Morgunblaðið - 29.09.1987, Qupperneq 6
6 B
PwttiuiMaMb /IÞROTTIR ÞKŒUUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987
KNATTSPYRNA / ISLANDSMOTIÐ 2. DEILD
Þorvaldur besti leikmaðurinn
ÞORVALDUR Jónsson, fyrirliði
og markvörður Leifturs frá Ól-
afsfirði, varð oftast leikmanna
2. deildar kosinn maður leiks-
ins á íslandsmótinu í knatt-
spyrnu 1987.
Þorvaldur Jónsson lék mjög vel
í marki Leifturs og bjargaði
liðinu oft frá tapi. Leiftur fékk á
sig fæst mörk allra liða í deildinni,
eða alls 22, og komst liðið upp í
1. deild eftir aðeins éins árs veru í
2. deild — góður árangur það.
Þorvaldur var alls fimm sinnum
kosinn maður leiksins og var sá
eini sem náði því. Tveir leikmenn
náðu að hljóta tilnefninguna fjórum
sinnum. Það voru þeir Jóhann Þor-
varðarson, fyrirliði Víkings, og
Mark Duffíeld úr KS frá Siglufirði.
Fimm leikmenn náðu að verða kosn-
ir þrívegis. Þeir voru Ámi Ólafsson,
Einherja, Bragi Bjömsson, ÍR, Haf-
steinn Jakobsson, Leiftri, Heimir
Karlsson, ÍR og Trausti Ómarsson,
Víkingi.
JHtvgunfrliiteliftÍfe
Urvalsliðið
2. deild íslandsmótsins í knatt-
spyrnu hefur sjaldan verið eins
jöfn og spennandi og í sumar.
Það var ekki Ijóst fyrr en í
síðustu umferð mótsins
hvaða tvö lið kæmust upp
í 1. deild. Það kemur í hlut j
Víkingings og Leifturs að
leika í 1. deild aðári. Á
botni deildarinnar var
einnig mikil spenna.
ÍBÍvarreyndarfallið /
í 3. deild eftir 15 /
umferðir en ekki /
var útséð hvaða
lið fylgdi þeim
fyrr en í næst /
síðustu um-
ferð. Einherji
hlaut það
hlutskipti.
/ - '
s
$
/
i
Ingvaldur
•Gústafsson
UBK (2)
Mark
Duffield
Jóhann
■“ KS (4)
Þorva r ðarson
Víkingi (4)
, Árni
Ólafsson
Einherja (3)
Þórarinn
Ingólfsson
Selfossi (2)
Hafsteinn
Jakobsson
Leiftri (3)
Hlynur
Stefánsson
(BV (2)
Bragi
Björnsson
ÍR (3)
Trausti
Ómarsson
Víkingi (3)
Heimir
Karlsson
ÍR (3)
Morgunblaðió/ GÓI
HANN hefur leikið í 1. deild í
handknattleik og knattspyrnu,
er margfaldur íslandsmeistari
í skíðastökki og norrænni
tvíkeppni og varð Ólafsfjarðar-
meistari í golfi á síðasta ári.
Hann er fyrirliði og markvörður
Leifturs sem tryggði sér sæti
í 1. deild og var besti leikmaður
2. deildar í sumar að mati
íþróttafréttamanna Morgun-
blaðinu. Þessi lýsing á við
íþróttamanninn Þorvald Jóns-
son frá Ólafsfirði.
Það var ekki hlaupið að því að
ná í Þorvald því hann var
staddur út á sjó. Hafði farið út með
togaranum Sigurbjörgu ÓF - ætl-
aði að vinna sér inn
Valur pening áður en hann
Jónatansson færi í háskólann. En
skrifar þar stUndar hann
nám í viðskipta-
fræði. Við urðum því að leita á
náðir loftskeytastöðvarinnar á
ísafirði til að ná talstöðvarsam-
bandi við Sigurbjörgu sem var á
veiðum á Halamiðum.
„Þetta tímabil er búið að vera ein-
stakt hjá okkur og það besta sem
ég hef átt í knattspymunni. Við
settum okkur það markmið í vor
að halda sætinu í 2. deild, en síðan
þróaðist mótið þannig að við vorum
fljótlega komnir á toppinn og héld-
um okkur þar út tímabilið," sagði
Þorvaldur Jónsson, fyrirliði Leift-
urs, í samtali við Morgunblaðið.
Hverju þakkar þú þennan góða
árangur Leifturs í sumar?
„Heimavöllurinn hefur verið okkur
mikilvægur í baráttunni. Við höfum
ekki tapað deildarleik á Ólafsfirði
í tvö ár, eða síðan Óskar Ingimund-
arson tók við þjálfun liðsins.
Liðsheildin hefur einnig verið mjög
góð. Við höfum spilað mikið saman
og erum famir að þekkja vel hvem
annan. Svo má ekki gleyrna þeim
fjölmörgu Ólafsfirðingum sem stutt
hafa við bakið á okkur. Sjómenn
hafa ekki látið sitt eftir liggja -
styrkt okkur og lifað sig inní þetta
með okkur.“
Nú leika Leiftursmenn í 1. deild
næsta sumar. Hvernig leggst það
í þig?
Þorvaldur er flölhæfur íþróttamað-
ur. Hann hefur náð góðum árangri í
knattspymu, handknattleik, á skíðum
og í golfi.
„Bara vel. Það er alltaf gaman að
takast á við nýtt verkefni. Við höf-
um fæstir leikið í 1. deild áður, en
það eru allir staðráðnir í að leggja
sig alla fram. Við verðum líka að
fá nýja leikmenn ef við ætlum okk-
Þorvaldur
Jónsson
Fæddur: 17.05. 1964.
Árangur í knattspyrnu: Siguvegari í 3. deild með
Leiftri 1986, 2. sæti í 2. deild með sama liði 1987.
Lék með KA í 1. deild 1984.
Árangur í handknattleik: Sigurvegari í 2. deild
með KA 1985.
Árangur í skíðaíþróttum: íslandsmeistari í skíða-
stökki og norrænni tvíkeppni 1980 til 1985.
Árangur í golfi: Ólafsfjarðarmeistari 1986.
WSmmœ
Þorvaldur Jónsson, fyrlrllöl og markvörður Leifturs, var oftast kosinn maður leiksins i 2. deildarkeppninni í knatt-
spymu í sumar. Hann fékk á sig 22 mörk í 18 leikjum.
ur að eiga raunhæfa möguleika á
að halda sæti okkar þar því það er
mikill munur á 1. og 2. deild. Ég
vona að við verðum erfiðir á heima-
velli eins og við höfum verið síðustu
tvö árin.“
Hver var ykkar besti leikur í
sumar að þínu mati?
„Ætli það hafi ekki verið bikarleik-
urinn á móti Fram. Þótt við höfum
tapað leiknum urðu Framarar að
hafa mikið fyrir sigrinum. Leikur-
inn gegn Víkingi, sem við unnum
3:1, var einnig vel spilaður."
Ekki tapað deildar
leik heima í tvö ár
j;nn9vá ibaui ö9m
nibaism/iaóæ-pí "63-8881 uaiJidfi/niíÆ
i