp í ferða-
kostnað og ekki stóð á Arvakurs-
mönnum að styrkja góðan
málstað. Sigurður Indriðason,
framkvæmdastjóri Arvakurs, fór
með í ferðina sem fulltrúi síns fé-
lags, en aðrir styrktaraðilar sátu
eftir heima.
■ ALESSANDRO Andrei,
heimsmethafí í kúluvarpi, sigraði
Wemer Guenthoer, nýkrýndan
heimsmeistara, á frjálsíþróttamóti
í Sviss um helgina. Andrei sigraði
í kúluvarpi á OL 1984, fjórbætti
heimsmetið á móti í Ítalíu, en hafn-
aði í 2. sæti á eftir Guenthoer á
HM 10 dögum síðar. ítalinn varp-
aði kúlunni 21.63 m um helgina,
en Svisslendingurinn 21.31 m, en
hann hafði sigrað í 15 mótum í röð
á árinu.
■ TOMATY Docherty, sem var
heiðursgestur á lokahófi 1. deildar-
leikmanna í knattspymu í fyrra, er
mættur í slaginn á ný. Sem kunn-
ugt er á hann einn litríkasta
knattspymuþjálfaraferil að baki í
Englandi sem um getur, hefur þjálf-
að 12 lið auk skoska landsliðsins.
Nú hefur hann tekið við stjóminni
hjá utandeildarliðinu Altríncham
og hefur sett stefnuna á að koma
liðinu í deildakeppnina. „Utan
deilda er þetta lið á við Manchester
United í deildarkeppninni,“ sagði
Tommy og var hinn brattasti að
vanda.
■ STEINN Guðjónsson hefur
leikið með Vard í 2. deild norsku
knattspymunnar. Steinn hefur ekki
verið í náðinni að undanfömu og
fer frá liðinu í lok keppnistímabils-
ins, en þrír leikir eru eftir. Steinn
er 23 ára og lék með Fram áður
en hann fór til Noregs og er líklegt
að hann fari aftur til gömlu félag-
anna.
Bronzskórinn til Reykjavíkur!
Sveinbjöm Hákonarson, sem hér er í góðum félagsskap í Naustinu síðastliðinn föstudag, er fluttur til Reykjavíkur og
hefur ákveðið að leika með einhveiju Reykjavíkurfélaganna næsta sumar. Það verður mikill missir fyrir Skagamenn en
að sama skapi hagnaður fyrir það lið sem hreppir hann, því Sveinbjöm er mikill keppnismaður. Það er þvi ljóst að
bronzskórinn sem Sveinbimi áskotnaðist á föstudaginn verður ekki brúkaður á Skaganum næsta sumar. Hér er hann
.. ásamLHalidóri. Áskelssyni,_Pétri Qrmslev. og-Jónasi Hallgrímssym.. ------