Morgunblaðið - 29.09.1987, Side 8

Morgunblaðið - 29.09.1987, Side 8
8 B fllorflunÞlatiið /IÞROTTIR ÞRIÐJUDAGUR 29. SEPTEMBER 1987 G U N N A R H A F D A L GLEYMIOLLU ÞEGAR JEPPINN STEKKUR ffOSKRANDI“ AFSTAÐ - segirsjómaðurinn og Skagstrendingurinn Gunnar Hafdal, nýbakaður Islandsmeistari ítorfæruakstri „ÁÐUR en ég legg af stað finnst mér brautirnar von- lausar, nánast ókleifar með öllu. En þegar ég hef sett í gír og spennt á mig beltin, þá hverfa áhyggjurnar. Ég ætla mér í gegnum þrautirn- ar, hvað sem það kostar." Svo mælti nýbakaður íslands- meistari óbreyttra jeppa í torfæruakstri, Skagstrend- ingurinn Gunnar Hafdal, í samtali við Morgunblaðið. Hann innsiglaði Islands- meistaratitilinn með sigri í torfærukeppni á Akureyri í síðustu viku, ók Willys-jeppa að venju, rauðum vinnuþjarki, sem unnið hefur fjögur mót af fimm sem giltu til Islands- meistara. Gunnlaugur Rögnvaldsson skrifar Keppnin á Akureyri var í slak- ara lagi, þrautimar alltof léttar, færar fyrir fjórhóladrifna fólksbíla og ekki samboðnar jeppnum! Það þurfti lítið að taka á, en var engu að síður gaman að vinna,“ sagði Gunnar. „Þrautimar voru það léttar að margir vom jafnir fyrir þá síðustu, sem var tímabraut. Við fengum tvær tilraunir og í þeirri fyrri mistókst mér, jeppinn fór aðeins útúr brautinni og ég tapaði tíma. Ifyrir seinni tilraun- ina ákvað ég að hafa jeppann í sama gír alla leið og halda bara fast um stýrið. Það tókst og ég náði besta tímanum og vann.“ Virðist verða meiri gróska á næstaári „Torfærumótin i sumar hafa verið góð, nema þetta síðasta og svo á Hellu. Það virðist ætla að verða meiri gróska í þessu á næsta ári, margir sérútbúnir bílar eru í smíðum og góð svæði em víða um land, meðal annars á Egils- stöðum, sem nota mætti. Það er mjög mikill jeppaáhugi hérlendis, enda sjá torfærir vegir og misjafnt veðurfar fyrir því að þessi farar- tæki em nauðsyn. Þessi áhugi skilar sér í formi áhorfenda á tor- fæmmótum, sem alltaf hafa verið vinsæl. En það hefur verið lægð í þessu undanfarinn ár, jeppamir slakir og mót misjöfn að gæðum. Það virðist hinsvegar vera að vakna fólk í öllum landshlutum, sem vill starfa að og sjá hamagang jep- panna á heimaslóðum. Jeppaá- hugamenn gera líka mikið af því að reyna með sér í fjallaferðum sumar sem vetur og metingurinn verður oft skynseminni sterkara. Margar ferðir hafa endað með ósköpum. I torfærumótum geta menn reynt með sér og hafa þá útbúnað og aðstoðarfól til að’ bjarga sér ef illa fer.Ólafsvíkingar voru í sumar með mjög skemmti- lega braut, sem reyndi á ökuleikn- ina. Þar lenti ég í öðru sæti, hafði lent í vandræðum með bilaða öxla. I tímahraki náði ég að gera við jeppann, fór í tímabrautina en vissi varla hvað ég var að gera. Og keppninni tapaði ég með 10 stigum. I öðrum mótum hefur dæmið gengið upp.“ Sniðgeng fólk til aö geta einbeitt mór „Ég er mjög ánægður með tíma- bilið. Upphaflega ætlaði ég bara að prófa þetta, það voru engir peningar til, en ég fékk gott fólk ti'. aðstoðar. Ég keppti í þremur mótum í fyrra og tókst þá að vinna einu sinni. Þegar ég kom til Akur- eyrar í ár var ég þegar búinn að tryggja mér Islandsmeistaratitil- inn og langaði jafnvel að keppa við Guðbjörn Grímsson í flokki sérútbúinna jeppa, en það vantaði dekk. Jeppinn minn er alveg sam- bærilegur við sérútbúna bíla, nema hvað skófludekkin vantar. Svo er líka meiri þátttaka í hinum flokknum og sigurinn því meiri, það voru 11 keppendur á Akur- eyri í óbreytta flokknum." Sumir vilja aö ég só grimmari í akstri „Ég tel að árangur í torfæru- akstri byggist 80% upp á ökumanninum og 20% á keppnis- bílnum. Það er stutt milli þess að vel gangi og allt fari í handaskol. Það þýðir ekki að hafa góðan jeppa og þora síðan ekki að beita honum. Sumir hafa viljað mig grimmari í akstri, en eins og stað- an er núna reyndist engin þörf á því. Það er varla á bætandi. Í keppni er ég hundfúll, eða svo telja margir. Ég vil helst ekki tala við neinn, ansa út í loftið og sniðgeng jafnvel fólk til að fá frið. Þá er ég bara að einbeita mér að næstu þraut. Ég er því voðalega stressaður, en það gleymist um leið og þrautirnar heíjast. Ég fengi því engin skemmtanaverð- laun í keppni..." Gunnar er sjómaður á 8 tonna trillu og á því stutt að sækja þrautseigju og hörku, sem þarf til að ná .árangri í akstursíþrótt- um. „Mér líkar vel á sjónum, við erum að fara á línuveiðar í vetur. Eini gallinn er sá að vegna sjó- mennskunnar gefst lítill tmi til að æfa sig eða leika sér á jeppan- um. Hins vegar nota ég hann sem fjölskyldubíl, þegar ég er heima, þannig að maður hefur taugar til hans. Jeppinn er með öryggis- búri, sem ég tel að allir jeppar og blæjubílar á götunum ættu að hafa, hvort sem menn keppa á þeim eða ekki. Veltigrindumar eru ekki nóg og gefa falska örygg- istilfinningu. Það er sérstaklega mikilvægt að hafa góðan öryggis- búnað í ferðalögum upp um fjöll og fimindi. Ég sé fram á nokkrar ferðir í vetur ásamt fólki hérna á Skagaströnd og frá Blönduósi. Það hefur vaknað mikill áhugi á jeppamennsku hér í sumar.“ Jeppinn er orðinn hluti af sjálfum mér“ Gunnar dreymir um að smíða sér- útbúinn jeppa fyrir næsta ár, hvað sem verður. „Mig langar að smíða Jeepster jeppa, þeir em mun stöð- ugri en Willys. Það er hins vegar Áöur en 6g legg af stað finnst mér þrautimar ókleifar með öllu — en kominn af stað keppninni á Hellu. Stressið gleymist fljótt Morgunblaöiö/1 ,Ég er voðalega stressaður, en það gleymist um leið og þrautimar hefjast," segir Gunnar Hafdal. Hér æðir hann yfir eina him keppninni í sumar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.