Morgunblaðið - 29.09.1987, Side 7

Morgunblaðið - 29.09.1987, Side 7
Htgrgnttftlaftifr /ÍÞRÓTTJR ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987 B 7 KNATTSPYRNA Við vitum að þeir geta sólt — hví ekki að fá úr því skor- ið hvort þeir geta varist? lan Ross, þjálfari Vals, ræðir um Evrópuleikinn á morgun og fleira Morgunblaðiö/Sverrir Glatt á hjalla Það er glatt á hjalla þama hjá Bretunum sem þjálfuðu hér á landi í sumar. Lengst til vinstri er Ian Ross, Val, þá Ian Flemming þjálfari FH og til hægri er Gordon Lee, þjálfari KR-inga. Þeir höfðu mismikla ástæðu til að fagna í sumar, en vonandi verður Ross jafn brosmildur eftir leikinn á morgun og hann er þama. IAN ROSS hefur nú þjálfað Valsmenn í fjögur ár. Á þeim tíma hafa hans menn hampað íslandsbikarnum tvívegis og jafn oft orðið í öðru sœti. Valsmenn léku oft vel í sumar og tryggðu sértitilinn þrátt fyrir að afleitlega gengi að að skora um tíma. Og nú er það Evrópuslagurinn sem allt snýst um — þeir gerðu markalaust jafntefli við aust- ur—þýska liðið Wismaut Aue ytra fyrir hálfum mánuði og mœta Þjóðverjunum aftur á morgun í Laugardalnum. Þá er að duga eða drepast; Vals- menn œtla í 2. umferð, og virðast eiga nokkuð góða möguleika á því. Við „Roscoe" spjölluðum sam- an í Valsheimilinu á laugar- daginn; skömmu eftir að hann og strákamir tróðu upp í Kringlunni WBBKRKKttM og sungu þar m.a. Skapti sérstakan baráttu- Haligrímsson söng Jakobs skrífar Magnússonar vegna leiksins á morgun. „Ég er heppinn með þennan hóp. Þegar ég kom til félagsins voru Valsmenn á niður- leið knattspymulega. Þjálfarinn á undan mér hafði ekki verið nógu ákveðinn, skilst mér, og það voru strákamir sem réðu ferðinni. Ekki það að ég sé einhver harðjaxl — menn halda það bara. Það eina sem ég þarf að sjá um héma er að strákamir hafí gaman af því sem þeir em að gera. Og það hafa þeir svo sannarlega núna. Þeim líður vel saman, hvort sem það er á æfíngum eða annars stað- ar; ég man ekki eftir annari eins stemmningu í hóp síðan ég var hjá Liverpool. Þá var samkenndin líka svona gífurleg. Það var alveg sama hvar við voram staddir í heiminum. Menn vora ætíð ákveðnir í því að bregðast ekki félögunum." Þú hefur oft farið í Evrópuleiki en mér skilst að ferð ykkar til Austur—Þýskalands hafi verið ein sú sögulegasta. „Já, ég hef farið margar ferðir og þetta er sú allra versta. Ég hef farið á skemmri tíma til Astr- alíu en það tók okkur að komast á áfangastað í Austur—Þýska- landi! Þangað fór ég einu sinni á 22 tímum en nú voram við 24 klukkustundir á leiðinni. Aust- ur—þýskar langferðabifreiðir era ekki þær bestu í veröldinni, en í einum slíkum sátum við frá því kl. ellefu að kvöldi til sex að morgni. Löng ferðalög era það erfíðasta sem hugsast getur þann- ig að ég var hræddur fyrir leikinn um að þreytan sæti í mönnum. En strákamir vora svo ákveðnir í að láta mótlætið ekki fara í taug- amar á sér að þeir stóðu sig eins og hetjur. Árangur þeirra var frá- bær miðað við allar aðstæður." Þú segist aldrei gagnrýna dóm- ara, en gast samt ekki stillt þig um að ræða örlítið um Sovét- manninn sem dæmdi leikinn ytra á blaðamannafundi á dög- unum. „Já, í sannleika sagt þá var hann hræðilegur. Hann var greinilega mættur þama til að sýna Austur- Þjóðverjum að hann væri þeim hliðhollur. Hann hélt að fólkið á áhorfendapöllunum hefði komið á völlinn til að sjá sig dæma. Mínir menn fengu fimm gul spjöld og þar af var aðeins eitt sanngjarnt að mínu mati.“ Fyrir leik og í leikhléi færðu Aust- ur-Þjóðverjamir dómaranum blómvönd, og er hann gekk af velli í leikhléinu sýndi hann listir sínar í því að halda boltanum á lofti. Valsmenn vora ekki ýkja hrifnir af sýndarmennsku hans. í framhaldi minntist Ross á íslenska dómara. „Mér fannst þeir mjög góðir í sumar. Þeir era allt- af að verða betri og betri. Við spiluðum 24 leiki í sumar og ég held að í einum þeirra hafí mér fundist dómarinn standa sig illa. Og hvað með það, þeir geta auð- vitað átt slæma daga eins og leikmenn og við því er ekkert að gera.“ Valur var prúðasta liðið fjórða árið í röð í sumar; hefur sem sagt verið það öll árin sem Ross hefur verið við sljóm- völinn. Hveraig stendur á þessu? „Valur var með óprúðmannleg- asta liðið hvað spjöld varðar áður en ég kom hingað. Ég þoli ekki grófan leik, heldur ekki röfl í dóm- uram. Við þörfnumst þeirra til að leikurinn geti gengið og þeir hafa alveg jafn gaman af knattspymu og við. Þeir era með til að sjá um að farið sé eftir leikreglunum og því eigum við ekki að gera þeim erfítt fyrir. Þetta sagði ég strák- unum og þeir fóra eftir því. Þeir röfla ekki í dómuram, mótmæla ekki því sem þeir gera — og það kom einmitt vel í leiknum í Aust- ur—Þýsksalandi, það var sama hvað dómarinn gerði, þeir urðu bara ákveðnari að standa sig.“ Þá er það leikurinn á miðviku- daginn. Hvemig lýst þér á hann? „Við bökkuðum í leiknum úti, lögðum áherslu á að fá ekki á okkur mark. Lékum með einn framlínumann og fímm á miðj- unni. Ég breyti ekki oft liðinu, en varð að leika varlega þama úti. Ég reikna með að gera eina breyt- ingu á liðinu fyrir seinni leikinn — spumingin er sú hvort við beit- um svipaðri leikaðferð og úti, eða hvort við sækjum á þá. Við vitum að þeir geta sótt, en við vitum ekki hve sterkir þeir era í vöm- inni. Hví skyldum við ekki leika þannig á móti þeim að við fáum úr því skorið hvort þeir geti va- rist!?“ KNATTSPYRNA Drengjaliðið valið fyrir Svíaleikinn DRENGJALANDSLIÐ íslands leikur fyrri leik sinn gegn Svfum í Evrópukeppninni í knattspyrnu á Valbjarnarvelll á miðvikudag. Leikurínn hefst kl. 12.00. Svfar eru núverandi Norður- landameistarar í þessum aldursflokki. Láras Loftsson, þjálfari liðsins, hefur valið eftir- talda 16 leikmenn vegna leiksins; Markverðir: Vilberg Sverrisson Fram Ólafur Pétureson lBK Aðrir ieikmonn: Amar Grétareson UBK Axel Vatnsdal ÞórAk. Halldór Kjartansson UBK Huginn Helgason Týr Ve. Karl Karlsson KA Kjartan Gunnareson Selfossi Nökkvi Sveinsson Týr Ve. RfkharðurDaðason Fram Sigurður Sigureteinsson IA SteinarGuðgeirsson Fram ValgeirG. Reynisson Selfossi VilhjálmurVillýálmsson Fram Þorsteinn Bender Fram Þoreteinn Þoreteinsson KR Dómari leiksins kemur frá Lux- emborg en línuverðir verða íslenskir. Aðgangur er ókeypis og era framhaldsskólanemar boðnir sértaklega. HANDKNATTLEIKUR / FRÆÐSLUMAL Þjálfaranámskeið hjá HSÍ FRÆÐSLUNEFND HSÍ verður með tvö B-stigs námskeið fyrir þjáifara á nœstunni og eins verða haidnir fræðslufundir fyrir þjálfara yngri flokkanna. Fyrra námskeiðið hefst í fundar- sal ÍSÍ { Laugardal klukkan 18 fimmtudaginn 8. október og stend- ur fram á sunnudagskvöld (40 tímar). Seinna námskeiðið verður á Akureyri 19.-22. nóvember. Á síðasta ársþingi HSÍ var eftirfar- andi tillaga samþykkt: „Allir keppnisflokkar skulu hafa þjálfara og/ eða liðsstjéra í leikjum á vegum HSÍ og skal viðkomandi hafa lokið B-stigi þjálfaramennt- unar. Þjálfarar meistaraflokka skulu hafa lokið D-stigi þjálfaramenntunar. Ákvœði þetta komi til framkvæmda á leiktímabilinu 1988-89“. Rétt til þátttöku á námskeiðunum hafa allir, sem lokið hafa A-stiginu, þjálfarar og leikmenn með margra ára þjálfarareynslu (mat fræðslu- nefndar) og íþróttakennarar. Þar sem gera má ráð fyrir mikilli þátt- töku verður valið úr umsóknum, því ijöldi verður takmarkaður. Þátttökutilkynningar á fyrra nám- skeiðið ásamt 1.000 kr. staðfesting: argjaldi skulu berast skrifstofu HSÍ ekki síðar en mánudaginn 5. októ- ber, en Haraldur M. Sigurðsson á Akureyri tekur við þátttökutilkynn- ingum á það seinna til 14. nóvem- ber. Allar nánari upplýsingar fást á skrifstofu HSÍ. Þjálfaranámskeið Fræðslunefndin verður með fundi og sýnikennslu í sal fyrir þjálfara í lok þesarar viku og byijun þeirrar næstu. Farið verður yfír þau atriði, sem era þýðingarmest í unglinga- þjálfun og varða hvem aldursflokk, en einnig verður lögð áhersla á meðferð meiðsla, leikreglur og sér- þjálfun leikmanna. 1. október hefst fundur fyrir þjálf- ara 5. og 6. flokks karla og 4. flokks kvenna. Bytjað verður klukkan 19:30 í fundarsal ÍSÍ og síðan í Laugardalshöll klukkan 21. 5. októ- ber klukkan 19:30 hefst fundur í Digranesi fyrir þjálfara 4. flokks karla og 3. fíokks kvenna og daginn eftir á sama stað og tíma fyrir þjálf- ara 3. flokks karla og 2. flokks kvenna.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.